Morgunblaðið - 07.10.2021, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 07.10.2021, Qupperneq 18
18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2021 Segjum nei við haustlægðum sante.is Á síðasta ári voru hin nýju gáma- skip Eimskips, Dettifoss og Brúar- foss, tekin inn í siglingaáætlun fé- lagsins en vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar og samkomu- takmarkana hefur dregist að halda formlegar nafnahátíðir eins og alltaf tíðkast. Nýlega var efnt til nafnahátíðar fyrir Brúarfoss í Þórshöfn í Fær- eyjum að viðstöddum starfs- mönnum, viðskiptavinum og sam- starfsaðilum Eimskips og Faroe Ship. Eins og hefð er fyrir var það guðmóðir skipsins sem gaf því nafn. Eva Rein, sem starfað hefur hjá Faroe Ship í Þórshöfn í yfir 50 ár, fékk þann heiður. Kampavíns- flaskan brotnaði í mél þegar hún skall á skipshlið. Stefnt er að því að halda formlega nafnahátíð á Íslandi fyrir Dettifoss við fyrsta tækifæri, að því er fram kemur á heimasíðu Eimskips. Systurskipin Dettifoss og Brúar- foss eru stærstu gámaskip í sögu ís- lenska kaupskipaflotans, 80 metra löng, 31 metri að breidd og geta borið 2.150 gámaeiningar. Þau mæl- ast 26.169 brúttótónn. Skipin voru smíðuð fyrir Eimskip í Kína. Detti- foss kom til landsins 13. júlí í fyrra og Brúarfoss 25. nóvember. Skipin eru sérstaklega hönnuð til siglinga á Norður-Atlantshafi. Sjórn Eimskipafélagsins ákvað árið 1914 að tveimur fyrstu skipum félagsins yrðu gefin nöfn fossa og voru fyrstu nafngiftirnar Gullfoss og Goðafoss. Þessari meginreglu hefur verið haldið alla tíð síðan þegar því hefur verið við komið. Þetta er því sjötta skipið sem nefnt er Brúarfoss í skipaflota Eimskips frá því að fyrsta skipið hlaut nafnið Brúarfoss en það var árið 1927. sisi@mbl.is Ljósmynd/Eimskip Þórshöfn Eva Rein sleppir kampa- vínsflöskunni og gefur skipinu nafn. Nafnahátíðir loks fyrir nýju Fossana - Brúarfossi gefið nafn í Færeyjum BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Yrki arkitektar hlutu nýlega al- þjóðlega viðurkenningu artitekt- úrvefsins A+ 2021 fyrir söluhúsin við Ægisgarð í flokknum „Comm- ercial-Coworking Space“. Söluhúsin voru eitt af fimm verkefnum víða um heim sem tilnefnd voru. „Verkefnið er einstaklega vel heppnað og húsin njóta mikillar at- hygli vegfarenda,“ segir í frétt á heimasíðu Faxaflóahafna, sem stóðu fyrir byggingu húsanna. Horfin hús við Kolasund í Reykjavík voru kveikjan að útliti söluhúsanna, en þau hús má sjá á gömlum svart- hvítum ljósmyndum frá fyrri tíð. Yrki arkitektar önnuðust hönnun húsanna, verkfræðihönnun var í höndum Hnits og Verkís, aðal- verktaki var E. Sigurðsson ehf. Söluhúsin eru sjö talsins auk al- menningssalernis. Þau eru tengd saman með viðarpöllum og geymslu- skúrum undir alls kyns búnað. Lifnaði yfir svæðinu á ný Bygging húsanna hófst vorið 2019 og þau voru tekin í fulla notkun fyrr á þessu ári. Söluhúsin eru leigð út af Faxaflóahöfnum til fyrirtækja í ferðaþjónustu, aðallega hvala- skoðun. Vegna heimsfaraldurs kór- ónuveirunnar dróst sú starfsemi verulega saman eins og gefur