Morgunblaðið - 14.10.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.10.2021, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021 VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Ég greindist fyrst í lok febrúar í fyrra,“ segir Rúnar Hrafn Sig- mundsson, Húsvíkingur, sem bú- settur er í Sandnes í Rogaland-fylki á vesturströnd Noregs og heyr nú skarpa snerru við beinkrabbamein (gr. osteosarcoma) í lyfjameðferð númer tvö á Haukeland-sjúkrahús- inu í Bergen, eða eins og hann lýsti með kraftmiklum stíl Norðlendings- ins á Facebook í september: „Ný umferð með lyfjameðferð, náði víst ekki að drepa þennan andskota síð- ast.“ „Þetta byrjaði nú bara með verkj- um í hnjám og einhverjum bólgum,“ segir Rúnar, sem hefur um árabil starfað hjá Atea, leiðandi stór- fyrirtæki á sviði hljóð- og mynd- lausna í tengslum við fjarfundabún- að fyrirtækja og annað á þeim vettvangi, en fyrirtækið starfar í um 80 borgum og bæjum á öllum Norðurlöndunum auk Eystrasalts- landanna. Skiljanlega er hann þó í veikindaleyfi núna. Rúnar fékk lyf við verkjunum og bólgunni, sem þó virtust ekki hafa mikið að segja að yfirsýn bestu fræði- manna svo segulómun, eða MRI, var þá næsta mál á dagskrá þar sem hið sanna kom í ljós. „Norska kerfið er náttúrulega þannig að þegar svona uppgötvast er helst ekkert verið að bíða með hlutina þannig að ég var mættur upp til Bergen bara vikuna á eftir í sýnatökur og viðtöl,“ segir Rúnar frá tíma þegar kórónuveiran var að steypast yfir heimsbyggðina af fullum þunga. Verður bara að berjast Vika til viðbótar hafi svo liðið þar til allar niðurstöður lágu fyrir og þremur vikum eftir að Rúnar greindist með meinið var hann kom- inn í fyrri lyfjameðferðina. Hljóta það ekki að vera hin válegustu tíð- indi fyrir mann, sem er rétt að skríða á miðjan aldur, fæddan 1974 og þar með jafnaldra þess sem hér skrifar, að taka á móti svo óboðnum og illa þokkuðum gesti sem krabba- meini? „Þetta er bara hundsbit. Maður verður bara að taka þessu eins og það kemur og berjast við það, vera bara jákvæður,“ svarar Rúnar hressilega og gerir lýðum ljóst að Suður-Þingeyjarsýsla uppfóstrar ekki fólk sem leggur árar í bát í mót- vindi. Hann flutti til Noregs árið 2008 og ætlaði sér upphaflega ekki að stoppa lengi, en örlögin gripu þar í taumana í formi gjörningaveðurs bankahrunsins annálaða, næsta stóráfalls á undan heimsfaraldr- inum. „Ég kom hingað út í eitt verkefni og Ísland varð gjaldþrota á meðan svo það var nú ekki beint að neinu aftur að snúa. Það var algjör til- viljun sem réð því að ég fór til Nor- egs, ég hafði aldrei séð það fyrir mér að flytja hingað. Ég vann við dyra- vörslu í mörg ár og þá fannst mér Norðmenn leiðinlegustu menn í heimi með áfengi,“ segir Rúnar og hlær innilega á meðan blaðamanni verður hugsað til eigin dyravörslu- tímabils í Stavanger árið 2012 þar sem gestir gátu vissulega verið all- misjafnir að skemmtanagildi. Rúnar dregur þó fljótlega í land: „Eftir að hafa kynnst þeim betur finnst mér Norðmenn alveg fínasta fólk og ekkert síðri en Íslendingar.