Morgunblaðið - 14.10.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Eyrarfjallsvegur er svolítið slæmur
núna. Menn veigruðu sér við að fara
af stað fyrir síðustu helgi til að hefla
hann út af rigningarspánni. Þeir eru
að fara af stað, vonandi í vikunni,
með heflun á öllum veginum. Einnig
á að bæta í malarslitlagið á verstu
köflunum til að ná tökum á þessu
fyrir veturinn,“ sagði Bjarni Stef-
ánsson, deildarstjóri umsjónardeild-
ar suðursvæðis Vegagerðarinnar.
Miklar holur og drullupollar hafa
gert þeim lífið leitt sem átt hafa leið
um Eyrarfjallsveg (460) í Kjós að
undanförnu. Um er að ræða sveita-
veg sem liggur frá Hvalfjarðarvegi
(47) og í kringum Eyrarfjallið. Hann
er með malarlagi og þjónar bændum
og búaliði á svæðinu og eins sumar-
bústaðafólki. Bjarni segir aðspurður
að Eyrarfjallsvegurinn sé ekki
þyngri í viðhaldi en aðrir malarvegir.
„Þessir malarvegir geta verið erf-
iðir ef tíðin er þannig, þegar mikil
rigning fer saman við umferð, þá
getur þetta verið erfitt,“ sagði
Bjarni. Hann segir að rigningartíðin
í haust hafi gert mönnum erfitt fyrir
því erfitt sé að hefla malarvegina á
meðan það rignir sem mest. „Menn
reyna að gera sitt besta núna til að
vinna þetta upp.“
Meðalfellsvegur í sömu sveit er
klæddur bundnu slitlagi. Ekki er á
dagskrá, alla vega ekki í bráð, að
setja slíka klæðningu á Eyrarfjalls-
veginn, að sögn Bjarna.
Kjós Rigningar og umferð eru fljót að setja mark sitt á malarvegi. Holur og drullupollar eru víða á Eyrarfjallsvegi.
Ætla að hefla og fylla í
verstu kaflana fljótlega
- Eyrarfjallsvegur í Kjós er orðinn holóttur og leiðinlegur
Holur Íbúar og sumarbústaðafólk
vilja losna við holurnar.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það hefur verið leitað eftir því hvort
það séu möguleikar á hjúkrunar-
heimilum hér og þar að taka við fleir-
um. Það eru mjög misjafnar að-
stæður til að gera það,“ sagði Björn
Bjarki Þor-
steinsson, fram-
kvæmdastjóri
Brákarhíðar í
Borgarnesi og
formaður Sam-
taka fyrirtækja í
velferðarþjón-
ustu (SFV).
„Okkar viðbrögð
hafa verið að
spyrja hvort það
sé raunverulegur
vilji til að stíga skref aftur á bak. Það
hefur náðst verulegur árangur á
hjúkrunarheimilunum í að bæta að-
búnað heimilismanna, þökk sé stefnu
stjórnvalda. Með því að fjölga tvíbýl-
um á ný væri verið að stíga skref til
baka, að okkar mati, og rýra búsetu-
gæði heimilismanna hjá okkur.“
Gísli Páll Pálsson, forstjóri
Grundarheimilanna og fyrrverandi
formaður SFV, sagði í aðsendri
grein í Morgunblaðinu á þriðjudag-
inn var að þeim hefði borist fyrir-
spurn frá stjórnvöldum um hvort
hægt væri að fjölga rúmum í ein-
staklingsherbergjum Grundar svo
þar dveldu tveir heimilismenn í stað
eins. Með því átti að létta á erfiðri
stöðu Landspítalans. Gísli Páll sagði
að með slíkri ráðstöfun væri hoppað
áratugi aftur í tímann.
Björn Bjarki sagði að í Brákarhlíð
væru nokkur biðrými fyrir fólk sem
ekki er komið með varanlega búsetu
á hjúkrunarheimili. Þar er fólk oft á
tíðum í tvíbýli. Markmiðið er að fólk
sem fær varanlega búsetu flytji
strax eða í það minnsta fljótlega í
einbýli. Í gær voru fjórir í biðrým-
unum og er hjúkrunarheimilið í
góðri samvinnu við Landspítalann,
að sögn Björns Bjarka.
Tækifæri til fjölgunar rýma
Sóltún öldrunarþjónusta bauðst
fyrir ári til þess að reka Oddsson-
hótelið við Grensásveg sem hjúkr-
unarþjónustu fyrir aldraða til að
létta á Landspítalanum. Sú aðstaða
gat nýst allt að 77 einstaklingum.
Um sama leyti kom fram að fyrir-
tækið Heilsuvernd kvaðst geta tekið
við 100 sjúklingum frá Landspítala.
Að því er Björn Bjarki vissi best
hafði hið opinbera ekki tekið þessum
tilboðum.
