Morgunblaðið - 07.10.2021, Page 10

Morgunblaðið - 07.10.2021, Page 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2021 Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Þeir horfa á hann undrandi, vín- bændurnir í brattlendinu í Sviss, þar sem hann stikar eftir ekrunum og beitir óvanalegum aðferðum við víngerðina. Höskuldur Hauksson er sannarlega ekki neitt venjulegur vínbóndi. Sem ungur maður fiktaði hann við víngerð í kjallaranum heima hjá foreldrum sínum og með- an á doktorsnámi í stærðfræði stóð í Kaliforníu vandi hann komur sínar á ekrurnar í Napa-dalnum. Áratugum síðar hefur hann sagt skilið við al- þjóðlega hrávöru- og fjármálamark- aði og hefur helgað líf sitt víngerð í heimalandi eiginkonunnar. Höskuldur er gestur Dagmála í dag, streymisþætti á mbl.is, þar sem hann ræðir framleiðsluna og ræktunarstarfið, áskoranir og tæki- færi sem hann stendur frammi fyr- ir. Hann var nýverið staddur hér á landi til að kynna nýjustu vínin úr smiðju sinni. Það gerði hann á opnu smakki á Reykjavík Hilton Nordica og mætti þar fjöldi fólks til þess að kynna sér herlegheitin. Handaflið nýtt til fulls Á nokkrum stöðum í Sviss hefur Höskuldur komið sér upp ekrum sem nú eru u.þ.b. 6 hektarar. Er það nokkuð yfir meðaltali hjá sviss- neskum vínbændum og segir hann að þetta sé heppileg stærð, litið til næstu ára, enda taki tíma að verða fullnuma í greininni og nú sé verk- efnið að koma verkferlum í fastar skorður og ákveða karakter hvers víns. Og það er sannarlega að nógu að hyggja. Höskuldur hefur t.d. ákveð- ið að fara þá leið að nýta móður náttúru sem mest við ræktunar- starfið. Í stað þess að fara með sláttuorfi milli plantna hefur hann komið sér upp flokki svokallaðra Ousessant-kinda. eru þær 16 talsins og henta vel til verks þar sem þær eru af einhverjum smágerðasta kindastofni í heimi. Segir Höskuldur að hann beiti þeim á ekrurnar og þær haldi lággróðri í skefjum en nái á sama tíma ekki upp í vínviðinn – og þó. Ef ræktunarstarfið væri með hefðbundnu móti gætu þær nagað lauf og brumhnappa vínviðarins, ekki síst þegar þær reisa sig upp á afturlappirnar. Af þeim sökum hef- ur Höskuldur ákveðið að rækta vín- viðinn með því móti að hann er teygður upp á við og vex svo niður á við, en hin hefðbundna aðferð felst í því að fara einmitt öfugt að. Þessu lýsir Höskuldur með lifandi og skemmtilegum hætti í viðtalinu. Einnig því hvernig hann beitir kryddjurtum við að halda skordýr- um frá ekrunum. Skál Í þættinum smökkuðu Höskuldur og Stefán Einar á Alpberg 2017 sem er Pinot Noir. Vín sem er brakandi ferskt og á talsvert inni á komandi árum. Smákindur á ekrunum - Höskuldur Hauksson beitir óhefðbundnum aðferðum við vínrækt í Sviss - Nýtir náttúruleg efni í baráttu við skordýr Friðarsúlan í Viðey, listaverk Yoko Ono, verður tendruð í 15. sinn á fæð- ingardegi tónlistarmannsins Johns Lennons laugardaginn 9. október klukkan 20:00, en hann hefði orðið 82 ára þann dag. Friðarsúlan mun varpa ljósi upp í himininn til 8. des- ember, sem er dánardagur Lennons. Vegna heimsfaraldurs Covid-19 verður aðeins tekið á móti 500 gest- um í Viðey þetta kvöld. Yoko Ono býður upp á fríar siglingar yfir sund- ið. Siglt verður frá Skarfabakka frá kl. 18:00 til klukkan 19:30. Frá klukkan 18:30 verður boðið upp á tvær göngurferðir um eyjuna undir leiðsögn. Klukkan 19:45 flytur Ásgeir Trausti tónlist sína við Frið- arsúluna og að því búnu flytur Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ávarp. Klukkan 20:00 verður Frið- arsúlan tendruð undir laginu Imag- ine með John Lennon. „Beint streymi verður frá athöfn- inni á heimasíðu Reykjavíkur- borgar, reykjavik.is, og er fólk hvatt til þess að fylgjast með tendrun Friðarsúlunnar og hugsa um frið,“ segir í frétt á heimasíðu borg- arinnar. