Morgunblaðið - 21.10.2021, Side 52
52 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021
✝
Svanhildur
Gestsdóttir
fæddist í Reykjavík
7. mars 1930. Hún
lést á Dvalarheim-
ilinu Grund í
Reykjavík 14. októ-
ber 2021. Foreldrar
hennar voru Gestur
Pálsson lögfræð-
ingur og leikari og
Dóra Þórarinsdótt-
ir húsmóðir.
Foreldrar Gests voru Svan-
hildur Jörundsdóttir og Páll
Bergsson frá Hrísey.
Foreldrar Dóru voru Þór-
arinn B. Þorláksson listmálari
og Sigríður Snæbjarnardóttir.
Systkini hennar eru: Sigríð-
ur, f. 30.6. 1926, d. 3.3. 2000,
maki Guðgeir Þórarinsson, lát-
inn, eiga þau eina dóttur. Páll,
27.9. 1931, d. 29.6. 1986, eftirlif-
andi maki Gunnþóra Jónsdóttir
börn. Afkomendur eru alls orðn-
ir 39.
Svanhildur útskrifaðist sem
gagnfræðingur frá Ingimars-
skóla 1948 og réðst til starfa hjá
Olíuverslun Íslands (Olís ) þar
sem hún starfaði þangað til hún
giftist eftirlifandi eiginmanni
sínum.
Svanhildur og Þórarinn Elm-
ar bjuggu á Víðimel fyrstu hjú-
skaparárin, fluttu svo að Rauða-
læk þar sem þau bjuggu í 12 ár
er þau byggðu sér hús í Árbæn-
um. Síðustu árin hafa þau búið á
Sléttuvegi 15 í Reykjavík.
Svanhildur starfaði fyrst og
fremst sem húsmóðir og uppal-
andi fimm barna en einnig starf-
aði hún við hlið eiginmanns síns
að uppbyggingu og rekstri Sjó-
klæðagerðarinnar 66 Norður
þar sem hún meðal annars starf-
aði við verslunina Kápuna á
Laugavegi. Þá starfaði Svan-
hildur sem sjálfboðaliði hjá
Rauða krossinum og virkur fé-
lagi í Kvenfélagi Árbæjarkirkju.
Svanhildur verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni í Reykjavík í
dag, 21. október 2021, klukkan
13.
og eiga þau tvö
börn. Eva, f. 1.12.
1942, maki Fjölnir
Björnsson, látinn,
og eiga þau tvær
dætur.
Svanhildur gift-
ist Þórarni Elmari
Jensen fram-
kvæmdastjóra 22.
júní 1951. Börn
þeirra eru: 1) Gest-
ur Már, f. 4.11.
1951, maki Elín Dóra Baldvins-
dóttir og eiga þau fjögur börn.
2) Þórarinn Einar, f. 1.1. 1954,
maki Phaitoon Inkaew og eiga
þau þrjú börn. 3) Elín Dóra, f.
22.9. 1956, maki Vilhjálmur
Kjartansson og eiga þau fjóra
syni. 4) Svanhildur, f. 14.4. 1959,
maki Björn Karlsson og eiga
þau þrjú börn. 5) Markús Örn, f.
28.5. 1962, maki Guðlaug Katrín
Þórðardóttir og eiga þau fjögur
Ástkær móðir okkar er fallin
frá.
Söknuðurinn er mikill og
kveðjustundin afar erfið, en eftir
standa endalausar ljúfar minning-
ar af hjartahlýrri yndislegri móð-
ur, sem var ekki bara móðir okkar,
heldur líka besti vinur og sálu-
félagi allt lífið.
Við töluðumst við á hverjum
degi, hún var ráðagóð, skilnings-
rík og ljúf persóna.
Mamma helgaði líf sitt fjöl-
skyldunni af mikilli ást og um-
hyggju.
Pabbi og mamma voru sam-
stiga og einlæg alla tíð, áttu 70 ára
hjónaband að baki í ár.
Alltaf var heimili mömmu og
pabba opið og allir velkomnir, og
þegar einhver af systkinunum
höfðu hrúgast inn í sunnudags-
kaffi með börnin, og ef einhvern
vantaði í hópinn, hringdu þau
gjarnan og spurðu: hvað, eruð þið
ekki að koma? Það vantar bara
ykkur.
Hugurinn leitar gjarnan til
bernsku okkar, fyrst á Rauðalæk,
svo í Árbæinn, nýtt hverfi sem
okkur þótti vera úti á landi til að
byrja með.
