Morgunblaðið - 14.10.2021, Side 58

Morgunblaðið - 14.10.2021, Side 58
58 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021 –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 19. október 2021 SÉRBLAÐ B A BLAÐ 70 ÁRA Árný Skúladóttir fæddist í Reykjavík en hefur búið alla sína tíð í Hafnarfirði. „Ég ólst upp í suðurbæ Hafn- arfjarðar, Hlíðarbraut 9.“ Að loknu stúdentsprófi frá Verzl- unarskóla Íslands vorið 1971 lá leið Árnýjar í Tækniskólann þar sem hún lagði stund á nám í meinatækni. Lauk Árný prófi þaðan vorið 1973. Eftir námið gekk hún til starfa hjá Borg- arspítalanum, nú LSH, og hefur hún starfað þar alla tíð síðan. „Að starfa þar hefur verið gefandi og skemmtilegt og ekki skemmir allt hið frábæra starfsfólk sem ég hef unnið með gegnum árin. Vorið 1973 fórum við vinkonur mínar í makaleit til Costa del Sol á Spáni og þar kynntist ég að sjálfsögðu manni drauma minna, Friðriki Guðlaugssyni.“ Árný og Friðrik gengu í hjónaband árið 1975 og eiga þrjú börn og fjögur barnabörn. Áhugamál Árnýjar eru fjölbreytt. „Mitt aðaláhugamál er að fara á skíði með fjölskyldunni innanlands sem og erlendis en við Friðrik höfum farið til Austur- ríkis nánast árlega frá árinu 1983. Að auki finnst mér öll ferðalög erlendis skemmtileg en öll sumur reynum við hjónin að fara til Costa del Sol. Uppáhalds- borgin mín er Kaupmannahöfn og þar ætla ég að fagna afmælinu með fjölskyld- unni um helgina. Rúsínan í pylsuendanum væri svo að hitta Margréti drottningu á Det Lille Apotek í góðra vina hópi.“ Árný Skúladóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Farðu varlega þegar ókunnugir eiga í hlut og láttu reyna á persónuna áður en þú hleypir henni að þér. Gefðu þér tíma til að hugsa málið ofan í kjölinn. 20. apríl - 20. maí + Naut Það er mikil hætta á töfum og sam- skiptatruflunum í dag og næstu daga. Þú mátt eiga von á því að hitta gamlan vin í dag. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú ert að undirbúa þig undir meiri- háttar áskorun. Ef þú stefnir á lang- tímamarkmið, er gott að skammta orkuna, og einbeita sér að því sem lætur verkið rúlla. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Draumar um mikilfengleika ein- kenna daginn. Stundaðu hugleiðslu og komdu ró á hug þinn. Þú færð óvænta heim- sókn í kvöld. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þótt þér takist ekki að breyta skoð- unum annarra er alveg öruggt að málflutn- ingur þinn fellur í góðan jarðveg. Láttu þver- móðskuna ekki ná tökum á þér. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Valdabarátta vegna eigna er yfirvof- andi. Gaumgæfðu peningamálin betur og mettu verðmæti á öllum stigum. 23. sept. - 22. okt. k Vog Varastu að festast í gömlum gildum sem eiga ekki lengur við og eru bara til traf- ala. Þú kannt að fá upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Það er undir sjálfum þér komið hvort samskipti þín eru góð eða slæm við annað fólk. Þú ættir að leggja við hlustirnar í dag. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Láttu ekki gylliboð ókunnugra villa þér sýn. Ekki aðeins veistu nákvæmlega hvað þú vilt heldur veistu líka hvernig þú átt að fá því framgengt. