Morgunblaðið - 21.10.2021, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021
SKEIFAN 11 // 108 RVK // S.520-1000 // SPORTIS.IS
KULDAGALLAR OG ÚLPUR - GÆÐI OG ENDING
Ásthildur Hannesdóttir
asthildur@mbl.is
Rósin er eins konar samantekt-
arþáttur á þeim uppákomum sem
eiga sér stað í bandarísku Bachelo-
rette-þáttunum og mun Erna
Hrund, ásamt góðum gestum, kryfja
ástir og önnur átakamál til mergjar.
„Síðasta sumar var ég með sam-
bærilega þætti á vegum Símans í
gegnum Instagram sem fengu frá-
bærar viðtökur. Nú hefur verið
ákveðið að taka stærra stökk og
framleiða þættina sem sjónvarps-
efni, ekki binda þá endilega við sam-
félagsmiðlana,“ segir Erna Hrund.
Framleiðslufyrirtækið Ketchup
framleiðir þættina en Erna Hrund
verður í hlutverki þáttastjórnanda.
„Þetta eru svona „recap“-þættir
sem teknir eru upp eftir hvern ein-
asta þátt af Bachelorette út alla ser-
íuna,“ segir Erna Hrund aðspurð
um innihaldið, en þess má geta að
fyrsti þáttur nýrrar þáttaraðar af
Bachelorette var sýndur síðasta
þriðjudag í Bandaríkjunum.
Aðdáendur Bachelor-þáttanna
geta vissulega glaðst yfir því að 18.
þáttaröð sé farin af stað en Rósin er
ekki síður mikið tilhlökkunarefni
sem íslensk viðbót við þættina.
„Bachelor og Bachelorette eru nátt-
úrlega eitt vinsælasta sjónvarps-
efnið á landinu og hafa verið í mörg
ár. Landinn virðist hafa mikinn
áhuga á amerískri dramatík,“ segir
Erna Hrund. „Bachelorette-
þættirnir eru yfirleitt sýndir á
þriðjudögum eða miðvikudögum úti
þannig að við reynum að halda í við
það og gefum út nýjan þátt af Rós-
inni hvern fimmtudag.“
Hefur horft frá upphafi
Erna Hrund viðurkennir að hún
hafi alla tíð verið mikill aðdáandi
þáttanna. Hún hafi einungis verið
tólf ára gömul þegar hún horfði í
fyrsta sinn á Bachelor. „Ég hef
fylgst með þáttunum frá upphafi.
Þegar það er ekki nógu mikið drama
í þínu raunverulega lífi þarftu að
sækja þinn skammt af drama ein-
hvers staðar. Ég geri það með því að
horfa á Bachelorette,“ segir Erna
Hrund og hlær. „Það er svo
skemmtilegt að sjá ólíka menningar-
heima mætast og horfa á öll þessi
stefnumót. Þetta er svo ólíkt því
sem við erum vön hér heima. Það er
allt önnur deit-menning hér. Að
mínu mati er þetta líka bara ráð-
lagður dagskammtur af drama inn í
lífið.
Ég er alveg týpan sem er löngu
búin að kortleggja það hvaða pör
passa vel saman og allt þetta. Ég er
nú þegar komin með minn topplista
fyrir þessa seríu og hún fór fyrst af
stað í gær. Ég get ekki beðið eftir að
fá að ljóstra upp þeim skoðunum
sem ég hef um þessi mál,“ segir hún
og spennan leynir sér ekki.
Mikið í húfi
Erna Hrund gengur með sitt
þriðja barn og er áætluð koma
barnsins fljótlega eftir áramót. Hef-
ur hún því þurft að skipuleggja tíma
sinn vel samhliða vinnu og einkalífi
ef ske kynni að barnið tæki upp á að
flýta sér í heiminn.
„Ég vil halda því fram að ég sé
komin á steypirinn en ég er ekki
sett fyrr en 4. janúar. Við höfum
reynt að plana tökur á þáttunum
meðfram dagskrá frá ABC, sem
framleiða Bachelorette-þættina, en
þeir gefa aldrei upp alveg pottþétta
dagskrá þannig að við höfum verið
að giska á hvenær lokaþátturinn
verður sýndur miðað við reynslu
fyrri ára. Ef ágiskun okkar gengur
eftir verður lokaþátturinn sýndur
21. desember og þá ætti þetta allt að
ganga upp. Ef ég missi vatnið og
eignast barnið í miðjum tökum þá er
það bara geggjað sjónvarpsefni. Ég
hef engar áhyggjur af þessu, ég
hlakka bara til,“ segir Erna Hrund.
Fyrsti þáttur af Rósinni kemur út
í dag, fimmtudag og er aðgengilegur
á Sjónvarpi Símans Premium. Gest-
ir þáttarins verða þau Eva Ruza og
Helgi Ómars en þau eru bæði dygg-
ir aðdáendur sjónvarpsþáttarað-
anna.
Ráðlagður
dagskammtur
af drama með
Ernu Hrund
Erna Hrund Hermannsdóttir áhrifavaldur
mun stýra nýjum þáttum sem aðgengilegir
verða í Sjónvarpi Símans Premium í vetur.
Þættirnir bera titilinn Rósin, sem er tilvísun
í aðalútgangspunkt Bachelorette-þáttanna.
Kasólétt Erna Hrund
segist vera komin á
steypirinn en er þó ekki
sett fyrr en í byrjun janúar.
Rósin Fyrsti
þátturinn fer
í loftið í dag.