Morgunblaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2021 57
Embætti forstjóra Landspítala
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Landspítala.
Landspítali er aðalsjúkrahús landsins og háskólasjúkrahús. Á spítalanum er veitt sérhæfð sjúkrahúsþjónusta, m.a. á göngu- og
dagdeildum, fyrir alla landsmenn og almenn sjúkrahúsþjónusta fyrir íbúa heilbrigðisumdæmis höfuðborgarsvæðisins. Nánar er
kveðið á um hlutverk hans í lögum nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu. Á Landspítala starfa á sjötta þúsund starfsmenn og er
spítalinn einn stærsti vinnustaður landsins.
Forstjóri ber ábyrgð á að Landspítali starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem heilbrigðisráðherra setur.
Forstjóri ber ábyrgð á þeirri þjónustu sem spítalinn veitir, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við lög um opinber
fjármál nr. 123/2015 og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.
Lögum samkvæmt skal forstjóri hafa háskólamenntun og/eða reynslu af rekstri og stjórnun sem nýtist honum í starfi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
1. Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi er skilyrði.
2. Reynsla af rekstri og stjórnun, þ.m.t. mannaforráð, sem nýtist í starfi er skilyrði.
3. Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði.
4. Reynsla af stefnumótun og innleiðingu nýjunga er skilyrði.
5. Skýr framtíðarsýn.
6. Þekking á sviði heilbrigðisþjónustu.
7. Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu.
8. Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
9. Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti er skilyrði.
10. Góð kunnátta í ensku og kunnátta í a.m.k. einu Norðurlandamáli.
Kostur er að umsækjandi hafi þekkingu á fjármálum hins opinbera.
Hæfni umsækjenda verður metin af hæfnisnefnd skv. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu sjá nánar á
https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=71e0916e-aa9f-4a22-861b-04ff64e3a866
Um laun forstöðumanns fer eftir 39. gr. a í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.
Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til 5 ára frá 1. mars 2022.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri, asta.valdimarsdottir@hrn.is
Umsóknir með upplýsingum um núverandi starfsheiti umsækjenda ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun, fyrri störf og afrit
af prófskírteinum skulu berast heilbrigðisráðuneytinu, í gegnum ráðningarkerfi ríkisins eða á netfangið:
hrn@hrn.is eigi síðar en 8. nóvember nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið hefur verið tekin.
Heilbrigðisráðuneytinu, 15. október 2021
Stjórnarráð Íslands
Heilbrigðisráðuneytið
Reynsla af sambærilegu starfi eða lögmannsstörfum
hjá fyrirtækjum eða hinu opinbera er æskileg.
Málflutningsréttindi eru kostur.
Starfið er krefjandi og fjölbreytt.
Á lögfræðiskrifstofunni starfa nú 20 lögmenn
og sex aðstoðarmenn.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um náms- og starfsferil
berist á netfangið grimur@landslog.is fyrir 24. október.
landslog.is
Landslög veita alla almenna lögfræði-
þjónustu fyrir fyrirtæki, stofnanir hins
opinbera og einstaklinga. Landslög
voru stofnuð þann 1. júní 1971 og
spannar saga stofunnar því meira
en fimmtíu ár. Á þeim tíma hafa
einstaklingar, opinberar stofnanir og
stór og smá fyrirtæki leitað liðsinnis
okkar.
Markmið Landslaga hefur ávallt verið
hið sama – að veita viðskiptavinum
okkar fyrsta flokks ráðgjöf og víðtæka
þjónustu.
Lögfræðistofan Landslög
óskar eftir umsóknum
um starf löglærðs fulltrúa
Sterk liðsheild í 50 árOrganisti
Sóknarnefndir Brautarholts – og Reynivallasókna
Kjalarnessprófastsdæmi auglýsa eftir organista/tónlistar-
stjóra í 30% fasta stöðu við Reynivallaprestakall frá
1. janúar 2022.
Leitað er eftir einstaklingi sem:
• Hefur metnað fyrir tónlistaþætti helgihaldsins.
• Hefur áhuga til að viðhalda og efla enn frekar öflugan
kirkjukór.
• Er tilbúinn í gott samstarf við sóknarprest prestakallsins.
Laun samkv. kjarasamningi organista hjá FÍH og
launanefndar Þjóðkirkjunnar.
Umsóknir skulu sendar rafrænt til bjorn@brautarholt.is
Umsóknarfrestur er til 1. Desember n.k.
Allar upplýsingar um starfið gefa:
Björn Jónsson formaður Brautarholtssóknar
s. 892 3042, bjorn@brautarholt.is
sr. Arna Grétarsdóttir sóknarprestur
s. 865 2105, arna.gretarsdottir@kirkjan.is
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is