Morgunblaðið - 09.09.2021, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021
Deila Norðmanna og útgerða skipa
innan Evrópusambandsins og á
Bretlandi vegna veiða við Svalbarða
hefur harðnað upp á síðkastið. Evr-
ópusambandið hafði hótað Norð-
mönnum refsiaðgerðum vegna
skertra aflaheimilda við Svalbarða.
Norðmenn svöruðu með því að
hóta að senda skip norsku strand-
gæslunnar á vettvang færu skipin
yfir leyfilegar aflaheimildir. Í síð-
ustu viku var norska ríkinu svo
stefnt vegna málsins fyrir héraðs-
dómi í Ósló, að því er fram kemur á
vef norska ríkisútvarpsins, NRK, og
í fleiri norskum miðlum.
Fyrirtæki innan samtaka evr-
ópskra útgerða sem stunda veiðar í
NA-Atlantshafi, Enafa, standa að
baki stefnunni, 14 fyrirtæki í sex
Evrópusambandslöndum og ein
bresk útgerð. Evrópusambandið
hafði alls heimild til að veiða 29 þús-
und tonn af þorski á fiskverndar-
svæðinu við Svalbarða áður en Bret-
ar gengu úr ESB og Brexit tók gildi
um síðustu áramót.
Með útgöngunni ákváðu Norð-
menn að skerða kvóta ESB um 10
þúsund tonn og veita Bretum heim-
ild til að veiða 5.500 tonn. Því sem
skildi á milli, 4.500 tonnum, var skipt
á milli Norðmanna og Rússa. Þetta
sættu fyrirtækin sig ekki við og Evr-
ópusambandið miðar enn við 29 þús-
und tonn, eins og áður komu í hlut
ESB.
Stefna
norska
ríkinu
- Aukin harka vegna
veiða við Svalbarða
Ljósmynd/Kystvakten
Deilur Eitt af skipum norsku
strandgæslunnar á siglingu.
Tillaga að friðlýsingu jarðarinnar
Dranga í Árneshreppi á Ströndum
sem óbyggðs víðernis hefur verið
lögð fram. Svæðið er 105 ferkíló-
metrar, þar af eru níu ferkílómetrar í
hafi. Markmiðið með friðlýsingunni
er að standa vörð um umfangsmikið
óbyggt víðerni þar sem náttúran fær
að þróast á eigin forsendum.
Friðlýsingin miðar m.a. að því að
vernda til framtíðar stórt svæði þar
sem náttúran fær að þróast án álags
af mannlegum umsvifum og við-
halda sérkennum og náttúru svæð-
isins með áherslu á víðsýni, landslag
og náttúruupplifun. Í kynningu Um-
hverfisstofnunar kemur fram að
Jörðin Drangar nær frá Drangajökli
að sjó á milli Bjarnarfjarðar og
Drangavíkur.
„Drangar eru landnámsjörð, þar
nam land Þorvaldur Ásvaldsson,
hans sonur var Eiríkur rauði er
flutti síðar til Grænlands, en sonur
hans var Leifur heppni. Eiríkur bjó
á Dröngum eftir föður sinn og færa
má líkur að því að þar hafi Leifur
sonur hans fæðst,“ segir í tillög-
unni. Friðlýsingin er gerð í minn-
ingu hjónanna Önnu Jakobínu Guð-
jónsdóttur og Kristins Halls
Jónssonar er voru síðustu bændur
á Dröngum.
Allt að 14 frístundahús
Skipulagsstofnun staðfesti 19.
ágúst síðastliðinn breytingu á aðal-
skipulagi Árneshrepps 2005-2025
sem samþykkt var í sveitarstjórn
14. júlí. Breytingin felst í fjölgun
frístundahúsa í allt að 14 á 10 hekt-
ara svæði fyrir frístundabyggð ná-
lægt bæjarstæðinu á Dröngum.
Í 12. grein tillögu um friðlýsingu
segir meðal annars: „Fram-
kvæmdir á grundvelli deiliskipu-
lags sem er í gildi við undirritun
friðlýsingar eru ekki háðar leyfi
Umhverfisstofnunar enda sé sér-
kennum og verndargildi svæðisins
ekki raskað, frárennsli verði
hreinsað með fullnægjandi hætti
sbr. reglugerð um fráveitur og
skólp og að frágangur að fram-
kvæmdum loknum sé ætíð til fyrir-
myndar.“ aij@mbl.is
Undirbúa friðlýsingu á Dröngum
Ljósmynd/Ust/Gunnar Guðjónsson
Friðlýsing Séð heim að Dröngum.
- Markmið tillögunnar að standa vörð um umfangsmikið óbyggt víðerni
Samkvæmt nýrri rannsókn Hag-
stofunnar, sem unnin var fyrir for-
sætisráðuneytið, dróst launamunur
karla og kvenna saman á árunum
2008-2020. Katrín Jakobsdóttir
kynnti niðurstöðurnar á fundi rík-
isstjórnarinnar sl. þriðjudag.
Kynbundin skipting vinnumark-
aðar í störf og atvinnugreinar skýr-
ir að miklu leyti þann launamun
sem er til staðar en áhrif mennt-
unarstigs og lýðfræðilegra þátta á
launamun hafa minnkað, einkum
seinni árin. Frá 2008 til 2020
minnkaði þannig munur á atvinnu-
tekjum karla og kvenna úr 36,3% í
23,5%, óleiðréttur launamunur
minnkaði úr 20,5% í 12,6% og leið-
réttur launamunur úr 6,4% í 4,1%.
Kynbundinn launa-
munur minnkar
KOMDUÚT
AÐHJÓLA
EITTMESTA ÚRVAL LANDSINS AF REIÐ- OG RAFHJÓLUM
Skoðaðu úrvalið á orninn.is
ME I R I H R E Y F I NG - ME I R I ÁNÆG JA
Frábært fjölnota hjól
Álstell, 16 gírar
Vökvabremsur
Radioactive Red
99.990 kr.
MARLIN6
Frábært fjölnota hjól
Álstell - 24 gírar
Vökva diskabremsur
Læsanlegur dempari
Gunmetal
109.990 kr.
DS2
Frábært fjölnota hjól
Álstell - 24 gírar
Vökva diskabremsur
Matte Dnister Black
104.990 kr.
FX2Disc