Morgunblaðið - 21.10.2021, Side 12
Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.isAPOTEK KITCHEN+BAR
Þú mátt bara ekki missa af þessu!
Borðapantanir á
apotek.is og í síma 551 0011
SMAKKSEÐILL
Smakkaðu alla sex réttina
10.990 kr. á mann
Við bjóðum velkomin ítalska
gestakokkinn og matreiðslusnillinginn
Matteo Cameli frá veitingahúsinu
Al Vecchio Convento
MATSEÐILL
Túnfisk tartare
Ólífur, engiferdressing
og piparrótar-panna cotta 2.990 kr.
Lamb
Grafið lamb, laukfroða, lakkrís og möndlur 2.990 kr.
Tagliolini og þorskur
Salvíusmjör, parmesan ostur 3.490 kr.
Kolkrabbi “alla mugnaia”
Sellerírót og “spicy”kartöflukrem 3.490 kr.
Dádýra file
Hafþyrnir, brokkólíni og rossini-sósa 5.990 kr.
Tiramisu að hætti “Vecchio Convento” 2.490 kr.
Bættu ítölskum trufflum á réttinn þinn
Svartar trufflur 900 kr. Hvítar trufflur 1.900 kr.
ÍTALSKT
POP UP
MIÐVIKUDAG TIL SUNNUDAGS
Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þ
etta kom þannig til að þegar ég var í fæðingar-
orlofi með yngra barnið mitt þá var ég í miklu
veseni með svefninn hjá syni mínum. Hann
vaknaði mjög oft á nóttunni og mig sárvantaði
upplýsingar um hvernig ég gæti hjálpað honum að sofa
betur,“ segir Hafdís Guðnadóttir ljósmóðir, en hún lauk
nýlega námi í svefnráðgjöf ungra barna og hefur stofn-
að fyrirtæki í kringum þjónustuna sem heitir Sofa
Borða Elska.
„Ég vissi vel að börn á aldri sonar míns, sem þá
var nokkurra mánaða gamall, ættu að geta sofið lengur
en tvo tíma í einu, svo ég fór að sanka að mér upplýs-
ingum um ráð og lausnir. Þegar ég fór að ræða þetta
við vini og vinkonur í kringum mig sem voru líka með
ungabörn, þá reyndust flestir vera með einhver vanda-
mál í tengslum við svefn barnanna. Þar sem ég veit að
það er margra mánaða biðlisti á Landspítalanum að
komast þar að með börn í svefnráðgjöf, þá ákvað ég að
gera eitthvað í þessu sjálf. Ég sótti mér faggildingu í
svefnráðgjöf hjá erlendu fyrirtæki á netinu og ég út-
skrifaðist núna í september. Ég er byrjuð að veita upp-
lýsingar og fróðleik um svefn barna á Instagram-
síðunni Sofa Borða Elska, sem ég opnaði í liðinni viku.
Þar hef ég líka verið með umræðu í storie og þar fæ ég
stundum spurningar sem ég svara. Ég er að vinna í að
búa til netnámskeið og þegar þau koma út þá verður
hægt að kaupa þau á heimasíðunni minni. Ég er núna
fyrst og fremst að kynna þetta fyrir fólki svo það sjái
mína hugmyndafræði og nálgun. Ég er þakklát fyrir
viðtökurnar sem eru framar öllum vonum, það er mikill
áhugi og greinilega mikil þörf.“
Góðar upplýsingar skipta máli fyrir foreldra
Hafdís segir að foreldrar ungbarna upplifi oft að
þeir hafi gert eitthvað rangt sem foreldrar, að svefn-
vandi barnanna sé að einhverju leyti þeim að kenna.
