Morgunblaðið - 09.09.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 09.09.2021, Qupperneq 16
16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021 Rafmagnað samband Sixt langtímaleiga býður upp á nýrra rafmagnsbíla sem einfal Nú getur þú komið þér í rétt s og ekið á umhverfisvænni bíl. Ein föst greiðsla á mánuði, enginn óvæntur kostnaður... ...og allir kátir! Kynntu þér kosti langtímaleig á sixtlangtímaleiga.is eða hafð samband við viðskiptastjóra Sixt í síma 540 2222 eða á vidskiptastjori@sixt.is sixtlangtímaleiga.is Innifalið í langtímaleigu: Þjónustuskoðanir Tryggingar og gjöldHefðbundið viðhald Dekk og dekkjaskipti B irt m e ð fy rirv a ra u m m y n d - o g te x ta b re n g l.*M ið a ð v ið 3 6 m á n a ð a le ig u o g 1 8 .0 0 0 k m . a k s tu r á á ri. úrval da lífið. amband u u Hyundai Kona - 100% rafmagn • Drægni: 449 km. s.kv. WLTP staðli • Rafhlaða: 64kWh September tilboð: 99.600 kr. á mánuði* Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við vorum að sprengja okkur átta og hálfan metra niður í jörðina en áður en komið var niður í harða klöpp kom þetta dót í ljós,“ segir Ólafur Magnússon, verkstjóri hjá Ístaki, í samtali við Morgunblaðið. Vísar Ólafur í máli sínu til fjög- urra eldflaugahylkja sem jarðvinnu- hópur Ístaks gróf nýverið niður á þegar unnið var að stækkun norður- byggingar Keflavíkurflugvallar til austurs. Hylki þessi voru eitt sinn fest á vængenda bandarískra orrustuflugvéla af gerðinni F-89 Scorpion og innihéldu skammdræg flugskeyti sem ætlað var að granda sprengjuflugvélum Sovétmanna. „Við vissum ekkert hvað þetta var, það komu fjögur stykki upp en tvö þeirra eru alveg handónýt. Þau fóru því beint í gám og í burtu en sem betur fer ákvað jarðvinnuverk- stjórinn á svæðinu að setja hin tvö til hliðar og geyma,“ segir Ólafur og bendir á að nú sé búið að fjarlægja hylkin tvö og verða þau flutt á Flug- og herminjasafn Einars Elíassonar á Selfossi til varðveislu og sýnis. Aðspurður segist Ólafur telja að fundur þessi sé einungis toppurinn á ísjakanum. Fróðir menn haldi því fram að í gömlum ruslahaugum varnarliðsins megi finna allt frá jeppabifreiðum til flugvélarskrokka og auðvitað allt þar á milli. Af og til hafa borist fréttir af því þegar grafið er niður á forvitnilega hluti liðins tíma. Tilheyrði 57. orrustuflugsveit Friðþór Eydal, fyrrverandi upp- lýsingafulltrúi varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli, segir skothylkin hafa verið staðsett á vængendum F-89, fyrir framan eldsneytistanka vél- arinnar. „Þetta voru lítil óstýrð flug- skeyti, í raun ekki ósvipuð rakettum, og komu í staðinn fyrir byssur,“ seg- ir hann og bendir á að á því svæði sem hylkin fundust hafi varnarliðs- menn í áratugi safnað saman ónýt- um flugvélum. Slökkvilið hafði svo vélarnar til æfinga og má í dag m.a. finna ljósmyndir sem sýna slökkvi- liðsmenn berjast við eld í F-89- vélum. Aðspurður segir Friðþór eld- flaugahylkin hafa tilheyrt vélum 57. orrustuflugsveitar Bandaríkjanna sem staðsett var hér á landi í áratugi en vélarnar sem um ræðir voru hér á sjötta áratug síðustu aldar. Grófu niður á gömul eldflaugahylki - Jarðvegshópur á vegum Ístaks fann óvænt gamlar minjar frá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli - Hylkin innihéldu skammdræg flugskeyti ætluð sprengjuvélum Sovétmanna - Flutt til varðveislu Ljósmynd/Ólafur Magnússon Herminjar Jarðvegshópur frá Ístaki gróf sig niður á fjögur bandarísk eld- flaugahylki í Keflavík og verða tvö þeirra varðveitt á safni á Selfossi. Ljósmynd/Wikimedia Kalt stríð Hylkin voru staðsett á vængendum F-89 Scorpion-orrustuvéla, fyrir framan eldsneytistanka, og innihéldu skammdræg flugskeyti. Skúli Halldórsson sh@mbl.is Lyfjastofnun hafa borist sex tilkynn- ingar um alvarlegar aukaverkanir í kjölfar bólusetningar barna á aldr- inum 12-17 ára. Þetta kemur fram í svari stofnunarinnar við fyrirspurn Morgunblaðsins. Alvarleg aukaverkun er skilgreind sem svo, að talið sé að notkun lyfs hafi leitt til dauða, lífshættulegs ástands, sjúkrahúsvistar eða leng- ingar á sjúkrahúsvist, valdið fötlun eða fæðingargalla. Þrjár tilkynninganna voru vegna sjúkrahúsvistar, en viðkomandi voru ekki í lífshættu. Í hinum þremur til- vikunum reyndist þörf á ítarlegri læknisskoðun og rannsóknum á ein- kennum. „Slíkar tilkynningar eru í sumum tilvikum taldar alvarlegar ef sérfræðingar Lyfjastofnunar meta það svo að ómeðhöndluð eða alvar- legri tilfelli hefðu mögulega getað endað t.d. með sjúkrahúsvist,“ segir í svari stofnunarinnar. Þetta sé í samræmi við leiðbein- ingar um lyfjagát, þar sem slíkar til- kynningar séu flokkaðar sem klín- ískt mikilvægar. „Þessir sex einstaklingar sem um- ræddar tilkynningar varða voru ekki með þekktan undirliggjandi sjúk- dóm þegar grunur um aukaverkun í kjölfar bólusetningar vaknaði. Í öll- um tilvikum nema einu var einstak- lingum batnað eða á batavegi þegar tilkynning barst. Ekki hafa borist viðbótarupplýsingar fyrir sjöttu til- kynninguna að svo stöddu.“ Tekið er fram að þegar tilkynn- ingar vegna gruns um aukaverkun berast Lyfjastofnun, sé ekki vitað hvort orsakasamhengi sé á milli bólusetningar og tilkynnts atviks. Hættustigi á Landspítala aflétt Tilkynnt var í gær að viðbragðs- stjórn og farsóttanefnd Landspítal- ans hafi ákveðið að aflétta hættustigi á spítalanum og færa hann á óvissu- stig. Í því felst að viðbúnaður er vegna Covid-19 á spítalanum en óveruleg áhrif eru á reglulega starf- semi. 37 greindust með kórónuveiruna innanlands á þriðjudag. Fimmtán voru í sóttkví við greiningu. Þrjú virk smit greindust á landamærun- um. Sex alvarleg tilvik hjá 12-17 ára - Þrjár tilkynningar vegna sjúkra- húsvistar - Hættustigi aflétt í gær Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bólusetning Börn á aldrinum 12-15 ára mættu með foreldrum sínum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.