Morgunblaðið - 09.09.2021, Page 45
MINNINGAR 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021
✝
Ísleifur Þor-
björnsson bif-
vélavirkjameistari
fæddist á Skaga-
strönd 9. sept-
ember 1951. Hann
lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 28. ágúst
2021.
Foreldrar hans
voru Aðalbjörg
Sigurðardóttir, f.
3.6. 1930, d. 10.12. 2015, og
Þorbjörn Jónsson, f. 26.7.
1922, d. 2.9. 1986. Systkini Ís-
leifs eru Ómar Örn, f. 8.6.1946,
Hrefna, f. 2.1. 1948, Guðbjörg
Jóney, f. 26.7. 1949, Valborg, f.
3.9. 1950, Sigurður, f. 30.1.
1953, Hallbjörn, f. 9.5. 1954,
Daníel Karlsson, f. 8.5. 1973, b)
Hrefna Dröfn, f. 25.4. 1987,
maki hennar er Kári Skúlason,
f. 28.6. 1986, dætur þeirra eru
Dagbjört, f. 27.3. 2014, og
Lovísa, f. 3.6. 2017.
Ísleifur ólst upp á Skaga-
strönd til 16 ára aldurs. Hann
fluttist til Reykjavíkur og
stundaði nám við Iðnskólann í
Reykjavík og útskrifaðist það-
an sem bifvélavirkjameistari.
Hann starfaði við bifvélavirkj-
un árin eftir útskrift hjá Fiat--
umboðinu. Síðar vann hann við
umsýslu varahluta í bifreiðar
og vélsleða hjá Sambandinu og
síðan Merkúr. Þar sérhæfði
hann sig í umsýslu með Yama-
ha-vélsleða og varahluti og
vann áfram við það hjá Toy-
ota-umboðinu og síðar hjá Arc-
tic Trucks. Síðustu ár vann Ís-
leifur hjá Tékklandi Bifreiða-
skoðun í Reykjavík.
Ísleifur verður jarðsunginn
frá Langholtskirkju í dag, 9.
september 2021, kl. 13.
Þráinn Garðar, f.
15.9. 1955, Heið-
dís, f. 26.6. 1957,
Kristjana f. 16.3.
1959, Heiðrún
Bára, f. 22.9. 1960,
Þröstur, f. 10.6.
1962, Sonný, f.
11.8. 1964.
Ísleifur kvæntist
Pétrínu Guðrúnu
Gunnarsdóttur, f.
24.3. 1950, d. 9.3.
1977, árið 1973, sonur þeirra
er Hjalti Þór, f. 3.4. 1974, d.
27.12. 2004.
Seinni kona Ísleifs er Alda
Hafdís Sigurðardóttir, f. 3.4.
1955. Dætur Ísleifs og Hafdís-
ar eru a) Sveinlaug, f. 4.10.
1978, maki hennar er Magnús
Elsku pabbi, þetta er svo sárt og
svo skrítið að þú hafir kvatt svona
skyndilega. Lífið getur verið svo
ósanngjarnt. Líf þitt var svo sann-
arlega ekki dans á rósum, áföllin
voru stór og smá en sárast af öllu er
að hafa misst elsku bróður minn
Hjalta Þór aðeins þrítugan að aldri.
Sú sorg bjó alltaf innra með þér.
Síðustu ár eftir að þið mamma
keyptuð sælureitinn Akurgerði sá
ég hvað þér fór að líða betur í sál-
inni og þú elskaðir ekki neitt meira
en að vera í bústaðnum. Í hvert
skipti sem við komum spurðir þú:
„Líður ykkur ekki vel hérna, hvað
viljiði hafa betra?“ Að koma upp í
bústað var viss frelsistilfinning, allt
stress og vesen var ekki til. Þú gast
endalaust verið að dunda þér við lít-
il sem stór verkefni, stækka pall-
inn, bera á, setja upp gróðurhús
eða slá blettinn. Alltaf var eitthvað
á dagskránni og þú elskaðir að
dunda þér á þínum hraða, enginn
asi, bara spá og spekúlera í róleg-
heitunum. Margsinnis þakkaðir þú
mér fyrir hvað ég var viljug að dúll-
ast með þér í smíðum og verkefn-
um, þú sagðir að ég kæmi þér í
gang. Sannleikurinn er sá að ég
elskaði þennan tíma með þér og
mun sakna hans. Við skildum hvort
annað svo vel og gátum hlegið að
vitleysunni hvort í öðru, við vorum
stundum eins og haltur leiðir blind-
an en við skemmtum okkur. Það
seinasta sem við smíðuðum saman
var útisturtan, sem þig dreymdi
um frá fyrsta degi. Því miður var
ekki búið að tengja hana en ég lofa
að það verður gert.
