Morgunblaðið - 02.09.2021, Síða 54
54 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021
Meistaradeild kvenna
2. umferð, fyrri leikir:
Vålerenga – Häcken................................ 1:3
- Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik-
inn með Vålerenga. Amanda Andradóttir
kom inn á sem varamaður á 76. mínútu.
- Diljá Ýr Zomers kom inn á sem vara-
maður á 68. mínútu hjá Häcken.
Levante – Lyon ........................................ 1:2
- Sara Björk Gunnarsdóttir er barnshaf-
andi og lék ekki með Lyon.
Wolfsburg – Bordeaux............................ 3:2
- Svava Rós Guðmundsdóttir kom inn á
sem varamaður hjá Bordeaux á 65. mínútu.
Osijek – Breiðablik................................... 1:1
Sparta Prag – Köge.................................. 0:1
Vllaznia – Juventus .................................. 0:2
Servette – Glasgow City .......................... 1:1
Undankeppni HM karla
A-RIÐILL:
Lúxemborg – Aserbaídsjan..................... 2:1
Portúgal – Írland...................................... 2:1
Staðan:
Portúgal 10, Serbía 7, Lúxemborg 6, Írland
0, Aserbaídsjan 0.
D-RIÐILL:
Kasakstan – Úkraína ............................... 2:2
Frakkland – Bosnía.................................. 1:1
Staðan:
Frakkland 8, Úkraína 4, Finnland 2, Bosnía
2, Kasakstan 2.
F-RIÐILL:
Danmörk – Skotland ................................ 2:0
Færeyjar – Ísrael ..................................... 0:4
Moldóva – Austurríki ............................... 0:2
Staðan:
Danmörk 12, Ísrael 7, Austurríki 7, Skot-
land 5, Færeyjar 1, Moldóva 1.
G-RIÐILL:
Lettland – Gíbraltar................................. 3:1
Noregur – Holland ................................... 1:1
Tyrkland – Svartfjallaland ...................... 2:2
Staðan:
Tyrkland 8, Holland 7, Svartfjallaland 7,
Noregur 7, Lettland 4, Gíbraltar 0.
H-RIÐILL:
Malta – Kýpur........................................... 3:0
Rússland – Króatía................................... 0:0
Slóvenía – Slóvakía................................... 1:1
Staðan:
Króatía 7, Rússland 7, Slóvakía 6, Slóvenía
4, Malta 4, Kýpur 4.
J-RIÐILL:
Leikir í kvöld:
18.45 Ísland – Króatía
18.45 Liechtenstein – Þýskaland
18.45 N-Makedónía – Armenía
Staðan:
Armenía 3 3 0 0 6:2 9
N-Makedónía 3 2 0 1 9:4 6
Þýskaland 3 2 0 1 5:2 6
Rúmenía 3 1 0 2 5:6 3
Ísland 3 1 0 2 4:6 3
Liechtenstein 3 0 0 3 1:10 0
Vináttulandsleikir karla
Finnland – Wales...................................... 0:0
Sviss – Grikkland ..................................... 2:1
Katar – Serbía .......................................... 0:4
Danmörk
Bikarkeppnin, 2. umferð:
Roskilde – OB........................................... 1:2
- Aron Elís Þrándarson lék allan leikinn
með OB.
Hilleröd – SönderjyskE .......................... 0:5
- Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á
sem varamaður hjá SönderjyskE á 46. mín-
útu.
Tårnby – Lyngby ..................................... 1:5
- Frederik Schram varði mark Lyngby,
Sævar Atli Magnússon var ekki í hóp.
Freyr Alexandersson þjálfar liðið.
>;(//24)3;(
Danmörk
GOG – Ribe-Esbjerg............................ 21:24
- Viktor Gísli Hallgrímsson varði tvö skot í
marki GOG.
Sviss
Wacker Thun – Kadetten ................... 21:24
- Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten.
E(;R&:=/D
KNATTSPYRNA
Undankeppni HM karla:
Laugardalsv. Ísland – Rúmenía.......... 18.45
Í KVÖLD!
Í TÓKÝÓ
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Kári Jónsson, yfirmaður frjáls-
íþróttamála hjá Íþróttasambandi Ís-
lands, segir að það sé raunsætt
markmið að fara með helmingi fleira
frjálsíþróttafólk á Ólympíumót fatl-
aðra í París árið
2024 en keppti á
mótinu sem nú
stendur yfir í
Tókýó.