Við fluttum í götu með 20 hús-
um, mamma var félagslynd kona,
hógvær og vinsæl og eignaðist hún
góðar vinkonur í götunni og stofn-
uðu þær saumaklúbb sem þær
héldu í langan tíma, einnig gekk
hún í kvenfélagið í hverfinu, og
alltaf boðin og búin að hjálpa við
starfsemi þar, sérstaklega í tertu-
bakstri. Hún var alltaf til í að baka
fyrir kvenfélagið, enda bakaði hún
bestu kökur í heimi.
Einnig hélt mamma alltaf góðu
sambandi við æskuvinkonur sínar,
Nínu, Ásthildi, Eddu og Erlu og
héldu þær góðu sambandi alla tíð.
Þá er ættarbústaður mömmu
og fjölskyldu hennar á Laugar-
vatni ofarlega í minni, þar sem við
áttum yndislegar samverustundir
og þá sérstaklega með systrunum
Siggý og Evu og þeirra fjölskyld-
um, fórum iðulega í sund og gufu
og í leiki á túninu góða og héldum
kvöldvökur með spurningakeppn-
um o.fl. Þær systur eyddu ótal
helgum og sumarfríum saman
þar.
Þá ferðuðust mamma og pabbi
talsvert og þá gjarnan með Siggý
systur mömmu og Guðgeiri, henn-
ar manni, og voru þær systur
miklar vinkonur. Það var mömmu
afar erfitt þegar hún féll frá fyrir
21 ári. Eva litla systir mömmu og
Dóra dóttir Siggýjar hafa líka
staðið mömmu mjög nærri með
einstakri ást og umhyggju og
heimsóttu hana allar vikur á
Grund.
Mamma elskaði að hóa fólki
saman jafnt vinum sem fjölskyldu
og halda upp á tyllidaga, afmæli,
brúðkaupsafmæli o.fl. Hún var
einstaklega geðgóð og jákvæð
manneskja sem vildi öllum vel.
Mömmu þótti endalaust gaman
að vera með okkur systrum (kall-
aði okkur gjarnan 3 little sisters),
fara með okkur í bæinn, upp í
sumarbústað eða í frænkuhitting
sem voru alltaf reglulegir og
skemmtilegir.
Mamma var líka yndisleg
amma og vinsæl hjá barnabörnun-
um, þau voru fjársjóður lífs henn-
ar.
Hún og pabbi sýndu þeim mik-
inn áhuga, á öllu starfi sem þau
sinntu hverju sinni og hvöttu þau
til dáða.
Allir strákarnir okkar systkina
stunduðu fótbolta á einhverjum
tímapunkti og var mamma ekki
síður en pabbi að fylgjast með
boltanum.
Elsku mamma, við erum þakk-
látar fyrir að hafa átt þig að og
munum endalaust sakna þinnar
nærveru.
Guð blessi þig, elsku mamma,
og hvíl þú í friði.
Þínar dætur,
Elín Dóra og Svanhildur.
Í dag kveð ég elskulega móður
mína. Þið pabbi bjugguð okkur
systkinunum yndislegt heimili
sem var okkar skjól og öryggi um-
lukt mikilli ást og umhyggju. Var
oft mikið líf og fjör á fjölmennu
heimilinu. Þú varst stoð mín og
stytta í lífinu frá því ég man fyrst
eftir mér og verður mér af því til-
efni hugsað til bernskuáranna á
Rauðalæknum. Við bræðurnir
með ýmis handhæg verkfæri í vas-
anum til að fullnægja athafnaþörf
ungra ofurhuga, enda sáust vegs-
ummerkin víða af yfirferð okkar.
Þetta var fyrir tíma skipulegra
leikskóla, tölvuleikja, barnasjón-
varps og annars slíks afþreying-
arefnis. Kom það síðan í verka-
hring ykkar pabba að semja við
nágranna og önnur fórnarlömb.
Kom þá þitt góða skap og jafn-
aðargeð sér vel, sem þú varst svo
ríkulega gædd. Með aldrinum,
þegar ég öðlaðist meiri ábyrgðar-
tilfinningu og var farinn að huga
að því hvað ég vildi verða í lífinu,
hvattir þú mig ætíð til dáða og sást
alltaf jákvæðar hliðar mála hvað
sem á dundi.
Þið pabbi voruð svo frábært
tvíeyki sem aldrei bara skugga á.
Þú varst hans sterki bakhjarl sem
sá um heimilishaldið á tímum þeg-
ar hann vann langan vinnudag við
að byggja upp sitt fyrirtæki. Kom
það sér þá vel að þú varst alltaf svo
jákvæð og hafðir yndi af því að
bjóða fjölskyldu og vinum heim og
halda góðar veislur til andlegrar
upplyftingar. Þessa nutu líka er-
lendir viðskiptavinir sem heim-
sóttu 66°N og kom þá aldrei annað
til greina en alíslenskur matur,
oftast lambalæri eða –hryggur eða
lax. Það voru matarboð sem voru
rómuð lengi á eftir þegar maður
hitti gestina mörgum árum seinna.
