Morgunblaðið - 21.10.2021, Qupperneq 22
Hann svaraði þannig spurningum
sem ég hefði aldrei þorað að spyrja.“
Loks kvöddust þau með virktum og
tókust í hendur. „Ég hafði á tilfinn-
ingu að þetta handtak hefði skilið
eitthvað eftir hjá mér,“ segir sendi-
herrann og brosir.
Fyrsta starf Sophie erlendis var í
Þýskalandi, þar sem hún starfaði
sem sérfræðingur hjá sendiráði
Frakka í Bonn, fyrrverandi höf-
uðborg Þýskalands, einmitt í þann
mund sem verið var að gera Berlín að
höfuðborg landsins. Hún og fyrrver-
andi maður hennar komu til Þýska-
lands barnslaus en yfirgáfu landið
tveimur börnum ríkari. Nokkrum ár-
um síðar, eftir frekari störf hjá
frönsku utanríkisþjónustunni, fór
fjölskyldan til Portúgal þar sem Sop-
hie starfaði áður en hún varð konsúll
í Frankfurt. Sophie segist hafa verið
farin að dreyma um að flytja til Ís-
lands og verða þar fulltrúi Frakk-
lands. Tíminn leið og tækifærin
komu og fóru, en loks kom að því að
yfirmaður hennar, sem leggur fram
tillögur um skipan sendiherra, spurði
Sophie hvort hún hefði enn áhuga á
Íslandi.
Íslenska og franska á sama báti
„Já, sagði ég strax. Ég mun yrkja
ljóð!“ Sophie segist ekki vita af
hverju þessi orð komu til hennar og
hlær við minninguna um þessa stund.
Nokkrum mánuðum áður en hún
vissi að hún væri á leið til Íslands hóf
Sophie að læra íslensku. Hún segist
enda nokkuð hjátrúarfull og hélt
kannski að íslenskunámið myndi
setja e.k. lóð á vogarskálar örlaganna
og bera hana beinustu leið á Frón.
Svo varð, Sophie er komin og hún
segist þegar vera orðin heimakær.
Það sem heillaði Sophie mest við
Ísland var íslenska tungan, náttúran
og íslenskur menningararfur. Eins
og áður sagði er hún mikill menning-
arfrömuður og er mikill bókaunn-
andi. Hún segist hafa lesið bók Auðar
Övu Ólafsdóttur, Afleggjarinn, af
miklum áhuga.
„Bókin talaði til mín vegna þess að
hún fjallar um bækur. Hún segir
sögu manns sem fer í afskekkt
klaustur, þar sem hann þekkir eng-
an, til þess að stunda garðyrkju.
Hann eignast svo vini og bandamenn
í gegnum bækurnar.“
Sophie hefur einnig lesið, sam-
kvæmt fyrirmælum íslenskukennara
síns, íslensku barnabókina Óðinn og
bræður hans, sem kynnir helstu leik-
endur norrænnar goðafræði eins og
þeir birtast í Snorra-Eddu. Íslensku-
kennarinn hefur svo kynnt Sophie
fyrir meistaradeild íslenskra bók-
mennta, sem Sophie segir sjálf að
hafi e.t.v. verið aðeins of stór biti til
að kyngja í bili.
„Sjálfstætt fólk,“ segir Sophie á
góðri íslensku en þó með frönskum
hreim. „Ég les í raun bara eina síðu á
viku þar sem ég þarf að fletta upp
nánast hverju einasta orði.“ Eftir að
blaðamaður hafði svo skotið inn ein-
hverju óþarfa blaðri um þrjósku nób-
elsskáldsins við að brjóta hefð-
bundnar réttritunarreglur, sagði
Sophie: „Já, þetta er krefjandi bók.
Setningarnar byrja flestar eðlilega
en halda síðan áfram mun lengur en
eðlilegt getur talist og maður veltir
stundum fyrir sér hversu marga
vindla hr. Laxness hafi eiginlega ver-
ið að reykja,“ og uppsker hlátur
blaðamanns. Sophie segist þó líka við
bókina og kveðst ætla að halda lestr-
inum áfram.
