Morgunblaðið - 21.10.2021, Síða 51
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Sjáumst seinna.
Elín og Guðmundur,
langamma og langafi,
Siglufirði.
Elsku litli og fallegi Theodór
Máni.
Lífið þitt hérna með okkur var
allt of stutt en samt tókst þér að
skilja eftir svo mikinn lærdóm og
ást í hjörtum og lífi svo margra
sem fengu að kynnast þér. Pabbi
þinn og mamma voru ótrúlega
heppin að fá þig í lífið sitt og þú
að fá þau sem foreldra. Þú hefðir
ekki getað fengið betri foreldra
en þau.
Það sem þú hefur kennt mér
og svo mörgum öðrum á þinni
stuttu vegferð er tilgangurinn
okkar hérna á jörðinni. Það sem
raunverulega skiptir máli í lífinu
og hversu mikilvæg fjölskyldan
og samheldnin og kærleikurinn
er í okkar lífi. Þú færðir okkur
fjölskylduna nær hvert öðru og
samstilltir okkur. Þú varst aldrei
neitt annað en gleðigjafi og sól-
argeisli. Ég er svo þakklát fyrir
þig og við erum það öll. Að hafa
fengið að kynnast þér í þennan
stutta tíma. Ég persónulega hef
lært mikið af því að kynnast þér,
sjá foreldra þína takast á við
þetta erfiða verkefni að gera
hvern þinn dag sem hamingju-
ríkastan og fylla þig af gleði.
Þetta var svo fallegt að sjá.
Þú hefur lokið dvöl þinni
hérna með okkur en við hlökkum
öll til að hitta þig aftur þegar
okkar tími kemur. Amma Hulda
og afi Halli eru örugglega með
þig í fanginu núna og vernda þig
og elska eins og allir sem hafa
fengið að vera í kringum þig.
Guð geymi þig og varðveiti,
elsku Theodór Máni minn.
Elsku Fannar og Anna Gréta,
þið eruð svo sterk og dugleg og
ég vona að framtíðin ykkar verði
fyllt af ást og gleði. Guð geymi
ykkur.
Helga Guðmundsdóttir
Elsku Theodór Máni. Takk
fyrir að hafa verið til. Þó að dvöl
þín hérna á jörðinni hafi verið
stutt, þá var hún svo rosalega
áhrifamikil. Út af þér knúsa ég
börnin mín fastar, út af þér veiti
ég þeim enn meiri athygli og út
af þér veit ég það að samveran
með þeim er það sem skiptir
máli. Með tilveru þinni einni
saman settir þú hlutina í sam-
hengi fyrir mig. Þú fékkst erfið
spil á hendi frá fæðingu, en þú
sýndir það að þú skilgreinist ekki
af spilunum sem þú færð, heldur
hvernig þú spilar úr þessum spil-
um. Það er óhætt að segja að þú
hafir spilað eins vel úr þínum
spilum og hægt var. Áhrifin sem
þú hafðir á alla sem heyrðu af
sögu þinni voru einstök. Hvort
sem menn voru að takast á við
erfiðleika í lífinu eða klífa hæstu
fjöll jarðar, þá ýttir þú mönnum
áfram í þeim verkefnum einfald-
lega með því að vera til.
Ég hef fylgst með pabba þín-
um og mömmu þinni takast á við
það yndislega hlutverk að fá að
vera foreldrar þínir. Þú getur
verið viss um það að enginn hefur
verið heppnari með foreldra en
þú. Væntumþykjan og kærleik-
urinn sem þau sýndu þér var ein-
stakur og algjör. Í hvert sinn sem
ég kom á heimilið ykkar þá fann
ég fyrir væntumþykjunni í þinn
garð. Það var ljúft að sjá þig
þroskast á þessu ári og verða að
þeim mikla karakter sem þú
varst. Það skein í gegn prakk-
arasvipurinn á þér og þú elskaðir
að fá athygli. Það var bæði ljúft
og gaman að veita þér athygli.
