Morgunblaðið - 07.10.2021, Síða 60
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2021
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Extreme Chill-tónlistarhátíðin
hefst í dag og stendur fram á
sunnudag, en þetta er í ellefta sinn
sem hátíðin er haldin. Raftónlist
hefur verið áberandi á hátíðinni í
gegnum árin, en í raun hefur alls
kyns tónlist fengið að hljóma á
henni og svo er einnig í ár, því boð-
ið er upp á raftónlist, sveimkennda
hljóma, tilraunadjass, óhljóðalist og
nýklassík meðal annars.
Upplýsingar og dagskrá má finna
á slóðinni extremechill.org og þar
kemur fram að flytjendur á hátíð-
inni að þessu sinni eru raftónlist-
arfrumkvöðlarnir í Plaid, Roger
Eno, Mixmaster Morris, Bjarki +
Mathilde Caeyers & Arrtu Niem-
enen, Borgar Magnason, Brynjar
Daðason, Hafdís Bjarnadóttir,
búlgarski tónlistarmaðurinn
E.U.E.R.P.I, Flaaryr, Future-
grapher, Harp & Arp, Hekla,
Hermigervill, Ingibjörg Turchi, Jó-
hann Eiríksson, Kjartan Hólm,
Kraftgalli, MSEA, Nico Guerrero,
Orang Volante, Reptilicus, Skurk-
en, Soddill og Tonik Ensemble. Há-
tíðin verður haldin á fjórum stöð-
um; í Kaldalóni í Hörpu, á Húrra, á
Kex og Space Odyssey á Skóla-
vörðustíg.
Eins og jafnan þá eru þeir lista-
menn sem fram koma á hátíðinni
ýmist íslenskir eða erlendir, enda
má lesa á vefsetri hátíðarinnar að
það er beinlínis á stefnuskrá hátíð-
arhaldara að ýta undir samskipti og
tengsl innlendra og erlendra tón-
listarmanna í von um að það greiði
íslenskum listamönnum leið ytra og
verði einnig til tónlistarlegs sam-
starfs eða samskipta. Sumir þeirra
innlendu listamanna sem fram
koma að þessu sinni hafa haslað sér
völl ytra, til að mynda Bjarki Rún-
ar Sigurðarson, en einnig koma
fram erlendir tónlistarmenn sem
sest hafa að hér á landi og auðgað
íslenskt tónlistarlíf.
Fyrsta Extreme Chill-hátíðin var
haldin á Hellissandi í ágúst 2010 og
hefur verið haldin víða um heim
eftir það, þar á meðal í Vík,
Reykjavík og Berlín, oft í samstarfi
við aðrar tónlistarhátíðir eða við-
burði.
Roger Eno hæfileikamikill
hljóðfæraleikari
Meðal helstu gesta Extreme
Chill-hátíðarinnar að þessu sinni
eru breska tónlistartvíeykið Plaid,
sem heimsækir Ísland í annað sinn,
og tónlistarmaðurinn Roger Eno
sem leikur á tónleikum í Kaldalómi
í Hörpu annað kvöld. Roger Eno er
yngri bróðir Brians Enos og hefur
gert plötur með honum aukinheldur
sem hann hefur gefið út sólóplötur,
samið kvikmyndatónlist og tekið
þátt í fjölbreyttu samstarfi. Ólíkt
bróður sínum, sem hefur sagt að
hann sé ekki tónlistarmaður, er
Brian Eno hæfileikamikill hljóð-
færaleikari, leikur á fjölda hljóð-
færa og er að auki fyrirtaks söngv-
ari. Í viðtali segir hann að það hafi
valdið straumhvörfum í lífi hans
þegar hann barnungur tók upp
kornett og blés í það af rælni – þá
um leið einsetti hann sér að tónlist
yrði hans ævistarf og hefur gengið
eftir.
Það er þó sitthvað að vera fær
hljóðfæraleikari og að vera tón-
smiður, en Eno segist snemma hafa
tekið upp á því að semja tónlist,
það hafi nánast komið af sjálfu sér:
„Sennilega réð mestu um það að ég
fór að semja tónlist að að ég kynnt-
ist verki Erics Saties, enda heyrði
ég þá að ekki þurfti flugeldasýn-
ingar til að gera tónlist eftirminni-
lega og hrífandi. Ég var alltaf gefn-
ari fyrir hægu kaflana í sinfóníum
en flóknari hluta þeirra, sem mér
fannst oft tilgerðalegir. Þegar ég
byrjaði að semja tónlist var það því
með það tvennt í huga að halda í
einfaldleikann og fara fetið.“
Kenndi sér á önnur hljóðfæri
Eins og nefnt var þá leikur Rog-
er Eno á fjölmörg hljóðfæri. Þótt
það hafi þurft kornett til að hann
félli gersamlega fyrir tónlistinni
segir hann að systir hans hafi verið
að læra á píanó og hann hafi því
verið búinn að fikta aðeins við það.
