Morgunblaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021 HYUNDAI - TUCSON PLUG IN HYBRID RN. 331514. Nýskráður 7/2021, ekinn 0 km., bensín/rafmagn, hvítur, sjálfskiptur, hraðastillir, GPS, fjarlægðarskynjarar, hiti í sætum, bakkmyndavél Verð 6.290.000 kr. TOYOTA - HILUX GX – RN. 153795 Nýskráður 6/2020, ekinn 17 þ.km., dísel, blár, sjálfskiptur, kastarar, dráttarkrókur, intercooler, túrbína, topplúga, hiti í sætum, varadekk. Verð 7.990.000 kr. OKKUR VANTAR ALLAR GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is VOLVO - XC90 T8 TWIN ENGINE INSCRIPTION RN. 191830. Nýskráður 1/2019, ekinn 29 þ.km., bensín/rafmagn, hvítur, sjálfskipting, glerþak, dráttarkrókur, brekkubremsa, bluetooth, GPS. Verð 10.490.000 kr. KIA - SPORTAGE LUXURY – RN. 153653. Nýskr. 12/2018, ekinn 41 þ.km., dísel, svartur, sjálfskipting, stöðugleikakerfi, fjalægðarskynjarar, leiðsögðukerfi, bakkmyndavél, litað gler, hiti í sætum. Verð 4.990.000 kr. NÝR BÍL L Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fjöldi minjastaða við strendur landsins er í hættu vegna landbrots. Það væri að æra óstöðugan að vernda allar þessar minjar, en Guð- mundur Stefán Sigurðarson, minja- vörður Norðurlands vestra og verk- efnastjóri strandminja hjá Minjastofnun, leggur áherslu á skráningu ver- minja hið fyrsta. Á þann hátt væri hægt að fá yfirlit yfir minjarnar, sem skipta trú- lega þúsundum frekar en hundr- uðum, og í kjölfar fornleifaskráningar á vettvangi væri hægt að forgangsraða verkefnum við verndun og varðveislu. 15-20 milljónir í 5-6 ár Guðmundur segir Minjastofnun vera fámenna stofnun sem ekki hafi að óbreyttu bolmagn í þetta verk- efni. Launuð staða verkefnisstjóra hjá Minjastofnun og 15-20 milljónir til framkvæmda árlega ættu að duga til að hægt væri að klára að skrá strandlengjuna á 5-6 árum. Tíminn sé dýrmætur og með hverju árinu sem líður tapist merkar minjar, að sögn Guðmundar. Brýnt sé að bregð- ast við sem allra fyrst. Guðmundur leggur áherslu á skráningu verminja, sem ekki finnist annars staðar og eru í mikilli hættu á að tapast vegna landbrots. Þær teng- ist sjósókn, fiskverkun og nábýli við hafið fyrr á öldum. Verstöðvar var að finna allt í kringum landið þar sem stutt var á miðin, nema síst á söndum Suðurlands. Oft voru verstöðvar á annesjum og afskekktum stöðum, en gjarnan var farið í ver á útmánuðum. Guðmundur segir að eftir því sem árin líði og meðan lítið sé að gert tap- ist ómetanlegar heimildir um allt frá aðbúnaði og lífsviðurværi íslenskra og jafnvel erlendra sjómanna, að vinnsluaðferðum og ástandi fiski- stofna og lífríkis í hafinu í kringum landið. Þá séu minjar af ýmsum toga við strendur landsins einnig í hættu og þar með merkilegar heimildir um nábýli við hafið, sjósókn, verslun og gamla búskaparhætti. Verja minjar í Kollsvík Um þessar mundir er eitt verkefni í gangi til að verja minjar um gamla verstöð, en það er við Láganúpsver í Kollsvík í Rauðasandshreppi, norðan Látrabjargs, og er þar unnið að gerð sjóvarnargarðs. Til skoðunar er að verja minjar í Kollafirði, í grennd við höfuðborgina. Þar eru minjar í botni fjarðarins í hættu, en sjóvarnargarð- ur myndi einnig nýtast til að verja veginn þar til framtíðar. Loks má nefna að brýnt er, að sögn Guð- mundar, að verja friðlýstar minjar í Breiðavík. Að þessum og fleiri verk- efnum vinnur Minjastofnun með Vegagerðinni, en sjóvarnir eru á könnu Vegagerðarinnar. Af mannvirkjum við sjóinn sem rannsökuð hafa verið á liðnum árum nefnir Guðmundur Gufuskála, Siglu- nes og Kolkuós, en segir hrópandi hvað lítið hafi verið rannsakað og skráð af minjum við ströndina. Hann segir stöðu fornleifaskráningar ekki góða og áætlar að búið sé að skrá á vettvangi 25-30% af minjum á land- inu í heild. Þar sé um að ræða ein- staka rannsóknaverkefni, en tengist mest vinnu við skipulag