Morgunblaðið - 14.10.2021, Side 40
40 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021
Þórunn Sveinbjörns-
dóttir, fyrrverandi
varaformaður Efl-
ingar-stéttarfélags,
skrifaði í Morgunblaðið
24. september sl. grein
undir fyrirsögninni
„Fæðingarorlof sterkt
jafnréttismál“. Þórunn
segir í grein sinni: „Ár-
ið 2000 er svo merkisár
í þessari sögu og má
þar þakka Framsókn og Páli Péturs-
syni (félagsmálaráðherra) sér-
staklega fyrir það merka og mik-
ilvæga skref sem þá var stigið með
því að feður fengu fæðingarorlof og
konur lengra orlof.“ Hér er Þórunn
að vísa til laga um fæðingarorlof sem
tóku gildi 1. janúar 2001.
Af þessu tilefni vil ég leyfa mér að
minna á að nærri tveimur árum áður
en þessi lög tóku gildi hafði VR sam-
þykkt á aðalfundi að greiða fæðingar-
orlof þar sem báðir foreldrar nutu
sama réttar og lögin síðar kváðu á
um. VR var eina í ASÍ sem greiddi
slíkt fæðingarorlof og höfðu um 800
félagsmenn VR notið þess áður en
framangreind lög tóku gildi.
Eftirbreytnivert framtak VR
Hér var um mikilvægt jafnrétt-
ismál að ræða, sem VR vann jafnan
ötullega að. Minna má á að 2001 hlaut
VR viðurkenningu jafnréttisráðs fyr-
ir störf félagsins að jafnréttismálum.
Elín Líndal, formaður jafnréttisráðs,
sagði í ræðu við afhendingu viður-
kenningarinnar, sem sómamaðurinn
Páll Pétursson ráð-
herra bauð til í Ráð-
herrabústaðnum, að
það hefði verið einróma
ákvörðun ráðsins að
veita VR viðurkenn-
inguna fyrir „sérstakt
og eftirbreytnivert
framtak í jafnrétt-
ismálum“, eins og Elín
orðaði það.
„Jafnrétti“ er stórt
orð og hefur mikla þýð-
ingu. Allir ættu að geta
verið sammála um að jafnrétti er yfir-
skrift þess sem launþegahreyfingin
var stofnuð til: Að vinna að grunn-
stoðum bræðra- og systralags. Það
hefur ekki reynst auðvelt. Ég tel
þessa viðurkenningu jafnréttisráðs
vera einn mesta heiður sem stéttar-
félagi hefur hlotnast.
Ég er mög ánægður og þakklátur
að í formannstíð minni hjá VR hlaut
félagið framangreinda viðurkenningu
fyrir „eftirbreytnivert framtak í jafn-
réttismálum“.
VR fyrst,
síðan sett lög
Eftir Magnús L.
Sveinsson
Magnús L. Sveinsson
» VR var eina félagið
innan ASÍ sem
greiddi slíkt fæðingar-
orlof og höfðu um 800
félagsmenn VR notið
þess áður en framan-
greind lög tóku gildi.
Höfundur er fyrrverandi
formaður VR.
magnusl@simnet.is
Það er einstakt að
við skulum leyfa okkur
að halda og hampa
verkefni sem Jafnvæg-
isvog FKA til að varða
veginn á jafnréttis-
göngu Íslands.
Ákvörðunin um jafn-
rétti hefur verið tekin.
Einmitt núna erum við
í útfærsluæfingum af
fullum krafti, á mismunandi vegu og
með alls kyns árangri. Það er ein-
stakt, frábært og eftirtektarvert.
Það sem hjálpar til þegar verið er
að ganga gegn hefðum, venjum og
ráðandi gildum fyrri tíma er ekki ein-
ungis hin sameiginlega ákvörðun sem
við höfum öll tekið heldur einnig
styrkur stuðningur ólíkra hags-
munahópa. Fræðasamfélagið styður
okkur öll með því að leggja til rann-
sóknir á jafnréttismálum og birtir
niðurstöður jöfnum höndum. Hið
opinbera setur lög og reglur til að
varða leiðina og gerir gott betur með
því að stilla eigin innri rekstur af og
lögbinda jafnan rétt í nefndum, ráð-
um og stöðuveitingum. Þar sem okk-
ur gengur hvar hægast í jafnvægis-
æfingunum er í einkageiranum, hvort
sem um er að ræða í framkvæmda-
stjórnum, stjórnum eða hvað þá
skráðum Kauphallarfélögum. 14-2
bliknar þar við hlið – staðan er nefni-
lega 19-1 þar. En við höfum Jafnvæg-
isvog FKA til að minna okkur á,
styrkja og hvetja.
Ekki má gleyma að alþjóðavæðing
nútímans setur Ísland sem skástræti
í Alþjóðaþorpinu, staðsetning sem við
komumst ekki undan. Nýir mæli-
kvarðar um rekstur fyrirtækja kveða
meðal annars á um sjálfbærni og
samfélagsábyrgð og þar skora jafn-
rétti og fjölbreytni hátt. Lykilbreytur
sem einblína á að fá fleiri ólíkar radd-
ir að borðinu hagkerfinu öllu til hags-
bóta, samfélaginu til giftu og gæfu.
Það er eitt stærsta hagsmunamál
samtímans að útrýma lýðbreytum
sem aldri, kyni og uppruna í atvinnu-
lífinu til að undirbúa frjóan svörð
fyrir grósku komandi tíma.
Ísland er best í heimi í jafnrétti.
Það er til Íslands litið og eftir því tek-
ið í Alheimsþorpinu. Skástrætið þykir
kröftugt, hlaðið smáu og knáu fólki
sem hikar ekki við að framkvæma
með gleði, þolinmæði og þrautseigju.
Sýnum okkur sjálfum og þorpinu
hvernig framúrskarandi flottar
æfingar í jafnrétti líta út. Gangi okk-
ur vel og góða skemmtun.
Eftir Sigríði Hrund
Pétursdóttur
og Unni Elvu
Arnardóttur
Sigríður Hrund
Pétursdóttir
» Skástrætið þykir
kröftugt, hlaðið
smáu og knáu fólki sem
hikar ekki við að fram-
kvæma með gleði, þolin-
mæði og þrautseigju.
Sigríður Hrund er formaður FKA.
Unnur Elva er varaformaður FKA.
Til hamingju Ísland
Unnur Elva
Arnardóttir
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að
nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningar-
ferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá
inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda grein-
ar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.