Morgunblaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2021 Laugardaginn 9. október frá 10:00 til 16:00 á Grand Hótel - Gullteigur Dagskrá: 10:00 - 10:15 Opnun - Dóra Ingvadóttir formaður GÍ 10:15 - 10:25 Tónlist - Tryggvi H. Gígjuson 10:25 - 10:50 Barnagigt - Og hvað svo? - Judith Amalía Guðmundsdóttir, barnagigtarlæknir, Sólrún W. Kamban, barnahjúkrunarfræðingur, Zinajda A. Licina, félagsráðgjafi og Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur 10:55 - 11:20 Barnagigt - Nýleg íslensk rannsókn, hreyfing og verkir - Judith Amalía Guðmundsdóttir, barnagigtarlæknir, Þjóðbjörg Guðjónsdóttir, lektor í sjúkraþjálfun HÍ 11:25 - 11:40 Kaffihlé 11:40 - 11:45 Tónlist - Tryggvi H. Gígjuson 11:45 - 12:10 Barnagigt - Nýleg íslensk rannsókn, líðan, lífsgæði og upplifun af heilbrigðisþjónustu - Sólrún W. Kamban, barnahjúkrunarfræðingur og Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur 12:15 - 13:05 Matarhlé 13:05 - 13:10 Tónlist - Tryggvi H. Gígjuson 13:10 - 13:35 Slitgigt - Stóraukin þekking, en hvenær er von á læknandi lyfjum? Helgi Jónsson, prófessor og gigtarlæknir 13:40 - 14:05 Hefur lífstíll áhrif á iktsýki - Sædís Sævarsdóttir, gigtarlæknir 14:10 - 14:25 Kaffihlé 14:25 - 14:30 Tónlist - Tryggvi H. Gígjuson 14:30 - 14:55 Líftæknilyfjameðferð á Íslandi, hvað er nýtt - Gerður Gröndal gigtarlæknir 15:00 - 15:25 Skóli og barn – Fríða Kristín Magnúsdóttir, móðir 15:30 - 15:45 Samantekt- Emil Thoroddsen, framkvæmdarstjóri GÍ 15:45 Málþingi slitið - Dóra Ingvadóttir formaður GÍ Hægt verður að fylgjast með dagskránni á Facebooksíðu Gigtarfélagsins. Gigtarfélag Íslands - 45 ára Málþing - Gigtarsjúkdómar frá bernsku til efri ára Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Skógrækt bænda á Íslandi skilar af- urðum og tekjum talsvert fyrr en vænta mátti, sem rennir nýjum stoð- um undir búskap og afkomu fólks í sveitum landsins. Þetta segir Hrefna Jóhannesdóttir, skógfræðingur og bóndi á Silfrastöðum í Blönduhlíð í Skagafirði. Á þeirri jörð hóf Jóhann- es Jóhannsson, faðir Hrefnu, skóg- rækt fyrir um 30 árum og á stóru svæði í nágrenni bæjar og inn til dals hafa verið gróðursettar um 1,3 milljónir plantna og enn er verið að. Úr Silfrastaðaskógi fást nú tals- verðar nytjar af grisjunarvið. Sumt er notað í kurl sem undirburður í reiðskemmum og annað nýtist sem eldiviður til kyndingar. Grennstu bolirnir verði girðingarstaurar og stutt er í að hægt verði að saga boli í verðmætari efnivið svo sem flettivið ýmiss konar. Í dag eru Hrefna og Johan Wilhelm Holst, maki hennar, tekin við skógarbúskapnum, sem er vaxandi vegur. Hentar vel með öðrum búskap Í þeim mæli að tali taki hófst bændaskógrækt á Íslandi um 1990. Skógarmenningin er sterk austur á landi, þar sem í gildi eru samningar milli bænda og Skógræktarinnar á alls 147 jörðum. Á Norðurlandi eru samningar þessir rúmlega 200, 131 á Vesturlandi, um 100 á Suðurlandi og 48 á Vestfjörðum. Alls eru þetta nokkuð á 7. hundrað jarðir og fleiri samningar eru í burðarliðnum. Alls 97% af útlögðum kostnaði bænda við undirbúning og útplöntun er greidd- ur af ríkinu, vinnulaun þar með. „Á fjölda jarða, þar sem byrjað var að planta fyrir um 20 árum, eru nú komnir skógar þar sem grisja þarf. Vissulega eru tekjur sem þetta skilar bændum núna ekki háar fjár- hæðir en ágæt búbót,“ segir Hrefna Jóhannesdóttir. „Raunar liggur galdurinn í því að oft hentar skóg- rækt til sveita vel með til dæmis hefðbundnum búskap. Þar koma verkefnin hvert á sínum tíma ársins, en svo eru eyður inn á milli og þá getur hentað að vinna í skóginum. Gróðursetja á vorin og grisja eða fella tré á haustin og veturna.