Morgunblaðið - 21.10.2021, Side 30
30 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021
24.995.- / St. 37-40,5
Vnr.: GAB7689857
22.995.- / St. 37-40,5
Vnr.: GAB7658835
22.995.- / St.37-41
Vnr.: GAB7209227
29.995.- / St. 37-40,5
Vnr.: GAB7688857
29.995.- / St. 37-41
Vnr.: GAB7173197
22.995.- / St. 37-40,5
Vnr.: GAB7658830
- NÝ SENDING
KRINGLAN - SKÓR.IS
STEINAR WAAGE
VIÐTAL
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Hákon Bragi Valgeirsson heitir mað-
ur, matreiðslumeistari að mennt og
hefur vægast sagt marga fjöruna sopið
í sínu fagi, en er nú um stundir fram-
kvæmdastjóri og einn eigenda brugg-
hússins Fæby Bryggeri í Verdal í
Þrændalögum í Noregi og aldeilis á
söguslóðum því brugghúsið, er rekur
starfsemi sína á gömlu býli, sem fyrst
er getið í annálum árið 1280, er aðeins
steinsnar frá Stiklastöðum þar sem
Ólafur konungur Haraldsson, Ólafur
helgi, háði sína lokahildi í Stikla-
staðaorrustu sumarið 1030 þar sem
hann féll og með honum sjálfur Þor-
móður Bessason Kolbrúnarskáld.
Hákon ólst þó upp víðs fjarri örlaga-
slóð Ólafs helga, í Kópavoginum á Ís-
landi. „Ég er uppalinn í vesturbænum
þar, á Kársnesinu, foreldrar mínir
koma utan af landi, Valgeir Þórðarson
frá Kálfshóli á Skeiðunum og Hulda
Dagrún Grímsdóttir, hún ólst upp á
Brúsastöðum á Þingvöllum þaðan sem
hún fluttist til Þorlákshafnar og svo í
Kópavoginn,“ segir Hákon af ætt
sinni.
Var í kokkalandsliði ungliða
Sjálfur bjó hann í Kópavoginum til
tvítugs, en hann fæddist árið 1980,
fluttist þaðan til Reykjavíkur og bjó
þar til hann fluttist til Noregs árið
2005. Hákon hóf kokkanám 1995 og
byrjaði sem nemi á A. Hansen í Hafn-
arfirðinum. „Ég fór reyndar þaðan eft-
ir að hafa verið þar í ár, það var hálf-
gert basl á þeim rekstri svo ég skipti
um nemastað og flutti mig yfir á Grand
hótel í Reykjavík og var þar í átta ár,“
segir hann frá og var starfandi á
Grand þegar hann hlaut meistarabréf
sitt í faginu árið 2002, en síðustu fjögur
árin var hann þar yfirkokkur.
Hákon var einnig í kokkalandsliði
ungliða auk þess að hafa starfað í New
York og Svíþjóð, að Noregi ónefndum,
en annar vinnustaður hans, sem hann
ber sérstaklega vel söguna, var veit-
ingahúsið La Primavera í Reykjavík.
„Það var einstaklega skemmtilegur
staður, ég var að vinna þar eitt sumar,
ætli það hafi ekki verið 1998, ég lærði
mikið á þeim stað, þar starfaði fólk
sem bjó yfir mikilli ástríðu við mat-
argerð,“ rifjar Hákon upp og segir
tímann í landsliðinu ekki hafa verið
síðri.
„Þar var mjög öflugur hópur ungra
kokka sem virkilega brann fyrir mat-
argerð. Við vorum með æfingatímabil
í tvö ár í samvinnu við Mat-
reiðsluklúbbinn Freistingu þar sem
við vorum í samfloti við Smára Valtý
Sæbjörnsson, einn af stofnendum
klúbbsins á sínm tíma,“ segir kokk-
urinn. Keppnismennskan hjá okkur
gekk ágætlega, aðalmarkmiðið var að
fara á heimsmeistaramót í Lúx-
emborg, en svo kom það í ljós tveim-
ur eða þremur vikum fyrir mótið að
ég og einn til í liðinu vorum orðnir
einum mánuði of gamlir,“ segir Há-
kon og hlær, en þar með misstu þeir
félagarnir af mótinu.
Hákon kynntist norskri konu á Ís-
landi, Ragnhild Kolberg sjúkraþjálf-
ara, þau hófu sambúð og varð þriggja
dætra auðið, þeirra Ölmu Eirar Kol-
berg Hákonardóttur, kunnrar keppn-
iskonu í hlaupum í Noregi, og Gretu
Óskar og Agnesar Rúnar Kolberg
Hákonardætra, en þær stúlkur eru
fæddar 2006, 2007 og 2010.
Þjóna 70.000 íbúa byggð
Fluttu Hákon og Ragnhild til
Þrándheims áður en þau eignuðust
dæturnar og þaðan til Verdal, sem er
skammt frá, þangað rekur Ragnhild
ættir sínar og á þar skyldmenni.
„Ég setti mig í samband við þann
sem á og rekur Fæby gård, hann
heitir Jørund H. Eggen, með það að
markmiði að fá ráðgjöf hjá honum
um rekstur á stóru mötuneyti í stál-
smiðju. Hann er viðskiptafræðingur
og sérfræðingur í markaðsmálum og
fljótlega ákváðum við að opna
brugghúsið saman,“ segir Hákon af
fæðingu Fæby Bryggeri, en hann
hafði þá starfað á öðrum veit-
ingastöðum í Noregi um árabil.
