Morgunblaðið - 21.10.2021, Síða 36
36 FRÉTTIR
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021
Kynntu þér úrvalið í vefverslun www.danco.is www.danco.is
Heildsöludreifing
Loksins eru Greppikló og aðrar persónur sögunnar
fáanlegar sem yndislega fallegir og mjúkir bangsar.
- Tilvalið fyrir aðdáendur að safna þeim öllum.
Sagan um Greppikló hefur notið mikilla vinsælda víða um heim undanfarin ár.
Íslensk þýðing Þórarins Eldjárns á bókinni er vel þekkt í skólum og
leikskólum og meðal allra bókaunnenda hérlendis.
Greppikló 23 cm
Greppikló 41 cm
Músin 23 cm Músin 41 cm
Greppikló
- fingrabrúður
5 teg. 20 cm
Greppikló
- tuskudýr 5 teg.
Displ-12. 18 cm
Greppikló
- lykklakippa
12 cm
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
fyrirskipaði í gær að Rússar fengju
vikufrí úr vinnu á launum frá 30.
október næstkomandi. Er aðgerð-
inni ætlað að stemma stigu við aukn-
um fjölda kórónuveirusmita í land-
inu, en 1.028 Rússar létust af
völdum veirunnar í fyrradag. Er það
mesti fjöldi látinna á einum sólar-
hring í landinu frá því faraldurinn
hófst.
Hvatti Pútín samlanda sína til
þess að sína ábyrgð og láta bólusetja
sig gegn veirunni, en bólusetning-
arhlutfall Rússa er einungis um
35%, sem þykir fremur lágt. Sagði
Pútín í sjónvarpsávarpi sínu það
koma sér á óvart hversu margir
hefðu neitað að þiggja bóluefni gegn
veirunni, en Rússar framleiða sjálfir
Spútník-5-bóluefnið, sem þykir sýna
góða virkni.
Alls hafa nú 226.353 Rússar farist
í heimsfaraldrinum, og er það hæsta
talan meðal ríkja Evrópu. Pútín hef-
ur áður fyrirskipað launað frí til
þess að halda fólki heima, síðast í
maí. Vikan 30. október til 5. nóv-
ember þykir heppileg því skólar
verða í fríi á sama tíma.
Þá hafa borgaryfirvöld í Moskvu
fyrirskipað öllum yfir sextugu að
sinna vinnu sinni heiman frá sér og
sett á bólusetningarskyldu meðal
þjónustustarfsfólks í borginni.
Ekki gripið strax í taumana
Sajid Javid, heilbrigðisráðherra
Bretlands, lýsti sömuleiðis yfir
áhyggjum sínum í gær vegna aukins
fjölda tilfella í Bretlandi. Hvatti Ja-
vid Breta til þess að láta bólusetja
sig eða að fá sér örvunarskammta
fyrir veturinn, en rúmlega 49.000 til-
felli greindust í Bretlandi í fyrradag.
Sagði Javid þó að enn væri ekki
ástæða til þess að grípa aftur til
harðra sóttvarnaaðgerða, en að
þeirra yrði mögulega þörf síðar.
AFP
Moskva Starfsmenn almannavarna í
Rússlandi sótthreinsa hér Belo-
russky-lestarstöðina í Moskvu.
Hvetur til auk-
inna bólusetninga
- Pútín veitir vikufrí vegna Covid-19
Nefnd á vegum
öldungadeildar
brasilíska þings-
ins lagði til í gær
að Jair Bolson-
aro, forseti lands-
ins, yrði ákærður
vegna þess
hversu slælega
hann hefði brugð-
ist við heimsfar-
aldrinum. Rúm-
lega 600.000 Brasilíumenn hafa
farist af völdum kórónuveirunnar, á
sama tíma og Bolsonaro hefur gert
lítið úr áhrifum faraldursins.
