Morgunblaðið - 09.09.2021, Qupperneq 28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021
ALVÖRU
VERKFÆRI
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is
190
EITTRAFHLÖÐUKERFI
YFIR VERKFÆRI
vfs.is
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Afurðaverð á markaði
7. sept. 2021, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 460,08
Þorskur, slægður 411,20
Ýsa, óslægð 366,26
Ýsa, slægð 351,60
Ufsi, óslægður 157,75
Ufsi, slægður 195,07
Gullkarfi 241,41
Blálanga, óslægð 150,00
Blálanga, slægð 223,25
Langa, óslægð 234,61
Langa, slægð 196,20
Keila, óslægð 72,43
Keila, slægð 83,35
Steinbítur, óslægður 158,15
Steinbítur, slægður 333,84
Skötuselur, slægður 579,46
Grálúða, slægð 403,60
Skarkoli, slægður 373,61
Þykkvalúra, slægð 522,00
Langlúra, óslægð 211,05
Langlúra, slægð 258,44
Sandkoli, óslægður 36,21
Sandkoli, slægður 50,00
Bleikja, flök 3.176,00
Regnbogasilungur, flök 3.176,00
Gellur 1.250,00
Hlýri, óslægður 225,67
Hlýri, slægður 238,00
Lúða, slægð 454,49
Lýsa, óslægð 133,14
Lýsa, slægð 152,66
Makríll 102,14
Stórkjafta, slægð 30,85
Undirmálsýsa, óslægð 188,84
Undirmálsýsa, slægð 215,00
Undirmálsþorskur, óslægður 205,22
Undirmálsþorskur, slægður 158,15
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Breytingin er mikil en ég er sátt-
ur við niðurstöðuna,“ segir Brynjar
Kristmundsson, skipstjóri á Ólafs-
víkurbátnum Steinunni SH. Kunn-
gerð voru á þriðjudag kaup FISK
Seafood ehf. á Sauðárkróki á 60%
hlut í útgerðarfélaginu Steinunni
hf. í Ólafsvík. Strax og sú niður-
staða var fengin var haldið á sjóinn
og þegar Morgunblaðið ræddi við
Brynjar í gær var hann á Flák-
anum svonefnda, norðarlega á
Breiðafirði. Aflinn var kropp;
þorskur, koli og ögn af ýsu.
Fimm bræður og einn í viðbót
Steinunn hf. hefur í áratugi verið
í eigu fimm bræðra, en nú hafa þeir
Þór og Óðinn Kristmundssynir selt
hluti sína. Sama gerði fjölskylda
Sumarliða, þriðja bróðurins, sem
lést fyrir nokkrum árum. Bræð-
urnir Brynjar og vélstjórinn Ægir
halda áfram hvor sínum 20% hlutn-
um og verða áfram í áhöfn, sem að
öðru leyti breytist nokkuð eftir að
hafa verið að stofninum til hin
sama síðan um 1990. Ónefndur er
hér sjötti bróðirinn, Halldór Krist-
mundsson, sem stóð utan eigenda-
hópsins, var í áhöfn en er nú kom-
inn í land.
Að efla umsvif sín í útgerð ver-
tíðarbáta enn frekar er markmið
FISK Seafood ehf. með kaupunum
á Steinunni, sem fyrir á fyrirtækið
Soffanías Cecilsson ehf. í Grund-
arfirði, með útgerð og vinnslu. Það
er skoðun Skagfirðinga sem keyptu
að Snæfellsnesið sé eitt atvinnu-
svæði og búi yfir miklum tækifær-
um til að styrkja stöðu sína á sviði
fjölbreyttrar starfsemi í sjávar-
útvegi.
„Þetta er stórt og mikilvægt
skref fyrir FISK Seafood í sókn
sinni til aukinnar fjölbreytni í út-
gerð, vinnslu og sölu íslensks sjáv-
arfangs. Við lítum á Snæfellsnesið
sem mikilvægan hlekk fyrir áfram-
haldandi sókn okkar í sjávarútveg-
inum,“ segir Friðbjörn Ásbjörnsson
framkvæmdastjóri í fréttatilkynn-
ingu.