“ Hann sér ekki fyrir sér að flytjast búferlum í bráð, vissulega gæti hann fengið vinnu í sömu starfsgrein á Ís- landi og hann stundar nú, en garður frændþjóðarinnar er blómlegur og lífið ágætt í Noregi. Ekkert liggi því á. Vel passað upp á mann Rúnar ber heilbrigðiskerfi Norð- manna vel söguna og kveðst njóta bestu fáanlegu umönnunar á Hauke- land-sjúkrahúsinu í Hansakaup- mannaborginni fornu Bergen. „Hér er mjög vel passað upp á mann og gekk mjög fljótt að setja í gang það sem gera þurfti þegar þetta kom upp. Einu hnökrarnir kannski, sem ég get bent á, eru samskiptin milli sjúkrahúsanna. Það er eins og hvert og eitt sjúkrahús sé bara með sitt eigið upplýsingakerfi. Ég var sem sagt í meðhöndlun hér í Bergen [í fyrra] og þurfti svo að leggjast inn á sjúkrahús í Stavanger vegna sýk- ingar sem ég fékk í kjölfarið. Þá hafði sjúkrahúsið í Stavanger engan aðgang að mínum sjúkragögnum,“ segir Rúnar frá. Málin hafi þó verið leyst gegnum síma, en þannig eigi það auðvitað ekki að ganga fyrir sig á tíma stafrænnar upplýsinga- hraðbrautar sem þekkir nánast eng- in landamæri. Hann hefur dvalið á sjúkrahús- inu í Bergen með hléum í þessari síðari lyfjameðferð, fyrst í tvær og hálfa viku, svo fimm daga og nú hefur hann verið á Haukeland í rúma viku í meðferðinni. Þá var fyrri lotan langt frá því að vera heiglum hent, hún stóð frá febrúar fram í október í fyrra og varði lyfjagjöf þá í fjóra til fimm sólar- hringa í senn. Hvernig er heilsan eftir slíkar þrekraunir, sem hrakn- ingar Ódysseifs í kviðum blinda skáldjöfursins Hómers virðast fölna við hliðina á? „Ja, maður er bara alveg búinn, ég var alveg handónýtur,“ viður- kennir Húsvíkingurinn og segir ónæmiskerfið hreinlega fara í al- gjört rugl, eins og hann orðar það, við lyfjagjöfina, sem er ekki eina áskorunin í orrustunni því Rúnar hefur þurft að fara í margar skurð- aðgerðir, meðal annars skipti á hnjálið og stórum hluta lærbeins. „Fyrsta aðgerðin gekk nú bara miklu betur en ég þorði að vona,“ segir Rúnar af því þegar hnjáliður úr títani var græddur í hann. „Ég þakka bara fyrir að hafa ekki misst fótinn, það var tvennt í stöðunni, að taka hann alveg eða skipta um þessa hluta,“ segir Rúnar, sem var settur í þá lítt öfundsverðu stöðu að ákveða þetta sjálfur. „Ég hefði get- að valið að láta bara taka hann al- veg, en ég verð að segja þér að ég var ekki alveg tilbúinn í það,“ játar Rúnar og lái honum hver sem vill. „Þetta er alveg stórkostlegt fólk, sem vinnur hérna,“ segir Rúnar, þýfgaður svara um hvernig sam- skipti hans við lækna og hjúkr- unarfólk gangi fyrir sig, „sam- skiptin við þetta fólk eru frábær, umhyggjan og hlýhugurinn, sem maður upplifir hér er alveg ein- stakt. Þetta er auðvitað bara rút- ína, þú ert vakinn klukkan átta til að fara í lyf og svo ræður maður eiginlega deginum eftir það, læknir kemur einu sinni á dag og fer yfir stöðuna svo þú ert alltaf upplýstur um gang mála,“ segir hann og telur einnig aðdáunarvert hvernig staðið hafi verið að málum í öllum þeim áskorunum sem átján mánuðir af kórónufaraldri buðu upp á í heil- brigðiskerfinu. Ekki