Morgunblaðið - 14.10.2021, Side 20
20 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2021
VIÐTAL
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
„Ég greindist fyrst í lok febrúar í
fyrra,“ segir Rúnar Hrafn Sig-
mundsson, Húsvíkingur, sem bú-
settur er í Sandnes í Rogaland-fylki
á vesturströnd Noregs og heyr nú
skarpa snerru við beinkrabbamein
(gr. osteosarcoma) í lyfjameðferð
númer tvö á Haukeland-sjúkrahús-
inu í Bergen, eða eins og hann lýsti
með kraftmiklum stíl Norðlendings-
ins á Facebook í september: „Ný
umferð með lyfjameðferð, náði víst
ekki að drepa þennan andskota síð-
ast.“
„Þetta byrjaði nú bara með verkj-
um í hnjám og einhverjum bólgum,“
segir Rúnar, sem hefur um árabil
starfað hjá Atea, leiðandi stór-
fyrirtæki á sviði hljóð- og mynd-
lausna í tengslum við fjarfundabún-
að fyrirtækja og annað á þeim
vettvangi, en fyrirtækið starfar í um
80 borgum og bæjum á öllum
Norðurlöndunum auk Eystrasalts-
landanna. Skiljanlega er hann þó í
veikindaleyfi núna.
Rúnar fékk lyf við verkjunum og
bólgunni, sem þó virtust ekki hafa
mikið að segja að yfirsýn bestu fræði-
manna svo segulómun, eða MRI, var
þá næsta mál á dagskrá þar sem hið
sanna kom í ljós. „Norska kerfið er
náttúrulega þannig að þegar svona
uppgötvast er helst ekkert verið að
bíða með hlutina þannig að ég var
mættur upp til Bergen bara vikuna á
eftir í sýnatökur og viðtöl,“ segir
Rúnar frá tíma þegar kórónuveiran
var að steypast yfir heimsbyggðina
af fullum þunga.
Verður bara að berjast
Vika til viðbótar hafi svo liðið þar
til allar niðurstöður lágu fyrir og
þremur vikum eftir að Rúnar
greindist með meinið var hann kom-
inn í fyrri lyfjameðferðina. Hljóta
það ekki að vera hin válegustu tíð-
indi fyrir mann, sem er rétt að
skríða á miðjan aldur, fæddan 1974
og þar með jafnaldra þess sem hér
skrifar, að taka á móti svo óboðnum
og illa þokkuðum gesti sem krabba-
meini?
„Þetta er bara hundsbit. Maður
verður bara að taka þessu eins og
það kemur og berjast við það, vera
bara jákvæður,“ svarar Rúnar
hressilega og gerir lýðum ljóst að
Suður-Þingeyjarsýsla uppfóstrar
ekki fólk sem leggur árar í bát í mót-
vindi. Hann flutti til Noregs árið
2008 og ætlaði sér upphaflega ekki
að stoppa lengi, en örlögin gripu þar
í taumana í formi gjörningaveðurs
bankahrunsins annálaða, næsta
stóráfalls á undan heimsfaraldr-
inum.
„Ég kom hingað út í eitt verkefni
og Ísland varð gjaldþrota á meðan
svo það var nú ekki beint að neinu
aftur að snúa. Það var algjör til-
viljun sem réð því að ég fór til Nor-
egs, ég hafði aldrei séð það fyrir mér
að flytja hingað. Ég vann við dyra-
vörslu í mörg ár og þá fannst mér
Norðmenn leiðinlegustu menn í
heimi með áfengi,“ segir Rúnar og
hlær innilega á meðan blaðamanni
verður hugsað til eigin dyravörslu-
tímabils í Stavanger árið 2012 þar
sem gestir gátu vissulega verið all-
misjafnir að skemmtanagildi.
Rúnar dregur þó fljótlega í land:
„Eftir að hafa kynnst þeim betur
finnst mér Norðmenn alveg fínasta
fólk og ekkert síðri en Íslendingar.“
Hann sér ekki fyrir sér að flytjast
búferlum í bráð, vissulega gæti hann
fengið vinnu í sömu starfsgrein á Ís-
landi og hann stundar nú, en garður
frændþjóðarinnar er blómlegur og
lífið ágætt í Noregi. Ekkert liggi því
á.
