Morgunblaðið - 09.09.2021, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 09.09.2021, Qupperneq 35
35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021 Málefni hælisleit- enda hafa verið í ólestri á Íslandi und- anfarin ár. Landið er komið á kortið hjá glæpamönnunum sem standa fyrir meirihluta ferða hælisleitenda til Evrópu að mati Evr- ópulögreglunnar. Í öðrum ríkjum Norður- landanna hefur hælis- umsóknum fækkað verulega (um 90% í Danmörku frá 2015). Covid- árið 2020 voru hins vegar afgreiddar 585 hælisveitingar á Íslandi, hlut- fallslega nífalt fleiri en í Danmörku. Áður voru umsóknir um hæli á Ís- landi á sama hátt orðnar sexfalt fleiri en í Noregi og Danmörku. Þetta er annars vegar afleiðing þeirra skilaboða sem stjórnvöld hinna Norðurlandaríkjanna hafa sent frá sér og hins vegar af skila- boðum íslenskra stjórnvalda. For- sætisráðherra Dana og formaður jafnaðarmanna sagði nýverið að markmiðið væri að enginn kæmi til Danmerkur til að sækja um hæli. Danir þyrftu sjálfir að hafa stjórn á því hverjum yrði boðið til landsins og beina fólki í öruggan og lögmæt- an farveg. Um svipað leyti munaði minnstu að ríkisstjórn Íslands auglýsti land- ið rækilega sem áfangastað. Það var gert með frumvarpi um að veita öll- um sömu styrki og þjónustu hvort sem þeim væri boðið til landsins eða kæmu á eigin vegum eða þeirra sem skipuleggja smygl á fólki. Það hefði í fyrstu tífaldað fjölda þeirra sem ættu rétt á sama fjárstuðningi og þjónustu en fjöldinn hefði svo aukist hratt. Þetta kallar á viðbrögð því ef ekki verður gripið inn í með afgerandi hætti við þessar að- stæður mun ástandið bara versna og verða loks óviðráðanlegt. En vilji menn líta til reynslu Norður- landanna má finna lausnir. Meginstefnan Við þurfum sjálf að ráða því hversu mörg- um innflytjendum við tökum á móti. Það get- um við ekki nú. Það þarf að setja hámark á fjölda hælisleitenda og koma um leið á sanngjarnara og mannúðlegra hælisleitendakerfi. Það ætti ekki að vera hægt að leita „skyndihælis“ á Íslandi. Við munum þó áfram taka á móti kvótaflóttamönnum. Ísland er lítið land sem hefur tek- ist að byggja upp betra velferðar- samfélag en víðast hvar annars staðar. Á Íslandi er lögð áhersla á jafnrétti en um leið að hver og einn leggi sitt af mörkum. Gagnkvæmt traust er forsenda þeirrar sam- heldni og öryggistilfinningar sem einkennt hefur landið. Þótt útlendingar séu velkomnir til Íslands skiptir sköpum að þeir verði hluti af samfélaginu. Það gerist ekki öðruvísi en að þeir hafi vilja til þess sjálfir. Þegar fólk flytur til landsins án þess að aðlagast samfélaginu dregur það úr samheldni. Núverandi innflytjenda- og hælis- stefna skapar ekki aðeins vandamál fyrir Ísland, hún ýtir líka undir of- beldisfullt og lífshættulegt óréttlæti þar sem óprúttnir mansalar hagnast gríðarlega á ógæfu annarra. Á undanförnum þremur árum hafa meira en 10.000 manns, þar með talið mörg börn, drukknað á Miðjarðarhafi við að reyna að kom- ast til Evrópu. Mun fleiri verða fyrir ofbeldi og misnotkun á leiðinni. Konur eru neyddar í vændi, fjöl- skyldur í heimalandinu eru kúgaðar og fólk selt í þrælahald. Um leið hafa Vesturlönd vanrækt þá flóttamenn sem eru í mestri neyð. Nærumhverfinu hefur ekki verið sinnt sem skyldi. Undanfarin fjögur ár hafa Evrópulönd varið umtalsvert meira fjármagni en áður í úrvinnslu hælisumsókna fyrir þá sem hafa komist til landa