Morgunblaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.09.2021, Blaðsíða 30
BAKSVIÐ Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Fyrsta og stærsta heildstæða loft- hreinsi- og förgunarstöðin í heim- inum, Orca, var opnuð við Hellis- heiðarvirkjun í gær. Orca er samstarfsverkefni svissneska fyrir- tækisins Climeworks, Orku náttúr- unnar og dótturfyrirtækis þess Carbfix. Stutt er síðan IPCC, sérfræð- ingahópur Milliríkjanefndar Sam- einuðu þjóðanna, gaf frá sér yfirlýs- ingu um brýna þörf á föngun koltvísýrings. Þá staðfestir skýrsla nefndarinnar enn fremur hversu mikilvægt það er að draga stórkost- lega úr útblæstri og að fjarlægja varanlega þann útblástur sem ekki er hægt að komast hjá eða sem hef- ur áður verið losaður út í andrúms- loftið. Bein og tafarlaus áhrif Opnun Orca hér á landi hefur samkvæmt tilkynningu Climeworks bein og tafarlaus áhrif en hvert tonn sem Orca fangar úr andrúms- loftinu er tonn sem á ekki þátt í hlýnun jarðar, að því er segir í til- kynningunni. Þar segir einnig að Orca sé gríð- arstór áfangi í beinni loftföngun en stöðin getur fangað 4.000 tonn af koltvísýringi á ári hverju, sem hún fjarlægir beint úr andrúmslofti á öruggan hátt og fargar varanlega með því að breyta koltvísýringnum í stein með náttúrulegri aðferð Carbfix. Þá segir í tilkynningunni að stöð- in sé stökkpallur fyrir Climeworks, sem sérhæfir sig í að fanga koltví- sýring úr andrúmsloftinu og farga honum varanlega en fyrirtækið stefnir að því að geta fangað mega- tonn fyrir síðari hluta þessa áratug- ar. Hugmyndin að því að fanga koltvísýring úr andrúmsloftinu fæddist þegar Christoph Gebald og Jan Wurzbacher, stofnendur og framkvæmdastjórar Climeworks, voru á skíðum í Sviss á háskóla- árum sínum, segir Christoph Beutt- ler, yfirmaður loftslagsstefnu fyrir- tækisins, í samtali við Morgun- blaðið. „Þeir tóku eftir því að snjórinn fór minnkandi með hverjum vetr- inum og þeir vildu gera eitthvað í því,“ segir hann. Það var svo á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Marrakech árið 2016 sem þeir félagar hittu Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrum for- seta Íslands, þar sem starfsemi Carbfix barst í tal. „Þannig fæddist hugmyndin um að fara í samstarf við Carbfix og setja upp Orca á Íslandi. Á Íslandi er nóg af endurnýjanlegri orku- framleiðslu, sem skilur eftir sig lítið kolefnisfótspor og það var púslið sem Climeworks vantaði til að gera Orca að veruleika.“ Climeworks stefnir að því að sögn Christophs að auka umsvif fyrirtækisins umtalsvert á næstu árum. „Við stefnum á að koma upp nýrri hreinsi- og förgunarstöð ann- að eða þriðja hvert ár og seinna meir byggja nokkrar í einu.“ Ekki er hægt að greina frá því hvar næsta stöð verður sett upp, að sögn Christophs. „Það eru þó aðeins nokkrir staðir í heiminum sem hægt er að reka starfsemi af þessu tagi.“ Þrjú stór fyrirtæki eru í loft- hreinsunar- og förgunarbransanum en Climeworks er þar fremst í röð- inni, að sögn Christophs. Aðspurð- ur segist hann ekki hafa áhyggjur af samkeppnisaðilum enda þurfi all- ar tiltækar hendur í baráttunni við loftslagsvána. „Nýlega hafa sprott- ið upp 12 ný fyrirtæki í þessum bransa og við hjá Climeworks fögn- um hverju og einu þeirra.