Morgunblaðið - 14.10.2021, Blaðsíða 10
VIÐTAL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Í næstu viku birtir Creditinfo (CI)
lista yfir þau fyrirtæki sem uppfylla
ströng skilyrði um að teljast framúr-
skarandi. Byggist úttekt fyrir-
tækisins á ársreikningum nærri 40
þúsund íslenskra fyrirtækja. Dagný
Dögg Franklínsdóttir, forstöðu-
maður viðskiptastýringar hjá CI,
segir að á síðustu árum hafi um 2%
íslenskra fyrirtækja uppfyllt skil-
yrðin og því sé um mikinn minni-
hluta fyrirtækja að ræða.
Þessa dagana fara sérfræðingar
CI yfir ársreikninga fyrirtækjanna
og að sögn dr. Gunnars Gunnars-
sonar, forstöðumanns greiningar og
ráðgjafar hjá fyrirtækinu, bendir
flest til þess að fjöldinn á listanum
verði svipaður og hin síðustu ár eða
einhvers staðar á bilinu 800 til 900.
Hann viðurkennir í samtali á vett-
vangi Dagmála að hann hafi síðustu
tvö ár spáð því að fækkun yrði á list-
anum, fyrst vegna falls WOW air og
þeirra áhrifa sem það hafði á hag-
kerfið en einnig í aðdraganda þess
að listi þessa árs var tekinn saman.
70% virðast hverfa á braut
Hins vegar sé afgerandi þróun í
þá veru að ferðaþjónustufyrirtæki
hverfi af listanum. Um 70% fyr-
irtækja í þeim geira, sem hingað til
hafi fyllt listann, hverfi af honum nú.
Hann segist ekki hafa augljósar
skýringar á því að ekki fækki á
heildarlistanum en segir að þetta
bendi að öllum líkindum til þess að
það búi mikill kraftur í íslensku at-
hafnalífi. Á fimmtudag í næstu viku
stendur Creidinfo fyrir eins konar
uppskeruhátíð þeirra fyrirtækja
sem fylla listann yfir framúrskar-
andi fyrirtæki. Dagný Dögg segir
gaman að upplifa hversu mikið fyrir-
tækin leggi upp úr viðurkenning-
unni. Í mörgum tilvikum komi stór
hluti starfsmanna þeirra fyrirtækja
sem staðsett eru á landsbyggðinni til
höfuðborgarinnar og geri sér glaðan
dag í tilefni útnefningarinnar.
Hún bendir einnig á að fyrirtæki
nýti sér vottunina með ýmsum
hætti. Það gerist bæði með innri
markaðssetningu og til þess að und-
irstrika gagnvart viðskiptavinum og
birgjum að staða þeirra sé sterk. Að-
eins fyrirtæki sem skilað hafa hagn-
aði í þrjú ár í röð og standi sterkt
eignalega geti komist á listann. Þá
sé aukin áhersla á sjálfbærni og á
komandi árum sé stefnt að því að
hlutlægir mælikvarðar verði inn-
leiddir við mat á frammistöðu fyr-
irtækja í þeim efnum.
Ferðaþjónustan lætur
undan síga á listanum
- Ekki útlit fyrir fækkun á lista Framúrskarandi fyrirtækja
Framúrskarandi Dr. Gunnar Gunnarsson, forstöðumaður greiningar og
ráðgjafar hjá Creditinfo, og Dagný Dögg Franklínsdóttir forstöðumaður
viðskiptastýringar ræða við Stefán Einar í Dagmálaþætti dagsins.
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021
Hlýtt og
notalegt
Þinn dagur, þín áskorun
100% Merino
ullarnærföt
fyrir dömur og herra
Stærðir: S–XXL
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.runehf.is
OLYMPIA
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Verslunin Bjarg, Akranesi
Herrahúsið, Ármúla 27 • JMJ, Akureyri • Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki • Verslun Grétars Þórarinssonar, Vestmannaeyjum • Borgarsport, Borgarnesi
Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði
Bókaverslun Breiðarfjarðar, Stykkishólmi • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • run.is
Kíktu í heimsókn!
Opið virka daga kl. 10-18 Laugardaga 11-15
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - patti.is
Sjá nánar
á patti.is
Vandaðir sófar
frá Fama
Umhverfismál og nýting þess sem
landið gefur verður í brennidepli á
39. landsþingi Kvenfélagasambands
Íslands sem haldið verður í Borg-
arnesi um helgina. Það sem jörðin
gefur er yfir-
skrift þingsins,
en þangað eru
konur hvattar til
að mæta í bleik-
um fatnaði. Slíkt
tengist bleikum
mánuði Krabba-
meinsfélags Ís-
lands.
