Morgunblaðið - 07.10.2021, Síða 29

Morgunblaðið - 07.10.2021, Síða 29
FRÉTTIR 29Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2021 Eitt klikk og allt getur klikkað! Hugsum í framtíð Með Netöryggistryggingu TM er þitt fyrirtæki verndað gegn fjárhagslegu tapi í kjölfar netárásar, gagnaleka eða auðkennisþjófnaðar. Kynntu þér málið á tm.is BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Breyttir neysluhættir á Vesturlönd- um, sem afleiðing af heimsfaraldri kórónuveirunnar, kunna að hafa áhrif á að verðbólga hefur reynst þrálátari í heimshagkerfinu en hagfræðingar og seðlabankar gerðu ráð fyrir. Þetta kom fram í máli Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra á kynningarfundi í gær þar sem hann ásamt Rannveigu Sigurðardóttur varaseðlabankastjóra kynntu þá ákvörðun peningastefnu- nefndar að hækka stýrivexti um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, eft- ir tilkynninguna, eru 1,5% af sjö daga bundnum innlánum. Benti Ásgeir á að vandræði hefðu verið á framboðshlið hagkerfisins þar sem faraldurinn hefði raskað að- fangakeðjum í alþjóðahagkerfinu. Þessi áhrif hefðu varað lengur en bú- ist var við í upphafi árs. Aukin út- breiðsla veirunnar í mörgum löndum síðastliðið sumar hafi dregið raskanir á mörkuðum á langinn. Rannveig benti sömuleiðis á að faraldurinn væri enn að gera skráveifur í sumum löndum, m.a. í Víetnam sem væri mikilvægt framleiðsluhagkerfi en þar í landi er bólusetning komin skammt á veg. Faraldurinn gæti enn gert illt Bætti hún því við að ýmislegt gæti haft áhrif á eftirspurnarhliðina og verðbólguþrýsting af þeim sökum á komandi misserum. Ekki væri loku fyrir það skotið að nýr faraldur tæki sig upp í byrjun nýs árs. „[S]vo virðist núna í sumum lönd- um gert ráð fyrir því að það geti kom- ið ný veira í janúar þannig að þetta er spurning um hversu tímabundið þetta verður.“ Að loknum kynningarfundi bar Morgunblaðið spurningu upp við að- stoðarseðlabankastjóra og óskaði skýringa á þessum ummælum og hvort hætta væri á nýjum veirufar- aldri. Benti Rannveig þá á grein sem birtist í Financial Times sem feli í sér mat á þeirri óvissu sem uppi sé. Þar kemur fram að OPEC telur mögulegt að eftirspurn muni dragast saman á fyrsta fjórðungi næsta árs, nái kór- ónuveiran aftur tökum á samfélögum víða um heim. Væntingarnar ráða miklu Í yfirlýsingu peningastefnunefnd- ar segir að undirliggjandi verðbólga fari minnkandi. Hins vegar sé áhyggjuefni að verðbólguvæntingar virðist „hafa tekið að hækka á ný“. Bendir nefndin þó á að of snemmt sé að segja til um hvort kjölfesta þeirra við verðbólgumarkmið bankans sé að veikjast. Benti varaseðlabankastjóri á að mögulegt sé að líta í einhverju fram hjá tímabundnum verðhækkunum á mörkuðum, svo lengi sem verðbólgu- væntingar haldi sig við kjölfestu. „Ef kjölfesta verðbólguvæntinga er góð og við markmið þá höfum við minni áhyggjur af slíkum hlutum en ef þær fara verulega frá markmiði þá myndum við hugsa það líklega á ein- hvern annan hátt þótt ég sé hvorki að lofa eða annað.“ Böndum komið á markaðinn Á kynningarfundinum var seðla- bankastjóri spurður út í fasteigna- markaðinn sem hefur leitt verðlags- hækkanir síðustu misseri. Benti Ásgeir á að fjármálastöðugleikanefnd hefði nýlega kynnt aðgerðir sem koma eigi í veg fyrir að fólk fari fram úr sér á fasteignamarkaði. Sagði hann að markaðurinn sé „ekki að hlaupa neitt mikið lengra“ og vísaði þar til verðhækkana umfram það sem eðlilegt getur talist. Sagði hann einn- ig að framboð ætti til lengri tíma litið að mæta eftirspurnarþrýstingi. Ís- lendingar væru í þeirri stöðu að hér væri nægt landrými til þess að byggja húsnæði og að það yrði nýtt, þótt tíma gæti tekið að koma því til leiðar. Breyttir neysluhættir ýta verðbólgunni upp AFP Innflutningur Eftirspurn eftir ýmiss konar vörum hefur aukist mikið síðustu mánuði án þess að framleiðsluhagkerfin, ekki síst í Asíu, hafi getað mætt henni með góðu móti. Það þrýstir verði upp, að minnsta kosti tímabundið. - Seðlabankinn hefur auknar áhyggjur af hækkandi verðbólguvæntingum Seðlabankinn hækkar » Stýrivextir voru hækkaðir um 0,25 prósentur í gær. » Er þetta í þriðja sinn á fimm mánuðum sem bankinn hækk- ar vextir. » Þannig hafa þeir hækkað um 0,25 prósentur, bæði í ágúst og maí síðastliðnum. 7. október 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 127.58 Sterlingspund 173.78 Kanadadalur 101.31 Dönsk króna 19.898 Norsk króna 14.927 Sænsk króna 14.609 Svissn. franki 137.65 Japanskt jen 1.1474 SDR 180.27 Evra 148.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 184.6201 Tæplega tvö þús- und manns hafa sótt um starf sem flugliðar hjá flug- félaginu Play. Fyrirtækið auglýsti hundrað störf og lætur því nærri að 20 um- sækjendur séu um hvert starf. „Viðbrögðin hafa verið frábær. Við höfum meðal annars fengið margar umsóknir frá WOW-fólki,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Play, og vísar til fv. starfs- manna flugfélagsins WOW air. „Meirihluti umsækjenda var hjá WOW air en það eru líka margir nýliðar að sækja um starf og sömu- leiðis fólk sem er af erlendu bergi brotið. Flugfreyjustörf eru alltaf vinsæl,“ segir Birgir. Fyrirspurnir frá flugmönnum Play hyggst ráða áhafnir á þrjár nýjar þotur sem hefja sig til flugs með vorinu, alls um hundrað manns. Næst verða ráðnir um 50 flugmenn og hefur Play fengið margar fyrir- spurnir frá flugmönnum. „Þjálfun nýrra flugáhafna hefst á nýju ári en starfsfólkið byrjar að fljúga með vorinu. Þetta eru vinsæl störf og það er gaman að taka þátt í þessu,“ segir Birgir. Um 140 starfa nú hjá Play. baldura@mbl.is Nærri tvö þúsund umsóknir - Mikil ásókn í störf flugliða hjá Play Birgir Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.