Vel passað upp á mann
Rúnar ber heilbrigðiskerfi Norð-
manna vel söguna og kveðst njóta
bestu fáanlegu umönnunar á Hauke-
land-sjúkrahúsinu í Hansakaup-
mannaborginni fornu Bergen. „Hér
er mjög vel passað upp á mann og
gekk mjög fljótt að setja í gang það
sem gera þurfti þegar þetta kom
upp. Einu hnökrarnir kannski, sem
ég get bent á, eru samskiptin milli
sjúkrahúsanna. Það er eins og hvert
og eitt sjúkrahús sé bara með sitt
eigið upplýsingakerfi. Ég var sem
sagt í meðhöndlun hér í Bergen [í
fyrra] og þurfti svo að leggjast inn á
sjúkrahús í Stavanger vegna sýk-
ingar sem ég fékk í kjölfarið. Þá
hafði sjúkrahúsið í Stavanger engan
aðgang að mínum sjúkragögnum,“
segir Rúnar frá. Málin hafi þó verið
leyst gegnum síma, en þannig eigi
það auðvitað ekki að ganga fyrir sig
á tíma stafrænnar upplýsinga-
hraðbrautar sem þekkir nánast eng-
in landamæri.
Hann hefur dvalið á sjúkrahús-
inu í Bergen með hléum í þessari
síðari lyfjameðferð, fyrst í tvær og
hálfa viku, svo fimm daga og nú
hefur hann verið á Haukeland í
rúma viku í meðferðinni. Þá var
fyrri lotan langt frá því að vera
heiglum hent, hún stóð frá febrúar
fram í október í fyrra og varði
lyfjagjöf þá í fjóra til fimm sólar-
hringa í senn. Hvernig er heilsan
eftir slíkar þrekraunir, sem hrakn-
ingar Ódysseifs í kviðum blinda
skáldjöfursins Hómers virðast
fölna við hliðina á?
„Ja, maður er bara alveg búinn,
ég var alveg handónýtur,“ viður-
kennir Húsvíkingurinn og segir
ónæmiskerfið hreinlega fara í al-
gjört rugl, eins og hann orðar það,
við lyfjagjöfina, sem er ekki eina
áskorunin í orrustunni því Rúnar
hefur þurft að fara í margar skurð-
aðgerðir, meðal annars skipti á
hnjálið og stórum hluta lærbeins.
„Fyrsta aðgerðin gekk nú bara
miklu betur en ég þorði að vona,“
segir Rúnar af því þegar hnjáliður
úr títani var græddur í hann. „Ég
þakka bara fyrir að hafa ekki misst
fótinn, það var tvennt í stöðunni, að
taka hann alveg eða skipta um
þessa hluta,“ segir Rúnar, sem var
settur í þá lítt öfundsverðu stöðu að
ákveða þetta sjálfur. „Ég hefði get-
að valið að láta bara taka hann al-
veg, en ég verð að segja þér að ég
var ekki alveg tilbúinn í það,“ játar
Rúnar og lái honum hver sem vill.
„Þetta er alveg stórkostlegt fólk,
sem vinnur hérna,“ segir Rúnar,
þýfgaður svara um hvernig sam-
skipti hans við lækna og hjúkr-
unarfólk gangi fyrir sig, „sam-
skiptin við þetta fólk eru frábær,
umhyggjan og hlýhugurinn, sem
maður upplifir hér er alveg ein-
stakt. Þetta er auðvitað bara rút-
ína, þú ert vakinn klukkan átta til
að fara í lyf og svo ræður maður
eiginlega deginum eftir það, læknir
kemur einu sinni á dag og fer yfir
stöðuna svo þú ert alltaf upplýstur
um gang mála,“ segir hann og telur
einnig aðdáunarvert hvernig staðið
hafi verið að málum í öllum þeim
áskorunum sem átján mánuðir af
kórónufaraldri buðu upp á í heil-
brigðiskerfinu.
