Morgunblaðið - 07.10.2021, Page 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2021
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
595 1000
re
ys
tá
n
fy
rTenerife
a
á
rb
28. október aðra leið
Flugsæti í sólina!
Flug frá kr.
19.950
flugsæti aðra leið
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Berglind Soffía Ásbjörnsdóttir Blön-
dal, klínískur næringarfræðingur og
sérfræðingur hjá Heilsuvernd, er að
hefja rannsókn á næringarástandi
íbúa á hjúkrunarheimilum á Akur-
eyri. Vísindasiðanefnd hefur sam-
þykkt gerð rann-
sóknarinnar sem
er sú fyrsta af
þessu tagi hér á
landi.
Rannsóknin
nær til allra íbúa
á dvalarheimilun-
um Hlíð og Lög-
mannshlíð á
Akureyri. Berg-
lind gerir ráð fyr-
ir að um 4 mánuði taki að gera rann-
sóknina og að niðurstöður geti legið
fyrir í febrúar. Þær verða nýttar í
gæðavinnu varðandi næringu aldr-
aðra.
„Næringarástand íbúa á hjúkrun-
arheimilum hér á landi hefur aldrei
verið rannsakað áður. Slíkar rann-
sóknir hafa verið gerðar víða erlend-
is og í ljós komið að 40 og upp í 60%
íbúanna eru oft vannærð eða í auk-
inni hættu á að verða vannærð,“ seg-
ir Berglind.
Næringarfræðingar hafa ekki ver-
ið að störfum inni á dvalar- og hjúkr-
unarheimilum hér á landi, en víða er-
lendis eru þeir ein af fagstéttum sem
starfa innan þess geira.
Berglind ætlar að skima alla íbúa,
187 íbúa heimilanna fyrir áhættunni
á að verða vannærðir eða hvort þeir
búi við vannæringu þegar. Gerir hún
ráð fyrir að ljúka þeirri vinnu fyrir
áramót.
Viðkvæmur hópur
„Þetta er mjög viðkvæmur hópur
og það geta margvíslegar ástæður
verið fyrir því að þeir búi við næring-
arskort,“ segir Berglind. „Oft er um
sambland af ýmsum vandamálum að
ræða.“ Hún segir að með vaxandi
aldri minnki matarlyst fólks yfirleitt.
Sjúkdómar af margvíslegu tagi,
bæði líkamlegir og andlegir hafi
áhrif, lyf sem fólk tekur geta einnig
haft áhrif á matarlyst, léleg munn-
og tannheilsa sömuleiðis. Þá nefnir
hún að einmanaleiki og leiði dragi
gjarnan úr löngun fólks til að neyta
matar og eins minnki færni þess.
„Orkuþörf aldraðra minnkar lítil-
lega með árunum, en vítamín- og
steinefnaþörf stendur í stað og í ein-
hverjum tilvikum eykst þörf fyrir
sum vítamín og steinefni. Þá stór-
eykst próteinþörf fólks með aldrin-
um. Það getur því verið vandasamt
að næra þennan viðkvæma hóp og
gæta þess að allar þarfir séu upp-
fylltar,“ segir Berglind.
Hún telur mikilvægt að gera þessa
rannsókn til að sjá hvort hið sama sé
uppi á teningunum hér á landi og
víða erlendis þegar kemur að nær-
ingarástandi fólks á hjúkrunarheim-
ilum.
„Það verður þá að bregðast strax
við með viðeigandi hætti reynist þörf
á því, bæði til þess að laga næringar-
ástand íbúa hjúkrunarheimila og til
þess að auka lífsgæði þeirra eins og
hægt er.“
Rannsakar næringarástand
- Fyrsta rannsóknin af þessu tagi hér á landi - Gerð á tveimur hjúkrunarheimilum á Akureyri
- Samþykkt af Vísindasiðanefnd - Margvíslegar ástæður að baki næringarskorti hjá eldra fólki
Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir
Hreyfing Rannsóknin verður m.a. gerð meðal íbúa á Hlíð. Hluti þeirra tók í
vikunni þátt í alþjóðlegri þrekhjólakeppni hjúkrunarheimila og náði 2. sæti.
Berglind S. Á.
Blöndal
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
„Þetta er mjög stórt verkefni, en
skemmtilegt. Þetta er samfélags-
verkefni og ávinningurinn fyrir
íbúa hér um slóðir verður mikill,“
segir Jón Heiðar Rúnarsson skóg-
arhöggsmaður, sem ásamt mörg-
um af reyndustu skógarhöggs-
mönnum landsins er önnum kafinn
við að höggva tré í Vaðlareit hand-
an Akureyrar.
