Morgunblaðið - 21.10.2021, Side 22

Morgunblaðið - 21.10.2021, Side 22
Hann svaraði þannig spurningum sem ég hefði aldrei þorað að spyrja.“ Loks kvöddust þau með virktum og tókust í hendur. „Ég hafði á tilfinn- ingu að þetta handtak hefði skilið eitthvað eftir hjá mér,“ segir sendi- herrann og brosir. Fyrsta starf Sophie erlendis var í Þýskalandi, þar sem hún starfaði sem sérfræðingur hjá sendiráði Frakka í Bonn, fyrrverandi höf- uðborg Þýskalands, einmitt í þann mund sem verið var að gera Berlín að höfuðborg landsins. Hún og fyrrver- andi maður hennar komu til Þýska- lands barnslaus en yfirgáfu landið tveimur börnum ríkari. Nokkrum ár- um síðar, eftir frekari störf hjá frönsku utanríkisþjónustunni, fór fjölskyldan til Portúgal þar sem Sop- hie starfaði áður en hún varð konsúll í Frankfurt. Sophie segist hafa verið farin að dreyma um að flytja til Ís- lands og verða þar fulltrúi Frakk- lands. Tíminn leið og tækifærin komu og fóru, en loks kom að því að yfirmaður hennar, sem leggur fram tillögur um skipan sendiherra, spurði Sophie hvort hún hefði enn áhuga á Íslandi. Íslenska og franska á sama báti „Já, sagði ég strax. Ég mun yrkja ljóð!“ Sophie segist ekki vita af hverju þessi orð komu til hennar og hlær við minninguna um þessa stund. Nokkrum mánuðum áður en hún vissi að hún væri á leið til Íslands hóf Sophie að læra íslensku. Hún segist enda nokkuð hjátrúarfull og hélt kannski að íslenskunámið myndi setja e.k. lóð á vogarskálar örlaganna og bera hana beinustu leið á Frón. Svo varð, Sophie er komin og hún segist þegar vera orðin heimakær. Það sem heillaði Sophie mest við Ísland var íslenska tungan, náttúran og íslenskur menningararfur. Eins og áður sagði er hún mikill menning- arfrömuður og er mikill bókaunn- andi. Hún segist hafa lesið bók Auðar Övu Ólafsdóttur, Afleggjarinn, af miklum áhuga. „Bókin talaði til mín vegna þess að hún fjallar um bækur. Hún segir sögu manns sem fer í afskekkt klaustur, þar sem hann þekkir eng- an, til þess að stunda garðyrkju. Hann eignast svo vini og bandamenn í gegnum bækurnar.“ Sophie hefur einnig lesið, sam- kvæmt fyrirmælum íslenskukennara síns, íslensku barnabókina Óðinn og bræður hans, sem kynnir helstu leik- endur norrænnar goðafræði eins og þeir birtast í Snorra-Eddu. Íslensku- kennarinn hefur svo kynnt Sophie fyrir meistaradeild íslenskra bók- mennta, sem Sophie segir sjálf að hafi e.t.v. verið aðeins of stór biti til að kyngja í bili. „Sjálfstætt fólk,“ segir Sophie á góðri íslensku en þó með frönskum hreim. „Ég les í raun bara eina síðu á viku þar sem ég þarf að fletta upp nánast hverju einasta orði.“ Eftir að blaðamaður hafði svo skotið inn ein- hverju óþarfa blaðri um þrjósku nób- elsskáldsins við að brjóta hefð- bundnar réttritunarreglur, sagði Sophie: „Já, þetta er krefjandi bók. Setningarnar byrja flestar eðlilega en halda síðan áfram mun lengur en eðlilegt getur talist og maður veltir stundum fyrir sér hversu marga vindla hr. Laxness hafi eiginlega ver- ið að reykja,“ og uppsker hlátur blaðamanns. Sophie segist þó líka við bókina og kveðst ætla að halda lestr- inum áfram. Nýsköpun og íþróttir Sophie segist vilja stuðla að sam- starfi ríkjanna tveggja á ýmsum svið- um. Nefnir hún bæði nýsköpun og málefni norðurslóða í því sambandi. Sophie segir blaðamanni frá því þeg- ar hún heimsótti stoðtækjaframleið- andann Össur. „Það er það sem starf mitt snýst um, að leiða aðila saman. Og ég held að það sé mikið tækifæri til þess af því Össur framleiðir gerviútlimi og við munum auðvitað halda Ólympíu- mót fatlaðra í París árið 2024. Við ætlum að vinna statt og stöðugt að því að þeir komist í samband við framkvæmdanefnd Ólympíu- mótsins.“ Sophie segir að ímynd alþjóða- samfélagsins sé mjög einhliða. Flest- ir hugsi um mat, menningu, listir o.