Morgunblaðið - 09.09.2021, Qupperneq 58
58 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021
Undankeppni HM karla
B-RIÐILL:
Grikkland – Svíþjóð.................................. 2:1
Kósóvó – Spánn ........................................ 0:2
Staðan: Spánn 13, Svíþjóð 9, Grikkland 6,
Kósóvó 4, Georgía 1.
C-RIÐILL:
Ítalía – Litháen......................................... 5:0
N-Írland – Sviss ....................................... 0:0
Staðan: Ítalía 14, Sviss 8, Norður-Írland 5,
Búlgaría 5, Litháen 0.
E-RIÐILL:
Hvíta-Rússland – Belgía.......................... 0:1
Wales – Eistland....................................... 0:0
Staðan: Belgía 16, Tékkland 7, Wales 7,
Hvíta-Rússland 3, Eistland 1.
I-RIÐILL:
Albanía – San Marínó............................... 5:0
Ungverjaland – Andorra ......................... 2:1
Pólland – England.................................... 1:1
Staðan: England 16, Albanía 12, Pólland 11,
Ungverjaland 10, Andorra 3, San Marínó 0.
J-RIÐILL:
Armenía – Liechtenstein ......................... 1:1
Ísland – Þýskaland................................... 0:4
N-Makedónía – Rúmenía......................... 0:0
Staðan: Þýskaland 6 5 0 1 17:2 15
Armenía 6 3 2 1 7:9 11
Rúmenía 6 3 1 2 9:6 10
N-Makedónía 6 2 3 1 11:6 9
Ísland 6 1 1 4 6:14 4
Liechtenstein 6 0 1 5 2:15 1
Meistaradeild kvenna
2. umferð, seinni leikir:
Lyon – Levante ........................................ 2:1
- Sara Björk Gunnarsdóttir hjá Lyon er í
barneignarfríi.
Bordeaux – Wolfsburg............................ 3:2
- Svava Rós Guðmundsdóttir kom inn á
sem varamaður á 73. mínútu hjá Bordeaux.
með Bordeaux.
Häcken – Vålerenga................................ 3:2
- Diljá Ýr Zomers var ónotaður varamað-
ur hjá Häcken.
- Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik-
inn með Vålerenga og Amanda Andradóttir
fyrri hálfleikinn.
Hoffenheim – Rosengård ....................... 3:3
- Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn
með Rosengård.
Svíþjóð
Bikarkeppni:
Almhult – Kalmar.................................... 3:9
- Andrea Thorisson var ekki með Kalmar.
>;(//24)3;(
Þýskaland
Hamburg – Göppingen ....................... 27:28
- Janus Daði Smárason skoraði ekki fyrir
Göppingen.
Lemgo – Melsungen ............................ 26:26
- Bjarki M. Elísson skoraði 4 fyrir Lemgo.
- Elvar Örn Jónsson skoraði 5 mörk fyrir
Melsungen, Arnar Freyr Arnarsson 3 og
Alexander Petersson 1. Guðmundur Þ.
Guðmundsson er þjálfari liðsins.
Kiel – Balingen .................................... 33:24
- og Daníel Þór Ingason skoraði 2 mörk
fyrir Balingen. Oddur Gretarsson er
meiddur.
Danmörk
Aalborg – Ringsted ............................. 38:30
- Aron Pálmarsson skoraði 3 mörk fyrir
Aalborg. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari.
Ringköbing – Viborg .......................... 25:31
- Elín Jóna Þorsteinsdóttir varði 10 skot í
marki Ringköbing.
Pólland
Kielce – Gwardia Opole...................... 40:24
- Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 2
mörk fyrir Kielce en Haukur Þrastarson er
meiddur.
Noregur
Bikarkeppni:
Lilleström – Drammen ....................... 18:49
- Óskar Ólafs. skoraði ekki hjá Drammen.
Sarpsborg – Oppsal............................. 17:29
- Birta Rún Grétarsdóttir skoraði ekki
fyrir Oppsal.
Svíþjóð
Bikarkeppni:
Guif – Vinslöv....................................... 29:27
- Aron Dagur Pálsson skoraði ekki fyrir
Guif. Daníel Freyr Ágústsson varði mark
liðsins.