rætt um líkur „Það hafði nánast engin áhrif á framkomu fólks hér, sem er ótrú- legt. Mér hefur aldrei liðið illa hérna,“ segir Rúnar sannfærandi. – Hvað skyldi þá vera fram undan á vígvellinum? „Áætlunin gerir ráð fyrir að ég sé hérna eina vika í einu og svo heima í tvær þangað til meðferðinni er lokið og svo er bara að reyna að koma sér í gang í vinnunni aftur. Ég var kom- inn til baka í 60 prósent starf þegar ég greindist aftur með sömu gerð krabbameins, en núna er það í lung- um, sem betur fer ekki víðar en það og planið er bara að koma aftur af fullum krafti inn í lífið,“ segir Rúnar ákveðinn. Læknar Rúnars gera lítið af því að ræða um hvaða líkur skilji milli feigs og ófeigs í baráttu hans. „Þeir segja í rauninni bara að þeir væru ekkert að fara í þessa meðferð nema þeir teldu sig geta læknað þetta,“ segir Rúnar sem gleðst enn fremur yfir kostnaðarhlið verkefnisins. „Þetta er 2.500 kall sem þú borgar [37.000 íslenskar] og svo kemur frí- kort norska heilbrigðiskerfisins inn og þá er allt á kostnað ríkisins eftir það, allar flugferðir og allt annað,“ segir hann af sjúkrakostnaði. Faðir hans kvíðinn Faðir Rúnars er kominn til Nor- egs og passar Loka, hund sonar síns, í Sandnes á meðan heilbrigð- iskerfið vinnur ötullega að því að skila Rúnari aftur út í lífið. Hann viðurkennir að faðir hans beri kvíð- boga fyrir því sem nú stendur yfir, enda missti Rúnar móður sína úr krabbameini fyrir nokkru. Ekkert sé þó í stöðunni annað en að líta björtum augum fram á veginn og láta hverjum degi nægja sína þján- ingu. Botninn í viðtal við bjartsýnan Þingeying í lyfjameðferð á Hauke- land í Bergen er sleginn með hans eigin orðum á Facebook 14. júlí í fyrra, á 46 ára afmælisdaginn: „Kærar þakkir fyrir allar kveðj- urnar og skilaboðin í gær og í dag. Nú fannst mér sérstaklega gaman að eiga afmæli á Facebook. Ég hafði það bara rólegt heima og fékk svo að njóta notalegrar kvöldmáltíðar með góðum vinum. Ég get líka sagt góðar fréttir. Eins og þið kannski flest vitið greindist ég með krabbamein í beini í febrúar. Ég hef síðustu mánuði gengið í gegnum lyfjameðferð vegna þessa og fór svo í aðgerð í byrjun júní. Í þessari aðgerð var skipt um hægri hnélið og þurfti að fjarlægja stóran hluta af lærbeininu (19 cm). Ég fékk svo að vita það í síðustu viku að það tókst að fjarlægja allt meinið í þessari aðgerð. Það eru enn þá eftir nokkrar umferðir í lyfja- meðferðinni en ég fer í gegnum það með jákvæðni. Hjartans þakkir fyrir öll samtölin, kveðjurnar og like-in (hjörtun og knúsin) sem þið hafið sent til mín, það hefur hjálpað mér mikið í þess- ari baráttu. Mér þykir vænt um ykk- ur öll!“ „Maður er bara alveg búinn“ - Rúnar Hrafn glímir við beinkrabbamein í Noregi - Margra mánaða lyfjameðferðir - Ber norsku heilbrigðiskerfi vel söguna - „Þetta er bara hundsbit“ - Fékk að velja hvort hann missti fótinn Eftirköst „Þetta er dæmigert ástand eftir lyfjameðferð.“ Heima með Loka. Feðgar Rúnar klár fyrir leik með föður sínum, Sigmundi Óla Eiríkssyni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.