Morgunblaðið - 09.09.2021, Síða 48

Morgunblaðið - 09.09.2021, Síða 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021 ✝ Anna Margrét Þorsteins- dóttir fæddist 5. ágúst 1939. Hún lést 23. ágúst 2021. Foreldrar henn- ar voru Svanlaug Einarsdóttir (1911-1981) og Þorsteinn Guð- mundsson (1917- 1955). Maki hennar var Hörður Kristbjörn Jónsson (1934- 2017). Foreldar hans voru Ragn- hildur Hannesdóttir (1905- 1969) og Jón Ásgeir Guð- mundsson (1895-1981). Börn Önnu og Harðar eru Jón Ragnar Harðarson, maki hans var Aðalheiður Þor- steinsdóttir og börn þeirra eru 1. Hrafnkell, maki hans Þórunn Bergdís Heimisdóttir, 2. Anna Stína, maki hennar Bjarni Viðar Hólmarsson, syn- ir þeirra eru Viktor Bjarki og Brynjar Óli, 3. Þóra Steina, maki hennar er Arnþór Freyr Guðmundsson, sonur Rökkvi. Svanlaug Elín Harð- ardóttir, hennar maki er Theodór Skúli Þórðarson, dætur þeirra eru 1. Eydís Anna, 2. Vala Kristín. Dóttir Harðar og stjúpdóttir Önnu er Jóna Björk Guðmunds- dóttir, hennar maki er Jóhannes Sigurbjörnsson, börn þeirra eru 1. Guðmundur Bjarki, dóttir hans er Rúna Björk, 2. Gréta, maki hennar er Haf- steinn Þórisson, börn þeirra Helga María, Jóhannes Valur, Hafrún Tinna. 3. Björn Fannar, maki hans er Guðrún Guðmundsdóttir, börn þeirra eru Brynjar Pálmi, Guðmundur Andri og Emelía Karen. Anna Margrét lauk námi frá Húsmæðraskólanum á Laugarvatni og síðar útskrif- aðist hún frá Húsmæðrakenn- araskóla Íslands á Laug- arvatni. Hún starfaði lengi hjá Nátt- úrulækningabúðinni og síðar við kennslu sem heim- ilisfræðikennari við Árbæj- arskóla þar sem hún lauk sín- um starfsferli. Útför hennar fór fram í kyrrþey 1. september 2021. Um yndislegu Önnu Möggu á ég margar góðar minningar og þær ná langt aftur. Ætli árin séu ekki orðin 66 frá því að Hörður móðurbróðir minn sendi mig í mjólkurbúðina að spyrja laglegu brúneygðu stúlk- una sem þar afgreiddi, að nafni. Þar hófst sagan þeirra. Anna og Hörður áttu sér sælureit að Minna-Mosfelli i Grímsnesi og þar undu þau sér best og þangað tóku þau mig með sér hvert sumar sem og í önnur ferðalög. Æska mín hefði orðið önnur án þeirra. Árin liðu og áfram var gott að eiga þau að. Síðasta ferðalag okkar Önnu saman var fyrir nokkrum árum til Noregs þegar hún fór með okkur Helga í fermingu barna- barns okkar þar. Anna var góð og hún var al- veg einstaklega skemmtileg og þegar lífið færði henni sorgir og heilsuleysi þá kvartaði hún ekki. Hún vissi ekkert betra en að hafa fólkið sitt í kringum sig, því fleiri þvi betra og það var vænn hópur í kringum hana þegar hún kvaddi. Öllu hennar góða fólki votta ég samúð mína. Þórdís Guðmundsdóttir Anna Margrét Þorsteinsdóttir Ég kveð þig með miklum söknuði, elsku Adda systir mín og trúnaðarvin- kona, þú varst frá fyrstu tíð stóra fyrirmyndin mín og mér fannst yf- irleitt allt sem þú sagðir og gerðir vera það rétta og t.d. áttir þú ríkan þátt í að móta mig á unglingsárun- um. Þú sem varst elst í okkar stóra systkinahópi barst mikla um- hyggju fyrir okkur hinum og eftir að þið Sigurjón hófuð búskap dvöldu nokkur þeirra yngstu oft hjá ykkur um lengri eða skemmri tíma. Á unglingsárunum var alltaf tilhlökkunarefni að taka rútuna til Hveragerðis og heimsækja Öddu, oft yfir helgi, ekki síst eftir að