Þú varst líka svo klár, kenndir
okkur börnunum að tefla skák og
lést okkur vinna svo við gæfumst
ekki upp. Þegar skákáhugi okkar
og færni jókst dróst þú þig smám
saman í hlé, sennilega af tillitssemi
við okkur og meðfæddu lítillæti,
en seinna áttuðum við okkur á að
þú varst miklu betri en þú vildir
vera láta. Þú varst líka svo mikil
félagsvera og naust þess að vera
virk í störfum fyrir Kvenfélag Ár-
bæjar og vannst í sjálfboðavinnu
við Rauða krossinn til margra ára.
Elsku mamma, það var erfitt að
fylgjast með hvernig heilsufari
þínu hrakaði smám saman síðustu
þrjú árin og þurfa að fara frá
pabba af Sléttuveginum á hjúkr-
unarheimili Grundar. Erfiðast
hefur það þó verið fyrir ykkur
bæði þar sem þið voruð alltaf svo
samrýnd. Þrátt fyrir það hélst þú
alltaf þínu góða skapi og hristir af
þér hvert áfallið af öðru. Þó að
skammtímaminnið væri orðið lítið
mundir þú vel ungdómsárin þín
sem þú fræddir okkur stöðugt um.
Gaman að sjá hvernig þú hélst
pjattinu alveg undir það síðasta,
vildir alltaf vera vel tilhöfð, varalit-
uð í flottu dressi með slæðu þegar
þú fórst niður í kaffi og mat að
hitta fólkið. Þá gat ég alltaf fengið
þig til að brosa og hlæja með því
að segja þér að ég yrði 70 ára á
árinu, það fannst þér alltaf jafn
fyndið og ótrúlegt.
Með þakklæti í hjarta kveðjum
vil Ella Dóra þig og biðjum að
heilsa afa og ömmu og þeim tveim
yndislegu systkinum þínum sem
yfirgáfu okkur allt of snemma.
Guð blessi þig.
Gestur Már Þórarinsson og
Elín Dóra Baldvinsdóttir.
Elsku besta amma mín ég kveð
þig með söknuð í hjarta. Ég er svo
þakklát fyrir allar góðu stundirnar
sem ég hef átt með þér í gegnum
tíðina. Allar góðu minningarnar úr
Glæsibænum og svo síðar á Sléttu-
vegi. Þú tókst alltaf á móti manni
með hlýju og bros á vör. Ég man
sérstaklega vel eftir því þegar ég
var lítil stelpa og ég og Svanhildur
systir vorum stundum í pössun hjá
þér og afa. Þá fengum við alltaf að
skoða allt fallega skartið þitt og
máta stóru klemmueyrnalokkana
þína, fallegu hálsmenin og skoða
allt snyrtidótið. Þetta fannst okk-
ur systrum sko aldeilis spennandi
og skemmtilegt og dönsuðum um
með perlufestar og stóra klemmu-
eyrnalokka. Þú varst alltaf svo fín,
falleg og vel tilhöfð elsku amma
mín. Þú varst mikil félagsvera og
ófá fjölskylduboðin sem þú hélst
enda skiptu fjölskylduböndin þig
miklu máli. Það hef ég ávallt reynt
að tileinka mér og jákvæðni þína.
Þú varst með mikið jafnaðargeð,
jákvæð og alltaf stutt í hlátur. Mér
finnst ég ennþá heyra hlátur þinn
og gleði. Minningarnar eru svo
margar og mér svo dýrmætar. Þú
varst alveg einstök kona elsku
amma mín og þín verður sárt
saknað. Þú kvaddir þennan heim
umvafin ást og kærleika.
Hvíldu í friði elsku amma mín.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Þín sonardóttir,
Kristjana Rán.
Elsku amma Svana. Þegar ég
lít yfir farinn veg er ég svo inni-
lega þakklátur fyrir að hafa átt þig
að. Og svo stoltur af því að hafa
fengið að eiga þig sem mína helstu
fyrirmynd. Þú áttir svo mikið í
mér. Alltaf varstu svo góð og með
þitt einstaka jafnaðargeð og þol-
inmæði vafðir þú þínum kærleik
um fólkið þitt, svo nægjusöm og
reglusöm. Það var þér eðlislægt að
láta þér annt um velferð annarra,
ekki bara þinna nánustu, eins og
Rauði krossinn fékk að kynnast í
gegnum sjálfboðavinnu þína, bæði
á Grensás og Landspítalanum.