Í æsku varstu mér mjög góður
faðir, ég gleymi t.d. ekki þegar þú
varst búinn að gera upp hjól fyrir
mig og sprauta það rautt, mikið
sem ég var stolt og ánægð. Útileg-
urnar og veiðiferðirnar á Þingvelli,
bústaðarferðir á Bifröst, Beni-
dorm-ferðin, allt svo góðar minn-
ingar. Þú varst svo blíður og ljúfur,
skiptir aldrei skapi. Það var alltaf
stutt í grínið hjá þér og við áttum
oft skemmtileg bullsamtöl saman.
Þegar ég hugsa til þín þá man ég
ekki til þess að þér hafi orðið heitt í
hamsi, við gátum alltaf rætt málin.
Unglingsárin voru erfið, Hjalti
mikið veikur en þú varst alltaf til
staðar fyrir mig þegar ég þurfti og
ekki síður núna í seinni tíð. Okkar
vinátta var búin að styrkjast svo
mikið. Það sem ég fann fyrir vellíð-
an fyrir nokkrum árum þegar ég
byrjaði að segja við þig t.d. í lok
símatals „love you“ og þú svaraðir
„elska þig líka“. Elsku yndislegi
pabbi minn, minning þín lifir með
okkur og ég veit að ég á eftir að
reyna að spyrja þig hvernig á ég að
gera þetta og hitt og mun ég halda
áfram að vera lausnamiðuð eins og
þú varst og ganga í verkin, ekki láta
hindranir stoppa mig. Love you,
elsku pabbi.
Hinsta kveðja,
Sveinlaug.
Elsku pabbi minn, ég á svo erfitt
með að trúa því að þú sért farinn.
Við Kári vorum einmitt að ræða
saman um stórafmælið þitt þegar
við fáum þetta örlagaríka símtal.
Tíminn stöðvaðist um stund og ég
vissi ekki hvað ég átti að segja eða
gera. Í dag fögnum við seinasta af-
mælisdeginum þínum þar sem þú
ert viðstaddur, þínu lífi og öllum
góðu minningunum sem við eig-
um. Við ætlum að hlusta á lögin
þín og njóta með þér í hinsta sinn.
Þú varst alltaf svo ljúfur og góður
við okkur, svo ótrúlega yfirvegað-
ur og með mikið jafnaðargeð. Þú
hafðir einnig svo ótrúlega mikla
þolinmæði gagnvart mér. Einu
sinni var ég búin að fá ykkur til að
mála herbergið mitt blátt. Þú, lit-
blindur maðurinn, fórst með mér
að velja lit. Þegar við komum
heim þurfti unglingurinn ég auð-
vitað að vera annars staðar. Þegar
ég kom aftur heim síðar um
kvöldið og sá litinn á veggjunum
fékk ég áfall. Ég sagði við þig að
ég gæti ómögulega sofið í þessu
herbergi. Ég efast um að flestir
hefðu haldið ró sinni á þessum
tímapunkti, en þér tókst það. Þú
framkvæmdir hlutina, stundum
kannski aðeins of fljótur á þér, og
í þetta skiptið kom það okkur í
koll. Vilji þinn til þess að gera sum-
arbústaðinn að heilögum fjöl-
skyldustað var einlægur. Ákveðið
var að fjárfesta í niðurgröfnu tram-
pólíni fyrir afastelpurnar, nokkuð
sem enginn ætti einu sinni að íhuga
án þess að hafa 10 tonna skurð-
gröfu tiltæka í verkið. Margir dag-
ar af handmokstri, flugnabitum og
tilfæringum á stórum og þungum
steinum tóku við, þar sem þú varst í
fararbroddi, allra manna dugleg-
astur með gleðina að vopni söngl-
andi „Hey Mr. trampoline man
play a song for me“. Þú varst hand-
laginn, þótt oft hafi handverkið bor-
ið með sér einkennandi hátt yfir-
bragð. En það var nákvæmlega
eins og þú vildir hafa það – því „við
erum nú bara í sveitinni“ sagðir þú
glottandi. Það var aldrei hafist
handa fyrir hádegi, því það var
mikilvægt fyrir þig að þetta væri
líka staður til að hvílast á. Þrátt fyr-
ir endurteknar sögur og afrek, eins
og þegar þú fórst í bæinn og ætl-
aðir að kaupa þvottavél en keyptir
þess í stað íbúð, um fararstjórann
sem hresstist við hvern sopann úr
kókflöskunni þegar leið á rútuferð í
einni af Jamaica-ferðum ykkar
hjóna, eða þegar þú settir á eitt-
hvert fáheyrt lag og spurðir okkur
um flytjanda til þess að stríða okk-
ur, þá naut maður þess alltaf að
hlusta á þig, sitjandi úti að horfa yf-
ir sveitina eða á stjörnurnar í heita-
pottinum. Afastelpurnar þínar
Dagbjört og Lovísa elskuðu að
eyða tíma með ykkur þar. Ég veit
að þú sást ekki ljósið fyrir þeim og
varst orðinn spenntur að fá þriðju
afastelpuna í hendurnar, en hún er
væntanleg á næstu dögum eða vik-
um. Það er ólýsanlega erfitt að
hugsa til þess að hún muni ekki fá
tækifæri til að kynnast þér í eigin
persónu. Elsku pabbi, ég mun
sakna húmorsins, hlátursins, faðm-
lagsins og fíflalátanna. Núna ertu
kominn til Hjalta bróður og ég veit
að þið eruð að gera eitthvað
skemmtilegt saman. Ég elska þig
og mun sakna þín óendanlega mik-
ið, þar til við hittumst aftur síðar.
