Morgunblaðið - 09.09.2021, Qupperneq 56
Eyþór var í mörgum hljómsveit-
um og var í Ljósunum í bænum og
Tívolí þar sem hann kynntist eig-
inkonu sinni, Ellen Kristjánsdótt-
ur. „Ég er tæplega tvítugur þegar
elsta dóttir mín fæðist. Við Ellen
vorum bæði á kafi í tónlistarbrans-
anum og það þarf oft að impróv-
isera mikið hvern dag til að allt
korna 17 ára og fleiri plötur.“ Í
menntaskólanum var Eyþór strax
kominn á kaf í tónlistina og reyndi
tvisvar að hætta í skólanum, en
Guðni rektor tók alveg fyrir það.
„Það endaði með því að ég tók
skólann utanskóla og ég er þakk-
látur Guðna fyrir að hafa verið
fastur fyrir.“
E
yþór Gunnarsson
fæddist 9. september
1961 í Reykjavík.
„Ég ólst upp víða í
Hlíðunum og við fór-
um á milli leiguíbúða í hverfinu.“
Grunnskólanámið tók Eyþór í fjór-
um skólum þar sem enginn skól-
anna náði yfir grunnskólatímabilið
allt og hann byrjaði í Ísaksskóla,
síðan Æfingadeild KÍ og tvö ár í
unglingadeild í Hlíðaskóla og svo
9. bekk í Vörðuskóla. Það var þó
bót í máli að allir krakkarnir í
hverfinu fylgdust að í þessu skóla-
brölti, en þegar að mennta-
skólaárunum kom fór Eyþór í MR
þegar félagarnir fóru flestir í MH.
„Það var hefð í fjölskyldunni fyrir
að fara í Menntaskólann í Reykja-
vík.“
Eyþór var þrjú sumur í sveit á
Jaðri í Suðursveit. „Sem barn var
ég ákveðinn í að verða dýralæknir
og bóndi,“ svo greinilega var hann
ánægður í sveitinni. Hann var líka
tvö sumur í sveit í Ölvisholti, rétt
hjá Selfossi, sem varð síðar frægt
fyrir bjórframleiðslu.
Eyþór var hugfanginn af tónlist
frá unga aldri. Pétur afi hans Pét-
ursson sá að strákurinn sótti mikið
í píanó sem var á heimilinu, og
beitti sér fyrir því að setja Eyþór í
píanónám. Eyþór fór í einkatíma
til Jórunnar Norðmann, frænku
Jórunnar Viðar tónskálds. „Það
var ekki langt nám, því ég hætti
þegar ég var 12 ára, en fór samt í
trompetnám í einn vetur fyrir til-
stuðlan Jóns Múla.“ Þótt formlegu
námi í píanóleik væri lokið var Ey-
þór óstöðvandi við píanóið og spil-
aði alla daga og stúderaði tónlist.
„Ég lít á mig sem hámenntaðan
tónlistarmann því tónlistin hefur
verið mín ástríða allt mitt líf.“
Eyþór eignaðist fyrsta hljóð-
færið 14 ára og fer þá strax að
spila með félögunum. Þegar Eyþór
er 16-17 ára eru vinir hans sem
síðar stofnuðu Mezzoforte byrjaðir
að spila saman. „Ég var farinn að
spila á böllum 16 ára, löngu áður
en ég hafði aldur til þess að vera
inni á vínveitingastöðum. Svo spil-
aði ég fyrst inn á plötu Manna-
gangi upp, og stundum erfitt að
gera langtímaplön.“
Á sama tímabili var Eyþór far-
inn að spila með Friðriki Karls-
syni, Jóhanni Ásmundssyni og
Gunnlaugi Briem í Mezzoforte sem
var stofnuð 1977, en hann og Frið-
rik voru líka að spila saman í bæði
Tívolí og Ljósunum í bænum.
Mezzoforte var að þróa sinn tón
upp úr áhrifum úr djassi, bræðingi
og fönki og fyrsta platan kom út
1979. Þegar Eyþór samdi lagið
Garden Party á plötunni Surprise
Surprise breyttist allt. „Við tókum
þessa plötu upp haustið 1982 og
þegar hún er gefin út í Englandi
1983 fór allt á fleygiferð. Ég var
að vinna hjá Steinari Berg í plötu-
útsölu uppi á Höfða og allt í einu
vorum við bara að flytja til Eng-
lands með fjölskyldurnar. Þetta
var mikið ævintýri og mjög skrýt-
ið að vera allt í einu kominn í mið-
punkt tónlistarbransans í London
og við flugum hátt í svolítinn tíma.
