Morgunblaðið - 02.09.2021, Side 36

Morgunblaðið - 02.09.2021, Side 36
36 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021 Hversu lengi sam- þykkir þjóðin að búa við stjórnarhætti sí- felldrar undantekn- ingar; undantekn- ingar frá lýðræði, frelsi og mannrétt- indum, sem upp- haflega var gripið til vegna neyðar og óvissu, en verður ekki réttlætt lengur? Vatnaskil Síðsumars varð grundvall- arbreyting í Covid-baráttunni. Þá var þjóðin fullbólusett og nýtt „eðlilegt ástand“ skapaðist, vænt- anlega til frambúðar. Danir hafa nú aflétt öllum takmörkunum vegna faraldursins með þeim orð- um að eftir bólusetningu sé sam- félagslegi kostnaðurinn við lokanir meiri en af yfirferð faraldursins. Sjá má í útlínur nýs eðlilegs ástands, þar sem faraldurinn geng- ur aftur og aftur yfir í nýjum af- brigðum, en síendurteknar bólu- setningar með sínýjum bóluefnum draga úr alvarleika veikinda. Þá eru komin fram lyf sem milda veikindin. Undantekningin verður regla Við þessi vatnaskil hvarf réttlætingin fyr- ir undantekningunni. Ef íslensk stjórnvöld ætla að framlengja hömlur á frelsi og stjórna áfram með al- ræðisaðferðum þá hef- ur undantekningin orðið að reglu sem vandséð er við hvaða skilyrði verður felld. Þessu hafa fræðimenn líkt við þróunina í Þýskalandi upp úr 1933 þegar Hitler lýsti yfir ástandi und- antekningar sem síðan stóð í tólf ár, án þess að hann ógilti Weimar- stjórnarskrána formlega, en afnam í raun öll ákvæði hennar um frelsi, mannréttindi og stjórnarhætti skil- merkilega (byggt á Agamben, 2021). Meðferð valds Valdhafar verja fyrst og síðast völd sín, þótt líf og heilsa almenn- ings kunni að vera þeim hugstæð, sérstaklega þó þegar þessi atriði styðja hvort annað. Því hefur rík- isstjórn Íslands beitt heilsuterror og tæknitrúarbrögðum til að und- irbyggja stuðning við hið nýja stjórnkerfi. Í múgæsingu nýju trúarbragðanna krefst almenn- ingur meiri takmarkana og fagnar tilkomu alræðis framkvæmd- arvaldsins sem tilkynnir reglulega hvaða réttindi eru tekin af fólk og ríkið heldur kerfinu uppi með lög- regluvaldi og afnámi á réttinum til einkalífs. Þetta ástand, sem virðist vera að brotna upp, hefur verið viðvarandi víðast hvar og setur framtíðs vest- ræns lýðræðis í uppnám. Veruleg hætta er á að ekki verði snúið að öllu leyti til baka. Heilbrigðisráðherra er ábyrgur fyrir þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið og honum ber sem framkvæmdarvaldi að fara eftir stjórnsýslureglum; flestar hafa þær þó verið brotnar. Í þessu efni mæta stjórnvöld oftast sjálfum sér; ef úrlausn hefur byggst á villandi forsendum verður í framhaldinu erfitt að taka á andstæðum eða hliðstæðum málum. Baráttan við faraldurinn er langhlaup, en að- gerðirnar voru og eru skamm- tímalausnir í falskri von um að fyrra ástand komi aftur. Líta hefði mátt til hófstilltrar valdbeitingar Svía. Skyldur til heilbrigðisþjónustu Ríkinu ber að veita íbúum heil- brigðisþjónustu og gildir þá einu hvort harðir sjúkdómar ganga yfir eða ekki. Það hefur ríkið gert í meira en öld. En Landspítalinn neitar að þjóna almenningi vegna Covid-19; læknar hans koma reglu- lega í fjölmiðla og segjast hvorki geta né vilja þjóna vegna farald- ursins. Ef við ræðum málið ekki sem uppreisn og minnumst ekki á kúg- unaraðstöðu Landspítalans gagn- vart ríkinu, þá berast böndin aftur að ábyrgð heilbrigðisráðherra. Hann á að sjá til þess að þjónusta sé til staðar í því umfangi sem sjúkdómar og aðstæður kalla á og hefur í þessu máli haft hálft annað ár til stofna afkastamikla sótt- varnadeild, helst utan Landspít- alans til að dreifa sýkingaráhættu og af fyrrgreindum ástæðum. Það hefur ráðherrann ekki gert og van- ræksla hans er á þeim skala að honum ber að víkja. Þetta þykja hörð orð, jafnvel þegar árangri stjórnmálamanns er stórlega áfátt, en nútímaþjóðfélag án viðeigandi framboðs á heilbrigðisþjónustu fær ekki staðist. Önnur atriði Hér verður fjármálahlið málsins ekki reifuð svo sem skyldur rík- isstjórnarinnar til að brauðfæða þjóðina, halda uppi atvinnu og tekjustigi allra aðila og þá einnig að hafa opin landamæri séu það forsendur tekjuöflunar þjóðar hennar. Óbólusettir eru orðnir „hinir lík- þráu“ á Vesturlöndum og njóta ekki mannréttinda og eiga ekki að gera það samkvæmt sumum ráð- gjöfum ríkisstjórnarinnar. Alvarleg brot á sjálfsákvörðunarréttinum virðast fram undan og er þetta meðferð á fólki sem engan hefði órað fyrir. Tölfræðingar hafa notað hvert tækifæri til að sveigja niðurstöður aðheilsuterrornum. Eldra fólk sem áður dó vegna elli og sjúkdóma en féll að lokum frá vegna lungna- bólgu deyr nú eðlilega úr Covid-19. Enginn bar þó áður fram tölfræði lungnabólgunnar. Við yfirferð far- aldursins í Svíþjóð hafa ekki fleiri dáið en í meðalári. Lokaorð Mikilvægt er að gera upp tíma- bil undantekningarinnar. Þó er ljóst að samfélagslegi kostnaðurinn verður lengi að koma fram, ofbeld- ið á heimilunum sem rekja má til lokunar bara, sem er kannski ógeðfelldasta og hæsta kaupverð undantekningarinnar, gæti komið fram þegar þolendurnir verða komnir yfir miðjan aldur. Reikna má með að núverandi ríkisstjórn fái slæma útreið þegar frá líður, þótt hún hafi skákað með vinsældir sínar allt kjörtímabilið í skjóli ofsahræðslu almennings, og hún lifi jafnvel af komandi kosn- ingar með sama móti. Eftir Hauk Arnþórsson »Ríkisstjórninni ber að tryggja frelsi, mannréttindi og rétta stjórnskipan, veita læknisþjónustu, verja minnihlutann – og tryggja afkomu þjóð- félagsins Haukur Arnþórsson Höfundur er stjórnsýslufræðingur. haukura@haukura.is. Undantekningin og reglan Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.