Nefndin kallaði eftir ákærum á
hendur um 60 manns, en hún hefur
rannsakað viðbrögð stjórnvalda við
faraldrinum undanfarið hálft ár.
Eru sakir hennar á hendur forset-
anum í tíu liðum, en þar á meðal er
lagt til að hann verði kærður fyrir
„glæpi gegn mannkyni“. Ólíklegt er
að þingið muni samþykkja álit
nefndarinnar.
Bolsonaro neitaði í gær öllum sök-
um og sagðist fullviss um að hann
hefði brugðist hárrétt við faraldr-
inum frá fyrstu stundu.
BRASILÍA
Leggja til ákæru á
hendur Bolsonaro
Jair
Bolsonaro
Elísabet 2. Breta-
drottning frest-
aði í gær fyr-
irhugaðri
heimsókn sinni
til Norður-
Írlands að lækn-
isráði. Sagði í yf-
irlýsingu frá
bresku krúnunni
að læknar hefðu
ráðlagt drottn-
ingunni að hvíla sig næstu daga, en
hún er 95 ára gömul. Gistir hún nú í
Windsor-kastala, en tekið var fram
að ráðleggingin tengdist ekki kór-
ónuveirunni.
Sendi Elísabet kveðjur til norður-
írsku þjóðarinnar og harmaði að
hún gæti ekki heimsótt Norður-
Írland, en í dag á að minnast þess
að 100 ár eru liðin frá því landið
varð til.
BRETLAND
Drottningunni ráð-
lagt að hvíla sig
Elísabet 2.
Bretadrottning
Rússlandsforseti aðflugi eldflaug-
arinnar að skotmarki sínu við loft-
stein því hún ferðaðist það hratt.
Hraðinn, ásamt því að hægt er að
stýra eldflaugunum með meiri ná-
kvæmni en hefðbundnum flaugum,
þýðir að ofurhljóðfráar eldflaugar
ættu mun auðveldara með að komast
fram hjá eldflaugavarnarkerfum
Bandaríkjanna. Þá fljúga flaugarnar
lægra um himinhvolfin en hefð-
bundnar langdrægar eldflaugar, sem
þýðir að varnarkerfin taka ekki eftir
þeim fyrr en um seinan.
Tekið til varna
Bandaríkjamenn hafa því ákveðið
að verja um milljarði bandaríkjadala
á ári til þess að koma sér upp bæði of-
urhljóðfráum eldflaugum, sem og
bættum eldflaugavörnum til þess að
geta mætt hinni nýju ógn.
Felst í því að net gervihnatta sem
fylgist með þeim svæðum him-
inhvolfsins sem ofurhljóðfráu eld-
flaugarnar nýti sér verði sett upp og
er geimfyrirtækið SpaceX á meðal
þeirra sem eru að þróa þá hnetti.
Talið er þó að varnarkerfin verði
ekki fullþróuð fyrr en á síðari hluta
þessa áratugar. Þangað til gætu
Bandaríkin staðið verulega höllum
fæti, brjótist út nýtt stórveldastríð.
Ný „Spútník-krísa“ runnin upp?
- Bandaríkjamenn sagðir langt á eftir öðrum í þróun ofurhljóðfrárra eldflauga
AFP
Eldflaugaskot Auk Rússa og Kínverja hafa Norður-Kóreumenn skotið á loft eldflaug, sem sögð er „ofurhljóðfrá“.
SVIÐSLJÓS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Segja má að nokkurs konar „Spút-
ník“-krísa ríki meðal bandarískra
leyniþjónustustofnana og embættis-
manna eftir að Financial Times
greindi frá því um síðustu helgi að
Kínverjar hefðu skotið á loft ofur-
hljóðfrárri eldflaug, það er eldflaug
sem ferðast geti á minnst fimm-
földum hljóðhraða.
