Morgunblaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 6
Bækur Birgittu með flugi frá Kína Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Bókaunnendur þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að grípa í tómt þeg- ar kemur að því að kaupa vinsæl- ustu titlana í jólabókaflóðinu. Þetta segir Egill Örn Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Forlagsins, í kjölfar frétta af því að jólavörur kunni að berast seint til landsins í ár og jafn- vel ekki fyrr en á nýju ári. „Þegar tók að skýrast hversu erf- itt yrði um vik hvað varðaði flutn- inga til landsins kom ekki annað til greina í mínum huga en að sjá til þess að bókin yrði á borðum lands- manna. Þar sem samgöngur milli landa virðast ótryggar brugðum við á það ráð að flytja hluta af jólabók- um Forlagsins til landsins með flugi. Þannig streyma nú nýprent- aðar bækur til landsins,“ segir Eg- ill. Undir venjulegum kring- umstæðum eru bækur fluttar til landsins með skipum hvaðanæva úr heiminum. Sá háttur er áfram hafð- ur á um bækur sem fluttar eru hingað frá öðrum löndum í Evrópu en erfiðara er um vik þegar um lengri leið þarf að fara. „Einna erf- iðast hefur verið að tryggja eðlileg- ar samgöngur milli Kína og Íslands. Þannig flytjum við nú þúsundir ein- taka nýrrar söngbókar Birgittu Haukdal með hraðsendingum í flugi,“ segir framkvæmdastjórinn. Bækur Birgittu hafa notið fá- heyrðra vinsælda síðustu ár og út- gáfa á söngbókinni helst í hendur við jólasýningu Þjóðleikhússins um þau Láru og Ljónsa sem frumsýnd verður 13. nóvember. Segir Egill að það varði næstum við þjóðarhag að tryggja að bókin berist hingað til lands í tæka tíð enda muni þúsundir barna sjá sýninguna og eflaust vilja margir fá að spreyta sig á lögunum þegar heim er komið. „Einhverra hluta vegna koma samt bara 400 eintök með hverri vél svo það má segja að það sé búið að setja upp loftbrú til að koma þeim Láru og Ljónsa til landsins,“ segir Egill. Birgitta Haukdal er ekki eini höf- undurinn sem fær slíka meðferð hjá Forlaginu. „Við höfum sömuleiðis þurft að tryggja flutninga á nýrri skáldsögu Hallgríms Helgasonar með flugi og er ráðgert að hún komi út í lok næstu viku,“ segir Egill en sú bók er framhald á hinni vinsælu Sextíu kíló af sólskini og kallast Sextíu kíló af kjaftshöggum. Tafir á flutningum til landsins munu því ekki stöðva jólabókaflóðið en gætu þó enn sett strik í reikning- inn. „Því miður er útlit fyrir að það gæti reynst snúið að endurprenta vinsælustu bækurnar að þessu sinni en við erum þó að leita allra leiða til að það verði mögulegt.“ Loftbrú til að koma bók Láru og Ljónsa til landsins - Enginn skortur í jólabókaflóðinu - Erfitt að endurprenta Jólaverslunin » Framkvæmdastjóri Bónuss upplýsti í gær að staða á frakt- flutningum frá Asíu gæti hindr- að að jólavörur bærust hingað í tæka tíð í ár. » Framkvæmdastjóri Forlags- ins, stærsta bókaútgefanda landsins, hefur ekki áhyggjur af bókaskorti fyrir jólin. 6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021 Fimmtudaginn 21. október 2021, kl. 14:00, Björtuloft, Hörpu Til þess að kynna það sem efst er á baugi hjá Faxaflóahöfnum sf. og fræðast um starfsemina á hafnarsvæðum fyrirtækisins boða Faxaflóahafnir sf. til málþings fimmtudaginn 21. október kl. 14:00, Björtuloft (6. og 7. hæð) Hörpu. Dagskrá málþingsins á að snerta málefni sem flestra á hafnarsvæðum Faxaflóahafna sf. og verður sem hér segir: • 14:00 Ávarp formanns Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, varaformaður Faxaflóahafna • 14.10 Horft til framtíðar Magnús Þór Ásmundsson, hafnarstjóri Faxaflóahafna • 14:35 Fjórða iðnbyltingin – Möguleg áhrif á hafnir og sjávarútveg Yngvi Björnsson, prófessor og sérfræðingur í gervigreind við Háskólann í Reykjavík • 15:00 Íslenski sjávarklasinn – Starfsemin, samstarf á alþjóðlegum vettvangi, sjávarakademían Nanna Ósk Jónsdóttir, rekstrarstjóri Húss sjávarklasans • 15:25 Stafrænt vistkerfi – Tækninýjung fyrir sjávarútveginn Þorsteinn Svanur Jónsson, framkvæmdarstjóri vöruþróunnar hjá Klöppum • 15:50 Umræður og fyrirspurnir • 16:00 Fundarslit Fundarstjóri: Erna