“ Gróskusumar Nýliðið sumar var að mörgu leyti gott og gróskumikið, segir Hrefna. Norðanlands var kuldi ríkjandi framan af, en svo tók að hlýna og þá tók gróður vel við sér. „Að rækta skóg krefst mikillar vinnu, hvort heldur er við að undirbúa jarðveginn og gróðursetja – og svo umhirðan þegar að því kemur. En að taka þátt í því að ljá landinu nýjan svip með fallegum skógi og taka þátt í því að styrkja þá búgrein sem bændaskóg- ræktin er, hljóta að teljast forrétt- indi,“ segir Hrefna sem starfar sem sérfræðingur hjá Skógræktinni. Sinnir þar einkum og helst skipu- lagsmálum, þótt margt fleira falli til. Stefnt að sameiningu í Skagafirðinum Auk framangreindra verkefna er Hrefna oddviti Akrahrepps; það er byggðarinnar sem liggur að Blöndu- hlíðarfjöllum í austanverðum Skaga- firði. Oft er hreppurinn, hvar búa ríflega 200 manns, kallaður Fríríkið; því héraðið allt er að öðru leyti Sveitarfélagið Skagafjörður sem til varð fyrir um 20 árum. Í dag er hins vegar í umræðunni að sameina sveit- arfélögin – en um þessar mundir er verið að greina, vega og meta ýmsar útfærslur þess. „Okkur miðar ágætlega áfram í þessu starfi. Ég vænti að íbúar fái að greiða atkvæði um hugsanlega sam- einingu í janúar á næsta ári. Verði hún samþykkt yrði þá kosið í einum sameinuðum Skagafirði næsta vor,“ segir Hrefna Jóhannesdóttir. Hún minnir á að nú þegar hafi þessi tvö sveitarfélög með sér marg- víslegt samstarf, svo sem um skóla- mál. Um fjórðungur 100 grunn- skólanema í Varmahlíðarskóla komi úr Akrahreppi, handan vatna, og þar sé einnig leikskóli sem sveitarfélögin reki saman. Svona megi tiltaka fleiri snertifleti og samstarf, hvað sem úr verði í fyllingu tímans. Skógarnir búbót og styrkja sveitir - Tekjur af nytjaskógum að skila sér - Flettiviður og fleira - Skógrækt í Skagafirði - Jarðvegurinn undirbúinn Morgunblaðið/Sigurður Bogi Lundur Fjöldi bænda í Skagafirði stundar skógrækt og víða í héraðinu eru grænir og fallegir lundir. Þessi mynd er tekin í framdölum vestan Héraðsvatna þar sem Mælifellshnjúkurinn hái er afar svipsterkt kennimark. Ræktunarstarf Að ljá landinu nýjan svip með fallegum skógi og taka þátt í bændaskógræktinni eru forréttindi,“ segir Hrefna á Silfrastöðum í viðtalinu. Stafli Skógar eru gjarnan grisjaðir á haustin. Felld tré eru þá dregin til og sett í miklar stæður, en þau svo söguð niður og unnin til frekari notkunar. Svokallaður bókaviti var opnaður formlega í Hellisgerði í gær á upp- hafsdegi Bóka- og bíóhátíðar barnanna 2021 í Hafnarfirði. Þar verður skiptibókamarkaður allt árið um kring sem verður öllum opinn. Það voru félagsmenn í samtökun- um Karlar í skúrum sem smíðuðu vitann í sumar. Bókavitinn hefur ver- ið settur upp á horni Hellisgötu og Reykjavíkurvegar, við einn af nokkr- um inngöngum í Hellisgerði, skrúð- garð Hafnfirðinga. Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ kemur fram að við- eigandi hafi þótt á upphafsdegi Bóka- og bíóhátíðar barnanna að fá hóp leikskólabarna til að taka þátt í formlegri opnun á vitanum með því að fylla hann af bókum að heiman. Hvert barn lét sína bók í vitann og nú er hann uppfullur af ævintýrum og áhugaverðum bókum. Bóka- og bíóhátíð barnanna, menningarhátíð fyrir börn í Hafnar- firði, er haldin vikuna 6.-13. október. Þessa vikuna verður sérstök áhersla lögð á bækur og kvikmyndir innan leik- og grunnskóla Hafnarfjarðar og skapandi og skemmtileg verkefni sem tengjast hvoru tveggja. Tilgang- ur hátíðarinnar er að efla áhuga barna á lestri og læsi í víðum skiln- ingi og styður hátíðin við læsisverk- efni leik- og grunnskóla bæjarins sem í gangi hefur verið síðustu miss- eri. Skólar og söfn bæjarins taka virkan þátt í hátíðinni með uppbroti á skólastarfi, viðburðum og smiðjum, að því er fram kemur í tilkynningu frá bænum. Bókaviti settur upp í Hellisgerði - Karlar í skúrum smíðuðu vitann Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gleði Karlar í skúrum og leik- skólabörn fögnuðu opnun vitans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.