Að lokinni
þingsetningu í
Borgarneskirkju á föstudagskvöld
fara þingfulltrúar á Hvanneyri. Þar
tekur kvenfélagið 19. júní á móti
konum í móttöku í Landbúnaðarhá-
skóla Íslands. Þar mun forseti Ís-
lands, Guðni Th. Jóhannesson,
flytja ávarp. Með Guðna kemur
kona hans, Eliza Reid, en einnig
flytja konur úr héraði tölur.
Á þinginu munu kvenfélagskonur
ræða og ráðgera störf sín og fluttir
verða fyrirlestrar um til dæmis
handverk og skógarnytjar. Á
sunnudaginn verður nýr forseti
Kvenfélagasambands Íslands til
næstu þriggja ára kjörinn. Alls 195
konur af öllu landinu eru nú skráð-
ar á þing sambandsins, en innan
þess starfa 142 kvenfélög með um
4.500 félaga. „Stuðningur við góð
málefni hefur alltaf verið stór þátt-
ur í starfi kvenfélaganna. Slíkt er
okkur ljúf skylda,“ segir Guðrún
Þórðardóttir, fráfarandi forseti KÍ.
Upplýst er í aðdraganda landsþings
nú að kvenfélög hafa á árunum
2018-2020 gefið rétt liðlega 179
milljónir króna til ýmissa sam-
félagsverkefna. Mest hefur farið til
líknarmála, eða alls um 130 millj-
ónir. sbs@mbl.is
Gjafir þriggja ára 179 milljónir
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Borgarnes Kvenfélagskonur af öllu
landinu eru væntanlegar þangað.
- Landsþing Kvenfélagasambands Íslands er í Borgarnesi
Guðrún
Þórðardóttir
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ummæli Ásgeirs Jónssonar seðla-
bankastjóra í ViðskiptaMogganum í
gær eru enn ein staðfestingin á al-
varlegum afleiðingum þess hve lítið
framboð hefur verið á lóðum til
íbúðabygginga í borginni, sem hefur
bein áhrif á fasteignaverðið, að sögn
Eyþórs Arnalds, oddvita sjálfstæð-
ismanna í borgarstjórn. Nú þurfi
ekki frekar vitnanna við.
„Það hefur verið deilt um það
hvort framboð á lóðum hafi áhrif á
fasteignaverð en nú held ég að ekk-
ert sé lengur um það deilt,“ segir
Eyþór. Samtök iðnaðarins hafi farið
yfir þetta, verkalýðshreyfingin lýst
áhyggjum af litlu framboði, fast-
eignasalar hafa staðfest þetta og svo
núna seðlabankastjóri. „Lóðaverð
hefur bein áhrif á fasteignirnar en
það sem hefur átt sér stað er að
borgarstjórnarmeirihlutinn í
Reykjavík tók úr sambandi heilu
hverfin sem áttu að byggjast upp.
Ég get nefnt Úlfarsárdalinn sem
dæmi. Þar átti að vera 20 þúsund
manna byggð en hún var skorin nið-
ur um helming. Síðan var sett sér-
stakt ákvæði í lífskjarasamninginn
um Keldnalandið og Keldnaholtið,
sem ekki hefur verið staðið við af
hálfu borgarinnar. Þessar ákvarðan-
ir borgarinnar, að fella burt tíu þús-
und manna byggð og standa ekki við
það sem sett var inn í lífskjarasamn-
inginn um Keldur, en þar ætlar
borgin ekki að byggja fyrr en 2033
eða síðar, hafa einar og sér haft
gríðarleg áhrif á
fasteignamarkað-
inn,“ segir Ey-
þór.
Nefna megi
fleiri svæði í
borginni, t.d.
BSÍ-reitinn sem
er álíka stór og
Landspítalinn,
þar sem hægt sé
að byggja upp
fjölda íbúða. Stýrihópur sem settur
var á fót hafi enn ekki komið saman
að sögn Eyþórs. ,,Það á ekki að leyfa
neina íbúð í Örfirisey til ársins 2040
að ég tali nú ekki um Geldinganes
og Kjalarnes, sem eru líka gríðar-
lega stór mál en bara það að hætta
við það sem borgin var búin að
ákveða er búið að stórskaða fast-
eignamarkaðinn.“
Stopp í samgöngumálum
Eyþór tekur undir orð seðla-
bankastjóra um skort á fjárfesting-
um í umferðarmannvirkjum í borg-
inni. „Það hefur verið algert
framkvæmdastopp í samgöngu-
málum undir forystu borgarinnar,“
segir Eyþór. „Þetta hefur gert það
að verkum að það er líka erfiðara að
búa í úthverfum og það hleypir upp
verði fasteigna eins og seðlabanka-
stjóri bendir á. Að óbreyttu mun
straumurinn vera áfram á Selfoss,
Akranes og Reykjanesbæ og þreng-
ingastefnan hefur í raun og veru
leitt af sér algeran framboðsskort á
byggingarlandi í landmesta sveitar-
félaginu.“
Stórskaðlegar
ákvarðanir
- Segir afleiðingar lóðaskorts staðfestar
Eyþór
Arnalds