Ég mun geyma minningar um
kaffistundir með þér og pabba
þínum að eilífu í hjartanu mínu.
Einstakar stundir með ein-
stökum feðgum sem mér þykir
svo vænt um. Elsku Theodór
minn, takk aftur fyrir að hafa
verið til og hvíldu í friði, elsku
kall.
Þinn vinur,
Haraldur (Halli).
Elsku fallegi Theodór Máni, á
þessari kveðjustund langar mig
til að þakka þér fyrir allt það
góða sem þú skilur eftir þig.
Þakka þér fyrir að hafa kennt
mér að vandamálin sem okkur
flestum hefur fram til þessa þótt
afar stór eru í raun svo agn-
arsmá. Mig langar að þakka þér
fyrir að hafa kennt mér að meta
enn betur hversdagsleikann með
börnunum mínum og eins fyrir
að hafa kennt mér að meta hluti
sem mér hefur hingað til þótt
minna spennandi. Mamma þín og
pabbi eru einstaklega lánsöm að
hafa fengið að umvefja þig með
kærleik og hlýju og þú ekki síður
lánsamur að vinna þau í foreldra-
lottóinu. Þið fjölskyldan hafið
kennt okkur öllum hvernig á að
takast á við lífið, þið þrjú hafið
gert mig og mína að betri mann-
eskjum.
Elsku Theodór, ég mun muna
eftir þér um ókomna tíð sem yf-
irveguðum og brosmildum
prakkara með hjarta sem bræddi
alla í kringum sig. Ég mun minn-
ast þín við börnin mín þegar þau
hafa aldur til og koma boðskapn-
um þínum áfram.
Elsku vinir, Anna Gréta og
Fannar, og aðrir aðstandendur,
ég votta ykkur mína dýpstu sam-
úð.
Inga Jóna og fjölskylda.
Elsku fallegasti prakkaragull-
molinn minn.
Takk fyrir að hafa haft mig
með í fallega og einstaka ferða-
laginu þínu.
Takk fyrir allar næturnar sem
ég fékk að halda utan um þig,
hugga þig og elska. Takk fyrir öll
brosin og þitt einstaka augnaráð
sem bræddi mig í hvert einasta
sinn.
Það er magnað að hugsa til
þess hversu snemma við tengd-
umst og örlögin höguðu því þann-
ig að ég gat án umhugsunar tekið
þátt í að annast þig og átt svo
yndislegar og innihaldsríkar
stundir með þér, flestar að næt-
urlagi. Það kom ekki annað til
greina af minni hálfu en að það
skyldi vera ég, Sossa frænka,
sem myndi vaka yfir þér á nótt-
unni svo mamma og pabbi gætu
hvílst. Næturnar okkar voru
dásamlegar og aðalástæðan var
meðal annars hversu ótrúlega
vær og góður þú varst þrátt fyrir
veikindi þín. Ég hef aldrei orðið
vitni að öðru eins væru og góðu
ungbarni. Uppáhaldstíminn minn
var þegar þú vaknaðir og brostir
þínu fallega brosi og augun þín
glitruðu. Alltaf svo glaður og kát-
ur og til í daginn og spenntur
hvort það yrði mamma eða pabbi
sem yrðu fyrst að vakna í knús.
Ég verð ávallt þakklát mömmu
þinni og pabba fyrir traustið og
tækifærið að fá að vera partur af
ykkar fallega ferðalagi.
