Morgunblaðið - 14.10.2021, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 1 4. O K T Ó B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 241. tölublað . 109. árgangur .
Bleika slaufan
fæst í Nettó
Avókadó
2 stk - forþroskuð
249KR/PK
ÁÐUR: 498 KR/PK
979KR/KG
ÁÐUR: 1.998 KR/KG
Bæonne-skinka
VERÐ-
SPRENGJA!
50%
AFSLÁTTUR
TILBOÐ GILDA 14.--17. OKTÓBER
FRÁBÆR TILBOÐ
Í NÆSTU NETTÓ
ÞETTA VAR
OF MIKIL
ÁSKORUN
ORTI LJÓÐ
TIL AÐ VINNA
ÚR ÁFÖLLUM
HELGIN KEMUR
ALLTAF
AFTUR
DAGLEGT LÍF 12 NÝ ÞÁTTARÖÐ 56MÁLAÐI DAUÐANN 62
_ Landamæri
Kosta Ríka voru
opnuð ferða-
mönnum mun
fyrr en annars
staðar í Mið-
Ameríku eftir að
þeim hafði verið
lokað vegna far-
aldursins. Gust-
avo Seguro
Sancho, ferða-
málaráðherra landsins, segir í sam-
tali við Morgunblaðið að það hafi
gengið vel vegna sterkra innviða
um landið allt. Þrátt fyrir að smit
kæmu inn í landið var auðvelt að
halda smitdreifingu í skefjum og
íbúar landsins lögðust á eitt við að
sinna persónubundnum sótt-
vörnum. Þegar bólusetning varð al-
mennari, sérstaklega hjá ferða-
mönnum frá Bandaríkjunum, hafi
snemma verið hægt að afnema
kröfu um PCR-próf við komuna til
Kosta Ríka. Ráðherrann segir að
það hafi ekki skipt sköpum fyrir
þróun faraldursins í landinu. »24
Opnuðu landamæri
fyrr og það virkaði
Gustavo
Segura
_ „Þetta er í
fullu samræmi
við þessa þrá rit-
höfundar að
koma sjálfum sér
á óvart,“ segir
Arnaldur Ind-
riðason rithöf-
undur, sem hefur
í aldarfjórðung
haft þann vana á
að senda frá sér
nýja bók hinn 1. nóvember. Hann
heldur uppteknum hætti í ár en nú
ber svo við að lesendur fá ekki
glæpasögu heldur sögulega skáld-
sögu. Skáldsagan nefnist Sigur-
verkið og gerist hún á sunnan-
verðum Vestfjörðum og í
Kaupmannahöfn á 18. öld. »16
Arnaldur ekki með
glæpasögu í ár
Arnaldur
Indriðason
_ Helgi Tómasson, prófessor í hag-
rannsóknum og tölfræði við HÍ, seg-
ir í aðsendri grein í Morgunblaðinu í
dag að skýrslur IPCC um loftslags-
mál séu tölfræðilega vanþróaðar.
Vísar hann þar m.a. til orða Dennis
Trewins, fyrrverandi hagstofustjóra
Ástralíu, um að tölfræðilegir gallar
á útreikningum IPCC væru til þess
fallnir að ýkja loftslagsbreytingar
framtíðarinnar. »38
Tölfræðilegir gallar
ýki loftslagsvána
Fimm manns létu lífið og tveir til við-
bótar særðust þegar maður vopnað-
ur boga og örvum gekk berserks-
gang í bænum Kongsberg í Noregi í
gærkvöldi. Hófst árásin í kaup-
félagsverslun Co-op í bænum, og
fékk lögreglan tilkynningu um málið
kl. 18.13 að staðartíma, eða 16.13 að
íslenskum tíma. Fór maðurinn um
bæinn og réðst að fólki áður en lög-
reglan náði að yfirbuga hann kl.
18.47 að staðartíma. Var maðurinn
einn að verki.
Ekki var vitað um ástæður árás-
arinnar í gærkvöldi, en maðurinn
mun einnig hafa verið vopnaður
hnífi. Sagði Øyvind Aas, lögreglu-
stjóri í Buskerud, að ekki væri úti-
lokað að um hryðjuverk væri að
ræða. Þá væri ekki verið að leita að
öðrum í tengslum við málið.
Bæjaryfirvöld í Kongsberg virkj-
uðu í gær fjöldahjálparstöð fyrir þá
sem þyrftu á áfallahjálp að halda. Þá
var fjöldi lögreglumanna kallaður til
aðstoðar frá Osló.
Utanríkisráðuneytið hvatti í gær
Íslendinga í Kongsberg og nágrenni
til þess að láta fjölskyldu og vini vita
að þau séu óhult. Ef þeir eru í vanda
staddir er best að hafa samband við
borgaraþjónustu ráðuneytisins.
FIMM LÁTNIR Í NOREGI
- Maður gekk berserksgang í Kongsberg með boga og örvar - Tveir særðir
AFP
Alvarleg árás Lögreglumaður með leitarhund rannsakar hér einn vettvang árásarinnar í Kongsberg í gærkvöldi, en mikill viðbúnaður var um allan Noreg.
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Úrsagnir alþingismanna úr þing-
flokkum eru mun algengari en ætla
má af umræðum síðustu daga um
mál Birgis Þórarinssonar. Frá um
1970 hafa nær fjörutíu þingmenn
sagt skilið við flokka sína, þar af
voru nítján úrsagnir frá aldamót-
um. Morgunblaðið birtir í dag lista
yfir alla þingmennina sem um er að
ræða.
Flokkshollusta var meiri fyrr á
tíð en nú og telja fræðimenn það
skýra að tiltölulega sjaldgæft var
fram til um 1970 að þingmenn yfir-
gæfu flokka sína. Pólitísk vista-
skipti voru þó ekki óþekkt en þau
voru ætíð hluti af stærra pólitísku
umróti.
Samantektin í dag sýnir að úr-
sagnir úr þingflokkum hafa verið
algengari meðal þingmanna vinstri-
flokka en hægri- og miðflokka.
Metið eiga Alþýðubandalagið og
arftaki þess, VG. Sex þingmenn
sögðu sig úr Alþýðubandalaginu frá
1969 og sex hafa sagt sig úr VG frá
stofnun flokksins. Athygli vekur að
einn þingmaður, Kristinn H.
Gunnarsson, sagði sig þrívegis úr
þingflokkum.
Þótt margir hneykslist á „flokka-
flakki“ þingmanna er ekkert sem
skyldar þingmann til að vera í þeim
flokki sem hann var í framboði fyr-
ir. Í 8. grein stjórnarskrárinnar
segir skýrt að þingmenn séu ein-
göngu bundnir við sannfæringu
sína og eigi við neinar reglur frá
kjósendum sínum.
Nítján úrsagnir á öldinni
- Algengara að þingmenn yfirgefi flokka sína á Alþingi en ætla má af þjóð-
félagsumræðunni - Nær fjörutíu þingmenn hafa haft vistaskipti frá 1969
MMargir yfirgefið þingflokka »14