Morgunblaðið - 21.10.2021, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
„Það verður að segjast að ég var nokkuð seinn á hlaðvarps-
vagninn en ég byrjaði að hlusta á hlaðvörp í lok 2019 og féll
alveg fyrir hlaðvarpsforminu þar sem þau eru töluvert frá-
brugðin til dæmis útvarpi upp á lengd að gera. Í hlaðvörp-
um hefur maður í raun endalausan tíma til þess að ræða
ákveðið málefni og mér finnst það afar heillandi,“ segir Ás-
grímur Geir Logason eða Ási eins og hann er jafnan kall-
aður en hann stjórnar vinsæla hlaðvarpinu Betri helmingurinn með Ása. Hann
segist hafa fengið hugmyndina að hlaðvarpinu árið 2020. Segist hann hafa
„gengið með hugmyndina í maganum“ í nokkra mánuði áður en þátturinn leit
dagsins ljós í apríl 2021.
„Þá hafði ég hlustað á fjöldann allan af viðtalsþáttum þar sem sumir við-
mælendur höfðu jafnvel komið fyrir í mismunandi þáttum. Mér datt þá í hug
að það gæti verið skemmtilegur vinkill að taka viðtal við þjóðþekkta ein-
staklinga ásamt þeirra betri helmingi þar sem þar gætu verið fleiri skemmti-
legar hliðar á sögunum,“ segir Ási.
„Ég legg mikið upp úr því að þátturinn sé á léttu nótunum, að öllum líði vel
í stúdíóinu og að það sé svolítið svona „heima í stofu“-fílingur. Þátturinn hef-
ur gengið framar vonum og er greinilegt að fólk hefur mikinn áhuga á að
hlusta á betri helminginn en 28. þáttur kom út í gær og er mikið skemmtilegt
framundan!“ bætir hann við áður en hann mælir með sínum uppáhalds-
hlaðvörpum.
Í ljósi sögunnar „Ég á mér nokkra uppáhaldshlaðvarpsþætti
en fyrst ber að nefna Í ljósi sögunnar. Það var fyrsta hlað-
varpið sem ég uppgötvaði á sínum tíma og féll ég algjörlega
fyrir því. Það er eitthvað við það að hlusta á Veru segja sög-
ur af liðnum atburðum, heldur mér alveg við efnið!“
The Joe Rogan Experience „Joe Rogan tekur viðtöl við allan
skalann af áhugaverðu fólki og fer djúpt ofan í saumana á
allskyns málefnum.
Dr. Football
„Sem mikill fótboltaáhugamaður þá
verður Dr. Football að vera ofarlega á
hlaðvarpslistanum mínum! Ég viðurkenni að ég er ekkert
djúpt sokkinn í boltann en það er bara eitthvað við þáttinn
sem maður festist í.“
The Snorri Björns Podcast Show
„Uppgötvaði Snorra Björns í fyrsta samkomubanninu og
binge-hlustaði á þættina hans á meðan ég sat heima og púsl-
aði. Virkilega vandaðir þættir hjá honum og hefur hann ein-
staklega gott lag á því að eiga áhugavert samtal við alls kon-
ar fólk!“
Þarf alltaf að vera grín
„Þau eru bara svo geggjuð, algjörlega ófeimin við að vera
þau sjálf og gaman að hlusta á þau spjalla um allt og ekkert.
Fátt betra en að stilla á þau þegar maður er að þrífa eða í
göngutúr og vantar eitthvað létt og skemmtilegt!“
Bestu hlaðvörpin
frá Ása
Ásgrímur Geir eða Ási
heldur úti hlaðvarpinu
„Betri helmingurinn
með Ása“ en hann
mælir hér með sínum
uppáhaldshlaðvörpum.
Vinsæll Ási hefur slegið í gegn með
hlaðvarpinu sínu Betri helming-
urinn með Ása.
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð
og hjartastuðtæki björguðu lífimínu
Ég lifði af
Pine Trail
17.995 kr.
