Morgunblaðið - 07.10.2021, Side 34
34 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2021
Fimmtugasta þing
Íþróttabandalags
Reykjavíkur (ÍBR),
sem haldið var 2. októ-
ber 2021, samþykkti
með miklum stuðningi
tillögu okkar í Íþrótta-
félaginu Fylki um að
rafíþróttir verði teknar
undir hatt ÍBR og að
þær starfi innan vé-
banda þess líkt og aðr-
ar greinar innan bandalagsins.
Við í Fylki erum auðvitað afar
þakklát fyrir þann mikla stuðning
sem tillagan hlaut á þinginu. Þá er-
um við ekki síður ánægð með þá við-
urkenningu sem samþykkt hennar
veitir rafíþróttum í heild sinni, enda
geta rafíþróttir skipt sköpum við að
koma í veg fyrir félagslega ein-
angrun barna, aukið félagsfærni
þeirra og sjálfstraust.
Fyrsta íslenska rafíþrótta-
deildin með keppnislið
Íþróttafélagið Fylkir hefur góða
reynslu af íþrótta- og æskulýðsstarfi
í rafíþróttum, en rafíþróttadeild fé-
lagsins var stofnuð með
formlegum hætti á að-
alfundi Fylkis 10. apríl
2019 – en hóf raunar
starfsemi árið 2018.
Rafíþróttadeild
Fylkis er fyrsta ís-
lenska rafíþróttadeildin
með keppnislið sem
kemur upp úr æsku-
lýðsstarfi og jafnan
hafa verið um 160 börn
í deildinni þegar sum-
arstarf er tekið með í
reikninginn.
Því miður hafa biðlistar verið inn í
deildina á hverri önn og ekki hefur
verið unnt að mæta allri eftirspurn.
Þó hefur deildinni tekist að vaxa
þótt heimsfaraldur Covid-19 hafi
sett strik í reikninginn. Jákvæð
teikn eru á lofti og horfur á því að
áfram muni deildin vaxa, þannig að
allir geti verið með sem það vilja.
Rík áhersla á hreyfingu
og andlega vellíðan
Reynslan sýnir að rafíþróttadeild-
in mætir mikilvægri þörf fyrir börn
sem ekki finna sig í öðru íþrótta- og
æskulýðsstarfi, en á þessum tíma
hafa þau börn sem þátt hafa tekið í
starfinu blómstrað og félagslegur
þroski þeirra tekið miklum fram-
förum. Með starfinu er komið í veg
fyrir að iðkendur einangrist heima
hjá sér. Aukið sjálfstraust þeirra
leynir sér heldur ekki; iðkendur
upplifa sig sem hluta af liðsheild og
klæðast stoltir rafíþróttatreyju
Fylkis með tölvuleikjagælunöfnum
sínum á bakinu.
Í megindráttum fer starfið fram í
íþróttahúsi félagsins í Norð-
lingaholti þar sem fimleika- og ka-
ratedeildir félagsins eru einnig til
húsa. Starfinu er skipt upp eftir ein-
stökum tölvuleikjum þannig að iðk-
endur geti bætt sig í þeim leik sem
þeir kjósa. Samhliða er rík áhersla á
hreyfingu og andlega vellíðan;
krökkunum er kennt hvernig á að
haga sér í tölvuleikjum á netinu og
hvernig á að koma fram við aðra af
virðingu. Þjálfarar hafa í starfinu
séð miklar framfarir frá því börnin
byrja í deildinni, hvort tveggja fé-
lagslega og kunnáttulega.
Ísland hefur stimplað sig
rækilega inn í heim rafíþrótta
Frá því að Fylkir ýtti raf-
íþróttadeild sinni úr vör er mikið
vatn runnið til sjávar. Vinsældir raf-
íþrótta fara stöðugt vaxandi og nú er
svo komið að 1.500 börn og ung-
menni stunda íþróttina á landinu
öllu.
Þá hefur Ísland til að mynda
stimplað sig rækilega inn í heim
rafíþrótta, en eitt stærsta raf-
íþróttamót heims, League of Leg-
ends Mid Season Invitational, var
haldið í Laugardalshöll í maí á
þessu ári. Þátttakendur í mótinu
voru um 600 talsins og keyptu þeir
um 8.000 gistinætur á íslenskum
hótelum enda stóð mótið í 24 daga.
Þá hófst heimsmeistaramótið í
League of Legends, Worlds 2021, í
fyrradag. Heimsmeistaramótið er
stærsti rafíþróttaviðburður í heimi,
en um eitt hundrað milljónir manna
fylgdust með úrslitaviðureign
heimsmeistaramótsins sem haldið
var 2019.
Alþjóðaólympíunefndin
Ekki er hægt að láta hjá líða að
nefna að alþjóðaólympíunefndin
hélt á árinu sýndarólympíuleika (e.
Olympic Virtual Series) sem var
fyrsti viðburður þeirra í stafrænum
íþróttum, en þar var keppt í hafna-
bolta, hjólreiðum, róðri, siglingum
og hermikappakstri. Viðburðirnir
mæltust vel fyrir og tóku um
250.000 þátt í greinunum fimm.
Alþjóðaólympíunefndin náði svo
að fylgja því markmiði sínu eftir að
færa tölvuleikjasamfélagið nær
íþróttahreyfingunni með raf-
íþróttamóti í leikjunum Rocket
League og Street Fighter IV í sam-
starfi við Intel í kringum Ólympíu-
leikana í Tókýó í sumar.
Það er því ekki einungis skref í
rétta átt að veita rafíþróttum við-
urkenningu innan íþróttahreyfing-
arinnar hérlendis heldur tímabært.
Eftir Björn
Gíslason » Vinsældir rafíþrótta
fara stöðugt vaxandi
og nú er svo komið að
1.500 börn og ungmenni
stunda íþróttina á
landinu öllu.
Björn Gíslason
Höfundur er formaður
Íþróttafélagsins Fylkis.
Mikilvæg viðurkenning fyrir rafíþróttir
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Þá er búið að kjósa og telja fram og
til baka og hlutirnir ættu að fara að
skýrast. Tveir flokkar bólgnuðu
mest: Annar eyddi mestu, hinn átti
sniðugasta slagorðið.
Ríkið hefur tekið að sér að fjár-
magna kosningastríðið og fær lung-
ann af peningunum til baka í gegn-
um Rúv-auglýsingar og annað
tilstand í landinu. Flokkarnir sjálfir
bera orðið litlar fjárhagslegar fórn-
arbyrðar af kosningum þótt þeir
hlaupi með kratarósir milli húsa og
hringi nokkur símtöl.
Þannig er límið sem hélt þeim
saman á árum áður lekið niður í sand
eins konar ríkisreksturs.
Flokkur verður ekki stærri á því
að hala inn menn í einum kosningum
á auglýsingum og/eða krúttlegu
slagorði. Það er eins og að sá í vind-
inn; hér í dag, þar á morgun.
Flokkatryggð og „lífsviðhorf“ eru á
undanhaldi en auglýsingarnar sjá
um heilaþvottinn.
Kannski sjáum við aftur skiltið:
„Stóri bróðir fylgist með þér“! Þá
þarf engar kosningar meir og sam-
lyndið mun ríkja eitt, ofar hverri
kröfu um endurtalningu eða upp-
kosningu.
Sunnlendingur.
Velvakandi Svarað í síma
569-1100 frá kl. 10-12.
Auglýsinga-
veisla ríkisins
Morgunblaðið/Eggert
Rúv fékk drjúgan skerf af auglýs-
ingatekjum fyrir kosningarnar.