Morgunblaðið - 02.09.2021, Síða 60
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes
www.gaeludyr.is
MEÐ SJÁLFBÆRNI
AÐ LEIÐARLJÓSI
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Listahátíð í Reykjavík verður haldin
dagana 1. til 19. júní og verður opn-
unarhelgin með glæsilegasta móti.
Búið er að svipta hulunni af tveimur
stórviðburðum
sem enginn ætti
að láta fram hjá
sér fara, annars
vegar sýningu
sviðslistamann-
eskjunnar Taylor
Mac og hins veg-
ar tónleikum með
söngkonunni og
hljómsveitar-
stjóranum Bar-
böru Hannigan.
Listahátíð hefur, í samstarfi við
Þjóðleikhúsið, boðið til landsins
Taylor Mac sem Vigdís Jakobsdóttir,
listrænn stjórnandi hátíðarinnar,
segir vera sviðslista-, tónlistar- og
draglistamanneskju frá Bandaríkj-
unum. Mac skilgreinir sig hvorki
sem karlkyns né kvenkyns, né held-
ur kynsegin, og notast við persónu-
fornafnið judy. Taylor Mac sló í gegn
fyrir örfáum árum með tuttugu og
fjögurra tíma listgjörningi sem ber
titilinn A 24 Decade History of Popul-
ar Music og munu íslenskir gestir fá
að sjá brot úr því verki auk nýs efnis.
„Verk Taylor Mac eru ótrúleg
sjónræn veisla. Það er ofsalegur
íburður og glamúr í kringum þetta.
Eitthvað sem er stórt fyrir verður
enn stærra. Mac er samfélagsrýnir
og nálgunin er mjög pólitísk, en samt
pólitísk á mjög skemmtilegan og
hjartnæman hátt. Saga Bandaríkj-
anna er eiginlega tekin í nefið í gegn-
um vinsæla tónlist og sett í sam-
félagslegan spegil út frá sjónarhorni
þeirra sem hefur, í gegnum tíðina,
verið sópað til hliðar,“ segir Vigdís.
Í krafti mennskunnar
„Allar sýningar Taylor Mac eru í
þessum ótrúlega fallega, mannlega
stíl. Það er verið að fagna mennsk-
unni. Mac opnar hjörtu áhorfenda.
Það er alveg ótrúlegasta fólk sem
lendir í því að það opnist einhverjar
gáttir sem hafa aldrei opnast áður
við það að fara á þessa sýningu. Mac
nær í gegn í krafti mennskunnar og
listarinnar og svo er þetta geggjaður
„performer“, ofboðslega sterkur
söngvari og grínisti.“ Þegar Mac
kemur, ásamt teymi sínu, í nýtt um-
hverfi á borð við Ísland er það skil-
yrði að í upphafi ferðar hitti þau
listamenn og fulltrúa úr því sam-
félagi og setjist niður með þeim.
Vigdís segir þau reyna að átta sig
á hvað er að gerast á Íslandi og á því
hvaða brennandi spurningar séu
áberandi í samfélagsumræðunni og
það nýtist síðan við gerð sýningar-
innar. „Það verður mjög áhugavert
að fá svona heimsklassa listamann-
eskju í þetta umhverfi okkar hér og
fá svona gestsaugað á hlutina. Það
verða íslensk „element“ inni í þessari
sýningu,“ segir hún en hún vill ekki
ljóstra upp meiru um það.
„Ég vona að sviðslistafólk og fólk
sem hefur áhuga á sviðslistum, og að
ég tali nú ekki um hinsegin menn-
ingu og pólitísku samtali og sam-
félagslegri umræðu, láti þetta ekki
fram hjá sér fara. En svo er þetta
líka bara frábær skemmtun fyrir
hvern sem er. Manni líður eins og
salur og svið renni saman án þess að
það sé verið að ögra áhorfendum
neitt. Mac skapar þannig andrúms-
loft. Fólk fer út með hlýtt í hjartanu.
