Morgunblaðið - 14.10.2021, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.10.2021, Blaðsíða 39
UMRÆÐAN 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021 Skattborgarar gengu til kosninga með blendnum tilfinningum þetta árið. Litlu var þeim lofað öðru en óumbeðinni sjálfskuld- arábyrgð á annars ábyrgðarlausu fjár- austri stjórnmála- manna. Hvorki frétta- menn né frambjóð- endur veittu því athygli að því sem einn fær án þess að vinna fyrir þarf einhver annar að vinna fyrir án þess að fá. Þjóðin andar léttar Við íhaldsmenn unnum ekki neina sérstaka sigra á kjördag. Þó má anda léttar því öfgaumrótið var á síðustu dögunum fyrir kosningar komið í örskotslengd frá allsherj- arvaldinu. Ef það ætti að velja einn hug- myndafræðilegan sigurvegara í þessum kosningum þá væri það okkar ástkæra lýðveldisstjórn- arskrá sem ávallt vakir og verndar. Þau öfl sem vildu henni illt skruppu saman og urðu undir. Aðförin að henni var brotin á bak aftur og von- andi er þeim hildarleik að fullu lok- ið. Píratar töpuðu fylgi. Það er fagn- aðarefni. Sósíalistaflokkurinn með sína eymdarstefnu komst ekki inn á þing sem er annað fagnaðarefni. Jafnaðarmenn sitja að sama skapi eftir með sárt ennið og náðu ekki einu sinni tíund atkvæða. Þetta er ljósið í myrkrinu. Málefnaþurrð og meðvirkni Sú staðreynd að átta þingflokkar skipa komandi þing er alvarlegur áfellisdómur um forgangsröðun stjórnmálamanna og þeirra inni- haldslausu slagorðastjórnmál sem færst hafa í aukana síðustu ár. Það skýrir að einhverju leyti nið- urstöðuna að nánast ekkert er rætt um það sem máli skiptir; svo sem hvernig menn sjá fyrir sér Ísland og íslensku þjóðina eftir aldarfjórðung. Sumir stjórnmálamenn virðast ekk- ert gefa því gaum eða setja sig sér- staklega á móti því að þjóðinni sé skipt út, að undan henni sé selt sjálft landið og auðlindir þess eða að stefnan í mikilvægustu málaflokk- unum sé ákveðin af erlendum þrýstihópum sem ekkert þekkja til íslenskra landshaga. Í átt til nýrrar ánauðar Framboð á jarðnæði er takmörk- uð og viðkvæm auðlind. Bænda- ánauðin ætti að vera okkur Íslend- ingum víti til varnaðar í þeim málum. Breti nokkur kemst af og til í fréttirnar fyrir þær sakir að hann er stærsti landeigandi á Íslandi. Hefur hann nú, í það minnsta að eigin sögn, loksins látið staðar numið eftir að hafa keypt yfir hundrað þúsund hektara á Íslandi. Það jafngildir ein- um hundraðshluta af landinu öllu. Þetta gerði hann fyrir smámynt í öðrum vasa en eignir hans eru metnar á um fjögur þúsund millj- arða. Þetta er nefnt til þess að fólk átti sig á hversu háar fjárhæðir eru í spilunum og hversu alvarleg stað- an er orðin fyrir Íslendinga sem langar að eignast landspildu. Það er nefnilega verið að setja okkur Ís- lendinga í ósigrandi samkeppni við erlent auðvald um jarðeignir í okkar eigin landi. Það segir sig sjálft að okkar fámenna og saklausa þjóð verður alltaf undir í slíkri sam- keppni. Frjáls þjóð í frjálsu landi Varðstaða um sjálfstæði ríkisins út á við telst frumhlutverk allra sem aðkomu hafa að ríkisvaldinu. Stjórnmálamenn vinna meðal ann- ars drengskaparheit að stjórn- arskránni þegar þeir setjast á þing. Það gera forseti, ráðherrar og aðrir embættismenn einnig. Á vefsíðu Stjórnarráðsins er þessari heit- strengingu lýst sem trúnaðar- og holl- ustuskyldu við þann grundvöll sem stjórn- skipun ríkisins er reist á og felur í sér loforð um að virða hana á kjörtímanum. Þetta er með öðrum orðum lof- orð valdhafa til þjóð- arinnar um að verja okkar allra dýrmæt- ustu réttindi; meðal annars okkar stjórn- skipulega frelsi sem Bjarna heitum Benediktssyni varð svo tíðrætt um og tók okkur Íslend- inga svo langan tíma að endur- heimta. Borið hefur á því að stjórn- málamenn missi allan mátt þegar kemur að efnislegri umræðu um fullveldið í framkvæmd og rjúfi jafn- vel svardaga sinn. Icesave og orku- pakkinn sýndu það máttleysi í verki. Staða Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðisflokkurinn fékk gula spjaldið í kosningunum. Staða hans er mikið áhyggjuefni og sérstaklega hér í borginni. Niðurstaðan í borg- inni var sú versta í sögu flokksins og fylgið hefur helmingast frá því sem áður taldist eðlilegt. Þetta er staðan og menn geta ekki horft fram hjá henni. Það er þó hægt að tala sig inn í hjörtu kjósenda að nýju og endur- heimta fallið traust. Stórsigur breska Íhaldsflokksins í síðustu kosningum mætti nefna í þessu samhengi. Það var stærsti sigur flokksins síðan 1987. Sá sigur byggðist alfarið á hollustu forsætis- ráðherrans til bresku þjóðarinnar; þjóðlegri varðveislustefnu og við- spyrnu gegn ægivaldi möppudýr- anna í Brussel. Breska þjóðin vakn- aði og hafnaði með afgerandi hætti frekara valdaframsali og þjóðlegu niðurbroti. Sá sigur sýnir það svart á hvítu að fallið fylgi er hægt að end- urheimta. Það er eiginlega borðleggjandi að fulltrúar okkar sjálfstæðismanna þurfa að fara að hlusta á flokksmenn sína og koma með viðspyrnuáætlun um hvernig við sem þjóð getum eflt þau þjóðlegu grunngildi sem flokk- urinn var stofnaður í kringum. Hug- rekki skiptir hér höfuðmáli. Þar eru tækifærin ef menn vilja sigra að nýju. Hitt hefur verið reynt og það gengur ekki. Umrótinu hafnað Eftir Viðar Guðjohnsen » Borið hefur á því að stjórnmálamenn missi allan mátt þegar kemur að efnislegri um- ræðu um fullveldið í framkvæmd og rjúfi jafnvel svardaga sinn. Viðar H. Guðjohnsen Höfundur er lyfjafræðingur og sjálfstæðismaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.