Morgunblaðið - 09.09.2021, Qupperneq 64
» Gagnvirk múmínálfa-
sýning var opnuð í
Norræna húsinu á upp-
hafsdegi Bókmennta-
hátíðar í Reykjavík. Á
sýningunni geta börn og
fullorðnir kynnt sér íbúa
Múmíndalsins, skoðað
stafrófið og rætt ýmsar
tilfinningar. Á opnunar-
deginum las Sophia Jans-
son, bróðurdóttir Tove
Jansson, fyrir gesti.
Lesið og skrifað með Múmínálfum í Norræna húsinu
Rólegheit Þeim sem kunna að lesa þarf aldrei að leiðast.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Klifur Gestir nutu þess að geta klifrað á litríkum vegg í Norræna húsinu.
Yndislestur Sophia Jansson tók á móti hópi nemenda úr Vesturbæjarskóla og las upphátt fyrir krakkana.
Tjáning Glatt var á hjalla á sýningunni um Múmíndal.
64 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2021
www.gilbert.is
Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum
við okkur í úrsmíði, hönnun
og framleiðslu úra
Collaborative Contaminations nefnist nýtt verk
eftir Rósu Ómarsdóttur í samstarfi við Hákon
Pálsson sem sýnt er í Mengi 9., 10. og 11. sept-
ember kl. 20. „Verkið er bæði performans og
innsetning. Á daginn geta gestir og gangandi
séð verkið sem innsetningu og á kvöldin fram-
kvæmir Rósa performans í rýminu. Í verkinu
skoða þau hvernig hegðun vatns breytist þegar
það verður fyrir einhvers konar mengun. Hvað
gerist ef við lítum á mengun sem tækifæri til
samstarfs? Í performansinum notar Rósa kóe-
rógrafískar leiðir til að skapa dans fyrir vatn,
loft, ljós, hljóð og litarefni. Hreint vatnið verður
mengað og umbreytist í töfrandi landslag þar
sem ýmsar myndir birtast sem minna m.a. á
frumur, norðurljós, sjóðandi leðju eða vetrarbrautir, sem dansa í takt við
hljóðheim vatns og íss,“ segir í tilkynningu. Innsetningin er opin föstudag
og laugardag milli kl. 13 og 18.
Innsetning og performans í Mengi
Vatn Hluti af innsetningu
Rósu og Hákons í Mengi.
Elisions, samsýning, verka eftir
bandaríska listafólkið N. Dash,
K.R.M. Mooney, B. Ingrid Olson og
Carrie Yamaoka, verður opnuð í i8
í dag, fimmtudag, kl. 17. Til sýnis
eru verk sem eiga grunn sinn í mál-
verkum, ljósmyndun og skúlptúr,
segir í tilkynningum og að í verk-
unum megi sjá tilætlun og tilviljun
skiptast á við að miðla ferli endur-
tekningar, endurgerðar, yfirlagn-
ingar og myndskurðar.
„Úrfelling (Elision) er brottfall. Á
tæknilegan hátt er úrfelling tengd
við úrfellingarmerki og fjarverandi
enda. Hún er stytting, þjöppun á
orði, eða orðum. Hún er sam-
dráttur. Þegar tvennt verður að
einu, eða eitt
verður þjappað
saman á milli
tungu og tanna
rétt eins og
munnurinn sé
sorpkvörn sem
þjappar orðinu
saman í sorp-
bagga. Eitt sinn
stórt og óskil-
greint, er sorpbagginn nú fljót yrt-
ur, samþjappaður og umbreyttur:
þéttur og óhaggandi, með ekkert
rými til að gefa eftir og ekkert loft
á milli harðra samhljóðalína,“ segir
m.a. í tilkynningunni og má frekari
upplýsingar finna á i8.is.
Samsýningin Elisions opnuð í i8
B. Ingrid Olson
Pamela De Sensi flautuleikari og
Guðríður St. Sigurðardóttir píanó-
leikari koma fram á hádegistón-
leikum í Fríkirkjunni við Tjörnina
í dag, fimmudag, kl. 12. „Tónleik-
arnir eru ferðalag milli tveggja
tónlistarheima sem verða til á
svipuðum tíma en eru algjörlega í
andstæðum stíl. Annars vegar er
um að ræða hinn viðkvæma og
einstæða hljóm Belle Epoque og
hins vegar hina ástríðufullu
ítölsku óperutónlist eftir Bel
Canto-tónskáldin. Verkin eru sam-
in fyrir flautu og píanó af frægum
ítölskum og frönskum tónskáldum
þessa tíma,“ segir í tilkynningu.
Tónleikarnir eru hluti af tónleika-
röðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkj-
unni. Þeir taka um hálfa klukku-
stund.
Ítölsk og frönsk verk á flautu og píanó
Guðríður St.
Sigurðardóttir
Pamela
De Sensi
Átta viðburðir eru á dagskrá Bók-
menntahátíðar í Reykjavík í dag.
Fyrstu fjórir viðburðir dagsins fara
fram í Norræna húsinu. Klukkan 11
ræða Patrik Svensson og Halla Þór-
laug um það að skrifa sig frá sorg og
missi. Björn Halldórsson stýrir um-
ræðum. Klukkan 12 ræða Sigrún
Pálsdóttir, Helene Flood og Alex-
ander Dan um það hvernig hug-
myndir kvikna og hvort efnið bindi
formið eða öfugt. Árni Matthíasson
stýrir umræðum. Klukkan 13 ræða
Vigdis Hjort og Saša Stanišic um
mörk skáldskapar og raunveruleika.
Fríða Ísberg stýrir umræðum.
Klukkan 15.30 hefst pallborð um
íslenskar bókmenntir erlendis á
þeim tíu árum sem liðin eru síðan
Ísland var heiðursgestur á Bókasýn-
ingunni í Frankfurt. Opnunarávarp
flytur Christopher MacLehose,
útgefandi hjá Mountain Leopard
Press. Í umræðum taka þátt Jürgen
Boos, forstjóri Bókasýningarinnar í
Frankfurt, Regina Kammerer, út-
gefandi hjá btb og Luchterhand í
Þýskalandi, Tina Flecken, þýðandi
íslenskra bóka á þýsku, og Halldór
Guðmundsson, sem stjórnaði
heiðursþátttöku Íslands. Thomas
Böhm blaðamaður og útgefandi
stýrir umræðum. Næstu fjórir við-
burðir dagsins fara fram í Iðnó.
Klukkan 17 er bókinni Erindi – Póe-
tík í Reykjavík fagnað. Bókin kemur
út í tilefni tíu ára afmælis Reykjavík-
ur sem Bókmenntaborgar UNESCO
og inniheldur hugleiðingar fjórtán
höfunda um bókmenntir og sköpun.
Klukkan 19 fjalla Saša Stanišic og
Barbara Demick um stríð og frið í
skáldskap og fræðilegum skrifum.
Silja Bára Ómarsdóttir stýrir um-
ræðum. Klukkan 20 ræða Khaled
Khalifa, Margrét Lóa og Alexander
Dan um það hvort skáldskapurinn
þurfi alltaf að vera í einhverjum
tengslum við raunveruleikann. York
Underwood stýrir umræðum.
Klukkan 21 ræða Helene Flood,
Monika Fagerholm og Gerður
Kristný um ofbeldi og myrkraverk.
Ivan Wadeson stýrir umræðum.
Sorg, myrkraverk
og sögueyjan Ísland
- Átta viðburðir hjá Bókmenntahátíð
Monika
Fagerholm
Patrik
Svensson