þau eignuðust frumburðinn sinn hana Bryndísi sem var svo skemmtileg og mikill gleðigjafi. Seinna meir áttaði ég mig á því að þetta hafi nú kannski verið fullmikill átroðning- ur á heimili ungu hjónanna en aldr- ei skynjaði ég það, alltaf var manni vel tekið og í minningunni var alltaf gaman, góður matur og nýbakaðar kökur. Já, hún systir mín var svo myndarleg í öllum sínum verkum, heimilið hennar endurspeglaði snyrtimennskuna og fallegan smekk. Hún var líka svolítil pjatt- rófa, elsku systir mín, hafði yndi af að kaupa sér falleg föt og ekki síst skó, sem hún átti yfirleitt í góðu úr- vali. Í síðustu heimsókn minni til hennar á hjúkrunarheimilið í sum- ar hafði hún orð á því að hún þyrfti að kaupa sér nýja skó. Og veisl- urnar og kaffiboðin hjá Öddu voru með miklum glæsibrag og kæmi maður í óvænta heimsókn þá virtist hún yfirleitt eiga einhverja góm- sæta heimatilbúna eplaköku eða annað í frystinum, gestrisnin var í Arnþrúður Kristín Ingvadóttir ✝ Arnþrúður Kristín Ingva- dóttir fæddist 25. maí 1942. Hún lést 10. júlí 2021. Útför Arnþrúðar Kristínar fór fram 22. júlí 2021. fyrirrúmi á þessu heimili. Mitt fyrsta ferða- lag út á land þegar ég var 16 ára var ferð með þeim Öddu og Sigurjóni á æsku- stöðvar Sigurjóns norður í landi, þetta var mikið ævintýri og eftirminnileg ferð. Seinna í gegnum árin fórum við systur ásamt mökum í margar ferðir til sólarlanda og líka innanlands með hjólhýsin okkar, sem voru sérlega skemmtilegar ferðir og við áttum dýrmætar samverustundir í þess- um ferðum. Við höfðum alltaf svo margt að spjalla systurnar og voru umræðurnar bæði málefni þessa heims og oft líka annarra sem við deildum sameiginlegum áhuga á. Fyrir tæpum fjórum árum heimsóttu þau hjón ásamt dóttur og tengdasyni dótturdóttur í London, þetta var að sögn einkar skemmtileg ferð og Adda naut sín svo vel og þræddi stræti Lund- úna af miklu kappi svo að ferða- langarnir áttu fullt í fangi með að fylgja henni eftir. Aðeins nokkr- um dögum eftir þessa skemmti- legu ferð greindist systir mín með illvígan sjúkdóm sem hún háði baráttu við til dauðadags. Í þessu erfiða ferli sýndi hún aðdá- unarvert æðruleysi og dugnað. Var svo óendanlega þakklát fyrir tímann sem hún fékk með fólkinu sínu og notaði hann eins vel og kostur var. Síðustu mánuðina dvaldi hún á hjúkrunarheimili, það reyndist henni auðvitað erfitt á stundum en þar naut hún jafn- framt endalausrar umhyggju sinna nánustu sem hún var líka svo þakklát fyrir. Hjartkæra systir mín, eftir að þú kvaddir er tómarúm í hjart- anu mínu, bið englana að umvefja þig birtunni og leiða þig til ljóss- ins. Þín elskandi systir, Aðalheiður. ✝ Garðar Ein- arsson fæddist á Sæbóli í Kaldr- ananeshreppi í Strandasýslu 11. nóvember 1948. Hann lést á líkn- ardeild Landspít- alans 15. ágúst 2021. Foreldrar hans voru Einar Jakob Jónsson frá Sæbóli í Kaldrananeshreppi í Stranda- sýslu, f. 14. júlí 1914, d. 28. jan- úar 2007, og Hólmfríður Pálma- dóttir frá Akureyri, f. 28. ágúst 1919, d. 11. apríl 2010. Garðar átti fimm systkini, þau eru: Kristjana, f. í september 1939, hún lést tveggja vikna gömul; Steingrímur, f. 25. apríl 1941, d. dóttir, sem eru bæði látin. Garð- ar og Guðbjörg eignuðust einn son, Einar Má, f. 25. okt. 1968. Eiginkona