Síðan fór hann að spila á rafmagns-
orgel. Þegar hann var svo kominn í
tónlistarskóla að læra á kornettið
lærði hann á píanó sem annað
hljóðfæri. „Ég var einstaklega
heppinn með kennara, enda leyfði
hann mér að sleppa skalaæfingum
að mestu leyti og leggja þess meiri
áhuga á að læra á hljóm hljóðfær-
isins og ná tökum á honum í spila-
mennsku.“
„Á þeim tíma kenndi ég mér líka
á önnur hljóðfæri, oft með því að
troða upp með hinum og þessum
hljómsveitum; spilaði á gítar með
þjóðlagasveitum, bassa í pönksveit,
túbu í þýskri lúðrasveit og síðar á
harmonikku, írska flautu, blokk-
flautu, mandólín, banjó, munnhörpu
og svo framvegis. Uppáhalds-
hljóðfærið mitt er þó píanóið, það
er það hljóðfæri sem ég gleymi mér
við og er sífellt að uppgötva nýjar
hliðar á því. Alla jafna byrja ég
lagasmíðar á því að taka upp
spunakennda hljóma sem ég síðar
vinn frekar, reyni að henda út
ónauðsynlegum nótum, legg
áherslu á þagnirnar eða reyni að
móta hljóma.“
Hughrifa- eða andrúmstónlist
Roger Eno og Brian bróðir hans
eru gjarna flokkaðir sem ambient-
tónlistarmenn, sem snarað hefur
verið á íslensku sem hughrifa- eða
andrúmstónlist. Aðspurður um
þessa flokkun segist Brian Eno
ekki kunna við ambient-merkimið-
ann, hann kjósi frekar að lýsa verk-
um sínum svo að hann sé eða semja
kvikmyndatónlist án kvikmyndar.
„Mér finnst afskaplega skemmti-
legt að vinna tónlist með myndefni í
huga og nota oft sértilbúnar stutt-
myndir á tónleikum. Þegar ég var
yngri setti ég listaverkabækur á
nótnastandinn á píanóinu og spann
tónlist við myndirnar. Þessar æf-
ingar koma mér svo til góða þegar
ég hef spilað og samið fyrir söng-
leiki og kvikmyndir – mér finnst
tónlist frábær sem samin er til að
gegna einhverju hlutverki, tónlist
sem hefur áhrif á það hvernig fólk
upplifir senu í kvikmynd, býr til
eftirvæntingu eða spennu, óhug og
frelsun – tónlist er mesta list-
formið.
Ég ætla einmitt að leika þannig
tónlist í Kaldalóni á föstudaginn, ég
er með klukkutíma langa kvikmynd
sem gerð er úr ljósmyndum sem ég
hef tekið, flestar umhverfis heimili
mitt, sem vinur minn, listamað-
urinn Dom Theobald, vann svo.
Kvikmyndin leyfir áheyrendum að
tengja saman það sem þeir sjá og
heyra, að leggja upp í eigin ferða-
lag.“
Lagt upp í innra ferðalag
- Extreme Chill-tónlistarhátíðin hefst í dag og lýkur á sunnudag - Erlend og innlend raf-
og tilraunatónlist í aðalhlutverki - Tónleikar í Hörpu, á Húrra, Kexi og í Space Odyssey
Ferðalag Roger Eno leikur á fjölda hljóðfæra en hefur mest dálæti á píanóinu. Hann hyggst flétta saman tónlist og kvikmyndalist í Kaldalóni annað kvöld.
Frumlegir Plaid-félagar, Andy Turner og Ed Handley, slá botninn í Extr-
eme Chill-hátíðina með tónleikum í Húrra á sunnudag.
21.246 kr. / 24.995 kr.
Vnr.: E-50183451052
Stærðir: 40-47
27.196 kr. / 31.995 kr.
Vnr.: E-83170452600
-
23.796 kr. / 27.995 kr.
Vnr.: E-46046301001
Stærðir: 36-42
22.946 kr. / 26.995 kr.
Vnr.: E-49005301588
KRINGLUKAST
ær r: -
13.596 kr. / 15.995 kr.
Vnr.: E-76194260159
Stærðir: 27-35
16.996 kr. / 19.995 kr.
Vnr.: E-71029260158
KRINGLAN - SKÓR.IS KRINGLAN - SKÓR.IS
15% afsláttur af öllum ECCO skóm
STEINAR WAAGE
6.-11.OKTÓBER