Nýsköpun og íþróttir
Sophie segist vilja stuðla að sam-
starfi ríkjanna tveggja á ýmsum svið-
um. Nefnir hún bæði nýsköpun og
málefni norðurslóða í því sambandi.
Sophie segir blaðamanni frá því þeg-
ar hún heimsótti stoðtækjaframleið-
andann Össur.
„Það er það sem starf mitt snýst
um, að leiða aðila saman. Og ég held
að það sé mikið tækifæri til þess af
því Össur framleiðir gerviútlimi og
við munum auðvitað halda Ólympíu-
mót fatlaðra í París árið 2024. Við
ætlum að vinna statt og stöðugt að
því að þeir komist í samband við
framkvæmdanefnd Ólympíu-
mótsins.“
Sophie segir að ímynd alþjóða-
samfélagsins sé mjög einhliða. Flest-
ir hugsi um mat, menningu, listir
o.þ.h. þegar þeir hugsa um Frakk-
lands. Sophie vill að fleiri tali um
önnur svið fransks samfélags, eins og
iðnað, nýsköpun og vísindi, sem hún
segir að eigi sér ríka sögu í Frakk-
landi og sé enn í dag grundvallarstoð
landsins.
„Þegar ég vann í menningar-
máladeild franska utanríkisráðu-
neytisins vann ég að því að færa kast-
ljós alþjóðasamfélagsins að öðru en
þessu hefðbundna, listum, mat-
armenningu og þvíumlíku. Það sem
við gerðum var að nota íþróttir sem
landkynningu og notuðum ruðning
og fótbolta. Á alþjóðavísu jókst fjöldi
þeirra sem lagði stund á frönskunám
um 10%, sem er ansi mikið,“ segir
Sophie og bætir við að hún vilji end-
urtaka leikinn hér á landi í tilefni af
Ólympíuleikunum í París eftir þrjú
ár.
Sophie er skipuð til þriggja ára en
möguleiki er á eins árs framlenginu
að þeim tíma loknum. Hún segist
ætla að nýta tímann vel, ná fullum
tökum á íslensku og taka enn meira
ástfóstri við landið en hún hefur nú
þegar gert.
„Ísland kallar á mig,“ segir hún.
Ein blaðsíða í Sjálfstæðu fólki á viku
- Nýskipaður sendiherra Frakklands hugfanginn af Íslandi - Segir íslensku og frönsku í sömu bar-
áttu við enskuna - Vill samstarf á sviði nýsköpunar - Hitti Nelson Mandela á tíunda áratugnum
Morgunblaðið/Eggert
Heimakær Sophie Laszlo, sendiherra Frakklands á Íslandi, í sendiráðsbústaðnum að Skálholtsstíg.
VIÐTAL
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Sophie Laszlo, sendiherra Frakk-
lands á Íslandi, er nýtekin við starf-
inu en segist nú þegar vera búin að
koma sér vel fyrir í sendiráðsbústað
Frakka að Skálholtsstíg 6, við hlið
Næpunnar, húss Magnúsar Steph-
ensen landshöfðingja. „Ég er búin að
setja ljósaseríur í gluggana,“ segir
hún og biður blaðamann að setjast í
betri stofuna. Sophie er mikill áhuga-
maður um menningu og listir og seg-
ir að Frakkar og Íslendingar eigi
margt sameiginlegt þegar kemur að
verndun menningararfs þjóðanna.
Þannig segir hún, blaðamanni til
nokkurrar undrunar, að Frakkar
berjist í bökkum við að halda tungu-
máli sínu á floti í brotsjó engilsax-
neskunnar, ekkert síður en Íslend-
ingar. Sendiherrann segist þannig
vilja gera franskri tungu hærra undir
höfði og gera meira úr franskri
tækni, vísindum og nýsköpun.