Þó að Kínverjar bæru fréttina al-
farið til baka og segðust einungis hafa
verið að prófa sig áfram með end-
urnýtanlegar eldflaugar í geimkönn-
unarskyni, voru ekki margir sérfræð-
ingar í þessum efnum vestanhafs sem
tóku mark á þeim mótbárum. Þess í
stað þóttu fregnirnar staðfesta öðru
fremur hversu skammt á veg komnir
Bandaríkjamenn eru sjálfir í þróun
þessarar nýju tækni, sem gæti um-
breytt hernaði 21. aldarinnar.
Bæði Rússar og Kínverjar eru nú
taldir ráða yfir ofurhljóðfráum eld-
flaugum sem borið geti kjarnaodda
og nái nánast til hvaða staðar sem er
á jarðarkúlunni. Á sama tíma hafa
Bandaríkjamenn þróað sína eigin of-
urhljóðfráu eldflaug, AGM-183
ARRW, sem skotið væri úr þotum, en
þeim hefur ekki tekist að prófa hana
með viðunandi árangri.
Gætu stöðvað flugmóðurskip
Rússar leiða kapphlaupið sem
stendur, en fyrir tveimur vikum próf-
uðu þeir eldflaugina Zircon, sem
hægt er að skjóta úr kafbáti sem er í
kafi. Hún er sögð geta ferðast á ní-
földum hljóðhraða og dregið allt að
þúsund kílómetra.
Segir í greiningu Daily Telegraph,
að slík flaug gæti borið kjarnaodda og
nýtt þá til þess að sökkva flugmóð-
urskipum Bandaríkjanna, einungis
örfáum mínútum eftir að þeim væri
skotið á loft.
Þá ráða Rússar einnig yfir eldflaug
sem skotið er af jörðu niðri, Avan-
gard, en hún er sögð geta náð allt að
27-földum hraða hljóðsins. Hún var
tekin í notkun árið 2019 og getur bor-
ið nógu stóra kjarnaodda til að leggja
borgir í eyði. Líkti Vladimír Pútín
Hinn 5. október 1957 skutu Sov-
étmenn á loft Spútník-1, fyrsta
gervihnettinum sem fór á spor-
baug um jörðu. Geimskotið hafði
margvísleg áhrif á almennings-
álitið niðri á jörðunni, og vakti það
ekki síst furðu og jafnvel ótta
meðal vestrænna ríkja hversu
langt Sovétríkin væru komin í þró-
un langdrægra eldflauga.
Hjálpaði þar ekki til að tilraunir
Bandaríkjamanna til þess að
skjóta gervihnetti á sporbaug um
jörðu höfðu mistekist hrapallega.
Fengu Sovétmenn þar því öflugt
áróðursvopn í hendurnar og var
Spútník notaður sem dæmi um
það að austantjaldsríkin væru
framþróaðri en lýðræðisríkin á
Vesturlöndum.
Sú staðreynd að Sovétríkin réðu
nú yfir eldflaugum sem gátu borið
kjarnorkuvopn til meginlands
Bandaríkjanna olli því að vest-
anhafs óttuðust menn að komið
væri upp svokallað „eldflaugabil“
(e. Missile Gap) í fjölda þeirra eld-
flauga sem risaveldin tvö réðu yfir,
sem þyrfti að brúa sem fyrst. Hélt
John F. Kennedy þessu meinta bili
mjög á lofti í kosningabaráttu
sinni árið 1960, og sakaði hann
stjórn Eisenhowers um að hafa
slegið slöku við.
Eftir kosningarnar varð hins
vegar ljóst að fjöldi þeirra eld-
flauga sem Sovétmenn réðu yfir
hefði verið ofmetinn, og „bilið“
hefði í raun aldrei verið til staðar.
Olli miklum ótta vestanhafs
SPÚTNÍK OG „ELDFLAUGABILIГ
Ljósmynd/Evrópska geimferðastofnunin
Spútník Sovéski gervihnötturinn olli
miklum ótta á Vesturlöndum.