Á kveðjustundum lifna minn-
ingarnar við og þær eru ótalmarg-
ar og sterkar. Ég var með þér
þegar þú fótbrotnaðir á tröppun-
um í hálkunni heima í Glæsibæn-
um. Ég var pínulítill patti, líklega
fjögurra eða fimm ára, en sú minn-
ing hefur alltaf fylgt mér ljóslif-
andi skýr. Ég minnist þess með
hlýju þegar ég varð loksins nógu
gamall til að taka strætó einsam-
all. Þá gat ég lagt leið mína til ykk-
ar afa í Árbæinn þegar mér hent-
aði, gist hjá ykkur, og fengið að
njóta umhyggju þinnar og athygli.
Það voru mikil forréttindi.
Seinna þegar ég fór að vinna
hjá fyrirtæki ykkar afa kom ég oft
heim í hádeginu í mat. Á borðum
var skyr og rúgbrauð með síld.
Ömmumatur í Glæsibæ var eng-
um líkur. Þú varst alltaf til staðar
fyrir mig og með þínum gildum og
fallegu lífsviðhorfum kenndir þú
mér svo margt sem ég skil betur í
dag. Á sama tíma og mér finnst
sárt að kveðja þig finnst mér gott
að þú hafir loks fengið þína hvíld
eftir að hafa tekist á við þann
vægðarlausa sjúkdóm sem alz-
heimer er. Þú áttir orðið erfitt með
að þekkja þína nánustu og hélst
ítrekað að ég væri sonur þinn en
ekki dóttursonur. Á ákveðinn hátt
þótti mér vænt um það þó svo að
það væri oft erfitt að heimsækja
þig í þínu ástandi síðustu árin.
Elsku amma, þú varst mér stoð
og stytta og afkomendum þínum
og fjölskyldu allri til mikils sóma.
Þú stóðst þína vakt og áttir við-
burðaríka og fallega ævi. Ég kveð
þig í dag með djúpu þakklæti.
Hvíldu í friði sterka kona.
Þinn dóttursonur,
Elmar Freyr.
Elskuleg amma mín er nú fallin
frá. Betri ömmu var ekki hægt að
hugsa sér og amma var kona sem
vildi allt fyrir alla gera.
Hún setti sjálfa sig ávallt til
hliðar til að hún gæti verið til stað-
ar fyrir fjölskyldu og vini.
Það var ekki til vottur af sjálfs-
elsku í elsku ömmu og aldrei
heyrði ég hana tala illa um nokk-
urn mann. Hún hafði einstaklega
góða nærveru og öllum leið afar
vel í hennar návist.
Á mínum uppeldisárum var ég
svo heppinn að eiga ömmu og afa
til staðar. Alltaf var ég velkominn
á þeirra heimili og dvaldi þar mik-
ið. Það var svo mikil ró og yfirveg-
un yfir heimilinu og sýndu þau öllu
sem ég var að fást við mikinn
áhuga. Þau reyndu líka að leið-
beina mér eftir sinni bestu vitund.
Sú leiðsögn sem ég fékk frá þeim í
ýmsum málefnum hefur komið sér
afar vel fyrir mig út í lífið.
Ég vil þakka þér fyrir allt sem
þú gerðir fyrir mig og alla fjöl-
skylduna amma mín. Þú varst í
raun stoð og stytta í lífi barna
þinna, barnabarna og auðvitað afa.
Þú kenndir mér hvað það er sem
skiptir mestu máli í lífinu. Þín
verður sárt saknað um ókomna tíð
en núna ertu komin á góðan stað á
himnum. Ég veit að þú tekur vel á
móti okkur öllum þegar okkar tími
kemur.
Að lokum langar mig að senda
þér eina af mörgum bænum sem
þú kenndir mér í æsku.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson frá Prestshólum)
Þinn dóttursonur,
Bjarni Már Vilhjálmsson.
Amma, þú hefur alltaf verið ein
af mínum helstu fyrirmyndum í
lífinu.
Jákvæð, hlý, góð og þakklát eru
orð sem einkenndu þinn einstaka
persónuleika. Þú elskaðir af öllu
hjarta og vildir allt fyrir alla gera,
auk þess varstu alltaf til staðar. Þú
kunnir svo sannarlega að for-
gangsraða og var fjölskyldan þín
alltaf númer eitt. Þá skipulagðir
þú ófáar veislurnar svo þú gætir
notið þess að vera með öllu þínu
fólki, þá var oft spilað á píanó og
sungið. Ég sé þig svo oft fyrir mér
sitjandi við píanóið og við barna-
börnin þín stóðum hjá þér og
sungum hástöfum.
