Morgunblaðið - 07.10.2021, Síða 24
24 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2021
Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is
Invacare Colibri
Létt og nett rafskutla
sem auðvelt er að taka
sundur og setja í bíl
RAFSKUTLUR
Upplifðu frelsi
og aukin tækifæri
Hámarkshraði 8 km/klst
Hámarksdægni 16 km
Verð 269.000 kr.
Ekki eru allar heimildir um
landaþekkingu á miðöldum
jafn traustar. Á dögunum
staðfesti Yale-háskóli í Banda-
ríkjunum, eigandi hins fræga
Vínlandskorts, formlega að
kortið væri falsað. Rannsókn
sýnir að blekið er frá því eftir
1920. Mörg önnur atriði í nýrri
rannsókn á kortinu staðfesta
einnig niðurstöðuna. Þetta
kemur ekki á óvart því flestir
fræðimenn hafa talið Vín-
landskortið blekkingu allt frá
því að það kom fyrst fram
1965 og vakti þá heimsathygli
eins og forsíða af Morgun-
blaðinu frá þeim tíma sýnir.
Hefur vakið undrun í fræða-
heiminum hve háskólinn hefur
verið tregur til að staðfesta
fölsunina.
MARGS AÐ GÆTA
Merkasti kortafundur aldarinnar.
Vínlandskortið falsað
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
„Þetta eru sannarlega nýjar frétt-
ir,“ segir Gísli Sigurðsson, rann-
sóknarprófessor á Árnastofnun,
um skrif fræðimanns í Mílanó sem
sýnir fram á það í nýbirtri tíma-
ritsgrein að ítalskir lærdómsmenn
höfðu um miðja fjórtándu öld vitn-
eskju um land vestur af Græn-
landi, að líkindum frá sæfarendum
sem spurt hafa tíðindin um sigl-
ingar þangað frá Íslendingum.
Paolo Chiesa, prófessor í lat-
neskum fræðum við háskólann í
Mílanó, segir í grein í fræði-
tímaritinu Terrae Incognitae að
munkur af reglu dóminíkana, Gal-
vaneus Flamma, minnist á landið
Marckalada vestan Grænlands í
ófullgerðu söguriti sínu Cronica
universalis sem skrifað er á ár-
unum 1339 til 1345. Enginn vafi
sé á því að átt sé við það land sem
nefnt er Markland í íslenskum
fornritum, Eiríks sögu rauða og
Grænlendingasögu. Galvaneus
Flamma nefnir einnig Ísland í
þessu riti en fjallar ekki um
landsmenn eða staðhætti.
Óútgefið verk
Ástæðan fyrir því að fræðimenn
hafa fram að þessu ekki almennt
haft vitneskju um þessi skrif Gal-
vaneus Flamma er sú að handritið
sem geymir þau hefur aldrei verið
gefið út og er í einkaeigu. Það
rekur sögu mannkyns í löngu máli
en landfræðiköflum er skotið inn í
textann eins og algengt var í mið-
aldaritum af þessu tagi. Fræðileg
útgáfa ritsins er nú í undirbún-
ingi.
Vitneskja um vesturferðir
Athygli var fyrst vakin á tilvist
handritsins árið 2013. Fullvíst er
að það sé ekta. Galvaneus
Flamma var nafnkunnur ann-
álaritari í Mílanó á sinni tíð og
eru nokkur verk eftir hann varð-
veitt.
Það að Flamma skuli nefna
Markland í riti sínu sýnir að vitn-
eskja um land vestur af Grænlandi
hefur verið fyrir hendi löngu áður
en Kristófer Kólumbus lagði upp í
sögufræga siglingu sína 1492 og
uppgötvaði Ameríku. Kólumbus
var frá ítalska hafnarbænum Ge-
núa og þar hafa sæfarendur vafa-
laust rætt um leyndardóma úthaf-
anna og skipst á fróðleik sem þeir
hafa orðið vísir um í siglingum
sínum, þar á meðal til Íslands eða
til landa þar sem Íslendingar hafa
verið á ferð.