„Þannig er það auðvitað ekki, foreldrar reyna allt-
af að gera sitt besta og það sem er best fyrir barnið
þeirra. Það er í raun ekki hægt að gera neitt rangt, en
ég get veitt leiðbeiningar um hvað hægt er að gera til
að hjálpa barninu að sofa betur,“ segir Hafdís sem eðli
málsins samkvæmt, sem starfandi ljósmóðir, hefur
mikinn áhuga á ungabörnum, barneignaferlinu og öllu
sem því viðkemur.
,,Mín reynsla sem ljósmóðir að sinna foreldrum í
gegnum barneignaferli, er að það sem foreldrar þurfa
einna mest á að halda eru upplýsingar. Foreldra í með-
gönguvernd þyrstir í að vita hvað þeir geti gert til að
allt gangi sem best með barnið. Þetta á líka við um
fæðinguna, það hefur sýnt sig að góð upplýsingagjöf
skilar sér í auknum líkum á jákvæðari fæðingar-
reynslu, sem heldur svo áfram á ungbarnaskeiðinu. Að
hafa góðar upplýsingar er valdeflandi fyrir foreldra.
Markmið mitt með fyrirtækinu mínu, Sofa Borða
Elska, er að valdefla foreldra með því að gefa þeim
þær upplýsingar sem þeir þurfa til að geta viðhaft
heilbrigðar svefnvenjur og hjálpað barni sínu að sofa
betur.“
Svefnleysi hefur mikil áhrif á líðan allra
Svefnvandi ungabarns bitnar eðli málsins sam-
kvæmt á öllum í fjölskyldunni, barni, móður, föður og
systkinum, ef einhver eru, því allir verða jú þreyttir
þegar svefn verður kannski margrofinn við grátandi
barn á nóttunni. Það skiptir því miklu máli fyrir alla að
barnið sofi sem best.
,,Það er margrannsakað að svefnleysi hefur mikil
áhrif á andlega líðan og líkamlega. Það er alltaf að
koma betur í ljós að svefn er grunnur alls heilbrigðis.
Ef fólk sefur ekki þá funkerar það ekki.“
Hafdís segir að það þurfi að skoða hvert og eitt
tilfelli til að komast að því hvað valdi svefnóreglu hjá
ungabarni, því það getur verið svo margt sem veldur
því að barn sefur illa.
„Sérstaklega á fyrstu mánuðunum, en frá þriggja
til fjögurra mánaða aldri er dægursveiflan orðin nógu
þroskuð til að hægt sé að búa til svefnrútínu. Ofþreyta
barns er oft ástæðan, þau ná ekki að hvílast og fram-
leiða þá stresshormón sem valda því að þau eiga erfitt
með að sofna og sofa lausar. Þetta verður vítahringur
sem gott er að vinda ofan af með því til dæmis að hafa
viðeigandi langa vökuglugga milli lúra og láta þau ekki
vaka of lengi fyrir nóttina. Stundum getur ástæða
þess, að börn eru óhuggandi á kvöldin, verið ofþreyta,“
segir Hafdís og bætir við að ýmis ráð séu til að róa
ungbarn, sum þeirra eru gömul og góð, eins og til
dæmis að vefja barn reifum.
,,Ýmsum ráðum er hægt að beita til að ýta undir
góðan svefn á fyrstu mánuðum í lífi barns. Með því að
vefja barn reifum þá endursköpum við umhverfið sem
þau voru í þegar þau voru í móðurkviði. Reifun gefur
þeim þannig öryggi og vellíðan, þeim finnst notalegt að
vera reifuð.“
Markmiðið er að vald-
efla foreldra ungbarna
„Svefn og matur er svo nátengt, og það
sem ungabörn gera er að sofa og borða,
og svo þurfa þau ást,“ segir Hafdís
Guðnadóttir ljósmóðir um ástæðu þess
að hún gaf nýja fyrirtækinu sínu um
svefnráðgjöf nafnið Sofa Borða Elska.
Glöð Hafdís með börnunum
sínum tveimur, Bríeti Sól og
Jóni Sölva Guðmundarbörnum.