álfunnar þótt stór hluti þeirra reynist vera förufólk sem á ekki rétt á hæli í Evrópu. Með núverandi kerfi erum við að vanrækja skyldur okkar gagnvart öðru fólki. Við höfum yfirgripsmikla áætlun þar sem er litið bæði til hagsmuna Íslands og umheimsins. Áætlun sem stenst alþjóðasamþykktir að fullu. Áætlun sem getur orðið öðrum Evr- ópulöndum fyrirmynd, ekki hvað síst vegna þess að hún byggist á rétti hvers lands til að ákveða hversu mörgum innflytjendum það tekur við. Þar er gert ráð fyrir að hvert land taki aðeins við þeim fjölda flóttamanna sem hægt er að aðlaga hverju samfélagi fyrir sig. Við sem samfélag höfum trúað því of lengi að ef aðeins þeir sem koma hingað læri tungumálið og fái vinnu þá deili þeir líka gildum okkar. Sem betur fer gera það margir en því miður eru líka margir sem aðhyllast hugmyndafræði sem er andsnúin lýðræði okkar og samfélagslegum gildum. Áætlunin felur í sér leið út úr nú- verandi ástandi. Ástandi þar sem hver aðgerð í einu landi leiðir til aukins aðhalds í nágrannalöndunum og lönd keppast um að vera minnst aðlaðandi staðurinn fyrir flóttamenn að leita skjóls. Við erum tilbúin til að vinna með öðrum löndum að bættu kerfi. Með- ferð hælisumsókna ætti eingöngu að fara fram í öruggum löndum utan Evrópu og innstreymi í álfuna að taka mið af áætlunum Sameinuðu þjóðanna um kvótaflóttamenn. Afstaða danskra jafnaðarmanna Ofangreind meginstefna er nokk- uð mildaður útdráttur úr inngangi að stefnu danskra jafnaðarmanna í innflytjendamálum (en Ísland sett inn þar sem stóð Danmörk). Í tillög- unum sjálfum er að finna margar af- dráttarlausar aðgerðir. Þar með tal- ið: . Tillögu um móttökustöð utan Evr- ópu. . Þak á hversu margir útlendingar sem ekki eru vestrænir geti sest að í Danmörku. . Önnur áform um að ná stjórn á fjölda flóttamanna til Danmerkur. . Strangar kröfur vegna fjölskyldu- sameiningar. . Áform um að senda fleiri hæl- isleitendur heim og stofnun sér- sveitar lögreglu í þeim tilgangi. . Danmörk svipti lönd sem taka ekki við fólki þróunaraðstoð. . Aukið landamæraeftirlit og end- urskoðun Schengen þar sem hvert ríki stjórni eigin landamær- um á meðan ESB stendur sig ekki á ytri landamærunum. . Reglur um að innflytjendur verði að leggja sitt af mörkum áður en þeir fá rétt á bótum. . Kröfu um að flóttamenn með tímabundna landvist leggi einnig sitt af mörkum til samfélagsins en þurfi samt að snúa heim þegar að- stæður í heimalandinu leyfa. Margt fleira mætti nefna úr stefnu danskra jafnaðarmanna. Hún geng- ur fyrst og fremst út á að taka á misnotkun kerfisins, verja sam- heldni þjóðarinnar og nýta fjármagn sem best til að hjálpa þeim sem eru helst hjálpar þurfi. Ísland Á Íslandi er málaflokkurinn nán- ast stjórnlaus. Þar er ekki við Út- lendingastofnun eða aðra embætt- ismenn að sakast heldur stjórnmálamenn sem hafa innleitt stefnu sem gengur þvert á það sem Norðurlöndin hafa verið að reyna að gera í ljósi áratuga reynslu. Ísland er fyrir vikið komið rækilega á kort þeirra sem skipuleggja fólksflutn- inga og upplýsingar um vænlegustu áfangastaðina dreifast hratt á sam- félagsmiðlum. Ef ekki verður gripið inn í mun núverandi stefna íslenskra stjórn- valda (svo ekki sé minnst á áform ríkisstjórnarinnar) auka enn á þessa þróun. Stórhættuleg glæpagengi munu þá áfram auglýsa Ísland sem vænlegan áfangastað og taka aleig- una af fólki, jafnvel hneppa það í ánauð og leggja það í lífshættu