Morgunblaðið - 21.10.2021, Side 34
KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS
Endurunnin ull. Verð 13.900,-
100% ull. Verð 14.900 – 15.900,-
KLIPPAN
ULLARTEPPI
34 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021
Evrópu. Það horfir þar sérstaklega
til langtímafjárfestinga og fjárfestir
á samgöngusviði, í orku- og fjar-
skiptamálum sem og öðrum mikil-
vægum samfélagsinnviðum eins og
flugvöllum og tollvegum.
Sjálfbærni og samfélagsleg ábyrgð
er félaginu mikilvæg eins og glöggt
má sjá á heimasíðu þess. Leggur
fyrirtækið áherslu á að draga sem
mest úr umhverfisáhrifum innviða-
fjárfestinga sinna í samræmi við al-
þjóðlegar skuldbindingar eins og
Parísarsamkomulagið. Í því skyni
hefur innviðasjóður Ardian fjölgað
mjög innviðum sem snúa að endur-
nýjanlegri orku í eignasafni sínu auk
þess sem mörkuð hefur verið stefna
um orkunýtni þvert á eignasafnið.
Hærri óformleg tilboð
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins lagði Ardian fram hæsta
formlega tilboðið í Mílu, en hærri
verðhugmyndir heyrðust í ferlinu frá
öðrum mögulegum kaupendum. Tal-
ið er að verðið á Mílu hlaupi á millj-
arðatugum.
Kunnugir segja að Ardian líti á
Mílu sem mikilvæga fjárfestingu
vegna þeirra miklu tækifæra og ný-
sköpunar sem felist í félaginu til
framtíðar.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að íslenskum lífeyrissjóðum verði
boðinn til kaups 20% hlutur í Mílu á
móti 80% hlut Ardian. Síðar verði ís-
lensku sjóðunum mögulega boðið að
koma aftur að borðinu þegar sótt
verði fé í auknar fjárfestingar í fjar-
skiptavinnviðum landsins, en þar er
rætt um tugi milljarða króna á næstu
árum.
Ardian hefur fundað með íslensk-
um lífeyrissjóðum samkvæmt heim-
ildum blaðsins og er að undirbúa
samstarf við Summu, fjárfestingar-
félag sem vinnur fyrir lífeyrissjóðina.
Þó er ekki víst að Summa verði notað
fyrir sameiginlega fjárfestingu líf-
eyrissjóðanna því einnig kemur til
greina að lífeyrissjóðirnir fjárfesti
með beinum hætti í Mílu hver fyrir
sig.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur Ardian lagt gríðarlega
vinnu í undirbúning tilboðsins í Mílu,
þar sem tugir manna um allan heim
hafa komið að málum í það hálfa ár
sem vinna við tilboðsgerðina hefur
staðið yfir. Talað er um nokkur
hundruð milljóna króna kostnað í því
samhengi fyrir Ardian.
Hefur fyrirtækið m.a. fundað með
öllum helstu haghöfum á landinu á
tímabilinu til að kynna sér íslenskt
viðskiptaumhverfi og samfélag til
hlítar, ráðuneytum, Samkeppniseft-
irlitinu og Póst- og fjarskiptastofnun
meðal annars.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að samkomulag Mílu og Ardian sé nú
á lokametrunum. Má leiða líkum að
því að endanlegt samkomulag verði
kynnt fyrir miðja næstu viku, en þá
mun Síminn skila uppgjöri fyrir
þriðja ársfjórðung.
14 ára líftími eftir
Innviðasjóður Ardian, sá sem legg-
ur fram tilboðið í Mílu, Ardian In-
frastructure Fund V, hefur verið
starfræktur frá árinu 2020. Líftími
hans er fimmtán ár með möguleika á
framlengingu samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, en fjórtán ár eru nú
eftir af líftíma sjóðsins.
Eins og fram kom í tilkynningu
vegna einkaviðræðna Símans og
Ardian munu félögin vinna með hinu
opinbera að upplýsingagjöf og örygg-
ismálum sem tryggja hagsmuni
landsmanna. Tryggja á að rekstur
innviða félagsins samrýmist þjóðar-
öryggishagsmunum hér eftir sem
hingað til.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að Ardian taki þeirri umræðu fagn-
andi.
Tvöfalt íslenska lífeyriskerfið
Morgunblaðið/Eggert
Fjárfesting Líklega mun endanlegt samkomulag verða kynnt fyrir miðja næstu viku.