Alltaf varst þú með bros á vör
og nærvera þín geislaði af hlýju og
umhyggju. Þú varst einstök elsku
amma, það eru orð með sönnu.
Þú varst svo sannarlega elskuð
fram á hinstu stund af fólkinu þínu
enda búin að kenna okkur að elska
með því að elska okkur, bæði með
gjörðum og orðum.
Takk fyrir öll þau góðu gildi
sem þú kenndir mér elsku amma,
ég mun hafa það í farteskinu út líf-
ið og takk fyrir allar góðu minn-
ingarnar okkar saman, þær munu
ylja mér um hjartarætur um
ókomna tíð.
Við sjáumst svo aftur elsku
amma þegar minn tími kemur og
þá munum við taka lagið saman.
Þín sonardóttir og nafna,
Svanhildur Anna Gestsdóttir.
Elsku besta amma mín.
Síðustu daga hefur mér mikið
orðið hugsað til Glæsibæjarins og
heyri ég í höfðinu ákveðið lag sem
þú tókst svo oft á píanóið. Það var
alltaf svo yndislegt þegar þú og afi
spiluðuð á píanóið, enda voruð þið
ástæðan fyrir áhuga mínum á að
byrja að æfa á píanó.
Ég minnist mikið með hlýju í
hjarta allra jólaboðanna í Glæsi-
bænum sem voru alltaf á jóladag
hjá þér og afa. Þú varst límið í fjöl-
skyldunni og passaðir að allir
mættu alltaf í jólaboðin því þú
elskaðir ekkert meira en að fá allt
fólkið í kringum þig samankomið.
Þú varst heldur betur rík af
börnum, barnabörnum og barna-
barnabörnum og þú gleymdir sko
aldrei afmæli hjá neinum. Maður
fékk alltaf símtal frá ömmu Svönu
á afmælisdaginn.
Þú varst hreint út sagt mögnuð
kona! Svo falleg og glæsileg alltaf,
svo ótrúlega ljúf og góð og vildir
allt fyrir alla gera. Þú varst alltaf
til staðar fyrir alla!
Mér þykir svo vænt um þig,
elsku amma mín, og það er ótrú-
lega sárt að þurfa að kveðja þig en
ég veit að þú ert komin á einhvern
miklu betri og fallegri stað og þar
mun ég hitta þig aftur þegar sá
tími kemur. Þangað til geymi ég
þig í hjarta mér og held fast í allar
fallegar minningar.
Guð geymi þig alltaf, elsku
amma mín.
Þín
Heiðrún Huld.
Elskuleg móðursystir mín er
látin. Svanhildur eða Svana
frænka, eins og ég kallaði hana,
lést á Dvalaheimilinu Grund 14.
október sl. Svana frænka hafði
glímt við erfið veikindi og hafði
lífsþróttur hennar dofnað síðustu
vikur. Takmörkun á heimsóknum
vegna heimsfaraldurs gerði illt
verra en aldrei kvartaði Svana. Þó
vitað væri að hverju dró þá er eins
og dauðinn komi okkur alltaf að
óvörum og við eigum bágt með að
sætta okkur við þessi umskipti.
Söknuðurinn er mikill.
Að leiðarlokum sækja á mig
minningarnar um Svönu mína sem
alltaf var mér svo kær. Hún lét
mér finnast eins og ég væri eitt af
hennar eigin börnum. Ég minnist
hennar sem hinnar góðu og sönnu
frænku sem hafði prúðmennsku
og góðvild að leiðarljósi í gegnum
lífið. Ég mun ávallt geyma þær
góðu samverustundir sem ég naut
í gegnum árin.
Síðustu tvö árin sem hún dvaldi
á Grund var hún alltaf glöð og
þakklát þegar ég kom í heimsókn.
Við spjölluðum mikið saman um
gamla daga og hún sagði mér sög-
ur af mér þegar ég var lítil stelpa í
heimsókn hjá henni. Það var mér
ómetanlegt að fá þessa upprifjun
af þessu æviskeiði mínu.
Guð blessi minningu elskulegr-
ar manneskju með sitt hlýja við-
mót og fallegt brosið.
Dóra Guðrún.
Svanhildur
Gestsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Elsku Svana – hjartans
þökk fyrir allt.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þín tengdadóttir,
Guðlaug Katrín
Þórðardóttir (Gulla).
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Útfararþjónusta í yfir 70 ár
Við tökum vel á móti ástvinum
í hlýlegu og fallegu umhverfi