Ekki rætt um líkur
„Það hafði nánast engin áhrif á
framkomu fólks hér, sem er ótrú-
legt. Mér hefur aldrei liðið illa
hérna,“ segir Rúnar sannfærandi.
– Hvað skyldi þá vera fram undan
á vígvellinum?
„Áætlunin gerir ráð fyrir að ég sé
hérna eina vika í einu og svo heima í
tvær þangað til meðferðinni er lokið
og svo er bara að reyna að koma sér
í gang í vinnunni aftur. Ég var kom-
inn til baka í 60 prósent starf þegar
ég greindist aftur með sömu gerð
krabbameins, en núna er það í lung-
um, sem betur fer ekki víðar en það
og planið er bara að koma aftur af
fullum krafti inn í lífið,“ segir Rúnar
ákveðinn.
Læknar Rúnars gera lítið af því
að ræða um hvaða líkur skilji milli
feigs og ófeigs í baráttu hans. „Þeir
segja í rauninni bara að þeir væru
ekkert að fara í þessa meðferð nema
þeir teldu sig geta læknað þetta,“
segir Rúnar sem gleðst enn fremur
yfir kostnaðarhlið verkefnisins.
„Þetta er 2.500 kall sem þú borgar
[37.000 íslenskar] og svo kemur frí-
kort norska heilbrigðiskerfisins inn
og þá er allt á kostnað ríkisins eftir
það, allar flugferðir og allt annað,“
segir hann af sjúkrakostnaði.
Faðir hans kvíðinn
Faðir Rúnars er kominn til Nor-
egs og passar Loka, hund sonar
síns, í Sandnes á meðan heilbrigð-
iskerfið vinnur ötullega að því að
skila Rúnari aftur út í lífið. Hann
viðurkennir að faðir hans beri kvíð-
boga fyrir því sem nú stendur yfir,
enda missti Rúnar móður sína úr
krabbameini fyrir nokkru. Ekkert
sé þó í stöðunni annað en að líta
björtum augum fram á veginn og
láta hverjum degi nægja sína þján-
ingu.
Botninn í viðtal við bjartsýnan
Þingeying í lyfjameðferð á Hauke-
land í Bergen er sleginn með hans
eigin orðum á Facebook 14. júlí í
fyrra, á 46 ára afmælisdaginn:
„Kærar þakkir fyrir allar kveðj-
urnar og skilaboðin í gær og í dag.
Nú fannst mér sérstaklega gaman
að eiga afmæli á Facebook. Ég hafði
það bara rólegt heima og fékk svo að
njóta notalegrar kvöldmáltíðar með
góðum vinum.
Ég get líka sagt góðar fréttir.
Eins og þið kannski flest vitið
greindist ég með krabbamein í beini
í febrúar. Ég hef síðustu mánuði
gengið í gegnum lyfjameðferð vegna
þessa og fór svo í aðgerð í byrjun
júní. Í þessari aðgerð var skipt um
hægri hnélið og þurfti að fjarlægja
stóran hluta af lærbeininu (19 cm).
Ég fékk svo að vita það í síðustu
viku að það tókst að fjarlægja allt
meinið í þessari aðgerð. Það eru enn
þá eftir nokkrar umferðir í lyfja-
meðferðinni en ég fer í gegnum það
með jákvæðni.
Hjartans þakkir fyrir öll samtölin,
kveðjurnar og like-in (hjörtun og
knúsin) sem þið hafið sent til mín,
það hefur hjálpað mér mikið í þess-
ari baráttu. Mér þykir vænt um ykk-
ur öll!“
„Maður er bara alveg búinn“
- Rúnar Hrafn glímir við beinkrabbamein í Noregi - Margra mánaða lyfjameðferðir - Ber norsku
heilbrigðiskerfi vel söguna - „Þetta er bara hundsbit“ - Fékk að velja hvort hann missti fótinn
Eftirköst „Þetta er dæmigert ástand eftir lyfjameðferð.“ Heima með Loka. Feðgar Rúnar klár fyrir leik með föður sínum, Sigmundi Óla Eiríkssyni.