þ.h. þegar þeir hugsa um Frakk- lands. Sophie vill að fleiri tali um önnur svið fransks samfélags, eins og iðnað, nýsköpun og vísindi, sem hún segir að eigi sér ríka sögu í Frakk- landi og sé enn í dag grundvallarstoð landsins. „Þegar ég vann í menningar- máladeild franska utanríkisráðu- neytisins vann ég að því að færa kast- ljós alþjóðasamfélagsins að öðru en þessu hefðbundna, listum, mat- armenningu og þvíumlíku. Það sem við gerðum var að nota íþróttir sem landkynningu og notuðum ruðning og fótbolta. Á alþjóðavísu jókst fjöldi þeirra sem lagði stund á frönskunám um 10%, sem er ansi mikið,“ segir Sophie og bætir við að hún vilji end- urtaka leikinn hér á landi í tilefni af Ólympíuleikunum í París eftir þrjú ár. Sophie er skipuð til þriggja ára en möguleiki er á eins árs framlenginu að þeim tíma loknum. Hún segist ætla að nýta tímann vel, ná fullum tökum á íslensku og taka enn meira ástfóstri við landið en hún hefur nú þegar gert. „Ísland kallar á mig,“ segir hún. Ein blaðsíða í Sjálfstæðu fólki á viku - Nýskipaður sendiherra Frakklands hugfanginn af Íslandi - Segir íslensku og frönsku í sömu bar- áttu við enskuna - Vill samstarf á sviði nýsköpunar - Hitti Nelson Mandela á tíunda áratugnum Morgunblaðið/Eggert Heimakær Sophie Laszlo, sendiherra Frakklands á Íslandi, í sendiráðsbústaðnum að Skálholtsstíg. VIÐTAL Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Sophie Laszlo, sendiherra Frakk- lands á Íslandi, er nýtekin við starf- inu en segist nú þegar vera búin að koma sér vel fyrir í sendiráðsbústað Frakka að Skálholtsstíg 6, við hlið Næpunnar, húss Magnúsar Steph- ensen landshöfðingja. „Ég er búin að setja ljósaseríur í gluggana,“ segir hún og biður blaðamann að setjast í betri stofuna. Sophie er mikill áhuga- maður um menningu og listir og seg- ir að Frakkar og Íslendingar eigi margt sameiginlegt þegar kemur að verndun menningararfs þjóðanna. Þannig segir hún, blaðamanni til nokkurrar undrunar, að Frakkar berjist í bökkum við að halda tungu- máli sínu á floti í brotsjó engilsax- neskunnar, ekkert síður en Íslend- ingar. Sendiherrann segist þannig vilja gera franskri tungu hærra undir höfði og gera meira úr franskri tækni, vísindum og nýsköpun. „Fyrir mér er tungumál grundvall- aratriði sjálfsmyndar þjóðar og íbúa hennar. Við Frakkar erum að berjast fyrir tilverurétti okkar tungumáls og þið Íslendingar gerið það sömuleiðis. Ég held að ef þið berjist ekki fyrir tungumáli ykkar á alþjóðavísu glatið þið einhverju sem er algjörlega ómissandi.“ Tók í hönd Mandela Sophie hóf störf í franska utanrík- isráðuneytinu árið 1992 – hún er un diplomate de carrière – og hefur starfað um víða veröld. Hennar fyrsta starf þar var sem svokallaður desk officer Suður-Afríku árið 1992. Það starf segir Sophie að hafi breytt lífi sínu. „Líf hvers manns breytist eftir að hann hittir Nelson Mandela,“ út- skýrir Sophie. „Yfirmaður minn gaf mér það verkefni að fylgja Mandela út á flugvöll eftir að hann hafði fundað með frönskum sendifulltrúum og ég sat í bíl með honum, ein, í um klukkustund,“ segir Sophie og er varla búin að sleppa orðinu þegar blaðamaður spyr af ákafa hvers hún hafi spurt sjálfan Nelson Mandela. „Það var hann sem réð umræðu- efninu. Hann talaði um sjálfan sig og sína fortíð og um fjölskyldu sína. 22 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021 PORSCHE NOTAÐIR BÍLAR Skoðaðu úrvalið á benni.is Krókhálsi 9 Sími: 590 2000 Virka daga 9 -18 Laugardaga 12 - 16 Upplifðu sanna ökugleði... ULP48 Panamera 4 E-Hybrid BUV67 Porsche Cayenne S E-Hybrid LDA94 Svakalega fallegur og sérlega vel búinn bíll! Sport- Design pakki, beygjur af aftan, panorama glerþak, 21" 911 Turbo design felgur, hágæða, handsmíðað Burmester hljómkerfi, hiti og kæling í framsætum, 360 gráður myndavél og sportpúst. Verð: 11.490.000 kr. Nýskráður 01.2017 | Ekinn 65.000 km. Glæsilegur Cayenne S E-Hybrid. Lítið ekinn og sérlega vel með farinn. Stillanleg loftpúðafjöðrun, rafdrifinn dráttarkrókur, panorama sóllúga, hiti í framsætum, nálægðarskynjarar og bakkmyndavél, akreinavörn og 14 stilllinga þægindasæti svo eitthvað sé nefnt. Verð: 6.950.000 kr. Nýskráður 20.07.2016 | Ekinn 79.000 km. B irt m eð fyrirvara um m ynd - og textab reng l Cayenne S Diesel Orð gera þessum bíl ekki skil, svo einstakur er hann. Hvað búnað varðar þá er hér allt til staðar. Að ótaldri rúsínunni í enda pylsunnar, hjartað sjálft, mótorinn! 4,2 lítrar að rúmtaki, V8 dísel, 385 hestöfl og 850 Nm í togi, 0-100 á 5,4 sekúndum. Magnað tæki! Verð: 10.900.000 kr. Nýskráður 05.2017 | Ekinn 138.000 km. LDA94 Macan S Diesel Mjög vel búinn og vel viðhaldinn, dísel Macan. Nýtt í bremsum og öll þjónusta uppá 10,5! Stillanleg loft- púðafjöðrun, rafmagns dráttarkrókur, hiti í framsætum- og stýri, glerþak, lyklalaust aðgengi, bakkmyndavél, skyggðar rúður og 19"Macan Turbo felgur. Verð: 6.990.000 kr. Nýskráður 08.2015 | Ekinn 78.000 km. FYK28

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.