Morgunblaðið - 21.10.2021, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021
Hlýtt og
notalegt
Þinn dagur, þín áskorun
100% Merino
ullarnærföt
fyrir dömur og herra
Stærðir: S–XXL
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.runehf.is
OLYMPIA
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Verslunin Bjarg, Akranesi
Herrahúsið, Ármúla 27 • JMJ, Akureyri • Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki • Verslun Grétars Þórarinssonar, Vestmannaeyjum • Borgarsport, Borgarnesi
Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði
Bókaverslun Breiðarfjarðar, Stykkishólmi • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • run.is
LAGARLÍF 2021
Ráðstefna um eldi og ræktun
Grand Hótel Reykjavík, 28. - 29. október
Skráning fer fram áwww.lagarlif.is
10:00
13:00
13:00
15:00
15:00
16:30
Gullteigur - Þróun byggða í tengslum við strandbúnað
Gullteigur - Menntun Starfsfólks í fiskeldi
Setur - Helstu hindranir á vegi þörungaræktunar
Gullteigur Staðleysur og áhrif þeirra á umræður um laxeldi
Setur - Skeldýrarækt
Móttaka við barinn
9:00
9:00
11:00
11:00
13:20
13:20
15:00
Gullteigur - Öryggismál starfsfólks í fiskeldi
Hvammur - Landeldi á Íslandi
Gullteigur - Framboð af vöru og þjónustu (sjóeldi)
Hvammur - Framboð af vöru og þjónustu (landeldi)
Gullteigur - Leyfisveitingar til sjókvíaeldis
Hvammur - Reynslusögur úr fiskeldi
Ráðstefnuslit
Fimmtudagurinn 28. október
Föstudagurinn 29. október
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Ferðaheimurinn er að lifna við
eftir kórónuveirufaraldurinn og
tilheyrandi takmarkanir sem hon-
um fylgdu. Það hefur verið líflegt
á Akureyrarflugvelli undanfarið,
en fyrsta beina flugið frá
Akureyrarflugvelli var nú í byrj-
un vikunnar þegar 180 manns
héldu til Tenerife. Síðast var flog-
ið beint frá Akureyri til útlanda í
byrjun mars á síðasta ári, fyrir um
einu og hálfu ári. Þá er góður
gangur í innanlandsflugi og
greinilegt að ferðagleðin ræður
ríkjum hjá landsmönnum um þess-
ar mundir.
„Það er að birta yfir þessu hjá
okkur,“ segir Hólmgeir Þorsteins-
son, verkefnastjóri þjónustu hjá
Isavia á Akureyrarflugvelli.
„Þetta er kærkomið og við bind-
um vonir við að nú fari þetta að
rúlla aftur.“ Hólmgeir segir að nú
á næstu vikum séu á áætlun fjórar
flugferðir frá Akureyrarflugvelli,
þrjár til Tenerife, 30. og 31. októ-
ber og 10. nóvember. Þá er beint
flug til Edinborgar 19. nóvember.
Þá segir hann að til viðbótar séu
ráðgerðar tvær beinar flugferðir
til Tenerife í janúar.
Um 900 manns á föstudögum
Íslendingar eru líka mikið á far-
aldfæti, en Ari Fossdal, stöðvar-
stjóri Icelandair á Akureyrar-
flugvelli, segir að nú í haust hafi
landsmenn mikið verið á ferðinni
milli Akureyrar og Reykjavíkur.
Hann nefnir að á föstudögum séu
sex ferðir fram og til baka og iðu-
lega sé svo gott sem fullbókað í
allar vélar. Þær taki 76 farþega,
þannig að nærri lætur að um 900
manns fari um Akureyrarflugvöll
í byrjun helgarinnar.
„Það er góður gangur í þessu
hjá okkur, árið hefur almennt ver-
ið ágætt, en við sáum greinilegan
kipp upp á við þegar leið á haust-
ið. Nú í september og október hef-
ur verið mikið að gera og helg-
arferðir eru mjög vinsælar, það
eru að koma hópar af öllu tagi til
að gera sér dagamun,“ segir Ari.
„Þetta er heilmikil lyftistöng fyrir
ferðaþjónustuna í bænum.“
Beint flug úr norðan-
nepjunni í sólina
- Líflegt á Akureyrarflugvelli - Ásókn í ferðir norður
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Akureyrarflugvöllur Flogið var beint til Tenerife á Spáni með um 180 manns í vikunni.
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Hollenska ferðaskrifstofan Voigt
Travel mun hefja vetrarflug frá
Amsterdam til Akureyrar eftir ára-
mót, fyrsta flugið er 11. febrúar
2022. Með því tekur ferðaskrifstofan
á ný upp þráðinn frá því áður en kór-
ónuveirufaraldur skall á heims-
byggðinni. Nokkrar ferðir voru á
hennar vegum á þessum legg í febr-
úar og mars árið 2020.
Hjalti Þórarinsson, verkefnastjóri
Flugklasans Air 66N, segir að alls
muni ferðaskrifstofan bjóða upp á
flug frá Amsterdam til Akureyrar
yfir fimm vikna tímabil, flogið verður
tvisvar í viku, alls 10 ferðir. Voigt
Travel hóf flug milli Amsterdam og
Akureyrar sumarið 2019. „Ferða-
skrifstofan hefur þegar fjárfest í
markaðsstarfi vegna þessa flugs og
vill halda því áfram en auk þess að
vera með vetrarflugið eftir áramótin
verður beint flug milli þessara staða
einnig í boði næsta sumar,“ segir
Hjalti.
Vinna markvisst að því að efla
flug til og frá Akureyri
„Salan hjá okkur hefur farið vel af
stað,“ segir Kristinn Þór Björnsson,
markaðsstjóri Ferðaskrifstofu
Akureyrar, en fimm helgarpakkar
eru nú komnir í sölu auk þess sem í
boði eru stök flugsæti. Nú þegar er
ein helgi uppseld. Ferðaskrifstofa
Akureyrar hefur keypt yfir 600 sæti
af hollensku ferðaskrifstofunni Voigt
Travel til að styðja við verkefnið,
sem Kristinn segir afar mikilvægt.
„Við vinnum markvisst að því að
efla flug til og frá Akureyri og lítum
á það sem stórt samfélagslegt verk-
efni. Það er hagur allra að efla milli-
landaflug í gegnum Akureyrarflug-
völl og jákvæðar fréttir að fram-
kvæmdir við flugvöllinn séu á næsta
leiti.“
Kristinn segir þær pakkaferðir
sem í boði eru nú henta vel fyrir hópa
og fyrirtæki, jafnt stóra sem smáa.
„Við vorum með svipað verkefni
veturinn 2020, kortéri fyrir Covid.
Það gekk gríðarlega vel og var eftir-
spurnin meiri en framboð af sætum,“
segir hann. Hann nefnir að ferða-
tilhögun fólks á svæðinu hafi þrosk-
ast og breyst með auknu millilanda-
flugi. „Amsterdam er t.d. risastór
tengiflugvöllur við allan heim og
möguleikarnir endalausir þegar fólk
er þangað komið. Í stað þess að aka
til Reykjavíkur með tilheyrandi ves-
eni og kostnaði er þetta ákjósanleg
leið sem sífellt fleiri eru farnir að
nýta sér.“
Flogið frá Akureyri til Amsterdam
- Alls 10 ferðir eftir áramót - Sala fer vel af stað - Allra hagur að efla millilandaflug um Akureyri
Kristinn Þór
Björnsson
Hjalti
Þórarinsson