og fram- kvæmdir. Árið 2016 fékk Minjastofnun við- bótaframlag á fjárlögum til að ráða verkefnastjóra til að hafa umsjón með skráningu strandminja og starf- aði Guðmundur að því verkefni í ár. Þá var ráðist í skráningarátak og tekin út þrjú svæði þar sem strand- lengjan var gengin og allar minjar skráðar frá stórstraumsfjöru og 50 metra upp til landsins. Sjálfstætt starfandi fornleifafræðingar voru fengnir til verksins. Svæðin voru vestanvert Reykjanes, vestanvert Snæfellsnes og strandlengjan milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Stærsti hluti minjanna horfinn „Niðurstöðurnar voru sláandi,“ segir Guðmundur. „Á Reykjanesi var ástandið langverst. Þar voru 93% minja sem heimildir voru um ýmist horfin, skemmd eða í fyrirsjáanlegri hættu vegna landbrots. Á Snæfells- nesi var hlutfallið um 60% og tæp- lega 20% við Arnarfjörð og Dýra- fjörð. Á Reykjanesi hefur verið mikið landbrot í margar aldir og all- ar verminjar frá miðöldum og land- námsöld löngu horfnar. Fjöruborð var á mörgum stöðum komið inn á gömul tún. Þetta er nokkuð sem við viljum ekki lenda í á öðrum svæðum án þess að ná að skrá og rannsaka minjarnar. Hvar eiga náttúruöflin að ráða? Því miður hefur ekki fengist fjár- magn til að halda þessari vinnu áfram þrátt fyrir að eftir því hafi ver- ið leitað og við höfum fyrir vikið litla yfirsýn yfir fjölda og ástand strand- minja utan þessara skráðu svæða. Við erum engu að síður með vöktun á nokkrum völdum minjastöðum og reynum eftir fremsta megni að fylgj- ast með landbroti og gera reglulegar mælingar. Tvímælalaust þarf að bregðast við og gera átak í þessum efnum,“ segir Guðmundur. „Við höfum ekki yfirsýn yfir það hversu margar minjarnar eru, hvers eðlis og hversu gamlar. Það þarf að ljúka því að fara yfir landið í heild sinni og meta ástandið til að geta forgangsraðað rann- sóknum. Þá fyrst er hægt að taka af- stöðu til rannsókna og verndunar og hvar eigi að leyfa náttúruöflunum að ráða ferðinni.“ Guðmundur segir heimafólk víða vera áhugasamt um skráningu og verndun gamalla minja og láti oft vita af minjum í hættu. Fyrir stofnun eins og Minjastofnun sé það kær- komið og dýrmætt. Merkar minjar tapast á ári hverju - Verminjar við strendur landsins víða í hættu - Brýnt að skrá minjar svo hægt sé að forgangsraða Verstöðvar voru oft fyrir opnu hafi þar sem stutt var á gjöful mið, en þarna gátu veður verið válynd. Með breytingum á veðurfari á síðustu árum segir Guðmundur að landbrot hafi aukist. „Þegar rætt er við landeigendur sem komnir eru yfir miðjan aldur hafa sumir þeirra á orði að breytingar hafi verið hægfara áður fyrr en land- brotið hafi síðan gerst hratt á síðari árum. Í því sambandi er jafnvel talað um tugi metra á síðustu áratugum,“ segir Guðmundur. Í þessu sambandi nefnir hann að með mildari vetrum verði meira rof þegar sjór skellur á þíða bakka, sem veiti minni mótstöðu en frosin jörð. Einnig veltir hann fyrir sér hvort minnkandi hafís norðvestan við landið hafi áhrif og öldustyrkur verði meiri. Mestar skemmdir verði þegar geri áhlaupsveður og sjávarstaða sé há. Stórar fyllingar og torfur geti horfið í einu áhlaupsveðri í miklum áhlað- anda. Slík veður gerði ítrekað veturinn 2019-2020 með tilheyrandi tjóni á fjölda minjastaða við norðvestanvert landið og víðar. Fleiri þættir í veður- fari hafi og muni hafa áhrif á landbrot. Landbrot hefur aukist ÞÆTTIR Í VEÐURFARI HAFA OG MUNU HAFA ÁHRIF Á vettvangi Starfsmenn Minjastofnunar við skoðun í Höfnum á Skaga, Magnús A. Sigurðsson, minjavörður Vesturlands, og Hrafnkell Tumi Georgsson. Ljósmyndir/Guðmundur Stefán Sigurðarson Verminjar Rúnar Leifsson, þáverandi minjavörður Norðurlands eystra, og Birna Lárusdóttir fornleifafræðingur á Siglunesi í Siglufirði 2017. Guðmundur Stefán Sigurðarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.