„Fyrir mér er tungumál grundvall-
aratriði sjálfsmyndar þjóðar og íbúa
hennar. Við Frakkar erum að berjast
fyrir tilverurétti okkar tungumáls og
þið Íslendingar gerið það sömuleiðis.
Ég held að ef þið berjist ekki fyrir
tungumáli ykkar á alþjóðavísu glatið
þið einhverju sem er algjörlega
ómissandi.“
Tók í hönd Mandela
Sophie hóf störf í franska utanrík-
isráðuneytinu árið 1992 – hún er un
diplomate de carrière – og hefur
starfað um víða veröld. Hennar
fyrsta starf þar var sem svokallaður
desk officer Suður-Afríku árið 1992.
Það starf segir Sophie að hafi breytt
lífi sínu.
„Líf hvers manns breytist eftir að
hann hittir Nelson Mandela,“ út-
skýrir Sophie. „Yfirmaður minn gaf
mér það verkefni að fylgja Mandela
út á flugvöll eftir að hann hafði
fundað með frönskum sendifulltrúum
og ég sat í bíl með honum, ein, í um
klukkustund,“ segir Sophie og er
varla búin að sleppa orðinu þegar
blaðamaður spyr af ákafa hvers hún
hafi spurt sjálfan Nelson Mandela.
„Það var hann sem réð umræðu-
efninu. Hann talaði um sjálfan sig og
sína fortíð og um fjölskyldu sína.
22 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021
PORSCHE NOTAÐIR BÍLAR
Skoðaðu úrvalið á benni.is
Krókhálsi 9
Sími: 590 2000
Virka daga 9 -18
Laugardaga 12 - 16
Upplifðu sanna ökugleði...
ULP48
Panamera 4 E-Hybrid
BUV67
Porsche Cayenne S E-Hybrid
LDA94
Svakalega fallegur og sérlega vel búinn bíll! Sport-
Design pakki, beygjur af aftan, panorama glerþak, 21"
911 Turbo design felgur, hágæða, handsmíðað
Burmester hljómkerfi, hiti og kæling í framsætum,
360 gráður myndavél og sportpúst.
Verð: 11.490.000 kr.
Nýskráður 01.2017 | Ekinn 65.000 km.
Glæsilegur Cayenne S E-Hybrid. Lítið ekinn og sérlega
vel með farinn. Stillanleg loftpúðafjöðrun, rafdrifinn
dráttarkrókur, panorama sóllúga, hiti í framsætum,
nálægðarskynjarar og bakkmyndavél, akreinavörn og
14 stilllinga þægindasæti svo eitthvað sé nefnt.
Verð: 6.950.000 kr.
Nýskráður 20.07.2016 | Ekinn 79.000 km.
B
irt
m
eð
fyrirvara
um
m
ynd
-
og
textab
reng
l
Cayenne S Diesel
Orð gera þessum bíl ekki skil, svo einstakur er hann.
Hvað búnað varðar þá er hér allt til staðar. Að ótaldri
rúsínunni í enda pylsunnar, hjartað sjálft, mótorinn!
4,2 lítrar að rúmtaki, V8 dísel, 385 hestöfl og 850 Nm
í togi, 0-100 á 5,4 sekúndum. Magnað tæki!
Verð: 10.900.000 kr.
Nýskráður 05.2017 | Ekinn 138.000 km.
LDA94
Macan S Diesel
Mjög vel búinn og vel viðhaldinn, dísel Macan. Nýtt í
bremsum og öll þjónusta uppá 10,5! Stillanleg loft-
púðafjöðrun, rafmagns dráttarkrókur, hiti í framsætum-
og stýri, glerþak, lyklalaust aðgengi, bakkmyndavél,
skyggðar rúður og 19"Macan Turbo felgur.
Verð: 6.990.000 kr.
Nýskráður 08.2015 | Ekinn 78.000 km.
FYK28