Þeir Eggen taka að leggja á ráðin
2017 og opnuðu Fæby á vordögum
2019. „Við hugsuðum þetta mikið til
fyrir hópa og veisluhöld, en svo hef-
ur aðsóknin verið svo góð hjá okkur
að við ákváðum að opna fyrir bók-
anir á tveggja til fimm manna borð
líka, svo þetta hefur þróast öðruvísi
en við hugsuðum okkur í byrjun. Við
rekum þrjá veislusali en svo er
veisluþjónustan líka mjög stór hjá
okkur, þá erum við aðallega að sinna
svæðinu hérna í kring, Verdal,
Steinkjer og Innherred, sem er
svona 20 kílómetra radíus, en annars
hef ég verið að fara með veislur
miklu lengra en það ef út í það er
farið,“ segir Hákon, en á svæðinu
næst Fæby búa samtals um 70.000
manns.
Alltaf heilmikið í eldhúsinu
Ekki tjóir annað en að spyrja mat-
reiðslumeistarann út í brugghliðina
á starfseminni, sem reyndar er
hryggjarstykkið í rekstrinum.
„Þetta er fyrst og fremst brugghús,
það er hjartað í fyrirtækinu. Hér
bruggum við alls konar bjór og það
er hann, sem setur í raun standardinn
fyrir annað sem er að gerast hjá okk-
ur,“ útskýrir Hákon. Þannig bjóði
húsið upp á samsetta matseðla þar
sem bjór og matur veljast saman með
tilliti til bragðlaukanna. „Við höfum
snúið þessu hefðbundna ferli við þar
sem kokkarnir útbúa matseðil og svo
er gerður vínlisti. Við sjáum hvaða
bjór við eigum og búum svo til mat-
seðla sem passa honum,“ segir Há-
kon, sem í fyrstu var yfirkokkur á
Fæby áður en hann tók við stöðu
framkvæmdastjóra.
„Ég er svona framkvæmdastjóri
með svuntu, ég er alltaf heilmikið í
eldhúsinu,“ tekur hann fram, en
sleppur ekki undan því að svara frek-
ari spurningum um bruggstarfsem-
ina. Kunna útlærðir matreiðslumeist-
arar bara að brugga eins og enginn sé
morgundagurinn? „Nei alls ekki,“
svarar Hákon og hlær, „ég kunni ekk-
ert um brugg, en er búinn að læra
heilmikið núna. En með okkur í liði,
og einn af eigendum fyrirtækisins, er
náungi sem heitir Arne Marius Haug-
en og er það skrýtinn að á meðan jafn-
aldrar hans voru að byggja úr legó var
hann farinn að hugsa um að brugga
bjór,“ segir Hákon af bruggmeistara
fyrirtækisins.
Haugen þessi er „algjört bjórnörd“
eins og Hákon orðar það og hlaut
nafnbótina bruggari ársins í Noregi
árið 2017 þegar hann sló í gegn með
sköpunarverki sínu, Gjertruds Jule-
varmer, bjór ársins í Noregi 2017 í
flokki heimabruggaðs, auk þess sem
hann hefur hlotið fjölda annarra titla,
heima sem erlendis, en Haugen
stjórnar bruggstarfsemi Fæby ásamt
áðurnefndum Eggen.
Undir lok forvitnilegs samtals þykir
kurteisi að forvitnast eilítið um einka-
líf matreiðslumeistarans og áhuga-
mál. „Ég er einhleypur og er með
stelpurnar mínar þrjár aðra hverja
viku, en ég er líka mikill veiðimaður
og stunda fluguveiði af miklu kappi.
Það sem eftir er af tíma er svo sem
ekki mikið vandamál að fylla upp með
þrjár unglingsstúlkur sem eru á kafi í
íþróttum og þarf að keyra hingað og
þangað og hjálpa við þeirra áhugamál
auk þess sem við stundum fjallgöngur
dálítið,“ segir Hákon Bragi Val-
geirsson, veitingamaður, fram-
kvæmdastjóri og matreiðslumeistari í
Verdal í Noregi, undir lok fróðlegs
spjalls um brugghús hans.
Framkvæmdastjóri með svuntu
- Hákon Bragi er einn eigenda brugghúss í Þrændalögum - Setur matseðilinn upp eftir bjórteg-
undum - Samstarfsmaðurinn „algjört bjórnörd“ - Stundar fluguveiði og fjallgöngur af kappi
Borðhald Hákon, matreiðslumeistari og framkvæmdastjóri í Verdal, ásamt dætrunum. Hjá honum situr Greta Ósk,
en handan borðsins eru þær Alma Eir og Agnes Rún. Systurnar eru iðnar við að stunda útivist með föður sínum.
Á fjöllum Feðginin í fjallgöngu í Þrændalögum þar sem ekki skortir göngu-
leiðirnar. Hákon er einnig iðinn við fluguveiði, sem hann stundar í frítíma.
Lengri útgáfa af viðtalinu
verður birt á mbl.is.
mbl.is