Þetta er stórviðburður í svo mörgu
samhengi. Það er stórviðurburður
fyrir Þjóðleikhúsið að fá til sín mann-
eskju sem er núna á hátindinum í
sviðslistum,“ segir Vigdís og bætir
við að það sé stórkostlegt að eiga
listastofnanir á borð við Þjóðleik-
húsið í þessu litla samfélagi, sem
geta tekið á móti svona listafólki á
glæsilegan hátt. „Við gætum þetta
ekki án þessa sterka samstarfsaðila.
Það er stórkostlegt “
„Einstakur hæfileiki“
Listahátíð nýtur góðs af samstarfi
við fleiri stofnanir. Hinn gestur
Listahátíðar sem Vigdís segir frá að
þessu sinni er hin kanadíska Barbara
Hannigan sem mun koma fram með
Sinfóníuhljómsveit Íslands. Vigdís
segir það vera draum sem sé að ræt-
ast að fá til landsins þessa listakonu
sem kemur fram í öllum stærstu tón-
listarsölum og hátíðum um allan
heim. Hún er bæði sópransöngkona
og hljómsveitarstjóri og sameinar
þessi tvö hlutverk. Hún stýrir hljóm-
sveitinni en snýr sér síðan út í sal og
syngur. „Hún er eftirsóttur stjórn-
andi og svo er hún frábær söngkona
og nær að sameina þetta. Það er
algjörlega magnað og einstakur
hæfileiki. Ég held að þetta verði ein-
stök upplifun fyrir Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands að vinna með henni af
því þetta er svo sérstakt. Hún er víst
mjög vel liðin, það þykir skemmtilegt
að vinna með henni og svo er hún
stórglæsileg líka. Þetta er súper-
stjarna sem er alveg ótrúlega gaman
að geta haft á dagskrá Listahátíðar.“
Efnisskrá tónleikanna er ekki komin
á hreint en Vigdís segir að hún verði
aðgengileg, létt og leikandi.
Þema Listahátíðar er „Hinu-
megin“. „Í einfaldasta skilningi erum
við að leika okkur með „Hinumegin
við Covid“ en þetta fléttast inn í dag-
skrárgerðina á mjög fjölbreyttan
hátt,“ segir Vigdís. „Taylor Mac gef-
ur okkur sjónarhornið hinumegin frá
og setur okkur í raun hinumegin.“
Barbara Hannigan brýtur hins
vegar niður hin venjulegu skil milli
hljómsveitar og einleikara. „Hún
brúar bilið. Það er ekkert „hinu-
megin“ hjá henni. Hún hefur tögl og
hagldir á meðan hún „frontar“
þetta,“ segir Vigdís.
„Við verðum komin hinumegin við
Covid, þótt það verði ekki nema í
þeim skilningi að Covid sé búið að
breyta samfélaginu varanlega og
þessi hátíð verður eiginlega sér-
staklega glæsileg af því að við erum
að njóta tveggja hátíða í einu hvað
alþjóðlega hlutann varðar. Listahátíð
leggur áherslu á, nú sem fyrr, það
þar sem listgreinarnar mætast, þar
sem eitthvað óvænt gerist.“
Sýning Taylor Mac verður 1. og 2.
júní en tónleikar Barböru Hannigan
3. og 4. júní. Miðasala er hafin á báða
þessa viðburði. Dagskrá Lista-
hátíðar í heild sinni verður síðan
kynnt þegar líður á veturinn.
Ljósmynd/Little Fang
Stjarna Barbara Hannigan syngur einsöng og stjórnar hljómsveitinni.
„Ótrúleg sjón-
ræn veisla“
- Barbara Hannigan og Taylor Mac
koma fram á Listahátíð í Reykjavík
Vigdís
Jakobsdóttir
Glamúr „Allar
sýningar Taylor
Mac eru í þessum
ótrúlega fallega stíl.“