Morgunblaðið - 07.10.2021, Side 48

Morgunblaðið - 07.10.2021, Side 48
Úrval aukahluta: Hulstur, Hleðslutæki, Snúrur, Minniskort, USB lyklar og fleira Bolholt 4, Reykjavík | www.frisbigolfbudin.is Allt fyrir frisbígolf Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a SNJALLTÆKJA VIÐGERÐIR Við gerum við alla síma, spjaldtölvur, tölvur og drónaný sending MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2021 Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is „Draugar fortíðar er hlaðvarp sem við Bald- ur Ragnarsson erum með. Ég hafði aðeins unnið í útvarpi og fannst það alveg gaman en þegar ég kynntist hlaðvarpinu féll ég al- veg fyrir því. Mér finnst það einn besti miðill sem við höfum til að miðla efni á fræðandi en um leið skemmtilegan og afar persónulegan máta,“ segir Flosi Þorgeirsson, stjórnandi vinsæla hlaðvarpsins Drauga fortíðar þar sem hann fræðir Baldur og hlust- endur um liðna atburði. „Ég er sagnfræðimenntaður og það einkennir oft Drauga fortíðar en umfjöllunarefnin koma þó úr öllum áttum. Sagnfræðin fylgir mér einnig er ég hlusta á mín eftirlætis hlaðvörp en þau eru langflest sögulegs eðlis enda er saga alveg sérlega heillandi viðfangsefni!“ bætir Flosi við. K100 fékk hann til að deila sínum fimm uppáhalds- hlaðvörpum og segja frá því hvað heillar hann við þau. In Our Time: History „Þetta er hlaðvarp um sögu og er að finna á BBC. Hefur verið í gangi síðan 1998 og alltaf sami stjórnandi. Gestir hans eru alltaf fræðimenn. Það er virðuleiki og alvara þarna en mér finnst þetta aldrei verða þurrt eða leiðinlegt því þáttastjórnandinn er svo þrautreyndur.“ History Extra Podcast „Annað söguhlaðvarp sem tengist einnig BBC. Þarna er líka talað við fræðinga en þetta er léttara en In Our Time. Viðfangs- efnin líka oft fjölbreyttari og nálgunin önnur.“ Ridiculous History „Enn eitt söguhlaðvarpið! Stjórnendur eru ekki fræðingar samt, bara tveir gaurar sem hafa áhuga á alls konar hlutum. Þeir taka fyr- ir alls konar hluti og reyna oft að finna annan flöt eða eitthvað sem er minna þekkt. RH er frá hlaðvarpsveitunni iHeart.“ No Dogs In Space „Ég er sagnfræðingur en einnig tónlistar- maður og uppáhaldstónlistarstefna mín verð- ur alltaf pönk! Í þessu hlaðvarpi skoða hjónin Marcus og Caroline þann anga tónlistarsög- unnar og einskorða sig samt ekkert endilega við pönk heldur margt annað tengt því. Nú er ég t.d. að hlusta á þau fara yfir sögu Beastie Boys.“ Tvíhöfði „Ég hef þekkt þá Jón og Sigurjón lengi og ef ég ætti krónu fyrir hvert skipti sem þeir hafa komið mér til að hlæja þá væri ég for- ríkur maður. Stundum þarf maður að hvíla sagnfræðipælingarnar og bara hlusta á þessa kostulegu menn bulla og þvaðra eins og eng- inn sé morgundagurinn.“ Uppáhaldshlaðvörp Flosa í Draugum fortíðar Sögunörd Flosi Þorgeirsson er sagnfræðimenntaður og hefur gríðarlegan áhuga á sögu en áhuginn endurspeglast í uppáhaldshlaðvörpunum hans. Flosi Þorgeirsson, stjórnandi söguhlaðvarpsins Drauga fortíðar, er mikill áhugamað- ur um sagnfræði og mælir hér með sínum uppáhaldshlaðvörpum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.