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Það fylgir því mikil ábyrgð að tala yfir fólki hvert svo sem umræðuefnið er. Umburðarlyndi er undirstaða sambands fólks í millum. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þér er óhætt að láta eitthvað eft- ir þér í tilefni farsælla verkloka. Yfir höfuð hefðirðu gott af meira stuði og minni ígrund- un. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú hefur orðið fyrir vonbrigðum og þarft því að gera þér grein fyrir hvaða vænt- ingar þú gerir til annarra. Gerðu það upp við þig hvað er mest áríðandi. Anna hefur alla tíð skrifað mikið á íslensku, ensku, dönsku og sænsku um sitt fag, rannsóknir, kennslubækur, kennsluleiðbein- ingar sem og áhugamál sín. „Ég fór að skrifa kennslubækur af því mér fannst vanta bækur sem töluðu til nemandans og þá var ekki um ann- að að ræða en skrifa þær sjálf. Fyr- irmynd mín var bók tengdaföður míns, Guðmundar Arnlaugssonar, Tölur og mengi. Ég skrifaði einnig greinaflokk í Mbl. um stærðfræði á stærðfræðiárinu 2000, að ógleymd- um fjölda minningargreina um eftir- minnilegt fólk.“ Anna hefur verið virkur félagi í og var um tíma varaformaður SKÝ, Skýrslutæknifélags Íslands. SKÝ átti aukaaðild að IFIP (Inter- national Federation of Information Processing) og var hún virk í tækni- nefndinni TC3.1, sem fjallar um tölvur og upplýsingatækni í skólum. Sem slík sótti hún heimsráðstefnur á þeirra vegum víða um heim. Einn- ig hefur hún verið virk í ICME (International Council for Mat- hematics Education) og sótt ráð- stefnur þeirra í Evrópu, Japan og Kanada. Þá sótti hún alþjóðlegar ráðstefnur á vegum International Group for the Psychology of Mat- hematics Education í Ísrael og Ástralíu. Mér fannst ég aldrei vera að ryðja neinar brautir fyrir konur með störfum mínum,“ segir Anna aðspurð. „Ég vildi bara gera það sem mér fannst gagnlegt og skemmtilegt. Svo fór að spyrjast út að ég gerði þetta vel. Nemendurnir kunnu vel að meta minn stíl í kennslu, en ég stóð ekki upp við töfluna og skrifaði forskrift fyrir þá heldur ræddi ég við nemendurna um efnið og fékk þá með í um- ræðuna.“ A nna Kristjánsdóttir fæddist 14. október 1941 í Gerði, Reykja- víkurvegi 27, sem áður var í Skildinganes- hreppi en tilheyrði þá Skerjafirði í Reykjavík. Æskuslóðirnar voru Skerjafjörðurinn og nágrenni. Á sumrin dvaldi hún oft í sumarbústað föðursystur sinnar og eiginmanns hennar við austanvert Þingvalla- vatn. Bústaðurinn var kallaður Naustið. „Þar lærði ég að veiða og róa og hafði mikla ánægju af.“ Anna gekk í Melaskóla til 12 ára aldurs, því næst í unglingadeild Miðbæjarskóla í tvö ár og tók lands- próf frá Gagnfræðaskólanum við Vonarstræti. Hún lauk stúdents- prófi frá stærðfræðideild Mennta- skólans í Reykjavík og þaðan lá leiðin í Háskóla Íslands þaðan sem hún útskrifaðist með BA-gráðu í stærðfræði og sagnfræði vorið 1967. Samhliða háskólanámi kenndi hún stærðfræði við Hagaskóla og Menntaskólann við Hamrahlíð auk þess að vera framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra skáta í hálfu starfi. Haustið 1969 bauðst henni styrkur Reykjavíkurborgar til framhaldsnáms við Kennaraháskóla Danmerkur í Kaupmannahöfn og þaðan lauk hún cand. pæd.