Meira á www.mbl.is/andlat
Þín dóttir,
Hrefna Dröfn.
Í dag er höggvið stórt skarð í
systkinahópinn okkar.
Elsku bróðir okkar hann Ísleifur
er látinn. Ísleifur var glaðlyndur
maður, hjartahlýr og glettinn, hann
var ungur og hress í anda og mikill
töffari. Hann hafði ljúfa lund og
einstakt jafnaðargeð. Það var alltaf
stutt í grínið og stríðnina. Ísleifur
var mikil tónlistarunnandi og naut
þess flesta daga að hvíla hugann við
að hlusta á sínar uppáhalds hljóm-
sveitir og tónlistarmenn. Hann var
„rokkarinn í fjölskyldunni“ sagði
einn systursonur hans um hann.
Minning okkar um Ísleif er sterkt
bundin tónlistinni sem hann unni;
Marley, Crosby Stills, Nash & Yo-
ung, Creedence Clearwater Revi-
val og öllum hinum. Hér áður fyrr
hittumst við oft með öðrum fjöl-
skyldumeðlimum og vinum með
nokkra gítara og sungum saman.
Uppáhald Ísleifs á þessum stund-
um var lagið Teach Your Children
og allir sungu með.
Sorgin og söknuðurinn er mikill.
Hann er ekki farinn, hann verður
alltaf með okkur, einn af okkar
stóra nána systkinahópi. Við höld-
um áfram að syngja uppáhaldslög-
in hans þegar við hittumst, segjum
sögur af honum og hugsum til hans
alltaf, með þakklæti fyrri allt.
Elsku Hafdís, Sveinlaug,
Hrefna, Maggi, Kári og afastelp-
urnar Dagbjört og Lovísa, við vott-
um ykkur innilega samúð, minn-
ingin lifir um fallegan og
yndislegan dreng.
Hjartans kveðja,
Guðbjörg, Valborg, Krist-
jana, Hrefna, Sonný,
Heiðrún og Heiðdís.
Í dag kveðjum við ástkæran
bróður okkar, Ísleif Þorbjörnsson.
Ísleifur ólst upp á Skagaströnd, í
stórum systkinahópi í Akurgerði.
Ísleifur átti fjöruga æsku og átti
góðan og uppátækjasaman vina-
hóp. Ísleifur var úrræðagóður og
hjálpsamur, sem var góður undir-
búningur út í lífið.
Ísleifur fór snemma suður til
vinnu og náms þar sem hann lærði
bifvélavirkjun og vann við störf
tengd því til æviloka.
Ísleifur hafði yndi af tónlist og
naut þess að spila á gítar og syngja
í góðra vina hópi.
Ísleifur kynntist sorginni þegar
hann missti fyrri eiginkonu sína,
Petrínu, og síðar son þeirra, Hjalta
Þór. Síðar kynntist hann eftirlif-
andi eiginkonu sinni, Hafdísi, og
eignuðust þau saman tvær dætur,
Sveinlaugu og Hrefnu Dröfn.
Þegar var farið að styttast til
starfsloka létu þau drauminn ræt-
ast og festu kaup á sumarbústað
sem þau nefndu Akurgerði. Þá kom
bóndinn og hagleikssmiðurinn upp
í Ísleifi, sem hann naut svo sann-
arlega til síðasta dags.