Bergrún Ósk
Aðalsteinsdóttir
varð sjöunda í
kúluvarpi og átt-
unda í langstökki
í flokki hreyfi-
hamlaðra og Pat-
rekur Andrés Axelsson varð sjöundi
í 400 metra hlaupi í flokki blindra en
þau kepptu í sínum greinum um
helgina.
„Þau Bergrún og Patrekur eru
bæði ný á þessu alþjóðasviði og við
erum með fleiri keppendur sem voru
mjög nálægt því að fá keppnisrétt
hérna. Þrjár stúlkur í viðbót náðu
lágmörkum en þegar heimslistinn
bættist við misstu þær naumlega af
því. Það munaði rosalega litlu að við
værum fleiri. Við vonumst til þess að
þessi hópur verði mjög öflugur og
við verðum örugglega með fleiri eftir
þrjú ár,“ sagði Kári þegar Morgun-
blaðið ræddi við hann í Tókýó.
Góð staða gagnvart
Norðurlandaþjóðunum
„Það er raunsætt mat að við get-
um farið með fjóra keppendur til
Parísar en það er áhugavert að horfa
til hinna norrænu landanna sem
hafa verið að ströggla. Svíar eru með
svipaðan fjölda keppenda og við, þó
þeir séu svona mikið fjölmennari, og
Norðmenn eru með örlítið fleiri en
við. Meira að segja Finnar eru í
vandræðum. Við erum að gera góða
hluti og ef við förum með þrjá eða
fjóra erum við strax komin fram úr
hinum Norðurlandaþjóðunum.
Við erum mjög ánægð með
frammistöðuna hjá Bergrúnu og
Patreki. Hér í Tókýó horfum við á
heimsmetin og ólympíumetin falla
hvert á fætur öðru og stóru þjóð-
irnar hafa sett miklu meiri kraft í
þetta mót en við höfum áður séð.
Samkeppnin verður alltaf harðari og
harðari. Kínverjar eru orðnir mjög
áberandi, þeir hafa verið öflugir síð-
an þeir komu fyrst inn árið 2008.
Bandaríkjamenn hafa ekki blómstr-
að sérstaklega en keppnin er samt
miklu betri en áður. Við vorum að
horfa á kúluvarp í F20 kvenna og ég
hef bara aldrei séð svona keppni þar
sem sú sjöunda í röðinni kastaði yfir
13 metra. Hingað til hafa þær sem
hafa kastað 13 metra verið öruggar
á verðlaunapall. Þarna var sett
heimsmet og tvö álfumet. Svona er
þetta nánast í hverri grein.“
Þurfum atvinnuþjálfara
Kári segir hins vegar að til þess að
Ísland haldi í við stóru þjóðirnar og
geti haldið áfram að veita þeim
keppni þurfi margt að breytast.
„Við erum í áhugamennsku, við
erum ekki með atvinnuþjálfara og
getum bætt okkur heilmikið. Það er
ýmislegt hægt að gera ef við viljum
komast aftur nær því að vinna til
verðlauna á svona móti en þá verð-
um við að gefa aðeins í. Þjálfararnir
verða að vera meira til staðar og
vera í fullu starfi. Það er næsta
skref, þeir séu atvinnumenn en þurfi
ekki að vinna fulla vinnu og yfir-
vinnu til að geta sinnt þjálfuninni í
aukavinnu. Það dugar bara ekki eins
og samkeppnin er orðin.“
Æft í frosnum gámi
Kári sagði enn fremur að ýmsu
væri ábótavant þegar kæmi að um-
gjörðinni í kringum frjálsíþróttir á
Íslandi og ekki hefði ástandið batnað
þegar gripið var til aðgerða gagn-
vart kórónuveirunni.
„Ýmislegt hefur bjátað á. Laugar-
dalsvöllurinn hefur verið ónýtur í
þrjú ár og okkur var hent út úr
frjálsíþróttaaðstöðunni í Laugar-
dalshöll í vetur. Er öllum sama? Er
samt ætlast til þess að ná árangri?
Okkur er hent út úr höllinni og hent
út af vellinum og sagt að éta bara
það sem úti frýs. Við reyndum að
gera okkar besta og vorum í vetur
með lyftingaæfingar í óupphituðum
og frosnum gámi á kastsvæðinu í
Laugardal.
Á meðan létu til dæmis Ítalir allt
sitt frjálsíþróttafólk æfa áfram og
gerðu það kleift með breyttri að-
stöðu og sótthreinsun. Þannig hugsa
þeir sem vilja ná árangri. Hérna var
fyrsta hugsunin sú að það væri bara
einfaldast að henda okkur út og gefa
öllum frí. Ætlast svo til þess að við
náum árangri. Það er algjörlega gal-
ið,“ sagði Kári Jónsson.