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Golli Friðarsúlan í Viðey tendruð á laugardag SMÁRALIND - KRINGLAN - SKÓR.IS 20 6.-11. OKTÓBER AFSLÁTTUR AF % ÖLLUM SKÓM Kynningafundur vegna breytinga á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 og deiliskipulagi Hausthúsatorgs verður haldinn sem netfundur í gengum teams, miðvikudaginn 13. október 2020 kl.12:00. Sjá hlekk https://www.akranes.is/is/skipulag-i-kynningu, fundurinn verður tekinn upp og aðgengilegur á heimasíðu Akraneskaupstaðar og á facebook. Kjörið er að senda inn spurningar í streymi á meðan á fundi stendur. Vinnslutillaga: Breyting á Aðalskipulagi – Hausthúsatorg Deiliskipulag Hausthúsatorg Bæjarstjórn Akraness áformar breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 þannig að gert verði ráð fyrir svæði fyrir verslun og þjónustu norðan Akranesvegar. Í fyrirhugaðri breytingu felst að skilgreindur er nýr 1,6 ha landnotkunarreitur fyrir verslun- og þjónustu, þ.e. eldsneytisafgreiðslustöð með veitingasölu, bílaþjónustu og upplýsingasvæði, norðan Akranesvegar og austan hringtorgs við Þjóðveg/Þjóðbraut. Færa þarf hluta Þjóðvegar til norðurs og aðlaga reið- og göngustíga að nýrri lóð. Gert verður ráð fyrir aðrein úr austri inn á lóðina af Akranesvegi. Mörkum íbúðarsvæðis norðan Akranesvegar, svæðis Íb-21 er breytt lítillega. Eftir kynninguna verður málið tekið fyrir í skipulags- og umhverfisráði og lokið við gerð tillögunnar til afgreiðslu í bæjarstjórn. Ákveði bæjarstjórn að auglýsa ofangreinda skipulagstillögu verður frestur til að gera athugasemdir við tillöguna í 6 vikur sbr. ákvæði skipulagslaga. Spurningum verður svarað í lok kynningar og þurfa þær að koma fram undir nafni. Eru íbúar hvattir til að senda inn spurningar á meðan fundi stendur. Hlekkur á kynningu: https://www.akranes.is/is/skipulag-i-kynningu Kynningafundur vegna breytinga á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 og deiliskipulagi Hausthúsatorgs S K E S S U H O R N 2 0 2 1 Engin aflögun yfirborðs sést við Keili þar sem jarðskjálftahrina hófst 27. september. Þetta kemur fram á nýrri InSAR-mynd sem er byggð á saman- burði gervihnattamynda. „Það er jarðskjálftahrina í gangi, en hún er miklu minni en hrinan sem fór á undan eldgosinu í Geldingadölum,“ sagði Páll Einarsson, jarðeðlisfræð- ingur og prófessor emerítus. Hann sagði að jarðskjálftarnir við Keili væru ekki nógu stórir til að valda af- lögun á yfirborðinu. „Við höfum reynslu af því að ef skjálftar stafa af kvikuhreyfingum þá geta þær sýnt aflögunarmerki séu þær nógu stórar. Ýmislegt bendir til þess að kvika valdi þessum skjálftum. Ef svo er þá hlýtur hún að vera lítil og djúpt niðri því engin aflögun sést á yf- irborðinu,“ sagði Páll. Hann segir að upptök jarðskjálft- anna mælist á 5-6 km dýpi. Það hljóti að vera við neðri brún kvikugangsins sem myndaðist þarna í fyrravetur áð- ur en gaus í Geldingadölum. Það sé nokkuð ljóst út frá mælingum og In- SAR-myndum sem voru teknar þeg- ar gangurinn varð til. Kvikugang- urinn teygði sig býsna grunnt og náði upp úr yfirborðinu þar sem eldgíg- arnir opnuðust. Páll lýsti kvikuganginum í fyrra eins og borðplötu sem stæði upp á rönd í jarðskorpunni. Sprungan fyll- ist jafnharðan og hún myndast af kviku. Svo storknar gangurinn ofan frá og niður úr. Storknunin verður fyrst þar sem umhverfið er kaldast, það er efst í jarðskorpunni. Mögulega er neðsti hluti hans enn óstorknaður, að mati Páls. gudni@mbl.is Myndvinnsla/Veðurstofa Íslands/Vincent Drouin. Byggt á gögnum úr Sentinel-1. Reykjanes Myndin sýnir litlar breytingar frá 23. september til 5. október. Yfirborðið óbreytt - Engin aflögun sást við Keili

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.