Farinn til annarra heima,
frjáls undan oki hvers manns.
Þinni minningu munum ei gleyma,
þótt lífið hér kalli á stans.
(Hallbjörn Þorbjörnsson)
Við viljum votta fjölskyldunni
okkar dýpstu samúð.
Missir okkar er mikill en minn-
ingin um góðan og yndislegan
bróður varir að eilífu. Þínir bræður,
Ómar Örn, Sigurður,
Hallbjörn, Þráinn Garðar
og Þröstur.
Æskuvinur minn, Ísleifur Þor-
björnsson, er látinn eftir stutta bar-
áttu við hjartabilun sem varð þess-
um þrautseiga ljúflingi ofviða. Á
kveðjustundum þyrlast að minn-
ingar og atvik frá þeirri vegferð
sem farin var saman og þrátt fyrir
sorg koma gleðistundir í gegn og
lýsa upp farinn veg. Það voru svo
sannarlega gleðistundir sem við
áttum í amstri æskudaganna sem
voru fullir af sólskini, leikjum og
skemmtilegum uppátækjum. Ein
af mörgum góðum minningum var
þegar við sem smástrákar vorum
að byggja okkur snjóhús og feng-
um fréttir um að heimsendir væri í
nánd. Við settumst á rökstóla um
hvort nokkurt vit væri að halda
áfram með snjóhúsið með endalok
heimsins yfirvofandi. Eftir stutt
samtal setti Ísleifur upp sitt kank-
vísa bros og sagði að við skyldum
bara halda áfram, það væri ekkert
víst að þessi heimsendir kæmi.
Snjóhúsa heimsins hafa síðan beðið
önnur örlög en þess að veröldin
færist og Ísleifur hefur í áranna rás
ekki tekið mark á neinni vitleysu
frekar en þá. Ísleifur var líka oftast
hugmyndafræðingurinn í hinum
ýmsu uppátækjum sem sjaldan
vafðist fyrir að framkvæma, hvort
sem það var að smíða leikfangabíla
eða gítara úr pappaspjöldum og
spýtu eða búa til kúrekabyssur og
hatta úr krossvið og bylgjupappa.
Þar komu strax fram þeir eiginleik-
ar sem prýddu hann alla tíð; útsjón-
arsemi, handlagni og óbilandi jafn-
aðargeð. Þegar við urðum eldri og
settumst að hvor í sínum landshlut-
anum urðu samverustundirnar
færri en það var alltaf eins og við
hefðum hist í gær þótt mánuðir
hefðu liðið. Þannig er góð vinátta,
skilyrðislaus og án kröfu um eitt
eða annað. Tíminn nýttur til að
njóta samveru og skiptast á upplýs-
ingum um hvor annars hagi, vera
saman. Ísleifur hafði létta og glaða
lund og var alinn upp í stórum hópi
glaðværra systkina þar sem tónlist
var jafnan í öndvegi enda foreldr-
arnir báðir tónelskir og lagvissir.
Það var líka sagt um þau systkinin í
Akurgerði að þau hefðu flest verið
farin að syngja áður en þau fóru að
tala. Ísleifur var því ekki gamall
þegar hann lærði fyrstu gripin á
gítar og eftir það urðu þeir ævi-
félagar, hann og gítarinn. Hvenær
sem þessi skemmtilegi systkina-
hópur kom saman voru margir gít-
arar á lofti og tónlistin tók yfir. Þar
naut Ísleifur sín og átti um það ein-
faldan sannleika: „Þetta er lífið.“
Þótt hann hafi notið margrar gæfu
og átt góða að þá var hann ekki laus
við áföll því hann missti fyrri konu
sína, Petrínu, og seinna son þeirra,
Hjalta Þór, úr arfgengum sjúk-
dómi. Úr slíkum áföllum verður
kannski aldrei unnið til fulls en
hann tókst á við þau með jafnlyndi
sínu og bjartsýni. Hann eignaðist
líka yndislega konu, Hafdísi og
dæturnar Sveinlaugu og Hrefnu
Dröfn, og svo komu tengdasynir og
afastelpur, fjölskylda, sem hefur
verið honum allt. Það eru forrétt-
indi að eignast góða, trausta vini
sem reynast samir og jafnir hvað
sem á gengur. Þeirra forréttinda
nutum við sem áttum Ísleif Þor-
björnsson að. Það er sárt að geta
ekki sagt það við hann en þið hin
megið gjarnan vita að hann var gull
af manni.