fyrir drauminn um íslenska kerfið. Eins og danskir jafnaðarmenn segja þá værum við að bregðast fólki með því að leyfa slíku fyrir- komulagi að halda áfram. Sýnum skynsemi, lítum á heildarmyndina og lögum kerfi sem hentar hvorki okkar samfélagi né gerir okkur kleift að hjálpa sem flestum þeirra sem þurfa mest á hjálpinni að halda. Reynum nú að læra af reynslu annarra áður en það verður of seint. Í því efni gætum við gert verr en að líta til danskra krata. Eftir Sigmund Davíð Gunn- laugsson » Covid-árið 2020 voru hins vegar afgreiddar 585 hælis- veitingar á Íslandi, hlutfallslega nífalt fleiri en í Danmörku. Áður voru umsóknir um hæli á Íslandi á sama hátt orðnar sexfalt fleiri en í Noregi og Danmörku.Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Höfundur er formaður Miðflokksins. Að læra af reynslunni í innflytjendamálum Velferðarmál eru umfangsmesti út- gjaldaflokkurinn fyrir sveitarfélög og rík- issjóð, en jafnframt einn sá mikilvægasti og afdrifaríkasti fyrir lífs- gæði almennings í landinu. Ef ekkert er að gert þarf sífellt auk- ið fjármagn og skattfé í þennan málaflokk. Gríðarleg tækifæri eru til að auka gæðin, bæta þjónustuna og auka skilvirkni. Það þarf nýja hugsun, aukna áherslu á nýsköpun og tækni. Fjölga þarf starfsfólki á vissum sviðum heilbrigðisþjónustu, svo sem við umönnun aldraðra, en einnig sér- hæfðu heilbrigðisstarfsfólki, m.a. í gjörgæslu og bráðaþjónustu. Ekki síst þarf að virkja betur sjálfstætt starfandi fyrirtæki á þessu sviði og draga úr umfangi ríkisrekstrar. Veru- leg tækifæri eru í úrbótum í samstarfi og samþættingu mismunandi þjón- ustusviða félags- og heilbrigðisþjón- ustu, svo og milli einstakra þjón- ustueininga ríkisrekstrar og sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfs- fólks og -fyrirtækja. Einstaklingurinn í fyrirrúmi ekki kerfið Nauðsynlegt er að skipuleggja alla heilbrigðisþjónustu með tilliti til þarfa og hagsmuna þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda. Samningar þurfa að liggja fyrir um kaup á þjónustu við sjúkrastofnanir og sérfræðinga á sviði velferðarþjón- ustu fyrir alla landsmenn. Við verðum að finna leiðir til að koma til móts við fólk út frá þörfum þess hverju sinni. Þegar horft er á þá þjónustu sem eldra fólki stendur til boða stingur í stúf að hluti af þjónustunni er á herðum sveitarfélaga en hluti hjá ríkinu. Þetta veldur því að flækjustigið er meira og þjónustuþeginn fellur stundum á milli. Átökin snúast þannig oft um fjár- magn á milli ríkis og sveitarfélaga, – því rugli þarf að linna. Hér er í öllum tilfellum um skattfé okkar að ræða og algjörlega óásættanlegt að tvö stjórn- sýslustig landsins eyði tíma, orku og fjármunum í að takast á í stað þess að einblína á að bæta þjónustuna. Það er því eðlilegt að spyrja eftirfarandi spurningar: Eiga sveitarfélögin að taka yfir málefni aldraðra, eða á mála- flokkurinn að vera á herðum ríkisins? Þjónustuna geta svo ýmsir veitt, bæði opinberir og einkaaðilar. Þótt fjár- magnið komi úr sjóðum okkar allra. Eftir Bryndísi Haraldsdóttur Bryndís Haraldsdóttir »Nauðsynlegt er að skipuleggja alla heil- brigðisþjónustu með til- liti til þarfa og hags- muna þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. bryndish@althingi.is Öflug velferð skiptir okkur öll máli Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna eru sameiginleg ábyrgð okkar allra og í þeim felast