“ Fangar 4.000 tonn af koltvísýringi á ári hverju Virkjun Orca er haganlega staðsett við hliðina á Hellisheiðarvirkjun og er því starfrækt að fullu á endurnýjanlegri orku. - Lofthreinsistöðin Orca opnaði í gær - Byltingarkennt skref í loftslagsmálum 30 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021 COVID HRAÐPRÓF Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is Nákvæm og traust hraðpróf sem gefa niðurstöðu á 15 mínútum. Verslaðu hraðprófin á fastus.is/hradprof Nákvæmni: 99,29% Næmni: 97,04% Sértækni: 99,99% 9. september 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 127.16 Sterlingspund 175.11 Kanadadalur 100.94 Dönsk króna 20.279 Norsk króna 14.642 Sænsk króna 14.855 Svissn. franki 138.95 Japanskt jen 1.1555 SDR 181.2 Evra 150.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 181.6267 « Fyrirtækið Stafræn markaðstorg hef- ur sett í loftið stafræna markaðstorgið BuyIcelandic.com sem einblína mun á íslenskar vörur og draga að erlenda við- skiptavini, að því er fram kemur í tilkynn- ingu. Þar segir að BuyIcelandic.com svipi að mörgu leyti til hefðbundinnar versl- unarmiðstöðvar þar sem seljendur opna sínar verslanir, nema að á Buyice- landic.com séu engin takmörk á versl- unarplássi, enda sé það 100% staf- rænt, einbeiti sér að íslenskum vörum og gefi viðskiptavinum kost á að versla frá mörgum í eina körfu. Á markaðstorginu njóti seljendur góðs af sameiginlegri markaðssetningu. „Það er okkar sýn að á BuyIcelandic muni okk- ur takast að skapa sameiginlegan ávinn- ing fyrir alla með því að hafa flestar ís- lenskar vörur á sameiginlegum stað, en þá kynnast viðskiptavinir fleiri íslenskum vörum en þeir höfðu mögulega hugmynd um og á endanum auki það erlenda sölu hjá öllum. Þannig viljum við leggja okkar mark á að stækka markaðssvæðið fyrir alla, bæði íslenskar vörur og viðskiptavini, með því að einblína á markaðsstarf að er- lendum markhópum,“ segja Arnar Björns- son stjórnarformaður og Stefán Björns- son framkvæmdastjóri í tilkynningunni. Net Stækka markaðssvæðið. Nýtt markaðstorg dragi að erlenda viðskiptavini STUTT Íslenska sprotafyrirtækið Crank- Wheel hefur keypt rekstur danska nýsköpunarfélagsins Accordium. Þetta kemur fram í tilkynningu. CrankWheel býður upp á lausn sem hjálpar fólki að deila skjáborði yfir í hvaða tæki sem er án upp- setningar viðtakanda. Accordium hefur annars vegar einfaldað ferlið í kringum rafræn- ar undirskriftir og hins vegar boðið upp á myndbandslausn sem hjálpar notendum að ljá tölvupóstum og lendingarsíðum persónulegri blæ. Styrkir vöruframboðið Í tilkynningunni kemur fram að CrankWheel er með yfir 50.000 not- endur í sex heimsálfum. Einnig segir að yfirtakan styrki vörufram- boð og þjónustu við núverandi við- skiptavini en styðji jafnframt við frekari vöxt á erlendum mörkuðum þar sem áhugi á stafrænum lausn- um í sölu- og þjónustustörfum hafi aukist gríðarlega í kjölfar heimsfar- aldursins. Sú þróun muni halda áfram. Lausn sem skilar árangri „Þeir viðskiptavinir sem fóru að nota CrankWheel vegna ástandsins hafa séð að okkar lausn skilar þeim meiri árangri. Sölufólk þeirra mun í auknum mæli notast við fjar- sölutækni í stað þess að hitta alla viðskiptavini. Þessi viðbót við okkar vöruframboð mun styrkja vöxt okkar erlendis og hjálpar okk- ur á þeirri vegferð að stytta, auð- velda og einfalda söluferlið hjá not- endum okkar,“ segir Þorgils Sigvaldason, meðstofnandi og tekjustjóri CrankWheel, í tilkynn- ingunni. tobj@mbl.is Tækni Jói Sigurðsson og Þorgils Sigvaldason stofnuðu CrankWheel. CrankWheel kaupir Accordium - 50 þúsund notendur í sex heimsálfum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.