-prófi í stærðfræði og uppeldisfræði vorið 1972. Eftir heimkomu hóf hún störf á Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur sem kennsluráðunautur ásamt því að kenna stærðfræði við MH. Hún var námsstjóri í stærðfræði og starfaði þá á Skólarannsóknardeild mennta- málaráðuneytisins. Hún var síðan ráðin lektor við Kennaraháskóla Ís- lands 1980, varð dósent 1986 og pró- fessor þar 1991 í stærðfræði- menntun, fyrst á Norðurlöndum. Anna var kölluð til starfa sem pró- fessor í stærðfræðimenntun við Högskolen i Agder, síðar Agder University, í Noregi árið 2002 og starfaði þar til starfsloka 2011. Hún hefur verið gestaprófessor í Eng- landi, Kanada og á Grænlandi. „Ég var í litlu hlutastarfi og hélt minni aðstöðu í KHÍ og síðan í HÍ á þess- um tíma. Félagsstörf Anna gekk kornung til liðs við skátahreyfinguna. Hún varð flokks- foringi 15 ára, sveitarforingi 16 ára, deildarforingi 17 ára og svo stjórnarmaður í Kvenskátafélagi Reykjavíkur 1960-1961. Anna var tjaldbúðastjóri kvenskáta á 50 ára afmælismóti íslenskra skáta á Þing- völlum 1962. Hún var gjaldkeri skátafélagsins Landnemar 1973- 1975 og gjaldkeri Skátasambands Reykjavíkur 1975-1976. Hún átti drýgstan þátt í stofnun sjálfseignar- stofnunarinnar Skátaheimili Land- nema 1984 og var formaður hennar fyrstu árin. Hún var aðstoðar- tjaldbúðastjóri fyrir starfsmanna- búðir á alheimsmóti skáta, Nord- jamb 1975. Hún var stofnfélagi Gilwell- hringsins og var leiðbeinandi á nokkrum Gilwell-námskeiðum, einn- ig fararstjóri skátahópa til Svíþjóð- ar og síðar Finnlands. Anna var stofnfélagi í og formaður íbúa- samtaka Vesturbæjar á árunum 1986-1988. Hún hefur verið virkur félagi í gönguklúbbnum Fet fyrir fet í rúmlega 30 ár. „Við höfum gengið um allt land og gist í tjöldum og skálum, en seinni árin á hótelum. Við höfum líka farið í gönguferðir erlendis svo sem í Austurríki, Nor- egi og á Borgundarhólmi.“ Anna var einnig aðalhvatamaður að og fyrsti formaður Flatar, sam- taka stærðfræðikennara. Um árabil stóð Anna fyrir Kapp Abel- keppninni á Íslandi, eða „Best“, Bekkirnir keppa í stærðfræði, en þetta er norræn stærðfræðikeppni milli áttundu bekkja. Hún var félagi í samtökum danskra stærðfræði- kennara, Danmarks Matematik- lærerforening. Anna var heiðruð 1966 af Norsk Spedergutt-forbunn með „Den Grønne Lilje“ með þakklæti fyrir stuðning við norskt skátastarf. Hún fékk viðurkenningu frá Hagsmuna- félagi um eflingu verk- og tækni- menntunar á háskólastigi á Íslandi árið 2001. Hún varð félagi í Agder Vitenskapsakademi árið 2002 og var gerð að heiðursfélaga Skýrslu- Anna Kristjánsdóttir, prófessor emeríta – 80 ára Í Skíðadal Gönguhópurinn Fet fyrir fet í ferð árið 2019, en hópurinn fer í stutta gönguferð einu sinni í mánuði og eina langa ferð á á ári. Stærðfræði er málið Hjónin Anna og Arnlaugur í Winterpark í Colorado árið 2017. Til hamingju með daginn Reykjavík Saga Von Sólversdóttir fæddist 4. júlí 2021 kl. 21.08. Hún vó 3.570 g og var 54 cm löng. Foreldrar hennar eru Sólver Hafsteinn Sól- versson Guðbjargarson og Guðrún Stella Ágústsdóttir. Nafngift fór fram í safnaðarheimili Laugarneskirkju 10. október 2021. Athafnarstjóri var Hilm- ar Hildar Magnússon og kristilega blessun veitti síra Davíð Þór Jónsson. Svavar Knútur Kristinsson sá um tónlistarflutning. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.