Magnús B. Jónsson,
Skagaströnd.
Í dag kveðjum við kæran vin
okkar, Ísleif Þorbjörnsson, sem
fallinn er frá allt of snemma. Starfs-
ævi hans var um það bil að ljúka og
handan við hornið voru áform um
samverustundir með fjölskyldunni
í sumarbústaðnum þeirra. En eng-
inn veit hvað morgundagurinn fær-
ir okkur og á það vorum við áþreif-
anlega minnt þegar Ísleifur veiktist
skyndilega og kvaddi.
Ísleifi kynntist ég fyrst hjá Petu
systur minni. Ísleifur og Peta
gengu í hjónaband og eignuðust
soninn Hjalta Þór. Peta veiktist og
lést 26 ára gömul árið 1977 þegar
Hjalti Þór var á þriðja ári.
Ísleifur giftist Hafdísi frænku
minni sem gekk Hjalta Þór í móð-
urstað þar til Hjalti Þór lést eftir
löng og erfið veikindi aðeins þrítug-
ur að aldri. Hafdís og Ísleifur eign-
uðust tvær dætur, Sveinlaugu og
Hrefnu Dröfn, sem nú kveðja föður
sinn. Mikill vinskapur var milli okk-
ar alla tíð og áttum við góðar sam-
verustundir. Við spiluðum golf hér
heima og fórum líka saman til
Spánar í golfferð. Óteljandi ferðir
voru farnar í sumarbústaðinn okk-
ar Dídíar þar sem Ísleifur átti ófá
handtökin og hjálpaði okkur að
klára bústaðinn. Ísleifur og tónlist-
in áttu samleið alla tíð. Hann var
mikill unnandi tónlistar og gat ekki
án hennar verið. Gítarinn var aldrei
langt undan, það var því oft kátt á
hjalla og mikið sungið og spilað oft
langt fram á nótt.
Eftir að Hafdís og Ísleifur eign-
uðust sumarbústaðinn sinn hafa
þau verið þar nær öllum stundum í
frítíma sínum. Þar nutu þau sín vel
með fjölskyldunni og sárt er til þess
að hugsa að Ísleifur hafi ekki fengið
lengri tíma og er hans sárt saknað.
Nú er komið að leiðarlokum. Við
þökkum Ísleifi samfylgdina og allar
samverustundir liðinna ára. Haf-
dísi, Sveinlaugu, Hrefnu Dröfn og
fjölskyldum sendum við hjartan-
legar samúðarkveðjur. Minningin
um góðan dreng lifir með okkur.
Sigurður Gunnarsson og
Kristín María Ólafsdóttir.
Ísleifur
Þorbjörnsson
Okkar yndislegi og ástkæri
GRETTIR GRETTISSON
rafiðnfræðingur,
Ólafsgeisla 20a,
lést í faðmi fjölskyldunnar mánudaginn
6. september á líknardeildinni í Kópavogi.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 16. september
klukkan 13.
Jenný Stefanía Jensdóttir
Jens Grettisson Kolbrún Eva Sigurðardóttir
Íris Rut Grettisdóttir Mosi
Jenný Stefanía Jensdóttir Benjamín Darri Jensson
Stapahrauni 5, Hafnarfirði
Sími: 565 9775
www.uth.is - uth@uth.is
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Kristín
699 0512
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTJÁN LÁRUS SÆMUNDSSON
frá Teigi í Hvammssveit, Dalasýslu,
Gerplustræti 17, Mosfellsbæ,
verður jarðsunginn frá Guðríðarkirkju í Grafarholti
mánudaginn 13. september klukkan 13.
Guðrún Einarsdóttir
Einar Þórir Kristjánsson Úlfhildur Rögnvaldsdóttir
Sigrún Kristjánsdóttir Pálmi Bjarnason
Kristján Rúnar Kristjánsson Anna Sigurðardóttir
Gísli Kristjánsson
Guðjón Ingi Kristjánsson Brá Guðmundsdóttir
barnabörn og langafabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ESTER GUÐBJÖRG HARALDSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi
í Hafnarfirði þriðjudaginn 24. ágúst
í faðmi fjölskyldu sinnar.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið,
kennitala: 700169-2789, reikningsnúmer: 301-26-706.
Agnar Þór Aðalsteinsson
Halldóra S. Hafsteinsdóttir Valur Sveinbjörnsson
Margrét Hafsteinsdóttir Þorsteinn Þorsteinsson
Jóhann Smári Ásgeirsson
barnabörn og barnabarnabörn