Með ónýtan
völl og hent
út úr höll
- Kári vonast eftir helmingi fleiri
Íslendingum í frjálsum í París 2024
Ljósmynd/ÍF
Frjálsíþróttir Patrekur Andrés Axelsson keppti í 400 m hlaupi blindra á
Ólympíumótinu í Tókýó ásamt aðstoðarhlaupara sínum Helga Björnssyni.
Kári Jónsson
Bandaríski sóknarmaðurinn
Brenna Lovera hefur skrifað undir
nýjan, tveggja ára samning við
knattspyrnudeild Selfoss. Lovera,
sem er 24 ára gömul, kom til liðs við
Selfoss í vor frá Boavista í Portúgal
og hefur staðið sig virkilega vel.
Hún er markahæst í úrvalsdeild-
inni, Pepsi Max-deildinni, í sumar
með 13 mörk í 14 leikjum. Alls á
hún að baki 23 leiki í efstu deild
með Selfossi og ÍBV þar sem hún
hefur skorað nítján mörk en Selfoss
er með 25 stig í fjórða sæti deild-
arinnar, stigi minna en Þróttur.
Sú markahæsta
áfram á Selfossi
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
13 Lovera, til vinstri, er markahæsti
leikmaður úrvalsdeildar kvenna.
Rúnar Páll Sigmundsson hefur ver-
ið ráðinn þjálfari karlaliðs Fylkis í
knattspyrnu og fær það hlutverk að
reyna að bjarga því frá falli úr úr-
valsdeildinni í þremur síðustu um-
ferðum hennar. Rúnar tekur við af
Atla Sveini Þórarinssyni og Ólafi
Stígssyni en þeim var sagt upp
störfum eftir ósigurinn gegn
Breiðabliki á dögunum, 0:7.
Fylkir er með 16 stig í ellefta og
næstneðsta sæti deildarinnar, stigi
minna en HK, en Rúnar þjálfaði
Stjörnuna samfellt frá 2014 áður en
hann hætti óvænt störfum í vor.
Rúnar Páll ráðinn
þjálfari Fylkis
Ljósmynd/Eyþór Árnason
Árbær Rúnar hefur verið ráðinn
þjálfari Fylkis út keppnistímabilið.
Víðir Sigurðsson í Tókýó
vs@mbl.is
Arna Sigríður Albertsdóttir hefur
þegar sett stefnuna á að komast aft-
ur á Ólympíumót fatlaðra eftir þrjú
ár, þegar það verður haldið í París.
Hún lauk keppni á Fuji-
kappakstursbrautinni í gær þar sem
hún keppti í handahjólreiðum tvo
daga í röð. Niðurstaðan varð fimm-
tánda sæti af sextán sem hófu
keppni í 27 km götuhjólreiðum.
Arna á talsvert í land með að veita
þeim bestu í íþróttinni keppni en
hún hefur tímann fyrir sér. Arna er
31 árs en í þessari úthaldsíþrótt eru
þær bestu á fimmtugs- og jafnvel
sextugsaldri. Í gær var það Jennette
Jansen, 53 ára hollensk kona, sem
sigraði, Annika Zeyen, 36 ára Þjóð-
verji fékk silfur og Alicia Dana, 52
ára bandarísk kona, fékk bronsið.
Arna sagði við Morgunblaðið eftir
keppnina að hún stefndi ótrauð á að
komast á Ólympíumótið í París árið
2024 og vonaðist til þess að þátttaka
sín í þessu móti yrði til þess að auka
athygli og áhuga á hjólreiðum fatl-
aðra á Íslandi. Frásögn af keppninni
og viðtal við Örnu er að finna á Ól-
ympíuvef mbl.is.
Ljósmynd/ÍF
Japan Arna Sigríður Albertsdóttir á fullri ferð í götuhjólreiðakeppninni
á Fuji-kappakstursbrautinni í gær en það var seinni keppni hennar.
Vonast eftir
aukinni þátttöku
- Arna hefur sett stefnuna á París
Lúkas Logi Heimisson, 18 ára gam-
all knattspyrnumaður Fjölnis, hefur
verið lánaður til Empoli á Ítalíu í eitt
ár. Lúkas hefur leikið fjórtán leiki
með Fjölni í 1. deildinni í ár og skor-
að eitt mark en hann spilaði sex leiki
með liðinu í úrvalsdeildinni í fyrra.
Hann á að baki fimm leiki með yngri
landsliðum Íslands. Empoli er í 11.
sæti A-deildarinnar með 3 stig.
Úr Grafarvog-
inum til Ítalíu