Það að þú hafir valið Önnu og
Fannar sem foreldra þína var
einstaklega gott val, það hvað
þau hafa staðið sig eins og hetjur
í ferðalaginu þínu er svo sann-
arlega aðdáunarvert. Við ættum
öll að taka foreldra þína til fyr-
irmyndar. Þau eru engu síður
heppin að hafa eignast þig, elsku
kraftaverkastrákinn sem fékk
alla til að stoppa, hugsa og leggj-
ast á eitt. Átta sig á að lífið er
brothætt og vant með farið. Þú
kenndir okkur að það borgar sig
að nýta tímann vel með þeim sem
við elskum og vera jákvæðari út í
lífið. Þú hafðir áhrif á alla sem af
þér vissu og það mun fylgja okk-
ur alla tíð. Börnin mín ljómuðu af
gleði þegar þú komst til tals og
tala nú ekki um öll facetime-sím-
tölin okkar þar sem við hrúguð-
umst fyrir framan símann til
þess að spjalla um allt og ekki
neitt. Þú varst uppáhaldið okkar
allra og það að börnin mín þyrftu
að lána mömmu sína var nú lítið
mál, því þau skildu þig enda ertu
einn af þeim.
Svo ég vitni nú í Garðar: „Vá
hvað þú ert heppin að fá að vera
svona mikið með honum,
mamma.“
Elsku Theodór Máni minn, nú
er hafið nýtt ævintýri hjá þér og
mig langar að þú skilir kveðju til
allra minna og þinna sem ég veit
að bíða spennt eftir að fá að hitta
þig og umvefja þig af ást og um-
hyggju.
Elska þig.
Soffía Tinna
Gunnhildardóttir
(Sossa frænka).
Elsku Mánaljúfur
Þú sem gafst okkur gleði
Þú sem gafst okkur ljós
Þú sem með hlátri gafst okkur hrós
Þú sem umvafðir mömmu
Þú sem gafst okkur kjark
Þú sem brostir hringinn þegar pabbi
kom í mark
Litli engill á himnum
uppi í tunglinu nú
Ljósálfur litli
við biðjum í trú
að allar góðar vættir þig geymi
og vel þig dreymi
Komið er að kveðjustund
Þú farinn ert á englafund
Við lofum þér að standa best
við bakið á þeim sem þú elskaðir mest
Litli Mánaljúfur, litla kraftaverk
lífið það er furðuverk
Tjarnardætur,
Álfheiður, Guðný, Heiðrún,
Lena, Linda, Magnea, Matt-
hildur, Sara, Sigríður, Snæ-
dís, Stefanía og Stella.
Elsku Theodór Máni. Nú ertu
floginn handan stjarnanna á vit
nýrra ævintýra.
Það er með miklum söknuði en
fyrst og fremst þakklæti fyrir
okkar stuttu og mjög svo dýr-
mætu kynni, sem við skrifum
þessi orð til þín á þessum erfiða
en fallega degi. Þó að tími þinn
sem þú hafðir hér hjá okkur hafi
verið alltof stuttur þá hefur hann
kennt svo mörgum margt fallegt
um lífið og tilveruna og skilið eft-
ir sig svo dýrmætar minningar
sem munu fylgja okkur öllum
áfram um ókomna tíð.
Það er nú orðið okkar hlutverk
að varðveita þessar fallegu minn-
ingar og segja Kristjáni Þóri sög-
ur af stóra og hugrakka vini sín-
um. Eins og mamma þín skrifaði
svo fallega til Kristjáns þegar
hún skilaði lítilli kveðju frá þér,
að þegar tíminn kemur þá munið
þið leika ykkur saman í fallegum
og skemmtilegum draumum. Svo
eftir mörg, mörg ár munið þið
loksins hittast aftur í Nangijala
og halda áfram ykkar ævintýrum
þar.
Elsku snúður. Við erum alveg
viss um að þarna hefur hún rétt
fyrir sér. Við munum hittast ein-
hvern tímann aftur og þá verða
gleðistundirnar margar.
Elsku Anna Gréta og Fannar.
Missir ykkar er mikill. Hugur
okkar er hjá ykkur og ykkar nán-
ustu. Megi ljósið hans Theodórs
Mána umlykja ykkur á þessum
erfiðu tímum og um framtíð alla.
Már, Ásta Hrönn og
Kristján Þórir.