Til stendur að leggja stíg um
Vaðlareit sem verður hluti af
hjóla- og göngustíg sem nær frá
mörkum Akureyrar við Leirubrú
og að norðurmörkum Svalbarðs-
strandarhrepps. Fyrsti áfangi
verksins nær frá Vaðlaheiðar-
göngum og að Skógarböðum sem
verið er að reisa syðst í Vaðla-
reitnum.
Ansi mikið verk
Jón Heiðar segir að verkið taki
um tvær vikur og þá fyrri verður
höggvið í óðaönn þá tæpu 2 kíló-
metra sem stígurinn um reitinn er.
Síðari vikan verður notuð til að
fara yfir verkið, snyrta og lagfæra.
Skógræktarfélag Eyjafjarðar
stendur fyrir skógarhögginu, en
Svalbarðsstrandarhreppur sér um
gerð göngu- og hjólastígsins. Vatn
frá Vaðlaheiðargöngum verður
leitt undir stíginn, bæði heitt og
kalt, og að Skógarböðunum og eins
til Akureyrar. Skógræktarfélagið
hafði samband við Jón Heiðar
vegna þessa verkefnis, en hann á
félagið Skógarmenn.
Fjölbreyttur skógur
„Ég fór strax af stað og hóaði í
landsliðið,“ segir hann en skógar-
höggsmenn af stóru svæði voru
kallaðir til, frá Egilsstöðum til
Reykjavíkur. Þegar mest er mæta
11 skógarhöggsmenn í vinnuna í
Vaðlareit segir Jón Heiðar og tveir
og tveir vinna saman og taka
ákveðna bita af skóginum og aðrir
tveir koma á móti. Þannig eru
skógarhöggsmennirnir dreifðir um
allan reit, frá norðri og suður úr.
„Þetta gengur vel, skógurinn er
fjölbreyttur, þarna er birkikjarr og
allt upp í stærðarinnar greni- og
furutré og allt þar á milli þannig
að við erum að fást við alls konar á
leiðinni í gegn,“ segir Jón Heiðar.
Hann segir gaman að taka þátt í
þessu verkefni og er sannfærður
um að þessi stígur opni möguleika
fyrir marga að fara um fallegan
stað sem ekki var aðgengilegur áð-
ur. „Þetta verður algjör perla, án-
ingarstaðir með góðu útsýni sem
eflaust draga að sér fólk sem einn-
ig mun nýta stíginn í heilsubótar-
göngu eða til hjólreiða.“
Landsliðið í skógar-
höggi í Vaðlareit
- Grisja fyrir hjóla- og göngustíg - Mikill ávinningur fyrir íbúa
Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir
Skógarhögg Jón Heiðar Rúnarsson og Ingólfur Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyjafjarðar, við fallið tré.
Hreyfing mælist enn á fleka í
skriðusárinu á Seyðisfirði frá því í
desember 2020. „Þetta er ennþá að
hreyfast hægt og rólega, einhverjir
millimetrar á dag,“ sagði Esther
Hlíðar Jensen, skriðusérfræðingur
hjá Veðurstofu Íslands, þegar
Morgunblaðið ræddi við hana í
gærkvöld.
Örlítilli slyddu var spáð í nótt en
búist er við mikilli úrkomu eftir há-
degi í dag. Veðurstofan mun fylgj-
ast grannt með gangi mála, líkt og
hún gerði í nótt, til þess að sjá
hvaða áhrif úrkoma hefur á flekann.
„Það er hugsanlegt að það gæti
orðið einhver breyting frá því sem
verið hefur hingað til.“ Þá er flek-
inn sem um er að ræða eini stað-
urinn þar sem hreyfing finnst.
„Við getum ekki útilokað að það
hrynji eitthvað niður þarna,“ segir
Esther. Því hafi verið gripið til
rýminga. „Við vitum ekki hvenær
kemur brotpunktur en þetta er að
silast hægt og rólega og þegar það
rignir ofan í það eru meiri líkur á
að hreyfingin verði hraðari.“
Enn stendur rýming yfir og mun
hún standa yfir að minnsta kosti
meðan úrkoman varir og fram yfir
helgi. Almannavarnir sjá um rým-
inguna.
Fylgjast áfram
vel með stöðunni
- Talsverðri úrkomu spáð á Seyðisfirði
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Fjarfundur Veðurstofa Íslands hélt
fjarfund á Seyðisfirði í fyrradag.