hans er Eimee Bern- aldez Damasin, f. 9. ágúst 1979, og synir þeirra eru Garðar Már, f. 5. nóv. 2006, og Eythan Már, f. 24. maí 2011. Garðar ólst upp á Drangsnesi á Ströndum og lauk þaðan barnaskólaprófi. Hann hóf snemma að vinna og var hann fljótur að byrja að sækja sjóinn líkt og bræður hans allir. Garðar vann ýmis störf um ævina. Hann starfaði meðal annars í fiskbúð- inni Sæbjörgu og fiskbúðinni Hafrúnu í mörg ár áður en hann hóf störf hjá Slippfélaginu þar sem hann starfaði allt þar til í apríl á þessu ári. Garðar greind- ist með lungnakrabba fyrir sex árum. . Útför Garðars fór fram í kyrrþey að hans ósk 2. sept- ember 2021. 29. mars 2014. Eig- inkona hans var Inga Jóna Stein- grímsdóttir, hún lést 2002; Jón Krist- ján, f. 8. apríl 1943, d. 21. des. 2012. Eiginkona hans er Ingibjörg Hjörvar; Sigurður Pálmi, f. 18. apríl 1946. Eig- inkona hans er María Teodora Ge- Múnoz; Smári, f. 20. október 1950. Eiginkona hans er Bára Reynisdóttir. Hinn 14. júlí 1968 kvæntist Garðar eiginkonu sinni, Guð- björgu Ólafíu Bárðardóttur, f. 11. nóv. 1945, d. 28. okt. 2013. Foreldrar hennar voru Bárður S. Bárðarson og Helga Guðjóns- Góður félagi, Garðar Einarsson, hefur kvatt þessa jarðvist. Garðar gekk í Félag harmonikuunnenda Reykjavík á fyrstu árum þess og hefur líklega fylgt Steina svila sín- um og Gústu mágkonu. Hann gekk til liðs við hljómsveit FHUR í kringum 1990. Hann hafði afskap- lega þægilega nærveru og fallegt bros. Hann lærði á harmoniku hjá Karli Adolfssyni og Reyni Jónas- syni. Báðir voru meðal þeirra sem stjórnuðu hljómsveitum sem hann lék með. Það var aðdáunarvert hve hann var duglegur að mæta þrátt fyrir mikla vinnu við fiskbúðina og veikindin síðar. FHUR var í upp- hafi með tvær hljómsveitir sem spiluðu ýmist saman eða hvor fyrir sig. Hljómsveit Karls Adólfssonar fékk æfingaaðstöðu í sal hjá Kleppsspítala og þangað mætti Garðar og þar voru okkur kynnt swing-lögin og Django og fleiri fínir höfundar. Karl útsetti fyrir alla hljómsveitarmeðlimi og gerði oft flóknar útsetningar fyrir Gretti Björnsson, Reyni Jónasson og Sig- urð Alfonsson en við hin fengum þægilegri nótur. Meðan þau Garð- ar og Gugga áttu húsbílinn komu þau í harmonikuútilegur með okk- ur. Garðar starfaði árum saman í fiskbúðum, en hjá Slippfélaginu síðastliðin 16 ár og naut hann sín vel þar með góðum félögum. Hann hugsaði vel um Guggu sína. Eftir að hún lést var hann opnari um sín mál og var staðráðinn í að taka á næsta stóra verkefni sem hann fékk úthlutað. Þegar hann varð sjö- tugur fór hann til Berlínar ásamt góðum ferðafélaga. Hann tjáði for- manni að hann yrði undir Brand- enborgarhliðinu kl. 11:11 hinn 11. nóvember. Formaðurinn var þá úti í Berlín líka og við maki minn mættum á tilsettum tíma við hliðið en sáum hvergi Garðar. Seinna sagði hann mér, kíminn á svip, að hann hefði verið á íslenskum tíma. Við félagarnir, og aðrir, eigum góð- ar minningar um alls konar spjall og góða samveru. Nú er hann kom- inn í eilífa sumarlandið með Guggu sinni og við þökkum innilega sam- fylgdina og vottum nánustu að- standendum innilega samúð okkar. Minning hans mun lifa. Fyrir hönd Félags harmoniku- unnenda í Reykjavík, Elísabet Halldóra Einarsdóttir, formaður FHUR. Hinsta kveðja frá vinnufélögum