Elsku Theodór. Þegar besta
vinkona mín tilkynnti mér þær
gleðifréttir að von væri á barni
var ómögulegt að ímynda sér þá
sögu sem á eftir fylgdi. Sagan er
fallegasta saga sem hefur verið
sögð. Hún er sagan af þér. Þegar
við fengum fréttirnar af veikind-
um þínum hefði ég ekki getað
trúað að slíkar fréttir, þau veik-
indi og verkefni sem þér og for-
eldrum þínum voru falin gætu
einkennst af slíkri gleði og feg-
urð. Ég skil það núna, því það
voru einmitt þeir eiginleikar sem
einkenndu þig. Tilvera þín
breytti heiminum til hins betra.
Þegar ég sá þig fyrst, litla
strákinn með fallegasta persónu-
leikann og bjartasta brosið (al-
veg í stíl við hárið), breyttist allt,
vonleysi breyttist í þakklæti. Þú
fylltir rýmið sem þú varst inni í.
Þú fylltir það af einhvers konar
ró í bland við gleði. Þessi eig-
inleiki fylgdi þér hvert sem þú
fórst og ég gat aldrei beðið eftir
að koma í morgunkaffi í Gnoð-
arvoginn. Drekka góðan kaffi-
bolla, horfa á teiknimyndir með
öðru auganu og á þig með hinu.
Þú varst góður, fyndinn og
skemmtilegur. Þú varst líka
miklu eldri en eins árs í þér. Þeg-
ar þið Óskar sonur minn hittust
fyrst vissir þú strax að þú varst
eldri og vitrari strákurinn í þessu
vinasambandi. Þú lánaðir honum
leikföngin þín og stólinn þinn,
horfðir svo fallega á hann og
hélst í höndina á honum. Þú pass-
aðir hann svo vel og ég veit að þú
munt áfram gera það. Ég fékk
fleiri samverustundir og fleiri
tækifæri til þess að læra af þér
en ég hélt að ég myndi fá. Þú
kenndir mér hvað æðruleysi er í
raun og veru, þú kenndir mér að
staldra við, vera betri móðir og
vega og meta hvað það virkilega
er sem skiptir máli í lífinu. Þú ert
mikilvægasti kennari sem ég hef
átt.
Þú sýndir mér líka hversu
stórkostlega vini ég á, mömmu
þína og pabba. Þau búa yfir ótrú-
legum styrk og hugarfari, og
engin orð fá lýst nægilega vel að-
dáun minni á þeim. Saman mynd-
uðuð þið fjölskyldu sem lagt hef-
ur einhvers konar viðmið fyrir
okkur hin. Að fylgjast með Önnu
Grétu og Fannari í gegnum þetta
ár hefur verið vægast sagt
óraunverulegt, að geta kallað þau
vini sína er mikill heiður. Það er
ekki síst þeirra vegna sem þessi
saga er svo falleg. Þú valdir þér
bestu foreldra sem nokkur getur
eignast og í staðinn fengu þau
besta son sem nokkur getur
ímyndað sér.
Elsku Theodór, ég sakna þín
og mun gera það um ókomna tíð.
Þegar sorgin brýst fram og erfitt
er að horfast í augu við hversu
óréttlátt það er að þú hafir verið
tekinn frá okkur, að börnin mín,
jafnaldrar þínir, fái ekki að kynn-
ast þér betur, leika við þig og
læra af þér, mun ég hugsa um
orðin þín, „vertu glaður“. Ég
mun leggja mig fram við að
kenna þeim það sem þú kenndir
mér og þakka fyrir þann tíma
sem við fengum með þér. Þú ert
eins og máninn, bjartur og fal-
legur og aldrei langt undan.
Í þér fann ég ró og brotsjó. Þú varst lit-
rófið allt heitt og kalt, já huggun þegar
allt var orðið svart, ljósa ljósa ljós … að
hugsa til þín, það gerir mér gott, ég
finn styrk í því, þó þú sért farinn á
brott.
(Mugison)
Þín vinkona,
Edda.
