Morgunblaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Norðurljósin létu fyrst á sér kræla fyrir norðan í vikunni. Fréttaritari Morgunblaðsins á Húsavík, Hafþór Hreiðarsson, tók kynngimagnaðar myndir af ljós- unum sem lýstu upp himininn yfir Skjálfanda. Norðurljós sáust einnig yfir Reykjavík í vikunni en þau voru ekki sterk og dönsuðu aðeins í nokkrar mínútur áður en skýja- hulan faldi þau. Í vikunni gerir spá Veðurstofu Íslands ekki ráð fyrir mikilli virkni norðurljósa og skýjahula liggur yfir suðvesturhorninu en norðurljós gætu vel sést á öðrum hlutum landsins. Samkvæmt Stjörnufræðivefnum er algengast að norðurljós birtist milli klukkan 23 og eitt á kvöldin en geta þó sýnt sig fyrr og seinna á nóttunni. Sólin sest upp úr klukkan 20 á kvöldin um þessar mundir. sonja@mbl.is Skrautsýning yfir Skjálfanda þegar næturhiminninn lýstist upp Norður- ljósin dönsuðu Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ástæða þess hversu lítið vatn hefur verið í Hvaleyrarvatni í Hafnarfirði í sumar er að öllum líkindum sú að grunnvatnsstaðan á svæðinu er óvenjulág. Helsta orsök þess er tengd veðurfari á höfuðborgarsvæð- inu síðastliðið ár, lítilli úrkomu og að síðasti vetur var óvenjusnjóléttur. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Vatnaskilum sem falið var að leggja mat á hvaða skýringar væru á óvenjulágri vatnsstöðu í Hvaleyrar- vatni í sumar. Skýrslan var kynnt í umhverfis- og framkvæmdaráði Hafnarfjarðarbæjar í gær. Sam- þykkt var á fundinum að óska eftir kostnaðarmati á greiningu á grunn- vatni í upplandi Hafnarfjarðar til að auka þekkingu á vatnsbólinu í Kald- árbotnum, vatnsstöðu í Hvaleyrar- vatni og orsakir lágrar vatnsstöðu. Einnig kemur fram í skýrslunni að vatnsborð í öðrum stöðuvötnum, t.d. Rauðavatni, sé einnig óvenjulágt og grunnvatnshæð hafi mælst mjög lág í sögulegu samhengi í borholum í Heiðmörk. Tæki um 20 daga að lyfta vatns- borðinu um 10 sm með dælingu Hafnarfjarðarbær hefur í sumar látið dæla vatni út í Hvaleyrarvatn til að koma í veg fyrir að það þorni al- veg upp en fram kemur í skýrslunni að það hafi skilað litlum árangri. Botn vatnsins er ekki þéttur og því flæði vatn inn eða út úr vatninu eftir því hversu há grunnvatnshæð er við vatnið á hverjum tíma. Gera megi ráð fyrir að núverandi grunnvatns- hæð við Hvaleyrarvatn liggi að miklu leyti undir botni vatnsins og við þær aðstæður sé mjög erfitt að hækka vatnsborð með því að dæla vatni út í, það muni að mestu leka beint niður að grunnvatnsborðinu. Grunnvatnshæðin hafi verið það lág og farið stöðugt lækkandi að óraunhæft hafi verið að vinna það upp með dælingu. Flatarmál vatns- ins sé nærri 16 hektarar og fyrir hverja tíu lítra á sekúndu sem væru látnir renna í vatnið, tæki um 20 daga að lyfta vatnsborðinu um 10 sentimetra og að sama skapi tæki um 200 daga að lyfta vatnsborðinu um einn metra undir sömu kringum- stæðum. Megi því ætla að dæling vatns í Hvaleyrarvatn við aðstæður eins og í sumar stoði lítið. Í niðurstöðum segir enn fremur að möguleg tenging milli vinnslu úr vatnsbólum ofan Hvaleyrarvatns (Kaldárbotnum og Vatnsendakrik- um) og vatnsstöðu í Hvaleyrarvatni sé óviss, en ekki sé hægt að útiloka þann möguleika að vinnsla hafi ein- hver áhrif á vatnsstöðu í Hvaleyr- arvatni. Lág vatnsstaða vegna óvenjulegs veðurs Ljósmynd/Guðmundur Fylkisson Hvaleyrarvatn Talið er að vatnshæðin hækki þegar líður fram á haust. - Dæling vatns í Hvaleyrarvatn stoðar lítið til að lyfta vatnshæðinni segir í nýrri skýrslu Vatnaskila - Óvíst hvort tengsl eru milli vinnslu úr vatnsbólum ofan Hvaleyrarvatns og vatnsstöðu í vatninu Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ákveðið hefur verið að hverfa frá þeirri 100% hækkun á vanrækslu- gjaldinu sem lagt er á vegna óskoð- aðra ökutækja. Leggja átti þessa hækkun vanrækslugjaldsins á þá sem trassað hafa að færa ökutæki sín til skoðunar eða skrá þau úr um- ferð í meira en tvo mánuði frá því þeir fengu tilkynningu um upphaf- lega álagningu gjaldsins, en þeir máttu eiga von á 100% hækkun gjaldsins frá og með 7. september síðastliðnum. Hefði hækkunin að öll- um líkindum þegar náð til yfir eitt þúsund eigenda óskoðaðra öku- tækja. Samgönguráðuneytið birti nýja reglugerð 6. september þar sem horfið er frá þessari 100% hækkun gjaldsins sem tiltekin var í reglugerð um skoðun ökutækja sl. vor. Jónas B. Guðmundsson, sýslu- maður á Vestfjörðum, sem annast álagningu og innheimtu vanrækslu- gjalds fyrir landið allt, kvaðst í gær ekki hafa skýringar á af hverju ákveðið var að hætta við þessa hækkun gjaldsins. Ekki fengust heldur svör við því í samgönguráðu- neytinu í gær. Grunnfjárhæð vanrækslugjalds- ins var hækkuð með reglugerð um skoðun ökutækja sem tók gildi 1. maí eða úr 15 þúsund kr. í 20 þúsund kr. vegna allra flokka ökutækja annarra en stærri fólksflutningabíla, vöru- flutningabíla eða aftanívagna með heimilaðan farm yfir 3,5 tonn en gjaldið vegna þeirra hækkaði þá í 40.000 kr. Að sögn Jónasar hafa meira en þrjú þúsund eigendur ökutækja mátt sæta álagningu grunngjaldsins í hverjum mánuði frá því farið var að leggja vanrækslugjaldið á í byrjun júlí. Hætt hefur verið við 100% hækkun á vanrækslugjaldi - Hækkunin hefði náð til yfir þúsund óskoðaðra ökutækja Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bílar Grunnfjárhæð vanrækslu- gjaldsins mun haldast óbreytt. Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra . 595 1000 ar a. STÖKKTU á sl ík u. At h. At h. aðað ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va r 11. október í 7 nætur Verð frá kr. 79.900 a. GRANCANARIA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.