Stakkholtsættin umsvifamikil
Bræðurnir á Steinunni SH eru af
svonefndri Stakkholtsætt, sem
lengi hefur verið umsvifamikil í
sjávarútvegi í Ólafsvík. Sagan hefst
á Halldóri Friðgeir Jónssyni, afa
bræðranna, sem um 1940 hóf út-
gerð og farnaðist vel. Halldór gerði
meðal annars út Steinunni SH og
hefur nafnið haldist á nokkrum bát-
um. Sá sem nú var seldur er 153
tonna dragnótarbátur, smíðaður
árið 1971 hjá Stálvík í Garðabæ.
Kvótinn sem fylgir er ríflega 1.100
tonn í fimmtán tegundum, meðal
annars um 850 tonn í þorski auk
ýsu, ufsa, skarkola og fleira. FISK
Seafood greiðir ríflega 2,5 milljarða
króna fyrir eignarhlut sinn í Stein-
unni og eru viðskiptin gerð með
fyrirvara um samþykki Samkeppn-
iseftirlitsins. Á nýliðnu fiskveiðiári
fiskuðust á bátinn nærri 1.500 tonn
í um 120 róðrum.
„Við erum þakklátir fyrir að
þessi langi rekstur fjölskyldunnar
hafi nú fengið tækifæri til kraft-
mikillar endurnýjunar. Innkoma
Friðbjörns Ásbjörnssonar með
mikla þekkingu á aðstæðum út-
gerðarinnar á Snæfellsnesi og hið
sterka bakland FISK Seafood gef-
ur góð fyrirheit um framhaldið.
Samstarf okkar er ekki eingöngu
grundvallað á metnaðarfullum
markmiðum heldur einnig langri
vináttu héðan af Nesinu og gagn-
kvæmu trausti. Það skiptir miklu
máli,“ segja Brynjar og Ægir
Kristmundssynir í tilkynningu um
lyktir sölunnar og verkefnin sem
fram undan eru.
Snæfellsnes mikilvægt í sókninni
- FISK Seafood kaupir 60% hlut í Steinunni ehf. í Ólafsvík - Greiða 2,5 milljarða kr. - 1.100 tonna
kvóti í fimmtán tegundum - Nýr kafli í langri útgerðarsögu - Gefur góð fyrirheit um framhald mála
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bræður F.v. Óðinn, Halldór, Brynjar, Ægir og Þór Kristmundssynir í ver-
tíðarlok 2020. Nú hafa breytingar orðið, en Brynjar og Ægir halda áfram.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Aflabátur Steinunn er 153 tonna dragnótarbátur, smíðaður árið 1971 hjá
Stálvík. Kvóti sem fylgir sölu er ríflega 1.100 tonn í 15 tegundum.
„Vissulega er fagnaðarefni að útgerðin og veiðiheimild-
irnar haldist áfram hér á svæðinu. En vissulega hræða
spor sögunnar,“ segir Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í
Snæfellsbæ. Steinunn ehf. er eitt stærsta útgerðar-
fyrirtækið í Ólafsvík og hefur skilað miklu til samfélags-
ins. Svo verður áfram, skv. því sem sagt hefur verið, en
Kristinn segist taka öllu með fyrirvara og hefði kosið að
heimamönnum hefði verið boðið að koma að kaupunum.
„Eitt sinn keypti KEA hér útgerð og rækjuvinnslu,
sem átti að efla. Fáum mánuðum síðar var kvótinn far-
inn og verksmiðjunni lokað og borið við breyttum for-
sendum. Sögur líkar þessari eru margar,“ segir Kristinn.
Í upphafi nýs fiskveiðiárs er staðan í Snæfellsbæ annars góð, að sögn
bæjarstjórans. Flestir bátar eru farnir á sjó og fiska vel skammt út af
Ólafsvíkinni. Aðeins 10-15 mínútna stím er á fengsæl mið. Þá gengu
strandveiðar í sumar með ágætum, en þá reru smábátakarlar frá Arnar-
stapa, Rifi og Ólafsvík og gerðu það gott.
FAGNAÐAREFNI AÐ VEIÐIHEIMILDIR HALDIST Á SVÆÐINU
Kristinn
Jónasson
Spor og saga vekja hræðslu