St. 41- 47
withMemory
Foam
SMÁRALIND - KRINGLAN - SKÓR.IS
GÖNGUSKÓR
LÉTTIR, VATNSFRÁHRINDANDI LEÐURSKÓR
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Vinunum Jóni Arnóri Péturssyni, 15
ára, og Baldri Birni Arnarssyni, 14
ára, er sannarlega margt til lista lagt
þrátt fyrir ungan aldur. Þeir eru
saman í hljómsveitinni Jón Arnór og
Baldur en ofan á það eru þeir báðir
leikarar og æfa auk þess fótbolta.
Þeir gáfu út sitt þriðja lag fyrir
tæpri viku og er það fyrsta lagið sem
er gert í samvinnu við framleiðanda í
Los Angeles í Bandaríkjunum en sá
hefur meðal annars unnið með
stjörnum á við Katy Perry, Miley
Cyrus og Selenu Gomez. Lagið heit-
ir Partý í kvöld (Arí Arí Ó). Dreng-
irnir hafa spilað saman á ýmsum
hátíðum og áttu að spila á Þjóðhátíð
á árinu en eins og alþjóð veit var
henni aflýst, eins og flestu öðru,
vegna Covid. Þeir vonast því til að
geta spilað á Þjóðhátíð 2022 og segj-
ast stefna jafnvel út fyrir landstein-
ana.
Kynntust í Sönglist
Drengirnir eru miklir vinir en þeir
kynntust fyrir fimm árum í Sönglist,
söng- og leiklistarskóla á vegum
Þjóðleikhússins, og náðu strax vel
saman.
„Ég spurði hann [Jón Arnór] eftir
svona ár, af því að við vorum saman
og vorum góðir vinir: Eigum við að
stofna hljómsveit? Og hann bara:
Já!“ segir Baldur í samtali við Morg-
unblaðið og K100.is en hann segir þá
hafa verið saman í hljómsveit síðan
þá.
„En við byrjuðum á þessu svona
fyrir alvöru í sumar,“ bætir hann við.
Aðspurðir segjast drengirnir hafa
fundið framleiðandann sinn með því
að senda póst á ýmsa aðila á netinu.
„Við bjuggumst svo sem ekkert
endilega við svari, við vorum bara að
þessu svona til gamans. En svo feng-
um við svar,“ segir Jón Arnór.
Drengirnir sendu meðal annars
spotifyaðganginn sinn á framleið-
andann, sem var að sögn Jóns Arn-
órs „bara til í þetta“.
Nýjasta frumsamda lag vinanna
er eins og kom fram lagið „Partý í
kvöld“ en Baldur segir að laglínan
hafi bara komið til sín.
„Fyrir nokkrum mánuðum var ég
uppi í sófa og fór að fá rosalega
„catchy“ línu til mín og ég sendi lín-
una á Jón Arnór. Ég var allan tím-
ann sannfærður um að þetta væri
stolið. Þetta væri eitthvað annað
sem væri til,“ útskýrði Baldur, sem
segir að þeir félagar hafi þó fljótt
komist að því að laglínan væri alveg
„orgínal“.
„Við héldum áfram að þróa þetta
og það endaði mjög vel,“ bætir Jón
Arnór við.
Tónlistarsköpun er þó ekki það
eina sem drengirnir hafa fyrir stafni.
Báðir eru þeir með stór hlutverk í
leiksýningum um þessar mundir en
Baldur fer með hlutverk „litla
Bubba“ í leiksýningunni Níu líf í
Borgarleikhúsinu um líf Bubba
Morthens og Jón Arnór fer með
hlutverk Tommís í Kardimommu-
bænum í Þjóðleikhúsinu.
Hægt er að hlusta á tónlist Jóns
Arnórs og Baldurs á Spotify, Insta-
gram og Facebook.
Snillingar Baldur og Jón Arnór gáfu út nýtt lag á dögunum en þrátt fyrir
ungan aldur hafa þeir mikla reynslu af sviðslistum og tónlistarsköpun.
Jón og Baldur stefna hátt
Jón Arnór, 15 ára og
Baldur, 14 ára eru sam-
an í hljómsveit og gáfu á
dögunum út lagið Partý
í kvöld (Arí Arí Ó) í sam-
vinnu við stjörnu-
framleiðanda frá LA
sem hefur meðal annars
unnið með Miley Cyrus,
Selenu Gomez og Katy
Perry.