Samtök fyrirtækja í velferðar-
þjónustu sendu fjárlaganefnd Al-
þingis minnisblað 21. maí 2019 um
möguleg viðbótarrými á hjúkrunar-
heimilum. Þar kom fram að þá hefði
verið hægt að fjölga hjúkrunar-
rýmum á hjúkrunarheimilunum á
landinu öllu um að minnsta kosti 94-
96 rými væri vilji til þess. Að auki
var hægt að bæta við um 13 rýmum
með litlum tilkostnaði. Þá vildu
rekstraraðilar minnst sex hjúkr-
unarheimila byggja við eða breyta
húsnæði sínu þannig að um 95 ný
rými gætu orðið til. Ekki var brugð-
ist við neinni þessara ábendinga, að
sögn Björns Bjarka. Tækifærin eru
enn til staðar.
Nú er unnið að byggingu nýs 60
rýma hjúkrunarheimilis á Selfossi.
Áætlað er að verkinu ljúki sumarið
2022.
Möguleikar til
fjölgunar rýma
- Hjúkrunarheimilin hafa ekki áhuga
á að leysa vandann með tvíbýlum
Morgunblaðið/Eggert
Hjúkrunarheimili Íbúar Seljahlíðar
og starfsfólk í þríeykisgöngu.
Björn Bjarki
Þorsteinsson
ÆFÐU SVEIFLUNA Í VETUR!
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 GOLF@UU.IS
KOMDU MEÐ Í GOLFFERÐ TIL ALICANTE
10.000 KR.AFSLÁTTUR Á GOLFFERÐUMTIL ALICANTE Í NÓVEMBER OGDESEMBER EF BÓKAÐ ER FYRIR31. OKTÓBER
INNIFALIÐ
ÓTAKMARKAÐ GOLF
INNRITUÐ TASKA 20 KG.
8 KG. HANDFARANGUR
GOLFBÍLL INNIFALINN
FLUTNINGUR Á GOLFSETTI
VAL UM MORGUNVERÐ EÐA HÁLFT FÆÐI
ÍSLENSK FARARSTJÓRN
AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI
NÓVEMBER OG DESEMBER
GOLF TILBOÐ!
EL PLANTIO VERÐ FRÁ 189.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
VERÐ FRÁ 179.900 KR. Á MANN M.V. 4 FULLORÐNA
Val um morgunverð eða hálft fæði, morgunverður innifalinn í verði
ALICANTE GOLF VERÐ FRÁ 199.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
Val um morgunverð eða hálft fæði, morgunverður innifalinn í verði
Fjórar vikur eru liðnar frá fjölda-
bólusetningum barna á aldrinum
tólf til fimmtán ára við Covid-19-
veirunni. Þar með ætti meirihluti
aldurshópsins að vera kominn yfir
aðaláhættutímann af alvarlegum
aukaverkunum eftir seinni bólu-
setninguna.
Fram til dagsins í dag hafa fáar
alvarlegar aukaverkanir verið til-
kynntar eftir bólusetningar hjá
þessum aldurshópi. Öll fengu börn-
in bóluefni frá Pfizer. Eitt tilvik
hjartabólgu hjá barni í kjölfar bólu-
setningar hefur verið staðfest af
Barnaspítala Hringsins fram til ell-
efta október. Ekki hafa borist nein-
ar tilkynningar um gollurshúss-
bólgu hjá þessum aldurshópi.
Lyfjastofnun, sóttvarnalæknir og
læknar Barnaspítala fylgjast þó
áfram grannt með mögulegum
aukaverkunum í þessum aldurshópi.
Yfirlit yfir tilkynntar aukaverkanir í
aldurshópnum tólf til sautján ára er
birt reglulega á vef landlæknis.
Börn sem eru of ung til að fá
bólusetningu eru nú 40 prósent ein-
staklinga í einangrun en eru innan
við fimmtán prósent af íbúum
landsins. Þrjú börn hafa lagst inn á
Barnaspítala Hringsins vegna al-
varlegra veikinda eftir að hafa
sýkst af Covid-19. Tvö þeirra eru á
aldrinum tólf til fimmtán ára en
ekki liggja fyrir upplýsingar um
hvort þau hafi verið bólusett eða
ekki. Þriðja barnið er aftur á móti
yngra en fimm ára. Hlutfall full-
bólusettra barna er 61,53 prósent
og til viðbótar er bólusetning hafin
hjá átta prósentum barna. Þá er
hlutfall óbólusettra barna á aldr-
inum tólf til fimmtán ára 30,49 pró-
sent. Þetta kemur fram í tölulegum
upplýsingum sem reglulega eru
uppfærðar á covid.is.
Eitt tilvik hjarta-
bólgu hjá barni
- Fáar alvarlegar aukaverkanir
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bólusetning Fjórar vikur eru liðn-
ar frá seinni fjöldabólusetningunni.