í Slippfélaginu Fallinn er frá Garðar Einars- son. Garðar hafði starfað með okkur í Slippfélaginu í nær 20 ár. Það var strax ljóst að þar var kominn frábær starfsmaður þótt hann væri ekki af yngri kynslóð- inni. Hans aðalstarf var lagerv- inna, sem hann leysti af hólmi óaðfinnanlega svo eftir var tekið og vorum við heppnir að fá að njóta góðra starfskrafta hans sem og einnig viðskiptavinir okkar. En Garðar varð ekki bara vinnufélagi okkar, heldur góður vinur, en góð- mennska og hollusta var honum í blóð borin. Og þegar Garðar gekk svo í gegnum erfið veikindi sem hófust fyrir nokkrum árum hélt hann ótrauður áfram að mæta til okkar því ekki var annað í boði en að standa sína vakt. Það var svo í apríl sl. að Garðari okkar þótti nóg komið enda kominn á áttræð- isaldur. Tókum við starfslokum hans af fullri virðingu, en viðhorf hans var samt: hver ætti að sjá um morgunkeyrsluna? Ég var svo heppinn að vera í góðu sambandi við hann og átti ég góða kvöld- stund með honum fyrir stuttu. Síðasta samtal við hann átti ég nokkrum dögum fyrir andlátið og tjáði hann mér þá að komið væri að leiðarlokum. Það er nú ætíð þannig að þegar traust vinabönd hafa myndast er andlátsfregnin ævinlega þungbær, eins og hún varð okkur starfsmönnum Slipp- félagsins. Þar er farinn Stranda- maður góður og vottum við fjöl- skyldu Garðars okkar dýpstu samúð en minning um góðan mann lifir. F h. samstarfsfélaga í Slipp- félaginu í Reykjavík, Hilmar Runar Ingimarsson. Garðar Einarsson Harpa Heimisdóttir s. 842 0204 Brynja Gunnarsdóttir s. 821 2045 Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær s. 842 0204 | www.harpautfor.is Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR JÓHÖNNU JÓHANNSDÓTTUR, fyrrv. skólastjóra Hjúkrunarskóla Íslands. Bjarni Valtýsson Dóra Gerður Stefánsdóttir Jóhann Valtýsson Ewa Hjelm Valtýr Valtýsson Sigrún Björk Benediktsdóttir Sigríður Þórdís Valtýsdóttir Árni Jón Geirsson barnabörn og barnabarnabörn Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GARÐAR JÓHANNESSON húsasmíðameistari, Suðurlandsbraut 58, Reykjavík, lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, sunnudaginn 22. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Ástvinir þakka auðsýnda samúð og vinarhug. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Höfða fyrir góða umönnun. Sigurlaug Garðarsdóttir Sigvaldi Gunnarsson Jóhanna Ólöf Garðarsdóttir Axel Gunnar Guðjónsson Bryndís Garðarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar yndislegi faðir, tengdafaðir, afi og langafi, VÖLUNDUR JÓHANNESSON, húsasmíðameistari og fjallafari, varð bráðkvaddur í faðmi fjalla mánudagskvöldið 30. ágúst. Kveðjuathöfn verður í Egilsstaðakirkju laugardaginn 11. september klukkan 14. Útför fer fram frá Guðríðarkirkju í Grafarholti fimmtudaginn 16. september klukkan 14. Anna Ósk Völundardóttir Tryggvi Ólafsson Harpa Völundardóttir Kristján Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÍNA S. GUÐMUNDSDÓTTIR frá Grenivík í Grímsey, lést á Landspítalanum mánudaginn 6. september. Útförin verður auglýst síðar. Erlendur Geirdal Kolbrún Matthíasdóttir Guðmundur Gísli Geirdal Linda Jörundsdóttir Halldóra Sæunn Sæmundsd. ömmu- og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.