MINNINGAR 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021
✝
Þóra Jónsdóttir
fæddist í Hvíta-
nesi í Kjósarhreppi í
Kjós 18. september
1938. Hún lést á
heimili sínu 6. októ-
ber 2021.
Foreldrar hennar
voru Helgi Jónsson,
f. 1896, d. 1974,
bóndi í Hvítanesi í
Kjós, síðar í Blöndu-
holti í Kjós, og Lára
Sigmunda Þórhannesdóttir, f. 1897,
d. 1978. Þóra var yngst sinna systk-
ina en þau eru: Helgi, f. 1935, Her-
dís, f. 1937, og Björg, f. 1938 (látin).
Samfeðra systkin: Guðrún Helga, f.
1921, d. 1974, Sigurjón Marteinn, f.
1922, d. 1956. Sammæðra systkin:
Þór Axel, f. 1922, d. 1985.
Þóra giftist Hauki Bergmann, f.
22.5. 1932, d. 16.9. 2013, frá Fugla-
vík á Miðnesi hinn 18.10. 1958. For-
eldrar hans voru Sigurður Magnús
Bergmann, f. 1880, d. 1965, og Vig-
dís Sigurðardóttir, f. 1891, d. 1960.
Mestan sinn búskap bjuggu þau að
Faxabraut 35 í Keflavík en fluttu
árið 2004 að Vallarbraut 6, Njarð-
vík. Synir Hauks og Þóru eru: 1)
Haukur Þór, f. 1959,
d. 2017, eftirlifandi
eiginkona hans er
Aðalheiður Krist-
jánsdóttir, f. 1963.
Börn þeirra: Krist-
ján Haukur, f. 1992
(andvana fæddur),
Halldóra Rún, f.
1993, Þóra Lilja, f.
1995, og Hekla Lind,
f. 1999. 2) Sigurður,
f. 1961, kona hans er
Sólveig Steinunn Guðmundsdóttir,
f. 1961. Börn þeirra: Guðmundur
Sævar, f. 1985, Axel Þór, f. 1994,
Sindri Freyr, f. 1998.
Þóra ólst upp í sveit. Hún fædd-
ist í Hvítanesi í Kjós en fjölskyldan
flutti þaðan vegna hernaðar-
umsvifa Breta sem reistu mikla
flotastöð í Hvítanesi á stríðsárun-
um. Þaðan flutti fjölskyldan yfir í
Blönduholt í Kjós sem síðan varð
æskuheimili Þóru. Þóra vann versl-
unarstörf stóran hluta ævi sinnar.
Lengst af í álnavöruversluninni Ál-
nabæ í Keflavík.
Útför Þóru fer fram frá Kefla-
víkurkirkju í dag, 21. október 2021,
og hefst athöfnin kl. 13.
Elsku mamma, hvað ég sakna
þín.
Í minningunni var alltaf líf og
fjör á Faxabrautinni í Keflavík
þegar ég var að vaxa úr grasi.
Margir krakkar og allir að leik ut-
andyra jafnt að vetri sem sumri og
langt fram á kvöld. Á þeim árum
var Keflavík útgerðarbær sem
stóð undir nafni. Stór hluti íbúa
bæjarins voru fjölskyldur sjó-
manna. Þannig var það alla vega í
því bæjarhverfi sem fjölskyldan
okkar hafði komið sér fyrir í. Mikil
tengsl og vinskapur var milli fjöl-
skyldna og oft mikið fjör. Margar
skemmtilegar minningar á ég frá
frá þeim tíma. Ég man að meðan
pabbi var til sjós sá mamma um
allt heimilishaldið og það með
þessum líka myndarskapnum.
Mamma sá til þess að við bræður
fengjum nóg að borða og lagði tals-
verða áherslu á að við værum
sæmilega tilhafðir. Enda var
mamma sjálf hin glæsilegasta
kona. Hávaxin, spengileg og alltaf
vel tilhöfð. Hún lagði alla tíð mikla
áherslu á að viðhalda góðri heilsu.
Var mikið fyrir útivist og hreyf-
ingu. Stundaði göngur og synti
nánast daglega.