Í rauninni er stórmerkilegt að við
séum ennþá að. Við erum að fara
út seinna í þessum mánuði að spila
og erum með hátt í 20 tónleika á
þessu ári erlendis.“
Nú hefur Mezzoforte verið að
ferðast um heiminn í rúmlega 40
ár með hléum. Eyþór hefur spilað
með flestum helstu djössurum
landsins og hefur spilað inn á fjöl-
margar djassplötur í gegnum tíð-
ina. Þá er ótalin upptökustjórn, út-
setningar og samstarf við fjöldann
allan af listamönnum, bæði ís-
lenskum og erlendum í gegnum
tíðina. „Ég hef verið í Stuðmönn-
um frá 1997, þótt ég sé ekki í
framlínunni og hef svo tekið þátt í
mörgum fjölbreyttum verkefnum
með góðu fólki.“
Spurður um áhugamálin segir
hann ekki margt komast að fyrir
utan tónlistina. „Ég grúska mikið í
tónlist, en svo hef ég líka gaman
af að dunda mér við smíðar heima
hjá mér og víla ekki fyrir mér að
grípa í verkfærin ef þess þarf.“
Það er kannski ekki skrýtið að öll
börn Eyþórs og Ellenar hafi fetað
í fótspor foreldranna og fylgt tón-
listargyðunni. „Þau ólust upp við
Eyþór Gunnarsson tónlistarmaður – 60 ára
Byrjaður að spila á böllum 16 ára
Ljósmynd/Daníel Starrason
56 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021
TORMEK Brýnsluvélar
▲ Tormek T-4
Verð 69.430
▲ Tormek T-8
Verð 117.930
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Erum með þúsundir vörunúmera
inn á vefverslun okkar brynja.is
Allar stýringar fyrirliggjandi
50 ÁRA Óli Jón fæddist í
Keflavík og hefur búið þar alla
tíð nema þau ár sem hann var í
námi erlendis. „Ég elst upp á
Hringbrautinni og flyt mjög
snemma í Eyjabyggðina sem
var að byggjast upp.“ Eftir
grunnskólann hélt Óli Jón
áfram í iðnnámi. „Ég tek nokkr-
ar iðngreinar og fer bæði í vél-
stjórann, rafvirkjann og bifvéla-
virkjann.“ Hann útskrifaðist úr
fyrsta útskriftarárgangi Borg-
arholtsskóla þar sem hann lauk
við bifvélavirkjunina og var
fyrsti iðnneminn sem fékk að
leggja blómsveig að styttu Jóns
Sigurðssonar árið 1997.
Eftir námið fór Óli Jón að
vinna í virkjunum en árið 2000
fór hann til Álaborgar í Dan-
mörku að læra verkfræði. „Ég kynntist konunni minni þegar ég var í náminu
og við byrjuðum að búa í framhaldi af útskriftinni og giftum okkur 2012.“ Óli
Jón útskrifaðist 2006 korter í hrun og vann víða. „Þetta var ansi mikil áskor-
un.“ Hann fór að vinna hjá stærri verkfræðistofum og ákvað svo að söðla um.
„Um áramótin 2019-20 stofnaði ég mína eigin verkfræðistofu, ÓJS verk-
fræðistofu í Reykjanesbæ, og er mjög ánægður með að vera minn eigin herra.“
Þar sem fimm börn eru í fjölskyldunni og menn eru í sjálfstæðum rekstri
fara lausar stundir mest í gæðastundir með fjölskyldunni og svo reynir fjöl-
skyldan að ferðast eftir megni.
FJÖLSKYLDA Eiginkona Óla Jóns er Sonja Sigurjónsdóttir, vinnur hjá
Isavia, f. 27.2. 1978. Börnin eru tvíburarnir Thelma Rún og Viktor Ingi, f. 1997;
Katla Mist, f. 2007; Sigurður Breki, f. 2008 og Bjartur Orri, f. 2015. Foreldrar
Óla Jóns eru Sigurður G. Ólafsson, vatnsveitustjóri og verkstjóri, f. 1942 og
Erna Jónsdóttir verkakona, f. 1936, d. 1985. Þau fóru að búa í Keflavík árið sem
Óli Jón fæddist.
Óli Jón Sigurðsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Nú gengur allt á afturfótunum í
vinnunni. Vertu skorinorður þegar þú út-
skýrir hugmyndir þínar fyrir öðrum.
20. apríl - 20. maí +
Naut Gefðu þér tíma til að njóta dags-
ins með börnunum í dag. Taktu ekki
fleiri verkefni að þér en þú getur ráðið
við.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Reyndu að hafa stjórn á eyðsl-
unni. Ef þú ræðir opinskátt um innstu
þrár þínar eru meiri líkur til að þær ræt-
ist.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Nú ríður á að vera vel undir-
búin/n til þess að leysa verkefni dags-
ins. Láttu engan þvinga þig til sam-
komulags heldur láttu í þér heyra.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Gefðu þér tíma til að rétta fjárhag-
inn við og finna leiðir til þess að auka
innkomuna. Láttu það ekki á þig fá þótt
aðrir kvarti.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Stundum er rétta aðferðin sú að
þoka sér áfram skref fyrir skref. Fylgstu
með viðbrögðum vina til að kanna hvort
þú sért á réttri leið.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú
lánar öðrum peninga. Ástamálin eru í
blóma og þú heyrir kirkjuklukkur hringja.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Einhverjar spurningar
kunna að vakna um heilsufar þitt. Allir
hlutir kosta sitt en það er forgangsröðin
sem skiptir máli.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú ert aldrei of gamall/
gömul til að læra. Haltu þínu striki og
láttu athugasemdir sem vind um eyru
þjóta.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Búðu þig undir óvænta uppá-
komu á heimilinu eða í fjölskyldunni.
Ekki láta selja þér óþarfa.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það getur reynst nauðsynlegt
að leita sér ráða í fjármálum. Er kominn
tími á að breyta til? Athugaðu hvað er í
boði.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú kemur svo sannarlega miklu í
verk þessa dagana. Taktu ekki of mikið
mark á hugsunum þínum í dag því þær
litast af skorti á sjálfstrausti.
Til hamingju með daginn