- Áhersla á langtímafjárfestingar - Höfuðstöðvar í París - 14.800 milljarðar króna í eignastýringu
- Búist við að salan á Mílu verði frágengin um miðja næstu viku - Fagna þjóðaröryggisumræðu
Innviðir
» Míla er heildsölufyrirtæki á
fjarskiptamarkaði og felst
kjarnastarfsemi þess í að
byggja upp og reka innviði fjar-
skipta á landsvísu, eins og ljós-
leiðara, möstur og fjar-
skiptanet, ásamt því að selja
þjónustu til fyrirtækja sem
stunda fjarskiptastarfsemi.
FRÉTTASKÝRING
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Franska fyrirtækið Ardian, sem hef-
ur skrifað undir samkomulag um
einkaviðræður og helstu skilmála
vegna áformaðra kaupa þess á Mílu,
dótturfélagi Símans, er alþjóðlegt
sjóðsstýringarfyrirtæki með höfuð-
stöðvar í París. Það leggur áherslu á
ábyrgar langtímafjárfestingar. Fé-
lagið er í meirihlutaeigu starfsfólks,
sem á 70% í félaginu.
Á sviði fjarskiptafjárfestinga er
Ardian með ráðandi eignarhlut í IN-
WIT, stærsta eiganda fjarskipta-
turna á Ítalíu og á 26% hlut í EWE,
einu stærsta veitufyrirtæki Þýska-
lands og leiðandi fjarskiptafyrirtækis
þar í landi. Nýverið fjárfesti sjóður-
inn í ljósleiðarafyrirtækinu Adamo
sem nær til 1,8 milljóna heimila í 27
héruðum Spánar og er með 250 þús-
und áskrifendur.
Félagið er með um 114 milljarða
bandaríkjadala, eða um 14.800 millj-
arða króna, í eignastýringu fyrir líf-
eyrissjóði, stjórnvöld, stofnanir og
stóra fagfjárfesta í fimm heimsálfum.
Til að setja eignirnar í samhengi þá
eru þær rúmlega tvöfalt meiri en all-
ar eignir íslenska lífeyrissjóðakerfis-
ins.
Stofnað árið 2013
Félagið var stofnað árið 2013 en á
rætur að rekja allt til 1996 þegar for-
stjórinn, Dominique Senequier, kom
á fót fjárfestingararmi franska
tryggingafélagsins Axa. Ardian varð
sjálfstætt félag árið 2013.
Höfuðstöðvar félagsins eru í
Frakklandi og það er með skrifstofur
á 15 stöðum í Asíu, Evrópu, Norður-
Ameríku og Suður-Ameríku. Starfs-
menn eru 800.
Ardian er stærsti innviðafjárfestir
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Verðskrá Póstsins mun taka tals-
verðum breytingum 1. nóvember
næstkomandi og taka breytingarnar
til pakkasendinga sem eru 0-10 kg
og eins til fjölpósts. Koma breyting-
arnar til í kjölfar gildistöku nýrra
laga sem kveða á um að ekki sé heim-
ilt að innheimta sama gjald fyrir
sendingar um landið allt eins og fyrri
lög kváðu á um.
Með ákvörðun löggjafans var
ákveðinni óvissu eytt þar sem
ákvæði í lögum virtust stangast á.
Annars vegar var þar kveðið á um
sömu verðskrá um land allt og hins
vegar að verðlagning á umræddri
þjónustu ætti að endurspegla raun-
kostnað að viðbættum hæfilegum
hagnaði.
Bendir Pósturinn á að með nýsam-
þykktum lögum muni gjaldskráin
hækka í sumum tilvikum og lækka í
öðrum.
Hækkun eður ei
Í upprunalegri tilkynningu Pósts-
ins kom fram að fyrirtækinu væri nú
aðeins heimilt að viðhafa sömu
verðskrá um allt land á bréfum undir
51 grammi. Í gær sendi fyrirtækið
hins vegar frá sér tilkynningu um að
mistök hefðu verið gerð í uppruna-
legri tilkynningu. Verðbreytingar
myndu aðeins ná til pakkasendinga
0-10 kg, en ekki bréfapósts yfir 51
grammi. „Rétt er að engar ákvarð-
anir hafa verið teknar um verðbreyt-
ingar á bréfapósti, að svo stöddu.“
Pósturinn
breytir verðskrá
- Dró strax í land með verðhækkanir
Morgunblaðið/Eyþór
Póstur Með ákvörðun löggjafans
náðist að eyða ákveðinni óvissu.