Morgunblaðið - 09.09.2021, Page 26

Morgunblaðið - 09.09.2021, Page 26
Fjölskyldan Fjölskylda Ástu Eggertsdóttur hefur snyrt gröf ókunns manns í tæpa öld. Frá vinstri eru Sigurveig, Ásta, Aðalheiður, Eggert, Hannes, Guðmundur, Sindri, Júlíus, Kristófer, Gabríela, Viktoría, Alexandra og Þorgils. VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Foreldrar mínir misstu elsta barnið sitt í vöggudauða og mamma var töluvert mikið uppi í kirkjugarði í kjölfarið,“ segir Ásta Eggertsdóttir, fyrrverandi lækna- ritari frá Akureyri, við upphaf frá- sagnar sinnar af forvitnilegri at- burðarás þar nyrðra, en barnið, sem lést árið 1935, var systir Ástu, hún varð aðeins sex vikna gömul og fjölskyldu sinni harm- dauði. Var systirin lögð til hinstu hvílu við hlið ömmu sinnar, Ingibjargar Jónasdóttur, í Akureyrarkirkju- garði á Naustahöfða og heimsótti móðir Ástu grafir þeirra mikið og oft auk þess að snyrta þar og dytta að eins og þurfti. Líður svo að jólum 1935. „Ekki löngu eftir að systir mín deyr er svo tekin gröf í aðeins nokkurra metra fjarlægð og settur á hana steinn,“ rifjar Ásta upp af þessum atburðum fyrir hartnær 90 árum, sem hún upplifði þó ekki, enda ekki fædd fyrr en 20 árum síðar. Var steinninn nýkomni merktur ungum Norðmanni, Trygve Evanger Eggesbønes, sem fæðst hafði 10. desember 1909 og því ekki náð nema miðjum þrí- tugsaldri, en hann hafði verið lát- inn í nokkra mánuði er þessir at- burðir gerðust, eða frá því í ágúst 1935. Skilaboð í draumi „Svo dreymir mömmu þennan Norðmann, sem segir henni í draumnum að hann sé ekki sátt- ur við þennan hvílustað sinn. Mamma trúði mjög á drauma og fór og heimsótti umsjónarmann garðsins á þessum tíma og spurði hann hvort þarna gæti hugsan- lega hafa orðið einhver rugl- ingur. Svo þegar farið er að skoða pappíra kirkjugarðsins kemur í ljós að steinninn hafði verið settur á rangt leiði,“ segir Ásta af för móður sinnar. Fóru leikar því svo að steinninn var fluttur á réttan stað þar sem ungi maðurinn norski hafði í raun verið lagður til hinstu hvílu. Hann vitjaði móður Ástu ekki frekar eft- ir það og taldi hún hann sáttan við málalok. Hún taldi það hins vegar ekki eftir sér, í kjölfar þess að Eggesbønes vitjaði hennar í draumnum, að halda gröf hans við með skreytingum og almennri snyrtingu meðan henni entist ald- ur til. Maður gerði þetta bara „Móðir mín hafði í tæp 60 ár stóran garð sem hún hugsaði um af mikilli natni og lagði mikla al- úð í að sinna blómum og plöntum sem þar voru. Það sama gilti um leiði ættingja okkar í kirkjugarð- inum og var mikil áhersla lögð á góða umhirðu þeirra. Svo þegar hún var hætt að geta farið í garð- inn tók ég við og Trygve fékk bara sínar skreytingar áfram, hvort sem var um sumar eða jól eða páska,“ segir Ásta og hefur fjölskyldan því annast gröf manns, sem hún þekkir engin deili á, í hartnær öld. „Einhvern veginn gerði maður þetta bara án þess að velta því sérstaklega fyr- ir sér, þetta fylgdi bara. Auðvitað fór það oft í gegnum kollinn á manni hver þessi maður eiginlega væri,“ heldur hún áfram, en um Eggesbønes og örlög hans, hver svo sem þau voru, hefur fjöl- skyldan aldrei haft minnstu hug- mynd. Öll börn Ástu hafa komið að umhirðu leiðis hans með ein- um eða öðrum hætti. Sindri Már Hannesson, sonur Ástu, er henni til fulltingis í sam- talinu og greinir nú frá því að kærasti hans, sem er norskur, hafi starfað í norska sendiráðinu í Reykjavík í sumar, í hléi frá námi í Hollandi, sem hann hefur nú horfið aftur til. „Þessa sögu bar á góma í sumar og úr varð að það gæti verið áhugavert að koma henni á framfæri á norsku til að jafnvel sjá hvort einhver þekkti einhver deili á Trygve í hans heimalandi, öllum þessum árum síðar,“ segir Sindri. Orðinn einn af okkur „Við gerum okkur þó grein fyr- ir að mögulegt er að við fáum aldrei að vita neitt um hann Trygve,“ tekur móðir hans við, „enda var hann ungur við ævilok og langt um liðið síðan hann lést. Líklega hefur hann starfað sem verkamaður eða sjómaður, enda skráður þannig í kirkjugarðs- skrána, og af einhverjum ástæð- um verið jarðsettur hér. Þó þykir okkur gott að geta hugsað um hann, enda hálfeinmanaleg til- hugsun að vera jarðsettur langt frá heimalandi sínu, án nokkurs ættingja til að líta eftir með þér,“ segir hún. Þau mæðginin kveðast hins vegar sammála um að burtséð frá því hvort nokkur botn fáist ein- hvern daginn í raunverulegan bakgrunn og ævi Norðmannsins Trygves Evangers Eggesbønes muni fjölskyldan halda áfram að annast leiði hans um ókomna tíð. „Hann er orðinn einn af okkur á þessum 90 árum, það er einfald- lega svoleiðis,“ segir Ásta Egg- ertsdóttir að lokum. Í friðargarðinum Ásta Eggertsdóttir við leiði Trygves Evangers Eggesbø- nes í Akureyrarkirkjugarði sem birtist móður hennar í draumi. Í blíðu Hjónin og Akureyringarnir Hannes Ragnar Óskarsson og Ásta Egg- ertsdóttir á leið til Grímseyjar í einmuna veðurblíðu við ægifagra náttúru. Gröf hins óþekkta Norðmanns - Fjölskylda á Akureyri hefur snyrt leiði bláókunnugs manns í tæpa öld - Birtist í draumi með erindi um ranga gröf - Orðinn einn af þeim - „Mögulegt að við fáum aldrei að vita neitt um hann“ 26 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021 Stærðir: 18–24 Verð 10.995 Margir litir Biomecanics-skórnir auðvelda börnum að taka fyrstu skrefin. Aukinn stuðningur frá hliðunum bætir jafnvægi og eykur stöðugleika. Börnin komast auðveldar áfram og af meira öryggi þökk sé sveigjanlegum sóla og sérstyrktri tá. í fyrstu skónum frá Biomecanics SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á VEFSÍÐUNNI OKKAR www.skornirthinir.is ÖRUGG SKREF ÚT Í LÍFIÐ SMÁRALIND www.skornir.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.