Paolo Chiesa telur líklegt að
Galvaneus Flamma hafi fengið sín-
ar upplýsingar um Markland frá
sæfarendum í Genúa, en Mílanó
liggur ekki að sjó sem kunnugt er.
Sögurit hans sýnir að hann hafði
aðgang að heimildarmönnum í Ge-
núa.
Trúleg ályktun
Gísli Sigurðsson segir að ýmis
smáatriði í lýsingu hins ítalska
lærdómsmanns séu þess eðlis „að
maður heyrir óminn af okkar sög-
um í þeim“, eins og hann orðar
það.
„Mér finnst ályktunin frekar
trúleg, að höfundurinn hafi heyrt
sögur frá fólki sem hafði siglt í
norðurhöfum – þar sem efni Vín-
landssagnanna var að sjálfsögðu
ekkert leyndarmál á 14. öld.“
Sverrir Jakobsson, prófessor í
miðaldasögu við Háskóla Íslands,
telur einnig feng í skrifum Paolos
Chiesa. Hann segir að hin nýja
vitneskja opni á möguleika sem
margir höfðu vonast eftir; að líta
á Vínlandsferðir norrænna manna
í víðara samhengi sem hluta af
þekkingaröflun Evrópumanna um
svæði utan hinnar hefðbundnu
heimsmyndar.
„Gamlar sagnir um Íslandsferð
Kólumbusar 1477 gera ráð fyrir
að hann hafi verið forvitinn um
Vínlandssiglingar en hvernig hefði
hann átt að vera það ef þær voru
ekki þekktar á Ítalíu? Hér er
greinilega eftir ýmsu að slægj-
ast,“ segir Sverrir.
Landaleit Íslendinga til forna
Nokkru eftir landnám Íslands á
seinni hluta 9. aldar héldu menn
héðan í landaleit vestur á bóginn.
Þá fann Eiríkur rauði land sem
hann nefndi Grænland – ef marka
má okkar gömlu ritheimildir – og
markaði sá fundur upphaf byggð-
ar norrænna manna þar næstu
aldirnar. Skömmu síðar var
Bjarni nokkur Herjólfsson á leið
þangað frá Íslandi en lenti í haf-
villu og sá lönd á austurströnd
Norður-Ameríku. Leifur Eiríks-
son, síðar nefndur Leifur heppni,
fór í könnunarferð til þessara
landa og nefndi þau Markland,
Helluland og Vínland. Vínlands-
ferðir urðu ekki tilefni landnáms á
meginlandi Ameríku en landkönn-
uðurnir reistu sér þar skála og
komu sér fyrir á meðan þeir
könnuðu landið eins og fornleifa-
rannsóknir í L’Anse aux Meadows
á norðurodda Nýfundnalands hafa
staðfest.
Margir fræðimenn telja Hellu-
land fornsagnanna Baffinsland nú-
tímans og Markland sé Labrador.
Þá greinir hins vegar á um hvar
Vínlands sé að leita. Á vef Árna-
stofnunar segir að þeirri skoðun
hafi vaxið fylgi að Vínland for-
sagnanna sé á Nýfundnalandi og
hafa menn þá í huga norrænu
rústirnar þar.
Fyrir utan rit Galvaneus
Flamma er Markland hvergi nefnt
í heimildum frá miðöldum öðrum
en íslenskum. Aftur á móti er Vín-
lands getið, þó með frekar óljós-
um hætti, í riti Adams frá Brim-
um um sögu erkibiskupsdæmis
Hamborgar. Það rit er skrifað um
1070.
Heyrum óminn af okkar sögum
- Ítalskir lærdómsmenn vissu um miðja 14. öld af tilvist lands vestan við Grænland - Vitneskjan
hefur án vafa borist frá Íslandi - Kólumbus líklega frétt þetta áður en hann hóf að leita Ameríku
Fundin Ameríka Leifur Eiríksson finnur Ameríku fyrir um þúsund árum. Málverk eftir Hans Dahl.
Landaþekking Nafnkunnur ítalskur lærdómsmaður og munkur af reglu
dóminíkana þekkti á 14. öld sagnir frá Íslandi um land vestan Grænlands.