að skilja. En nú í sumar lifnaði yfir svæðinu með fjölgun erlendra ferða- manna og Ægisgarðurinn við Gömlu höfnina iðaði af lífi á ný. Söluhúsin leystu af hólmi gamla sundurlausa söluskúra sem áður stóðu við Ægisgarð en voru fjar- lægðir. Samhliða byggingu söluhús- anna var ráðist í endurnýjun á Ægisgarði. Faxaflóahafnir áforma að reisa síðar meir aðra þyrpingu sölu- og þjónustuhúsa við Rastar- götu, milli Slippsins og Sjóminja- safnsins. Aukin umsvif ferðaþjónust- unnar í framtíðinni kunna að kalla á frekari uppbyggingu. En hvar stendur Kolasund í Reykjavík eða það sem eftir er af því fornfræga sundi? Svarið er m.a. að finna í fornleifaskráningu Borgar- sögusafnsins. „Milli Hafnarstrætis og Austurstrætis var þröngt sund sem nefndist Kolasund. Það tengdist Hafnarstræti milli húsanna nr. 16 og 18,“ segir þar. Búið er að gera upp hús nr. 16 (byggt 1824) með glæsi- brag og unnið er að endurbyggingu hússins nr. 18 (byggt 1795). Þegar ráðist var í að byggja viðbyggingu norðan við Útvegsbankahúsið (nú Héraðsdómur Reykjavíkur) árið 1962 lokaðist aðkoman úr Kolasundi að Austurstræti. Nú er Kolasund aðeins húsasund norðan Héraðs- dóms Reykjavíkur og sést oft bregða fyrir í myndum þegar verið er að færa gæsluvarðhaldsfanga fyr- ir dómara. Fram undan sundinu var Kola- bryggjan og við sundið stóðu pakk- hús og kolageymsluhús sem til- heyrðu versluninni. Síðar var þessi bryggja nefnd Smithsbryggja og Thomsensbryggja eftir verslunar- eigendum sem áttu bryggjuna, segir í fornleifaskráningunni. Eftir þess- ari bryggju og götuslóðanum voru borin kol í pokum í geymslur sunnan Hafnarstrætis. Það var hlutskipti margra umkomulausra kvenna að annast slíkan kolaburð. Eins og hjá „villiþjóðum“ „Árið 1897 skrifaði Guðmundur Guðmundsson læknir í Dagskrá um bakburð kvenna, þar á hann við kola-, salt- og þvottaburð, og bendir á að meðferð á konum sem sinna þessu starfi megi bera saman við meðferð kvenna hjá „villiþjóðum eins og Indíánum og Svertingja- þjóðum er það alsiða að konur vinni alla erfiða vinnu en karlar liggi í leti“,“ segir í fornleifaskáningunni. Svona orðfæri gengi ekki í dag. Guðmundur tekur fram að ekkert einasta vagnaspor sé í Reykjavík til að auðvelda flutninginn á kolunum. Aftur á móti finnist þau í mörgum smákaupstöðum úti á landi. Áfram lýsir Guðmundur ástandinu og segir: „Blöskrar mörgum að sjá konur ýmsilega á sig komnar og ungar stúlkur með þungar byrðar á bakinu og opt svo biksvartar af kolaryki að ekki er mannsmynd á þeim. Verða þær á þennan hátt að vinna til jafns við karlmenn, en fá þó venjulega ekki nema hálf laun á við þá.“ Húsin í Kolasundi fyrirmyndin - Söluhúsin við Ægisgarð hljóta alþjóðlega viðurkenningu - Vekja mikla athygli vegfarenda Ljósmynd/Gunnar Sverrisson Nýju söluhúsin Yrki arkitektar hönnuðu húsin sem setja mikinn svip á Ægisgarð í Gömlu höfninni í Reykjavík. Ljósmynd/óþekktur Kolasund áður Mynd tekin í átt að Hafnarstræti. Húsin eru löngu horfin. Morgunblaðið/sisi Kolasund í dag Nú er þetta húsasund á bak við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.