Morgunblaðið - 09.09.2021, Side 20
20 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021
Sýningarsalur - Draghálsi 4 - 110 Reykjavík - Sími: 535 1300 - verslun@verslun.is
Uppþvottavélar
fyrir allar stærðir eldhúsa
T
a
k
ti
k
5
7
3
9
#
MBM húddvél LK626
Aukin framlegð í stóreldúsinu.
Húdd uppþvottavél með 45 cm opnun.
Þrjú kerfi 60/120/150 sek. 3 fasa 400 V.
Ytra mál BxDxH 63,5 x 74,5 x 153
Stærð á körfu 50 x 50 cm
Vatnsmagn 20 ltr
Hurðaop 45 cm
Aristarco Undirborðs
uppþvottavél AF50.35 DP DDE V400
Ytra mál BxDxH: 57,2 x 63,0 x 81,4
Stærð á körfu 45 x 45 cm
Tveir þvottaspaðar - efst og neðst
Innbyggður skammtari fyrir gljáa - Heit skolun
Vatnsmagn 18 ltr
Hurðaop 30,5 cm
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Orkunotkun í heiminum breytist
stöðugt. Jarðefnaeldsneyti er ekki á
útleið á allra næstu árum, en það er í
ríkari mæli blandað efnum úr líf-
rænni framleiðslu. Þá verður í fram-
tíðinni vafalaust horft meira til auk-
innar notkunar á rafmagni. Orka sem
blanda af jarðefnaeldsneyti og raf-
magni verður meira notuð, enda er
tækni til slíks í örri þróun,“ segir
Magnús Ásgeirsson, innkaupastjóri
eldneytis hjá N1.
Titillinn segir allt um hver verk-
efnin hans eru og þegar fjölmiðlar
segja frá verðbreytingum á síkvikum
eldsneytismarkaði er oft vitnað í
Magnús sem nú síðar í mánuðinum
lætur af störfum sökum aldurs.
Umhverfisáhrif minni en var
Magnús Ásgeirsson er viðskipta-
fræðingur að mennt og hóf starfsferil
sinn hjá Sambandi íslenskra sam-
vinnufélaga. Réð sig til Olíufélagsins
Esso í apríl 1987 og sá fyrst um dreif-
ingarmál. Varð svo innkaupastjóri
eldsneytis í ársbyrjun 1989. Tók svo
árið 2002 við því að reikna út elds-
neytisverðið, finna út tölurnar sem
eru endalaust umræðuefni almenn-
ings.
„Sú olía sem flutt er inn og kemur
frá Noregi nú er allt önnur að gæðum
en þegar ég byrjaði hér fyrir 34 ár-
um,“ segir Magnús. „Oft gleymist
hvað búið er að gera til að draga úr
skaðlegum áhrifum. Brennisteinn
nánast horfinn, blý er farið út og
fjöldi annarra efna sem ekki var áður
vitað að hægt væri að ná úr eldsneyt-
inu. Umhverfisáhrif af völdum elds-
neytis eru mun minni en þau áður
voru áður fyrr.
Blaðamennska var frábær skóli
Starfi Magnúsar hjá Olíufélaginu
og N1 hefur fylgt að vera í kviku sam-
félagsins og samskiptum við fólk.
Sama var uppi á teningnum í blaða-
mennsku á Morgunblaðinu á árunum
1975-1978 þegar Magnús skrifaði
fréttir af vettvangi borgarstjórnar.
„Alls staðar kynnist maður skemmti-
legu fólki,“ segir Magnús. „Fundir í
borgarstjórn voru áhugaverðir, borg-
arfulltrúar voru prýðisfólk og stóðu
saman í erfiðum málum, hvar sem
þeir í flokki stóðu. Höfðu vilja og
kjark til að vera draga vagninn í
sömu átt í mikilvægum málum en
víkja sér ekki undan að svara fyrir
það sem ábyrgð þeirra sagði til um.
Blaðamennskan var frábær skóli í
samskiptum og því að skapa tengsl.“
Fyrstu árin hjá Olíufélaginu var
Magnús mikið í tenglum við umboðs-
menn úti um land og sinnti þjónustu
við sjávarútveg. Á þessum árum –
það er upp úr 1980 – var líka mikið
stórverkefni við vegagerð og virkj-
anir sem sinna þurfti með eldsneyt-
issölu.
Slagæð efnahagslífsins
„Sjávarútvegurinn er slagæð efna-
hagslífsins,“ segir Magnús. „Fjöl-
miðlar fylgdust fyrr á tíð vel með
greininni, en ekki eins og í dag þegar
aflabrögð þykja ekki jafn fréttnæm.
Þetta eru þó mál sem Morgunblaðið
hefur verið öðrum fjölmiðlum dug-
legra að fjalla um og skynjar æða-
sláttinn.
Þegar Magnús tók við innkaupum
á eldsneyti hjá Olíufélaginu voru þau
viðskipti einkum við Sovétríkin, það
er skv. samningi ríkisstjórnar Ís-
lands og stjórnvalda eystra. Þeir
samningar giltu fram til 1992 og
margt í þessum viðskiptum var eft-
irminnilegt. „Stundum varð maður
að fara í olíuskip úti á legunni við Ör-
firisey, svo sem ef einhver mismunur
var á útreikningum. Príla þá upp há-
an kaðalstiga utan á hlið skips, oftast
í myrkri en upplýstur af kösturum.