bæði áskoranir og tæki- færi. Sú erfiðasta snýr að því að útrýma fátækt og hungri. Í þessum efnum geta íslensk fyrirtæki lagst á árarnar með því að gera það sem þau kunna best og efla um leið samfélög og atvinnulíf í þróun- arríkjum á forsendum heima- manna sjálfra. Í embætti mínu sem utanríkis- og þróunarmálaráðherra hef ég lagt sérstaka áherslu á að virkja krafta íslensks atvinnulífs til sam- starfsverkefna í þróunarlöndum. Fyrirtækin okkar hafa sannarlega svarað þessu kalli. Á þeim tæpu þremur árum sem liðin eru frá stofnun Samstarfssjóðs við at- vinnulífið um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna hafa hátt í tuttugu fyrirtæki fengið úthlutað úr honum. Ísland hefur margt fram að færa í þessum efnum. Þar kemur til þekking og reynsla á sviði jarðhita og sjávarútvegs en einnig í vaxandi mæli nýsköp- un og hugvit sem verður til í ís- lensku atvinnulífi. Fjölbreytt samstarfsverkefni eru þegar til staðar sem byggja á framúrskarandi hugviti og verk- þekkingu íslenskra fyrirtækja á ólíkum sviðum. Sem dæmi um ólík verkefni sem hlotið hafa styrki úr sjóðnum má nefna verkefni á vegum jarðhitafyrirtækisins GEG um nýtingu jarðvarma við kæl- ingu matvæla á Ind- landi og Creditinfo sem miðar að upp- byggingu við- skiptaumhverfis og sjálfbærra viðskipta í nokkrum þróunar- ríkjum í Vestur- Afríku. Stjórnvöld í flestum þróun- arlöndum eru þess vel meðvituð um að erlend fjárfesting og einka- framtak eru lykilforsendur þess að þau nái árangri við uppbygg- ingu í sínu atvinnulífi. Á ferðum mínum til samstarfsríkja okkar hefur heimafólk ítrekað komið á framfæri við mig að skapa þurfi fleiri launuð störf, einkum fyrir ungt fólk Við leggjum sérstaka áherslu á að verkefni styðji við áttunda heimsmarkmiðið um mannsæmandi atvinnu og sjálf- bæran hagvöxt. Án þátttöku at- vinnulífsins verður því markmiði einfaldlega ekki náð. Aðgangur kvenna að launuðum störfum er einnig nauðsynlegur þáttur í að ná jafnrétti kynjanna. Norðurlöndin hafa langa reynslu af árangursríku samstarfi hins opinbera við atvinnulífið í þróunarsamvinnu og eru reiðubú- in að miðla af reynslu sinni svo Ísland geti fetað sama veg. Sam- starfssjóðurinn er liður í viðleitni okkar til að skapa fleiri tækifæri til að nýta íslenska þekkingu og reynslu í þágu fátækari þjóða. Nú í vikunni auglýsti sjóðurinn eftir umsóknum í sjötta sinn. Veitt verða framlög til samstarfs- verkefna sem geta stuðlað að at- vinnusköpun og sjálfbærum vexti í lágtekju- og lágmillitekjurríkj- um. Verkefnin skulu hafa jákvæð umhverfisáhrif, styðja markvisst við jafnrétti kynjanna og við framkvæmd þeirra skal virða mannréttindi í hvívetna. Góð samstarfsverkefni ættu að geta fengið stuðning, ekki ein- ungis úr Samstarfssjóðnum held- ur einnig úr fjölþjóðlegum sjóðum sem koma að fjármögnun svo sem gegnum Norræna þróunarsjóðinn (NDF) og fleiri. Ég hvet því íslensk fyrirtæki til að afla sér upplýsinga hjá Heims- torgi Íslandsstofu, upplýsinga- og samskiptagátt fyrirtækja sem horfa til sóknar á nýjum og spennandi mörkuðum. Ávinningur allra af slíku samstarfi er ótví- ræður. Íslenskt atvinnulíf svari ákalli þróunarríkja Eftir Guðlaug Þór Þórðarson » Samstarfssjóðurinn er liður í viðleitni okkar til að skapa fleiri tækifæri til að nýta ís- lenska þekkingu og reynslu í þágu fátækari þjóða. Guðlaugur Þór Þórðarson Höfundur er utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.