Morgunblaðið - 07.10.2021, Page 25
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2021
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Klassísk gæða húsgögn
á góðu verði
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
GLOBL V
Hvíldarst
KRAGELUND Aya K 129
Casö 701 langborð
Stólar
Sófasett
Borðstofuborð
Skenkar/skápar
Hvíldarstólar
o.m.fl.
Borstofuhúsgön frá Casö
Mikið úrval af
hvíldarstólum
með og án
rafmagns.
Rimme frá Casö, raðau saman þinni samstæðu
Casö 230 viðartegundir nature eik og reykt eik
IKTOR
óll
KRAGELUND Handrup
„Viðtökurnar hafa verið frábærar
og við höfum verið að skoða að fara
með tónleikana í fleiri landshluta
með hækkandi sól,“ segir Hulda
Jónasdóttir hjá Gná tónleikum, sem
stendur fyrir tónleikunum Lögin
hans Geira í Salnum í Kópavogi nk.
laugardagskvöld.
Þar flytur ungt tónlistarfólk lög
Geirmundar Valtýssonar, sem mæt-
ir sjálfur á svæðið sem heiðurs-
gestur. Fernir tónleikar með sömu
dagskrá voru haldnir norðan heiða
í sumar; á Sauðárkróki, Hofsósi,
Blönduósi og Græna hattinum á
Akureyri.
Að sögn Huldu var fullt hús á öll-
um stöðum og ljóst að lögin hans
Geira njóta mikilla vinsælda. Eru
örfáir miðar eftir í Salnum. Flytj-
endur laganna eru Hreindís Ylva
Garðarsdóttir Hólm, María Ólafs-
dóttir, Bjarni Atlason og bræðurnir
Róbert Smári og Ingi Sigþór Gunn-
arssynir. Hljómsveitin Piparkorn,
sem vakti mikla athygli á síðustu
Músíktilraunum, leikur undir.
Sögumaður og kynnir á tónleik-
unum er Valgerður Erlingsdóttir.
Af nægu er að taka þar sem Geir-
mundur hefur samið hátt í 200 lög
en tónlistarferill hans spannar rúm
60 ár. Á þeim tíma hefur hann gefið
út 16 hljómplötur.
Hulda undirbýr nú jólatónleika á
Sauðárkróki í desember með lögum
skagfirskra höfunda þar sem
Piparkorn leikur einnig undir og
söngvarar að sumu leyti þeir sömu
og syngja Geiralögin í Salnum.
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Sveifla Geiri og aðrir flytjendur á sviðinu á Græna hattinum í sumar.
Unga fólkið flytur
lögin hans Geira
- Tónleikar í Salnum næsta laugardag
„Það er engum blöðum um það að
fletta að heimsviðskiptin eru farin
að opnast á ný og markaðinn þyrst-
ir í nýjar vörur. Íslenskar hágæða-
vörur eru eftirsóttar og vinsældir
landsins eru áberandi hérna,“ segir
Sigríður V. Vigfúsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Primex á Siglufirði,
sem stödd er á heilsuvörusýning-
unni Vita Foods í Genf, þeirri
stærstu í Evrópu, ásamt fleiri ís-
lenskum snyrti- og heilsuvörufram-
leiðendum.
Primex er þar að kynna nýjar
sáravörur, undir merkinu Chito-
Care Medical. Að sögn Sigríðar
hafa þær fengið skráningu sem
lækningatæki í flokki III, sem þýðir
að fyrirtækið getur fullyrt í kynn-
ingum að nota megi kremið á opin
sár og aðra húðkvilla. Einnig er Pri-
mex að kynna aðra framleiðslu, eins
og LipoSan-trefjarnar og Chito-
Care beauty-húðvörurnar.
Horfur á stórum samningum
„Allir þessir vöruflokkar hafa
hlotið mikla athygli og erum við nú
þegar í viðræðum við væntanlega
dreifingaraðila víða um heim,“ segir
Sigríður og eru það helst markaðir í
Evrópu, Asíu og Mið-Austur-
löndum. Hún segir góðar horfur um
að hægt sé að ná stórum samn-
ingum.
„Markaðurinn er að kalla eftir
nýjum hágæðavörum með mikla
virkni. Að baki ChitoCare-vörunum
liggja klínískar rannsóknir á sykur-
sýkisárum og gegn nýjum og göml-
um örum,“ segir Sigríður enn frem-
ur.
Primex hefur tekið þátt og sýnt á
þessari sýningu í 18 ár en þetta er
fyrsta sýningin sem fyrirtækið tek-
ur þátt í eftir að kórónuveirufarald-
urinn skall á. Líkt og undanfarin ár
á þessari sýningu eru Primex og
Lýsi saman á bás. Einnig er Algalíf
að kynna sína framleiðslu í Genf og
á kynningarbás Íslandsstofu eru
fyrirtækin Geosilica, Dropi og Saga
Natura með aðstöðu.
Íslensku fyrirtækin fengu heim-
sókn á sýninguna í gærmorgun,
þegar Harald Aspelund, fasta-
fulltrúi Íslands hjá
Alþjóðaviðskiptastofnuninni í Genf,
kynnti sér vörur þeirra og fram-
leiðslu.
„Þetta var skemmtileg heimsókn
en þessi flottu íslensku nýsköp-
unarfyrirtæki eiga það sameiginlegt
að efla okkar útflutning og hag-
vöxt,“ segir Sigríður hjá Primex.
Sýningunni lýkur á morgun en
hún fer einnig fram á netinu.
Íslenskar heilsuvörur
kynntar á stórri sýningu
- Sex fyrirtæki taka þátt í sýningunni Vita Foods í Genf
Heilsuvörur Saman í Genf, f.v. Vigfús Rúnarsson, dr. Helene Lauzon, Sig-
ríður V. Vigfúsdóttir, Harald Aspelund og Erna Björnsdóttir, Íslandsstofu.