Lugi – Eslöv.......................................... 34:25
- Ásdís Þóra Ágústsdóttir lék ekki með
Lugi vegna meiðsla.
E(;R&:=/D
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu kvenna:
Kópavogsvöllur: Breiðablik – Osijek....... 17
Lengjudeild kvenna:
Vivaldivöllur: Grótta – KR ...................19:15
Víkingsv.: Víkingur R. – Grindavík .... 19:15
Kórinn: HK – Augnablik...................... 19:15
Varmá: Afturelding – FH.................... 19:15
Ásvellir: Haukar – ÍA........................... 19:15
HANDKNATTLEIKUR
Bikarkeppni karla:
Varmá: Afturelding – ÍBV........................ 18
Hertz-höllin: Grótta – Stjarnan .......... 19:30
Dalhús: Vængir Júpíters – KA............ 19:30
Kaplakriki: FH – Haukar .................... 20:30
Í KVÖLD!
Miðjumaðurinn ungi, Kristian
Nökkvi Hlynsson, er hluti af leik-
mannahópi hollenska stórveldisins
Ajax sem félagið hefur tilkynnt fyr-
ir komandi átök í Meistaradeild
Evrópu í knattspyrnu í haust.
Kristian Nökkvi, sem er aðeins
17 ára gamall, hefur verið að æfa
með aðalliði Ajax og spilar með
varaliði þess í næstefstu deild í Hol-
landi. Þá lék hann fyrstu tvo lands-
leiki sína fyrir U21-árs landsliðið í
yfirstandandi landsleikjahléi, þar
sem hann var í byrjunarliðinu gegn
Hvíta-Rússlandi og Grikklandi.
Kristian valinn í
hópinn hjá Ajax
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Efnilegur Kristian Nökkvi í leikn-
um gegn Grikkjum á þriðjudaginn.
Tvö Íslendingalið komust áfram í
riðlakeppni Meistaradeildar
kvenna í knattspyrnu í gær en þrjú
féllu úr keppni. Lyon og Häcken
komust áfram. Sara Björk Gunn-
arsdóttir er í barneignafríi hjá
Lyon og Diljá Ýr Zomers kom ekki
við sögu hjá Häcken sem sló út
Vålerenga.
Svava Rós Guðmundsdóttir fékk
að spreyta sig þegar Bordeaux féll
naumlega úr keppni gegn þýska
stórliðinu Wolfsburg. Guðrún Arn-
ardóttir lék með Rosengård sem
féll úr keppni gegn Hoffenheim.
Morgunblaðið/Eggert
Bordeaux Svava Rós Guðmunds-
dóttir mætti Wolfsburg í gær.
Þrjú Íslendinga-
lið úr leik
Í LAUGARDAL
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Firnasterkt lið Þýskalands lenti ekki
í teljandi vandræðum gegn Íslend-
ingum á Laugardalsvelli í gærkvöldi
þegar liðin mættust í undankeppni
HM í knattspyrnu. Þýskaland vann
4:0 eftir að hafa verið 2:0 yfir að lokn-
um fyrri hálfleik. Þjóðverjar gátu
nánast teflt fram sínu sterkasta liði
og höfðu góð tök á leiknum.
Á 4. mínútu gerðist það sem mátti
ekki gerast. Þýska liðið, sem kom til
Íslands eftir 6:0 sigur, gegn Armeníu
á dögunum, fékk óskabyrjun í Laug-
ardalnum. Serge Gnabry skoraði af
stuttu færi eftir sendingu frá Leroy
Sane. Reyndar veifaði aðstoðardóm-
arinn flaggi sínu til merkis um rang-
stöðu. Atvikið var skoðað í VAR og
niðurstaðan var sú að markið fékk að
standa enda virtist Gnabry vera rétt-
stæður.
Hið öfluga lið Þjóðverja var því
strax komið í þægilega stöðu gegn ís-
lenska liðinu sem hefur átt í erf-
iðleikum með að safna stigum í und-
ankeppninni.Ósennilegt var að
Þjóðverjar myndu láta slíka stöðu sér
úr greipum ganga og sú varð heldur
ekki raunin.