Svo átti ég nokkrar ferðir til Moskvu
vegna samningagerðar,“ segir
Magnús sem kveðst þarna hafa
kynnst samspili þeirra reginafla
styrjaldarátaka, stjórnmála, viðskipa
og fleiri þátta sem stýri verði á elds-
neyti. Eðlilega séu framboð og eft-
irspurn þar áhrifamestu þættirnir, en
fleira telji.
Áhrifa á verð gætir fljótt
„Á leifturhraða fjölmiðla í dag
koma áhrifin á eldsneytisverð hratt
fram,“ segir Magnús. „Eðlilegt er að
hér á norðurslóðum séu gasolíuteg-
undir, þar með talið dísel, hæst í verði
frá hausti fram í mars. Að sama skapi
sé verð lægst á sumrin. Þá ætti bens-
ínverð að vera hæst að sumri og
lægra um hávetur. Svona einföld eru
málin þó ekki því í hráolíu eru allar
tegundir eldsneytis sem unnið er
með. Síðan hefur veður mikil áhrif á
olíuverð, fellibyljatíminn í Bandaríkj-
unum sem nú er að ganga í garð get-
ur til dæmis breytt miklu. Yfirtaka
talíbana í Afganistan getur sömuleið-
is haft áhrif á mál í Mið-Aust-
urlöndum og breytt stöðunni á elds-
neytismarkaði heimsins.“
Rétt eins og eldsneytisviðskiptin
eru síkvik segir Magnús aðstæður og
umhverfi í viðskiptum hér innanlands
hafa breytst mikið. Í bílum, skipum
og flugvélum séu nú sparneytnari vél-
ar en áður og margar verksmiðjur
sem áður voru knúnar olíu noti nú
rafmagn. Sala á eldsneyti á bíla sé
hlutfallslega minnst miðað við kaup
útgerðar og flugfélaga.
Efnafræðin komið sér vel
Sem ungur maður ætaði Magnús
Ásgeirsson að leggja fyrir sig raun-
greinar og helst starfa á þeim vett-
vangi. Niðurstaðan varð önnur, þótt
áhugi og þekking á efnafræði hafi oft
komið sér vel í olíuviðskiptum. „Þetta
hafa verið skemmtilegir tímar, alltaf
eitthvað áhugavert að gerast sem
bregðast þarf við,“ segir Magnús nú
við starfslokin. Margt spennandi sé
fram undan; ferðalög, golfvöllurinn,
stúss með barnabörnunum og fleira.
Sér þyki sömuleiðis alltaf áhugavert
að fylgjast með jarðfræði, skjálftum
og gosum, og því muni ferðunum að
eldgosinu við Fagradalsfjall fjölga, nú
þegar meiri tími til slíks gefst.
Jarðefnaeldsneyti er ekki á útleið
- Magnús Ásgeirsson hefur reiknað út eldsneytisverð í áratugi - Samspil styrjalda, stjórnmála, við-
skipta og fleira stýrir verðlagningu - Minni mengun og bílar sparneytnari - Starfslokin fram undan
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Áfylling Oft gleymist hvað búið er að gera til að draga úr skaðlegum áhrifum. Brennisteinn nánast horfinn, blý er
farið út og fjöldi annarra efna sem ekki var áður vitað að hægt væri að ná úr eldsneytinu, segir Magnús Ásgeirsson.
Fjórar nýjar brýr á hringveginum í
Austur-Skaftafellssýslu, það er
sunnan Vatnajökuls, verða formlega
opnaðar á morgun, föstudag. Sigurð-
ur Ingi Jóhannsson samgöngu-
ráðherra klippir þá á borða á brúnni
yfir Steinavötn í Suðursveit og hon-
um til halds og trausts er Bergþóra
Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðar-
innar. Við þetta tækifæri syngur
Kvennakór Hornafjarðar á brúnni,
en konurnar sem kórinn skipa hafa
tekið lagið á öllum einbreiðum brúm
eystra og hefur söngurinn sá verið
innlegg þeirra í baráttu fyrir úrbót-
um á brúm yfir boðaföllin.
Með tilkomu þessara nýju mann-
virkja fækkar einbreiðum brúm á
hringvegi úr 36 í 32. Smíði brúnna
fjögurra var boðin út árið 2019 en
framkvæmdum lauk nýlega.
Unnið er að frekari fækkun ein-
breiðra brúa á hringveginum og
smiðir eru nú að störfum við Jökulsá
á Sólheimasandi og við Núpsvötn og
Hverfisfljót. Árið 1990 voru ein-
breiðar brýr á veginum umhverfis
landið nærri 140, svo margt hefur
áunnist síðan þá. Fleiri verkefni við
brúarbætur, utan hringvegarins, eru
í undirbúningi eða á framkvæmda-
stigi. sbs@mbl.is
Ljósmynd/Vegagerðin
Öræfasveit Ný brú yfir Kvíá stendur rétt framan við þá eldri, sem er ein-
breið slysagildra. Áherslumál hefur verið að fækka slíkum mannvirkjum.
Fjórar nýjar brýr
nú teknar í notkun
- Konur syngja við formlega opnun