Morgunblaðið - 02.09.2021, Síða 40

Morgunblaðið - 02.09.2021, Síða 40
Sportleg Penelope Cruz var með Boy bag frá Chanel sem passaði einstaklega vel við dressið sem er frá sama merki. Penelope Cruz sportaði sig um í Chanel-fötum í Feneyjum í vik- unni. Þar er enn þá sól og sumar og því hægt að klæðast opnum skóm og stuttum pilsum. Marta María mm@mbl.is Alþjóðlega kvikmyndahá- tíðin í Feneyjum er haldin í 78. skipti um þessar mund- ir. Þótt það sé að hausta í Reykjavík og nærsveitum þá er enn þá sumar á Ítalíu eins og sést á einni skær- ustu stjörnu hátíðarinnar, Penelope Cruz. Hún klædd- ist fatnaði frá Chanel á há- tíðinni sem samanstóð af hvítu stuttu pilsi, hvítum bol og hvítum jakka með bláum kraga, bláu stroffi á ermum og bláu fóðri. Við dragtina var hún með hvítan Boy bag frá Chanel og í hvítum sandölum við. Leikkonan kemur vel und- an sumri með örlitlar stríp- ur í endunum á hárinu og nokkuð ánægð með lífið ef marka má myndirnar. Rautt naglalakk setur punktinn yfir i-ið! AFP Chanel fyrir allan peninginn í Feneyjum Sumar og sól Í Feneyjum er hægt að klæðast stuttum pils- um eins og Penelope Cruz sann- reyndi í vik- unni klædd Chanel frá toppi til táar. Kögur og meira kögur Spænska leikkonan Penelope Cruz er hér í Chanel frá toppi til táar. Hér er hún ásamt leikkon- unni Milena Smit. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021 Bætt hreinlæti í nýjum heimi Fáðu ráðgjöf fyrir þitt fyrirtæki www.hreint.is s: 589 5000 hreint@hreint.is Línan er sérhönnuð fyrir fólk sem er 35 ára eða eldra. Í línunni er blanda af mólekúlum sem inni- halda sérvaldar rósir sem eru sér- lega góðar fyrir andlitið. Línan er umhverfisvæn að því leytinu til að hægt er að kaupa fyllingar á 60 ml krukkurnar í stað þess að kaupa alltaf nýja og nýja krukku. Lífsstíll getur haft mikil áhrif á öldrun í húð. Þættir eins og steita, mengun, sól, of lítill svefn og áfengisnotkun eru helstu óvinir húðarinnar ef fólk vill halda í æskuljóma sinn. Þótt Absolue- línan sé góð þá getur hún ein og sér ekki reddað málunum. Ef fólk er úttaugað af álagi, lætur aldrei renna af sér og steikir á sér and- litið í ljósabekkjum eða úti í sól- inni þá getur krem eða serum ekki breitt yfir. En það hjálpar þeim sem hugsa þokkalega um sig. Í línunni er soft cream sem smýgur inn í húðina og gerir það að verkum að virku innihaldsefnin gera gagn. Áferðin er flauelskennd og umvefjandi. Absolue Oleo Serum inniheldur ríkulegt magn af Grand Rose Extract. Það er einnig ríkt af endurnýjandi olíum eins og sítrusolíu og camellia-olíu sem næra og gefa fallegan ljóma. Augnkremið í línunni er líka sérlega gott. Það gerir hrukkur minna sjáanlegar og augnsvæðið mýkra og sléttara. Best er að nota augnkremið bæði á morgnana og á kvöldin. Mýkri og sléttari Á þessum árstíma er ekki úr vegi að huga að húð- inni. Hvernig ætlum við að hugsa um hana í vetur? Ef þú vilt fara vel með þig þá er Absolue-línan frá Lancôme einstök á margan hátt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.