Þjóðverjar fylgdu markinu þó ekki
eftir með miklum sóknarþunga. Þeir
sóttu ekki mikið í beinu framhaldi af
markinu og leikurinn var fremur ró-
legur næsta kortérið. Á 24. mínútu
bættu þeir hins vegar við marki. Mið-
vörðurinn Antonio Rüdiger skallaði
knöttinn í netið eftir aukaspyrnu frá
Joshua Kimmich. Frá sjónarhóli Ís-
lendinga er leiðinlegt að fá á sig mark
sem þetta. Þýskaland fékk auka-
spyrnu á miðjum vallarhelmingi Ís-
lands. Boltinn var sendur inn á teig-
inn og Rudiger fékk að skalla svo
gott sem óáreittur og nýtti sér það
vel.
Þegar Þýskaland skoraði sitt ann-
að mark hafði Ísland fengið eitt
ágætt skotfæri. Hinn ungi Ísak Berg-
mann átti þá skottilraun eftir hraða
sókn og spil við Þóri Jóhann Helga-
son. Fínir taktar hjá Ísak og Þóri í
þessu tilfelli.
Á 27. mínútu varði Hannes Þór
Halldórsson mjög vel frá Ilkay Gün-
dogan. Mjög vel gert hjá Hannesi og
litlu munaði að staðan yrði 3:0 áður
en hálftími væri liðinn.
Stangarskot fyrirliðans
Þjóðverjarnir róuðust nokkuð það
sem eftir var af fyrri hálfleik. Ís-
lenska liðið fékk upplagt tækifæri til
að skora rétt fyrir hlé. Ísland fékk
skyndisókn á 43. mínútu. Albert Guð-
mundsson fékk boltann og keyrði
fram vinstra megin. Þórir og Jóhann
Berg Guðmundsson voru með honum
hægra megin og Íslendingar voru
þrír á móti þremur. Albert rakti bolt-
ann full lengi. Hann kom boltanum
þó á Þóri sem sendi áfram á Jóhann
Berg. Færið var orðið nokkuð þröngt
Fagmannlega gert hjá
- Betra liðið vann
sanngjarnan sigur
- Jóhann komst
næst því að skora
101 Birkir Bjarnason með boltann í
landsleik númer 101. Leroy Sane og
Leon Goretzka hafa gætur á honum.
Selfyssingurinn Elvar Örn Jónsson
fór vel af stað í frumraun sinni í
þýsku 1. deildinni í handknattleik í
gær. Nýtt keppnistímabil fór af stað
í gær með nokkrum leikjum í þýsku
deildinni og Íslendingaliðið Melsun-
gen heimsótti bikarmeistarana í
Lemgo. Gerðu liðin jafntefli 26:26.
Elvar Örn skoraði 5 mörk fyrir
Melsungen. Gaf auk þess tvær stoð-
sendingar. Arnar Freyr Arnarsson
var einnig drjúgur og skoraði þrjú
mörk. Alexander Petersson fór til
Melsungen í sumar eins og Elvar.
Alexander skoraði eitt mark og átti
tvær stoðsendingar en Alexander
hefur leikið í meistaraflokki í meira
en tvo áratugi og sýnir engin þreytu-
merki. Guðmundur Guðmundsson
stýrir Melsungen eins og áður.
Bjarki Már Elísson var á sínum
stað í horninu hjá Lemgo og skoraði
fjögur mörk.
Daníel Þór Ingason lék sinn fyrsta
leik fyrir Balingen og verkefnið var
ærið. Útileikur gegn Kiel. Daníel
skoraði tvö mörk gegn stórliðinu en
Kiel vann 33:24.
Ljósmynd/HSÍ
Melsungen Arnar Freyr Arnarsson og Elvar Örn Jónsson standa hér vakt-
ina í landsleik. Þeir eru einnig orðnir samherjar hjá félagsliði.
Fjórir Íslendingar
léku í Lemgo
- Frumraun Elvars og Daníels