Mamma hafði mikið yndi af því
að sinna æðarvarpinu í Fuglavík á
meðan pabbi var á lífi en þau áttu
það til að eyða sumarfríum sínum
þar en Fuglavíkin var æskuheimili
pabba og er enn í eigu ættarinnar.
Að sama skapi átti Kjósin sterkar
rætur í hjarta mömmu enda fædd
þar og uppalin. Samskipti hennar
við systkini sín voru alla tíð mjög
náin og minnist ég margra heim-
sókna til móðursystkina minna
sem drengur.
Þegar fjölgaði í fjölskyldum
okkar bræðra fékk mamma titilinn
„Lilla amma“. Strákarnir mínir
hlökkuðu alltaf til að fara í heim-
sókn til ömmu og afa í Keflavík og
láta dekra aðeins við sig. Enda er
fátt betra en nýbakaðar pönnukök-
ur. Hvort heldur upprúllaðar í
sykri eða með rjóma og sultu.
Samband okkar mömmu var
alltaf náið og studdum við hvort
annað á erfiðum tímum eins og í
veikindum og við andlát pabba.
Síðan þegar Haukur bróðir féll frá
langt um aldur fram var gott að
eiga mömmu að til að takast á við
sorgina.
Mamma sýndi ótrúlegt æðru-
leysi þegar hún fyrir skömmu
greindist með illvígan sjúkdóm og
háði kjarkmikla baráttu við sjúk-
dóminn en á síðustu vikum var eins
og þrekið og lífskrafturinn sem alla
tíð hafði einkennt mömmu færi sí-
fellt þverrandi. Mamma kvaddi svo
þannan heim á heimili sínu 6. októ-
ber sl.
En eins og eftir fráfall pabba og
svo Hauks bróður þá heldur maður
í fallegar minningar umfram allt
annað og af þeim er nóg að taka
þegar horft er um öxl í lífi mömmu.
Enda átti ég bestu mömmu í heimi.
Þinn sonur,
Sigurður.
Ég finn fyrir þakklæti og hlýju
þegar ég minnist hennar Lillu
frænku. Hún hefur verið hluti af
lífi mínu alltaf. Hún var litla systir
hennar mömmu en um leið eins og
stóra systir mín. Hún var bara tíu
árum eldri en ég og þær tvíbur-
arnir Lilla og Bogga og líka Dídí
systir þeirra hnoðuðust með mig
og pössuðu mig, léku við mig. Ég
man þær að syngja og spila á gítar
inni í herbergi í Blönduholti, segja
brandara og hlæja, tjútta og dansa
frammi í stofu svo að gólfið dúaði.
Allar svo glaðar og orkumiklar.
Ég man þegar þau Haukur trú-
lofuðust og hamingjan geislaði af
henni. Seinna var hún hjá okkur á
Vesturbrúninni meðan hún var í
Húsmæðraskólanum að læra að
vera húsmóðir.
Ég fór oft um helgar suður eftir
og passaði strákana þeirra eða var
bara hjá henni. Það var gott að tala
við hana. Hún hughreysti mig þeg-
ar mamma veiktist og ef ég þurfti
góð ráð hringdi ég til hennar. Við
gátum spjallað tímunum saman
um allt mögulegt. Hún var svo
glæsileg og alltaf smekklega
klædd, alger skvísa.
Hún var vinkona mín og trún-
aðarvinur, alltaf glöð, jákvæð og
brosandi. Ég á eftir að sakna henn-
ar sárt.
Takk fyrir allt elsku Lilla mín.
Herdís J. Skarphéðinsdóttir
(Heddý).
Þóra Jónsdóttir
Útför í kirkju
Hvernig á að
standa að undir-
búningi útfarar?
utforikirkju.is
Sálm. 14.2
biblian.is
Drottinn horfir á
mennina af himnum
ofan til þess að sjá
hvort nokkur sé
hygginn, nokkur
sem leiti Guðs.