Kristjánsdóttir, markaðs- og gæðastjóri Faxaflóahafna Fundurinn er opinn öllum, en þeir sem eru með starfsemi á hafnarsvæðum Faxaflóahafna sf. eru sérstaklega hvattir til að mæta. Á fundinum gefst tækifæri til þess að koma með fyrirspurnir og ábendingar um það sem varðar hafnarrekstur, þjónustu og aðstöðu fyrir viðskiptavini. Magnús Þór Ásmundsson, hafnarstjóri. Málþing með notendum Faxaflóahafna Aðildarfyrirtæki Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja, og norska fyrirtækið KraftCert hafa gert með sér samstarfssamning um varnir og viðbúnað fyrir netöryggi. Með þessum samningi er Ísland orðið aðili að víð- tæku samstarfi Norðurlandanna í netöryggismálum, sem það var ekki áður. ,,Við Íslending- ar höfum undan- farið verið á réttri leið í netöryggis- málum, það er bú- ið að styrkja netvarnir landsins mark- visst eftir að ný lög um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða tóku gildi, en við búum ekki yfir sömu reynslu og sama samskiptaneti og þró- aðri ríki búa yfir,“ segir Halldór Hall- dórsson, öryggisstjóri Landsnets. Markmið samstarfsins er að auka áfallaþol byggt á áhættumati og áhættugreiningum sem varða net- og upplýsingaöryggi fyrirtækjanna en samningurinn felur einnig í sér varnir og viðbúnað gegn netglæpum og upp- lýsingaöryggi, auk þjálfunar, æfinga og rekstrarráðgjöf þegar kemur að netöryggi orku- og veitufyrirtækja á Íslandi. „Við hjá Landsneti ásamt Orku- stofnun erum aðilar að samtökum sem heita NordBER, þeim samtökum svip- ar til almannavarna nema þetta eru al- mannavarnir fyrir raforkukerfin á Norðurlöndunum. Í gegnum sameig- inlegar neyðaræfingar Norður- landanna sem haldnar eru reglulega kynnumst við Íslendingar margs kon- ar vá sem steðjað getur að og ógnað orkukerfum landanna. Upp úr einni slíkri æfingu hefur þróast samstarf við KraftCert og það endaði með því að við gerðum þennan samning,“ segir Halldór en meðal annars var farið í æf- ingar sem sneru að netárás á Norð- urlöndin. „Varnir gegn netógn og netöryggi er eitthvað sem allir eru að efla í dag og bera mikla virðingu fyrir, bæði rík- isstjórnir, þjóðir og innviðir, allir þess- ir aðilar vita að byggja þarf upp varnir gagnvart þessari áhættu,“ segir Hall- dór. AFP Netöryggi Veitu- og orkufyrirtæki á Íslandi hafa aukið netöryggið. Veitu- og orkufyrir- tæki bæta netöryggi Halldór Halldórsson - Íslendingar nú aðilar að varnarsamstarfi Freyr Bjarnason freyr@mbl.is Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn- ir segir líklegt að kórónuveirusmit- um eigi eftir að fjölga á næstunni en í fyrradag greindust 66 smit innanlands. Átta sjúklingar liggja á Land- spítalanum vegna Covid-19, allir fullorðnir. Meðalaldur þeirra er 56 ár. Enginn er á gjörgæslu. Tæplega 600 sjúklingar, þar af 193 börn, eru með virkt smit. „Ég held að við megum alveg eins búast við því að fara að sjá fleiri greinast á næstunni,“ segir Þórólfur í samtali við Morgunblað- ið. Um 2% leggjast inn á spítala Hann nefnir að í gegnum þessa bylgju hafi komið í ljós að um 2% af þeim sem greinast með smit þurfi að leggjast inn. Spurður hvað þurfi til þess að hertar takmarkanir verði aftur settar á bendir hann á stöðuna á spítalanum. Eftir að settar voru á takmarkanir í sumar í kjölfar þess að öllu hafði áður verið aflétt segir hann að slæm staða á spítalanum hafi ráðið þar úrslitum. „Þá er alltaf spurningin, hvað eiga menn að vera fljótir að grípa til þeirra aðgerða? Við vitum að því lengur sem beðið er því slakari áhrif hafa þessar takmarkanir. Þær eru betri því fyrr sem maður grípur til þeirra en það þarf að vera jafnvægi,“ segir Þórólfur og heldur áfram: „Það er lítill hljómgrunnur fyrir harðari aðgerðum eins og staðan er og það er ósköp skiljanlegt, enda er það ekki til skoðunar eins og staðan er núna, en auðvitað þarf líka að hugsa fram í tímann og vera viðbúinn ef eitthvað óvænt gerist.“ Morgunblaðið/Eggert Sýnatöku beðið Sóttvarnalæknir býst við auknum fjölda smita á næstunni. Býst við að smitum fari brátt fjölgandi - Staða spítalans gæti haft áhrif á aðgerðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.