Morgunblaðið - 09.09.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021
Reglur um fjármál stjórn-
málaflokka hafa gert það að
verkum að þeir eru í senn orðnir
fjárhagslega veikburða og nær al-
gerlega háðir ríkinu um fjármögnun
starfsemi sinnar. Þetta er afar
óheppileg aðstaða svo ekki sé fastar
að orði kveðið.
- - -
Þetta er ekki að-
eins óheppilegt
vegna þess hve háðir
flokkarnir eru orðnir
ríkisstyrknum heldur
einnig vegna þess að
þeir eiga orðið erfitt
með að halda úti eðli-
legri starfsemi og
auglýsa stefnu sína og
störf.
- - -
Þetta verður enn
verra þegar
horft er til þess að á sama tíma stíga
aðrir ákveðið inn í tómarúmið sem
fjárvana flokkarnir skilja eftir sig.
- - -
Þarna eru verkalýðsfélög áber-
andi. Þau hafa áður blandað sér
í kosningabaráttu með vafasömum
hætti en gera það nú sem aldrei fyrr.
- - -
Hvert sem litið er á tölvuskjá eða
á ferli um höfuðborgarsvæðið
má til dæmis sjá auglýsingar ASÍ,
BSRB eða BHM þar sem kynnt eru
viðhorf sem ríma vel við stefnu
ákveðinna flokka.
- - -
Þetta hentar vinstri flokkunum
ágætlega og er bersýnilega
gert í þeim tilgangi, en ætli það geti
ekki verið að töluverður fjöldi
þeirra sem nauðbeygðir inna af
hendi gjöld til þessara félaga vilji
styðja aðra flokka og greiði þeim at-
kvæði sitt?
- - -
Ætli því fólki þyki eðlilegt að
greiða fyrir slíka misnotkun?
Misnotkun í
kosningabaráttu
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Tveir karlmenn hafa verið ákærðir
fyrir sérstaklega hættulega líkams-
árás í október í fyrra í Reykjavík
þar sem þeir veittust hvor að öðr-
um. Annar maðurinn sló hinn í höf-
uðið með glerglasi og síðan kreppt-
um hnefa. Hinn svaraði fyrir sig
með því að stinga manninn í bakið
með borðhníf.
Stakk karlmann í
bakið með borðhníf
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar
hefur ákveðið að hafna öllum tilboðum sem bárust
í verkið „Bryggjuhverfi vestur, landfylling“. Þóttu
tilboðin sem bárust í verkið vera of há.
Morgunblaðið fékk þær upplýsingar hjá
Reykjavíkurborg að verið væri að skoða hvernig
ætti að bregðast við, en þetta mun seinka því að
uppbygging geti hafist í hverfinu. Mögulega kann
að verða skoðað hvort eitthvað hafi verið bogið við
útreikninga kostnaðaráætlunar vegna þess
hversu fjarri hún var öllum fjórum tilboðunum
sem bárust í verkið.
Fjögur tilboð bárust í verkið þegar það var boð-
ið út síðastliðið vor. Þegar tilboð voru opnuð kom í
ljós að þau voru öll langt yfir kostnaðaráætlun,
eða á bilinu 204-269%. Kostnaðaráætlun hljóðaði
upp á 720 milljónir króna. Ístak hf. bauð lægst eða
1.469,7 milljónir króna. Suðurverk hf. bauðst til að
vinna verkið fyrir 1.616 milljónir, Óskatak ehf.
fyrir 1.611,5 milljónir og Snókur verktakar ehf.
fyrir 1.936,8 milljónir króna.
Þetta verður fyrsti áfangi af þremur en alls eru
áformaðar landfyllingar þrettán hektarar að
stærð í Bryggjuhverfi við Elliðaárvog. Verkið sem
nú var boðið út felst í gerð landfyllinga, farghauga
og varnargarðs fyrir vesturhluta Bryggjuhverfis,
ásamt tilfærslu á farghaugum innan svæðisins.
Einnig skal fjarlægja núverandi hafnarbakka Ár-
túnshöfðahafnar, þar sem dæluskip Björgunar
hafa haft viðlegu undanfarna áratugi.
sisi@mbl.is
Hafna tilboðum í landfyllingu
- Borgin skoðar hvernig
brugðist verður við
Morgunblaðið/sisi
Bryggjuhverfi Fyrirhuguð landfylling mun koma hér. Horft frá Ártúnshöfða út á Elliðaárvoginn.
#9?4+ C :CB=23). 15= <8--+ 2E3 0?+32DA<+0-+ !9-93?=F
%D;6*31)<0+< G 'A<
"E--23). G (B23). G !>00+<
&13=?)7 *;5+<
!4042/5, " 650-53*2)./ '& " 7+/1# $%$%(%( <)3/-